Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
39
ísfirðingar kynntu sögu og atvinnuhætti staðarins undir leiðsögn
Jóns Páls Halldórssonar, með heimsóknum á minjasafnið og í
Hraðfrystihúsið Norðurtangann. Hér rabba þau við starfsfólkið
þar, biskupshjónin, herra Sigurbjörn Einarsson og frú Magnea
Þorkelsdóttir, sem heilsar þarna Elínu Árnadóttur, og séra Pétur
Sigurgeirsson vfgslubiskup og kona hans frú Sólveig Ásgeirsdótt-
ir.
Auk presta sóttu stefnuna ýms-
ir aðrir starfsmenn kirkjunnar
og guðfræðingar. Meðal þeirra
var bórhildur ólafs sem lauk
nýlega guðfræðiprófi.
Austfjarðaklerkar áttu lengsta
leið á prestastefnu. en fjöl-
menntu og einn þeirra var séra
Davíð Baldursson á Eskifirði.
Klerkar
landsins
ræddu
trúarlrf og
tilbeiðslu
Prestastefnunni 1979 varslit-
ið í Bolungarvfk 21. júní s.I. Á
níunda tug presta og annarra
starfsmanna kirkjunnar sat
stefnuna, sem tók á ýmsum
málum. Rætt var um úrræði í
áfengisvandamálum og
varðveislu fornra dýrgripa í
fslenskum krikjum. Aðaimái
prestastefnunnar var hins veg-
ar Trúarlff og tilbeiðsla, sem
fjallað var um í framsöguerind-
um og umræðuhópum.
Helstu niðurstöður umræðu-
hópanna eru sem hér segir:
Prestastefnan bendir á
mikilvægi messunnar sem
tilbeiðslu- og boðunarforms. Er
þess vænst, að við endurskoðun
helgisiðabókar, sem nú stendur
yfir, fái kirkjan messuform, er
hvetur til aukinnar þátttöku
safnaðarins. Þarf altarisgangan
að verða eðlilegur þáttur í hinni
almennu guðsþjónustu, svo og
aðrir liðir, sem felldir hafa verið
úr núverandi messuformi. Mikil-
vægt er, að kirkjulegar athafnir,
svo sem skírn, fari fram í hinni
almennu guðsþjónustu safnaðar-
ins. Undirstrikar það tengsl
heimilanna við guðsþjónustuna.
Efld verði trúfræðsla innan
safnaðanna fyrir fólk á öllum
aldri, sem tengist kristinni
trúariðkun á heimilum, sem og
við guðsþjónustur. Nauðsynlegt
er að gefa út aðgengileg fræðslu-
rit til afhendingar við ýmsar
aðstæður, t.d. nývígðum hjónum,
skírnarforeldrum, syrgjendum,
fermingarbörnum, svo og til
leiðbeiningar og örvunar
heimilisguðrækni. Einnig er
bent á mikilvægi ríkisfjölmiðl-
anna við slíka fræðslu.
Sú áhersla, sem lögð er á
mikilvægi kristins fósturstarfs á
heimilum gildir einnig um dag-
vistunarstofnanir. Kannað verði
samband kirkjunnar við þær,
hvað kristið uppeldi snertir.
Þótt hluti prestastefnu sé formlegar og alvarlegar umræður þá
gleymist ekki léttara hjal eins og sýnt er að á sér stað hjá þeim
félögum séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni í Laugarnessókn og séra
Valgeir Ástráðssyni á Eyrarbakka, en þeir eru skólabræður úr
guðfræðideild. Það setur mikinn svip á prestastefnu og hefur mikið
gildi að þar hittast starfsbræður úr hinum ýmsu landshlutum.
Yngsti og nýjasti starfsmaður
kirkjunnar er Oddur Alberts-
son sem ráðinn hefur verið
aðstoðaræskulýðsfulltrúi. Hann
hefur verið við nám í Svíþjóð
undanfarin ár í skóla þeim sem
menntar æskulýðsleiðtoga inn-
an kirkjunnar. Hann kynnti
prestum ýmsa nýja söngva og
lék hressilega undir á gftar.
Úr Eyjum kom séra Kjartan
Örn Sigurbjörnsson Eyjaklerk-
ur og hlýðir hér á fyrirlestur
Stefáns Jóhannssonar áfengis-
ráðgjafa um úrræði í áfengis-
málum.
Það er augsýnilega mikið verk að stjórna fundi um 100
starfsmanna kirkjunnar, en þarna bera biskupar
saman bækur sfnar, séra Pétur Sigurgeirsson og herra
Sigurbjörn Einarsson. Ljósmyndir: 0. Willumsen Krog.
Einn af betri hagyrðingum í prestastétt er séra
Hjálmar Jónsson á Bólstað í Ilúnavatnssýslu, fjær sést
séra Björn Jónsson á Húsavfk.
Þarna eru vinir og gamiir skólafélagar að gamanmál-
um á prestastefnu, þeir séra Pétur Ingjaldsson á
Skagaströnd og séra Grímur Grfmsson, sem er einn
margrapresta sem eru bornir og barnfæddir ísfirðingai