Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 36

Morgunblaðið - 03.07.1979, Page 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 MOBejK/ KAfp/nu ©1 GRANIGÖSLARI Hann tók sorpkvörnina og 8agði að við gætum notað grisl- inginn meðan á viðgerð stend- ur! Eigum við ekki heldur að taka þetta með hvíldum? Vona bara að þetta sé ekki fyrirboði þess að menning okk- ar líði undir lok! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Síðasta áratug hafa Claude Rodrique og Tony Priday verið iykilmenn í enska landsliðinu og fyrir Evrópumótið nú voru þeir valdir sérstaklega ( liðið áður en aðrir spilarar kepptu um sætin, sem eftir voru. í leik Englands og Austurríkis á EM 1977 náði Rodrique góðri sveiflu með frísklegum sögnum á spil vesturs hér að neðan. Hann gaf og allir voru á hættu. Norður S. D654 H. 75 T. K9754 L. D3 Vestur S. Á973 H. KG632 T. 3 L. G86 Austur S. K H. Á109 T. ÁD102 L. Á10975 „Bangsa til Grænlands” Velvakanda barst í gær eftirfar- andi hraðbréf frá Sv. Þ.: „Velvakandi góður. — Ég leyfi mér að senda þér hraðbréf vegna þeirra frétta, sem nú berast norðan af Ströndum, um að þar kunni ísbjörn að vera á rölti. — ráðherra og Náttúruverndarráð að grípa strax í taumana. — Sé nú þetta svona og nauðsyn beri til að ná dýrinu dauðu eða lifandi, vegna öryggis ferðalanga, skal það gert í þeim eina tilgangi að koma dýrinu lifandi aftur til síns um- Það er að sjá sem búið sé að slá eign sinni á bangsa þó enginn viti hvort hann náist lifandi — til að gera hann að sýningargrip í búri. Mér er spurn, hver á bangsa, ef henn er þá þar nyrðra? Það hlýtur að vera Náttúruverndarráð fyrir hönd alþjóðar, ef um einhvern eignarrétt er að ræða af hálfu íslendinga. — Því vil ég með þessum línum biðja menntamála- hverfis í Grænlandi, sé þess nokk- ur kostur.. En ekki til að einhverj- ir, sem hafa kastað eign sinni á bangsa græði á því peninga. Það er meira í anda dýravernd- unar að fyrirskipa að bangsi skuli felldur, frekar en að vera færður bak við rimlabúr því þangað á hann ekkkert erindi annað en að hljóta ömurlegan dauðdaga." Suður S. G1082 H. D84 T. G86 L. K42 Vestur Austur Pass 1 Lauf 1 Hjarta 2 Tíglar 2 Spaðar 4 Hjörtu 4 Grönd 5 Lauf 5 Tíglar 5 Hjörtu 6 Hjörtu Pass Fyrri hluti sagnanna var ákaf- lega eðlilegur. Með því að segja fyrst lauf og síðan tígla sagði Priday frá sterkum spilum með fimm Iauf og fjóra tígla og stökkið í fjögur hjörtu lofaði góðum stuðningi. Rodrique spurði þá um ása og svarið fimm lauf sagði frá engum eða þrem ásum. Ekki var vafi á hvort var og fimm tíglar var kóngaspurning. Sjálfsagt hefur Priday þóst hafa gert nóg þegar hann sagðist ekki eiga kóng en Rodrique hafði samt trú á sögnum félaga síns og sagði slemmuna. Með útspili í tígli hefði svíning þar verið nauðsynleg en norður spilaði út spaða og spilið varð auðvelt. Rodrique spilaði upp á, að laufhjónin væru skipt og fann hjartadrottninguna — 12 slagir. Á hinu borðinu opnaði austur á einum tígli og sagði tvö lauf við einu hjarta. Þrjú pöss fylgdu, T • -| -| y -j—^ j ^ Kftir Evelvn Anthonv Lausnargjald 1 Persiu 10 þetta, sagði hann. Og hann lagði hönd sína yfir hennar. Hann fann fara um sig einkar Ijúfa strauma og hann vissi að það var eitthvað gott á milli þeirra. En það trufiaði hann líka. Uann horfði á hana og hún vissi að þau hefðu þau verið ein hefði hann kysst hana. — Ég get ekki talað um það. Ekki að svo stöddu að minnsta kosti. En ég get lofað þér því að tali ég yfirhöfuð um það, geri ég það við þig. Ég held að Logan sé að gefa okkur merki. Við skulum koma. Hún stóð upp og James ýtti stólnum hennar til hliðar. Hann hallaði sér ögn að henni. — Fjandinn hirði Logan, sagði hann. í íbúðinni á einni af efri hæðunum á Torshab Road voru þrjár manneskjur. íbúðin sem var þriggja herbergja hafði verið tekin á leigu tveimur mánuðum áður af Bandaríkja- manni sem kvaðst vera að nema fornleifafræði og sagði að hann þyrfti að hafa samastað í Teher- an milli þess sem hann færi í heimsóknir og rannsóknarferð- ir niður til Persepolis. Hann var tuttugu og átta ára að aldri. hár og þreklega vax- inn með Ijóst stuttklippt hár og norrænt yfirbragð og blá augu. Nafnið sem stóð ( vegabréfinu hans var Peters. Síðustu tvö nöfnin sem hann hafði gengið undir þegar hann var við iðju sína í Evrópu voru Rauch og Glover og í Guetemala hafði hann gengið undir nafninu King. Hið eina rétta nafn hans var þekkt nafn og virt (heima- ríki hans, Cleveland, Ohio, en langt var nú liðið síðan hann hafði gengið undir því. Hann hafði ekki stigið fæti sfnum á bandaríska jörð í fimm ár. Hann vissi að FBI myndi hand- taka hann jafnskjótt og hann kæmi í nánd við heimaland sitt. Félagar hans nú voru tveir, stúlka nokkur og karlmaður, Sýrlendingur. Stúlkan sat við hlið Peters og hélt eignarréttar- lega um hné honum. Hún hafði græn augu og dökkt hár sem var undurfallegt; móðir hennar var þýzk og faðir hennar líbanskur. Hún var tuttugu og fimm ára að aldri og bar franskt vegabréf með nafninu Madeleine Labouchere með heimilisfang skráð í París. Hún hafði hitt Peters í Dublin þar sem þau höfðu setið leynilega ráðstefnu sem haldin var fyrir þá sem störfuðu fyrir innsta hring IRA. Eftir það höfðu þau slegið sér saman. Aidrei hafði neitt gerzt í lífi hennar sem jafnaðist á við það — að undan- skildri pólitískri frelsun henn- ar. Hún hafði búið með ýmsum karimönnum eins og sæmdi frjálsri konu sem leit á sig sem jafningja karla, en hún hafði aldrei verið ástfangin fyrr. Hún sat eins nálægt honum og hún gat og þau biðu þess að síminn hringdi. Klukkan var eitt eftir miðnætti og loftið í herberginu mettað af tóbaksreyk og tómir kaffibollar voru á sófaborðinu. Sýrlendingurinn, sem vann ( sendiráði lands síns sem við- skiptafulltrúi. geispaði stórum og teygði úr sér. — Það er minnsta kosti klukkutími sfðan hann hefði átt að hringja. Peters yppti öxlum. — Kannski partfíð hafi stað- ið lengur en til stóð. Þau hafa nú sitt hvað til að halda hátíð- legt. Stúlkan hallaði sér að honum og kveikti sér í slgarettu. — Þau halda það nú ekki hátíðlegt lengi, sagði hún. — Þetta er stórkostleg áætl- un, sagði Sýrlendingurinn. — En líflát hefði nú verið langtum þægilegra. — Það stöðvar þau ekki þótt Khorvan sé rutt úr vegi, svar- aði Peters. — Það hefði það eitt í för með sér að slátrarar Ardalans yrðu á hverju strái í Teheran. Það var kjánaleg hug- mynd, vinur minn, og ég fagna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.