Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 37

Morgunblaðið - 03.07.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 45 VELVAKANDI tf, SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI i^lLUdÓ£S2)iJÍJaULlL • Torfan til skammar Mig langar til að taka undir með Fr. Guðmundsdóttur sem skrifaði um Bernhöftstorfuna í Velvakanda s.l. föstudag. Sjálf er ég fædd og uppalin í Reykjavík og er komin á áttræðis- aldur. Mér finnst Berhöftstorfan hafa verið borginni og þjóðinni nógu lengi til skammar, svo og allur miðbærinn með moldarflögunum. Hvað haldið þið eiginiega að útlendingar sem vanir eru betra umhverfi halda um okkur þegar þeir koma hingað? Ég kann ekki við að þurfa að horfa á gamla læknishúsið eins og það er orðið, öll torfan hefur reyndar farið í taugarnar á mér lengi. Ég vildi því að hún yrði öll rifin, nema Listahúsið ef hægt yrði að gera við það svo vel væri. í staðinn ætti að byggja lágreist hús þar sem ferðamenn gætu fengið sér veitingar. Ég veit það að flestir Reykvík- ingar eru mér sammála, bæði yngri og eldri Gamall Reykvíkingur. • Lítum í eigin barm Ágæti Velvakandi Nú er flóttamannavanda- málið komið að okkar bæjardyrum og hinir og þessir tala með eða á móti því að Islendingar taki við nokkrum slíkum. Einn taldi sjálf- sagt að 5000 Víetnemar kæmu hingað, en hann gleymdi hvar þeir ættu að vinna, nú þegar hundruð manna eru að missa atvinnuna og þúsundir skólabarna ganga atvinnulaus. Ég held að við ættum að hug- leiða hvað norski læknirinn John Berglund segir, en hann starfar í flóttamannabúðum í Malasíu. Hann segir: Ég mun ekki ráðleggja það að senda þetta fólk til Noregs." Ástæður segir hann meðal annars vera kynþáttafor- dóma og mjög frábrugðið lofts- lag.“ Hvað þá hér hjá okkur þar sem loftslagið er mun kaldara og lifnaðarhættir gjörólíkir. Ég held að engum detti í hug að norski læknirinn segi þetta af mann- vonsku, heldur vill hann fólkinu ekkert svo illt sem að senda það hingað norður á bóginn. Hann veit að þetta fólk unir sér best í Asíu og hvergi annars staðar og hjálp til þessa vesalings fólks svo það geti hafið nýtt líf í Asíu, er eina raunverulega hjálpin. Við skulum því með glöðu geði leggja metnað okkar í það að hjálpa með öllu sem við hugsanlega getum. Það er sjálfsagt, en meðan hér ríkir atvinnuleysi og gamlir og fatlaðir eru hjálparvana í okkar eigin landi er skylda okkar að hlúa betur að þeim og að útvega fólki okkar atvinnu, þó að það sé ef til vill erfitt. Með vinsemd og virðingu V. S. BMW 218 er til sölu árgerð 1976. Ekinn 45 þús. km. Beinskiptur, sparneytinn og kraftmikill bíll í toppstandi. Upplýsingar í síma 41855 eöa á Morgunblað- inu í 10100. Þessir hringdu . . . • Kettir spilla svefnfriði Kona nokkur hringdi til Velvakanda og bar fram fyrir- spurn um það hvort fólk hefði engin réttindi er kettir eyðileggðu fyrir því blóm eða spillti svefn- friði. Sagði hún kött hafa haldið fyrir sér vöku alla nóttina áður. Kvaðst hún ekki hafa neitt á móti dýrum en vildi vita hvert hún ætti að snúa sér þegar slíkt kæmi fyrir. Velvakandi hafði samband við lögregluna í Reykjavík og fékk SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Lone Pine í Kaliforníu í vor kom þessi staða upp í skák þeirra Pauls Whitehead, Bandaríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og júgó- slavneska stórmeistarans Janos- evic. Síðasti leikur svarts var 28. ... Kd6-e5? sem gaf færi á næsta leik hvíts: 29. Hxgh6! og svartur gafst upp. 29. ... Hxg6 gengur auðvitað ekki vegna 30. f7 og eftir 29.... Hf8 30. Hg7 renna hvítu frípeðin upp. þau svör að réttindi fólks væru þau að það ætti að eiga eignir sína óáreittar og einnig að hafa svefn- frið. Ef kettir nágrannanna spilltu svefnfriði eða eyðileggðu blóm taldi lögreglan eðlilegast að snúa sér beint ti eigenda kattanna og kvarta áður en lögreglunni væri blandað í málið. Væri slíkt ekki fyrir hendi gæti fólk haft sam- band við lögregluna. Hins vegar ef um villiketti væri að ræða ætti fólk að snúa sér til manns hjá borginni sem sér um að lóga slíkum köttum. • Ý mir í versl- anir að nýju Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri Mjólkursamsölunnar hringdi vegna fyrirspurnar í Velvakanda s.l. föstudag um það hvers vegna Ymir hafi ekki verið á boðstólum upp á síðkastið. Sagði Guðlaugur að vegna far- mannaverkfallsins hefðu umbúðir verið skornum skammti hjá Mjólkursamsölunni. En frá því í gærmorgun hefur Ými verið dreift í verslanir að nýju. HÖGNI HREKKVÍSI j^jerTA MJÖ6 6'ooue . 6Æ&M/r/ÓT /Mjó'ér. .. * Sumar- fatnaóur fyrir börn og unglinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.