Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 38

Morgunblaðið - 03.07.1979, Side 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Grípa til kapitalískra úrræða til að stemma stigu við eftirspurn Eftir hækkunina kostar ódýr- asta gerð af Zhiguli 9,735 doll- ara, eða um 3,3 milljónir ís- lenzkra króna, og Volga Sedan um 16,284 dollara, eða um 5,6 milljónir króna. Mánaðarlaun í Sovétríkjunum eru að jafnaði 255 dollarar, eða um 87.000 krónur. Skartgripir, teppi og skinna- vörur hækkuðu um 50 af hundr- aði og innflutt húsgögn um 30 af hundraði. Sovézk húsgögn, sem ekki njóta sömu vinsælda og þau innfluttu, hækkuðu um 10 af hundraði. Verð á gulli vegna tannviðgerða hækkaði ekki og áfram gildir það að hjónaefni sem giftast fyrsta sinni fá 105 dollara afslátt á giftingarhringj- unum. Sovétmenn halda því fram, að verðlag hafi ekki hækkað á um 90 af hundraði neyzluvarnings í Sovétríkjunum frá því 1970. Að sögn Glushkovs hefur verðlag aðeins hækkað um 39 af hundr- aði frá 1940. Árlega greiða Sovétmenn verðlag á kjötvörum og mjólkurvörum niður um 37,5 milljarða Bandaríkjadala, eða um tæpa 1.300 milljarða ís- lenzkra króna. Sovézk blöð skýrðu ekki frá þessum verðhækkunum í for- síðufregnum, en lesendur fundu fréttirnar fljótt, og urðu þær til að staðfesta orðróm sem gengið hafði um Moskvu síðustu daga og valdið miklu hamstri. Með vatnsslöngur að vopni WashinKton, 2. júl(. AP. Monkvu, 2. júlí. AP. Reuter. YFIRVÖLD í Sovétríkjunum gripu um helgina til verðhækk- ana á ýmsum lúxusvörum og var opinberlega tilkynnt að gripið hefði verið til hækkan- anna til að stemma stigu við eftirspurn sem væri meiri en framleiðslan. Af sömu ástæðum hækkaði bensín, kaffi, gullvör- ur og súkkulaði í marz sl. Meðal þess sem hækkaði voru bifreið- ar, húsgögn, teppi, skinnavörur og skartgripir. Þá kostar það sovézka borgara að jafnaði 45 af hundraði meira að snæða á veitingahúsi nú en fyrir helgi. Ýmsar nauðsynjavörur, þ.ám. fiestar matvörur, voru þó ekki hækkaðir í verði og hafa þvf verið óbreyttar í verði í nokkur ár. Nikolai Glushkov, yfirmaður verðlagsnefndar Sovétríkjanna, sagði að eftirspurn eftir sumum vörum væru miklu meiri en mögulegt væri að framleiða. „Af þessum sökum hefur þótt brýnt að hafa áhrif á viðskiptin með verðákvörðunum," sagði Glushkov er hann ræddi aðgerð- irnar, sem þekktar eru í hag- fræði kapitalista. Við þessar hækkanir hækkaði verð á bifreiðum um 18 af hundraði að jafnaði, en þar sem fáir Sovétmenn eru bíleigendur hefur þessi hækkun minni áhrif en hún hefði á Vesturlöndum. Rússnesk bifreið af Volga-gerð. Bifreiðar hækkuðu í verði í Sovétríkjunum um helgina, cn fyrir hækkunina var það á fárra færi að eignast bifreið f Sovétríkjunum. Hálfsokkinn flóttamannabátur frá Vfetnam bundinn við hlið skips sjóhers Malaysfu f lyrri viku. Báturinn hélt frá Saigon 18. júnf og áður en herskipið kom flóttamönnunum til aðstoðar höfðu thailenzkir sjóræningjar ráðist á bát þeirra og reynt að sökkva honum. Þetta gerðist ______3. júlí HAFT er eftir opinberum heimildum í Washington að eitt bezt búna herskip heims, sovézka flugmóður- skipið Minsk, hafi nýlega átt í útistöðum við nokkur smáskip úr kínverska flotanum. Rússarnir fóru með sigur af hólmi — ekki með því að beita eldflaug- um sínum eða sprengju- þotum, heldur vatnsslöng- um. Að sögn heimildanna í Washington, sem ekki vilja láta nafngreina sig var Minsk á siglingu norður á bóginn á opnu úthafi, hundruð mílna frá strönd Kína í fyrri viku, þegar til árekstranna kom. Minsk er fyrsta sovézka flugmóður- skipið, sem siglir inn á Kyrrahaf, og er kínversk- um yfirvöldum bersýnilega ekkert vel við komu þess þangað. Frá því Minsk sigldi inn á Suður-Kínahaf 17. júní s.l. hafa kínverskir bátar og smáskip stöðugt verið að trufla siglingar þess á ýmsan hátt, segja heimildirnar. í eitt skiptið sigldu nokkrir vopnaðir togarar upp að móðurskip- inu, og þótt ekki stafaði hætta af nærveru þeirra, þurfti skipherrann á Minsk nokkrum sinnum að breyta um stefnu til að komast hjá ásiglingu. Þá var skipherr- anum nóg boðið, og skyndi- lega tóku sjóliðar á Minsk fram vatnsslöngurnar, settu háþrýstidælurnar í gang og beindu vatnselgn- um að kínversku bátunum. Herma heimildirnar í Washington að þetta her- bragð hafi dugað. Tvöbömá 8 mánuðum London, 2. júlí. Reuter. TÁNINGURINN Linda Chisnall, sem býr í Lond- on, hefur tryggt sér sæti á heimsmetalistanum með því að fæða tvö börn á tæpum átta mánuðum. Linda þessi er 18 ára gömul, og gift Mark Chisnall. Fyrst ól hún manni sínum son, sem skírður var Mark, og 237 dögum síðar eignaðist hún dótturina Nicolu, sem fæddist þremur mánuðum fyrir tímann. Samkvæmt heimmeta- bók Guiness átti frú John Baldwin frá Nashville, Tennessee í Bandaríkjun- um fyrra metið, en hún eignaðist tvær dætur með 261 dags millibili. 1976—Sigur kommúnista í þing- kosningum á Ítalíu. 1973—Öryggismálaráðstefna Evrópu í Helsinki. 1970—112 fórust með brezkri leiguþotu í lendingu í Barcelona. 1962—Alsír fær sjálfstæði eftir 132 ára yfirráð Frakka. 1953—Áusturrísk-þýzkur leiðangur klífur Nanga Parba. 1950—Fyrstu átök Bandaríkja- manna og Norður-Kóreumanna í Kóreu-stríðinu. 1945—Hernám þríveldanna í Berlín hefst. 1944—Rússar taka Minsk (og 100,000 þýzka fanga). 1940—Bretar sökkva flota Frakka í Oran og Norð- ur-Afríku. 1898—Sjóorrustan við Santiago: flotasigur Bandaríkjamanna á Spánverjum. 1896—Abdul Hamid II Tyrkja- soldán samþykkir sjálfsstjórn á Krít. 1863—Orrustunni um Gettys- burg lýkur eftir mikið mannfall sunnanmanna í frægu áhlaupi undir forystu George E. Picketts hershöfðingja. 1849—Frakkar sækja inn í Róm þrátt fyrir hetjulega mótspyrnu Garibaldis. 1815—Loðvík XVIII sækir inn í París („Hundrað dögunum" lýk- ur). 1778—Prússar segja Austur- ríkismönnum stríð á hendur. — Fjöldamorðin í Wyoming, Pennsylvaníu. 1695—Flotaárás Breta á St. Malo, Frakklandi. Rúm, 2. júlí. AP. AÐ SÖGN Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, hafa hitar og þurrkar í Sovétríkjunum í kjölfar vetrarhörku á liðnum vetri haft slæm áhrif á upp- skeruhorfurnar þar í landi, og leitt til hækkandi verðlags á kornmeti á alþjóðamarkaði. FAO áætlar nú að kornupp- skeran í Sovétríkjunum verði 192 milljónir tonna, en áður hafði uppskeran 1979 verið 1665—Englendingar sigra hol- lenzka flotanna við Lowestoft, Englandi. 1620-Ulm-sáttmáli undirritaður. 1608—Franski landkönnuðurinn Samuel de Champlain stofnsetur Quebec. 1583—Ivan grimmi Rússakeisari drepur Ivan son sinn í reiðikasti. 1527—Frakkar ráðast inn á yfir- ráðasvæði Mílanó til að bjarga páfa. 343—Orrustan um Adríanópel. Afmæli: Henry Grattan, írskur stjórnmálaleiðtogi (1746—1820). — John Clare brezkt skáld (1793-1864). Andlát: Marie de Médicis Frakkadrottning 1642. Innlent: Hin íslenzka fálkaorða stofnuð 1921. — Fyrst flogið á íslandi 1919. — Fyrsta góð- templarastúkan í Reykjavík stofnuð 1885. — Bifreið ekið fyrsta sinni frá Borgarnesi til Ákureyrar 1928. — Islendingar gerast aðilar að Marshall-samn- ingnum 1948. — Póstferð á hestum frá Reykjavík til Skaga- fjarðar 1974. — Könnunar- viðræður forseta við formenn þingflokka um stjórnarmyndun 1974. — f. dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði 1873. — Þorsteinn Briem ráðherra 1885. — Konráð Gíslason 1808. — d. Bogi Thorar- ensen sýslumaður 1867. — Magnús Eiríksson guðfræðingur 1881. Orð dagsins: Heimska eins manns er gæfa annars manns — Francis Bacon, enskur heim- spekingur (1561—1626). áætluð 210 milljón tonn. Er nú áætlað að Sovétríkin verði að flytja inn 165 milljónir tonna af kornmeti á þessu ári, en í fyrra nam innflutningurinn 154,5 millj. tonna. Þessi fyrirsjáanlegi upp- skerubrestur hefur meðal ann- ars leitt til þess að útflutnings- verð á hveiti frá Bandaríkjun- um hefur hækkað um 26% frá því í þriðju viku maí þar til í þriðju viku júní, og einnig hafa farmgjöld með skipum hækkað nokkuð. Mamifjöldi í 114 afmæl- isveizlu Izumis í Japan Túkíó. 29. júní. AP. SHIGECHIYO Izumi, sem drekkur að minnsta kosti hálfpott af áfengi áður en hann fer að sofa, hélt hátíðlegan 114. af- mælisdag sinn í dag með miklu samkvæmi í þorps- skólanum á smáeynni Tokunoshima. Samkvæmt Guiness- metabók er Izumi með elztu mönnum í heimi. Fjölskyldu Izumis ber saman um að hann njóti lífsins í ríkum mæli og kona bróðursonar hans, sem er áttræður að aldri, segir að hann kenni sér einskis meins. „Hann fer á fætur um sjöleytið og í göngu með hundinn, skrafar við ungt nýgift fólk sem kemur oft að leita hjá honum ráða og síðan fer hann að sofa klukkan átta á kvöldin eftir að hafa drukkið sem svarar hálfan lítra af ein- hverju áfengi. „Þrjú hundruð þorpsbúar komu til afmælisfagnaðarins og samglöddust hinum 114 ára gamla öldungi.' 3% áríklóm mannræningja Toledo. Ohlo, 2. júK. AP. Reuter. hann var í haldi léttist hann um LÖGREGLA í Venezuela bjarg- 20 kílógrömm. Hann skýrði aði bandaríska kaupsýslumann- fréttamönnum frá því að hann inum William F. Niehous úr hefði ekki sætt líkamsmeiðing- klóm vinstrisinnaðra öfga- um meðan hann var í haldi og að manna í lok síðustu viku, en öfgamennirnir hefðu sagt á Niehous hafði þá verið í haldi fyrsta degi að þeir ætiuðu að hjá öfgamönnum í 3% ár. Kom þyrma lífi hans. Tilgangurinn hann til heimaborgar sinnar í með ráninu væri að verða sér úti gær með þotu fyrirtækis þess er um peninga og að þrýsta á um hann stýrði í Venezuela, viðbrögð við pólitískum kröfum Owens-Illinois. sínum. Niehous skýrði frá því að komið hefðu upp augnablik er Niehous, sem er 48 ára, var hann gaf upp alla von um að rænt 27. febrúar 1976. Meðan losna lifandi úr prísundinni. Uppskerubrestur hækkar kornverð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.