Alþýðublaðið - 30.08.1920, Page 3

Alþýðublaðið - 30.08.1920, Page 3
Merkileg uppgötrnn. Á styrjaldartítnunum fundu vís- indamenn nokkrir í Egyftalandi það ráð, að brenna gas úr jurtum í stað kola. Hefir þetta gefist vel og er þegar mjög mikið farið að nota þessa aðferð í heitu löndunum. Réttlæti anðyaldsins. I Dijon í Frakklandi var M. Midal ritari franska járnbrautar- verkamannasambandsins dæmdur 1 13 mánaða fangelsi fyrir þá sök eina, að hafa hvatt hermenn nokkra til að fara eigi að skipun- um herforingjanna. Drengileg hjálp. Canadabúar hafa gefið 12 milj. króna til að sigrast megi á tauga- veikispest þeirri er nú geysar um Evrópu. Dýragörðnnum í Hamborg [lokað. Sökum þess að þýzka rfkið get- ur eigi lengur látið dýragörðunum í Hamborg styrk í té, verður þeim lokað mjög bráðléga. Dýragarðar þessir munu vera einhverjir hinna stærstu og fegurstu dýragarða í heimi. Stæreta flotstöð í Eyrópn. Stærsta flotstöð (Flydedok) f Evrópu var nýlega flutt frá Ham- borg til Amsterdam. Hún ber 50 þús tonn, er 600 feta löng og 169 feta breið og vegur 17 þús. tonn. Hana á að nota við skipa- smíðastöðvarnar í Rotterdam. Nýir þjóðflutningar. Utlendingar ýmsir hafa keypt geysimikið af fasteignum í Frakk- landi og þá sérstaklega á orustu- svæðum styrjaldarinnar í Norður- Frakklandi. Fjöldi Ameríkumanna, Svisslendinga, Spánverja og Breta eru nú fluttir þangað og hafa sezt þar að sem bændur. Landbúnaðarafurðir Dana. Fyrir styrjöldina seldu Danskir ^aendur Englendingum nær ein- göngu afurðir sínar. Nú hafa þeir skift um að nokkru leyti og eru ^amir að flytja smér til Bandaríkj- anna í Norður-Ameríku. Var einn dag um daginn skipað út 40 þús. ^°num af smjöri til Bandaríkjanna Þaðan, en það eru Danir 7 daga framleiða. ALÞYÐUBLAÐIÐ Fjárhagsástæðnr Dana. í júnfmánuði f ár, í fyrsta sinn um langan tíma, hefir útflutningur Dana náð að jafnast við innflutn- ing þeirra. Aður hafa þeir stöðugt flutt meira inn en út. T. d. fluttu þeir inn vörur í maí sl. fyrir 181 milj. kr., en út fyrir aðeins 164 milj. li daoiirn og veginn. Kveikja ber á hjólreiða- og bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl. IM/S* í kvöld. Bíóin. Gamla Bíó sýnir „Gifting Bobs“, gamanleik. Nýja Bíó „Blóm- ið blóðrauða". Sýning Ríkarðs Jónssonar er ©pin kl, 11—8 í barnaskólanum; gengið inn um norðurdyr, næst Lækjargötu. Að norðan komu í gær af síld- veiðum: Snorri goði og Egill Skallagrímsson. Njörður kom á laugardaginn. Athygli landa sem til Khafnar fara til vetursetu, viljum vér vekja á auglýsingu ungfrú Rúrý Árnason um enskukenslu. Hún hefir um 10 ára bil dvalið meðal ensknmæl- andi þjóða. Vér morðingjar, leikritið eftir Guðmund Kamban, er nú verið að æfa í Kristjaníu, og verður það leikið í haust á þjóðleikhúsinu þar. Leikmót í. S. R. á laugar- daginn var illa sótt af áhorfend- um og er svo að sjá, sem ekki sé áhugi manna mikill fyrir fþrótt- um. í þetta sinn var kept í ioó m. hlaupi og rann Tryggvi Gunn- arsson skeiðið á 12 sek. 80 m. hlaup drengja vann Ingi Gíslason, hann var io4/s sek. Kringlukast vann Frank Fredrickson, hann kastaði kringlunni 31,94 ni. Hann vann líka kúluvarp; kastáði 10,83 m. 1500 m. hlaup vann daninn Knud Nielsen, rann skeiðið á 4 mín. 4i*/s sek. Boðhlaup vann Víkingur. — í gær var svo hvast, að mótinu var frestað. 3 ísland kom frá útlöndum á laugardaginn. Meðal farþega: Jón- as frá Hriflu ©g kona hans, Geir T. Zoega og kona hans, Sveinn Björnsson sendiherra, Jón Þorláks- son, ungtrú Fjóla Stefánsdóttir, Beruburg o. fl. Frá Vestmanna- eyjum komu knattspyrnumenn- irnir, Karl Einarsson sýslumaður úg kona hans o. fl. Gaslanst. í gær um hádegið varð allur bærinn skyndilega og alveg óvænt gaslaus. Orsökin til þessa er sú, að gasgeymirinn var þurausinn; en að slíkt gat komið fyrir er því að kenna, að kolin sem brent er, eru ekki gaskol og gefa of lítinn hita. Gasnotkun- in vex með degi hverjum, en í hæsta lagi er hægt að framleiða 600 kbm. af gas á sólarhring með þessum slæma eldiviði. Afleiðingin auðsæ. Bærinn verður að meiru eða minna leyti gaslaus daglega, meðan ekki fást gaskol. En vonandi gerir borgarstjórinn og gasnefnd alt, sem unt er, til þess að útvega þessa bráðnauðsynlegu vöru. En eins og nú standa sakir í Englandi er útlitið ekki gott og er vonandi að hlutaðeigendur hafi gert sitt til að útvega gaskolin í sumar, því langt er síðan þau voru af skornum skamti og skortur fyr- irsjáanlegur, ef ekki yrði úr bætt í tfma. K artöflur ódýrastar í Kaupfélagi Reykjavíkur — Gamla bankanum — Enskukensla. Eg undirrituð tek að mér enskukenzlú í vetur. Rúrý Arnason Bergthorasgade 211 Kaupmannahöfn. Sttilka óskast lítinn tíma, ná þegar. Uppl. á Bergstaðastr. 3. Alþýðubladid er ódýrasta, Ijölbreyttasta og bezta dagblað landsins. Kanpið það og lesið, þá ' getið þið aldrei án þess verið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.