Morgunblaðið - 07.10.1979, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.10.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 37 Seinni björKunarmaðurinn hifður um horð í þyriuna og skömmu siðar var stefnan tekin á KeflavikurfluKvöil. töluðu mennirnir saman en notuðu handa- eða höfuðhreyí- inKar til aö koma skilahoðum upp i þyrluna en allir voru þeir þó með litlar talstöðvar í björK- unarvestunum. Sjiikrakörfu með flothylkjum var hent niður ok einnÍK þremur reykbiysum. Hlutverk blysanna var að mynda þrihyrninK svo ÍIuk- menn þyrlunnar Ksetu betur áttað sík á vindi, ölduhæð ok staðháttum. Úti á roKÍnhafi í siæmu veðri ok jafnvel myrkri er ekki um marKa fasta punkta að ræða ok blysin því nauðsyn- Iok til að átta sík á staðháttum. Eftir skamma stund Káfu björKunarliðarnir merki um að KÚmháturinn ok ..fluKmaður- inn“ væri kominn í körfuna ok þyrlan kom á ný yfir mennina. TauK var látin siKa niður. karf- an fest í hana ok maðurinn i körfunni loks hifður um horð í þyriuna. BjörKuninni úr hafinu var farsælleKa lokið. Skömmu siðar var maðurinn kominn undir læknishendur. Þetta var aðeins æfinK. ein af mörKum æfinKum. Verkefni scm þessi eru æfð daK eftir daK ok þá við erfiðustu skilyrði. EinnÍK aðrar björKunaraÖKerð- ir við ólikar aðstæður. Allt er þetta þáttur i þeirri viðleitni að standa við einkunnarorð sveit- arinnar: „Lítill tími til að hugsa um hættur þé ar á hólminn ke Rabbað við þyrluflugmann og flugvélstjóra „KANNSKI er stundum teflt á tæpasta vaðið, en við teljum okkur vita hvernÍK á að Kera þcssa hluti ok vissan um að störf okkar Keti orðið öðrum til lífs Kerir verkeínin auðveldari en ella. Það Ketur hvenær sem er komið að þvi að við þurfum á slíkri hjálp að halda. Það veit enKÍnn hver er næstur.“ , Það eru þeir Bill Carrington þyrluflugmaður og Tom Berry flugvélstjóri, sem mæla þessi orð. Báðir eru þeir í Sveit 14 á Kefla- víkurflugvelli, björgunarsveitinni, sem frá 1971 hefur bjargað 155 mannslífum hér á landi og á hafinu í' kringum landið. Báðir eru þeir kvæntir, eru hér með fjölskyldur sínar. Þær reglur gilda að fjöl- skyldumenn dvelja á hverjum stað utan Bandaríkjanna í tvö ár, en einstaklingar í eitt ár. Síðan er mögulegt að sækja um framleng- ingu á dvölinni á hverjum stað og ekki er óalgengt að slíkar umsóknir berist til yfirmanna á Keflavíkur- flugvelli. Bill Carrington er frá Sacra mento í Kaliforníu og hefur verið hernum í 5 ár. Hann hefur að bak liðlega 2 þúsund flugtíma á þyrluir og er því öllu vanur í þeim efnum Hann kom hingað til lands í janúai í ár. Tom Berry er búinn að veré hér í 16 mánuði, en hann er frá Iowa og er með 600 tíma að baki. Berry hefur tekið þátt í átta björgunarleiðöngrum síðan hann kom hingað og lenti m.a. „í honum kröppum" síðla síðasta árs er flogið var á haf út eftir íslenzkum sjó- manni, er hafði meiðzt. Veður var afspyrnuslæmt þegar þetta gerðist og þess vegna var ekki hægt að taka eldsneyti frá Hercules-vélinni, sem var með í ferðinni. Stóð það á endum að þyrlan kæmist til Reykjavíkur með hinn slasaða sjómann. Bill Carrington hefur fjórum sinnum verið með í björgun mannslífa hérlendis, en báðir hafa þeir oftsinnis tekið þátt í ferðum til aðstoðar fólki á afskekktum stöðum víðs vegar um landið þó svo að ekki sé um bjarganir að ræða í þeim tilvikum. Til að kynnast nánar þeim mönnum, sem staría innan Sveitar 14, röbbuðum við aðeins nánar við þá Berry og Carrington, sem báðir eru einstaklega geðfelldir menn, um þrítugt á að gizka. Við byrjum á þvi að ræða æfingar björgunars- veitarinnar. — Á hverjum degi er farið í 1—2 flug og er þá ýmist um að ræða æfingaflug eða einhver verkefni, sem þarf að sinna og koma þá ólíklegustu hlutir til greina, segja þeir félagar. — Á þyrlunum eru Bill Carrington (t.h.) við stjórnvölinn í þyrlunni, en hann hefur um 2 þúsund flugtima að baki á þessum fullkomnu tækjum. fjórar áhafnir og þó svo að almennt sé ekki unnið nema eins og gerist á öðrum vinnustöðum, þá er a.m.k. alltaf ein áhöfn reiðubúin allan sólarhringinn ef beiðni berst um aðstoð einhvers staðar frá. — Þegar um æfingar er að ræða, er reynt að hafa þær sem líkastar því, sem við getum átt von á hvenær sem er. Mikið er æft í vatni eða sjó en einnig hvers kyns aðrar bjargan- ir. Ég held að okkur flestum þyki erfiðast að eiga við björgun manna úr litlum bátum í vondu veðri. Tom Berry útskýrir vinnuáætlun þyrluáhafnanna fyrir siðustu viku en á hverjum degi eru alla jafna eitt eða tvö flug. Báturinn skoppar þá í allar áttir og til að vera sem bezt búnir undir slíkt höfum við reynt að fá báta til að æfa okkur á, en að slíku er ekki hlaupið. Þá má geta þess, að við höfum æft með sveitum Slysa- varnafélagsins, en störf okkar utan Varnarliðsins eru nær öll í gegnum Slysavarnafélag íslands. Við spyrjum hvort einstakar björgunaraðgerðir sveitarinnar hafi ekki nálgast fifldirfsku og hvort meðlimir sveitarinnar geri sér ekki grein fyrir þeim hættum. sem þeir hafa lagt sig i. — I sjálfu sér er hættulegt að lifa, það er t.d. hættulegt að ganga yfir götu, svara þeir félagar. — í þessu starfi geta ein mistök orðið afdrifarík, en þetta er okkar starf og við höfum fengið mikla þjálfun til að geta unnið störf okkar sem bezt. Aðstæður geta gert okkur erfitt fyrir, t.d. myrkur og vond veður eins og þau gerast hér við land, en þegar á hólminn er komið er lítill tími til að hugsa um hætturnar heldur hvernig bezt verði staðið að björgun eða aðstoð hverju sinni. Okkur leikur hugur á að vita hvernig þeim líki að starfa á íslandi og hvernig þeir verji frístundum sinum. Bill Carrington: — Ég verð að viðurkenna að mér finnst kalt á íslandi, en landið er fallegt og einstaklega gaman að fljúga yfir það. Maður sér alltaf eitthvað nýtt. En það er dýrt að keyra á þessu dýra benzíni ykkar og ég fæ ekki lánaða þyrluna til að skoða landið. Því hef ég ekki ferðast eins mikið og ég gjarnan vildi. Ég vildi gjarn- an vera nær Reykjavík, þar er meira hægt að gera heldur en hér uppi á heiðinni. Annars þarf maður kannski ekki að kvarta, það er jú boðið upp á ýmislegt hér, en eigi að síður erum við hjónin vön meiri fjölbreytni þar sem við erum bæði frá stórborg. Tom Berry: — Ég er með mikla fiskidellu og átti t.d. sjófiskabúr heima á sínum tíma. Það er þess vegna gamall vani hjá mér að skoða í kringum mig þegar ég kemst einhvers staðar nálægt sjó, til að sjá hvort ég sjái einhvers staðar líf. Ég hef einu sinni komist í silungs- veiði. Þá fór ég upp í Borgarfjörð og fékk einn tveggja punda. Eins förum við hjónin nokkuð oft inn til Reykjavíkur og þá m.a. til að verzla. Ég held þó, að ég verði að viður- kenna að sjónvarpið er bezti vinur- inn hjá okkur hjónunum. Að lokum spyrjum við hvort íslendingar gætu ekki unnið þau störf sem björgunarsveitin vinnur eins og sveit frá Bandarikjaher. a — Vissulega gætu íslendingar unnið okkar störf, en kostnaðurinn er gífurlegur, kannski meiri en menn gera sér grein fyrir. Auk flugvéla og þyrlna þarf að greiða áhöfnum og öðru starfsfólki laun, þjálfa þarf mannskapinn mjög mik- ið, viðhaldið kostar sitt og eldsneyt- ið að sjálfsögðu svo eitthvað sé nefnt. Það er því annað að segjast geta gert þessa hluti og siðan að framkvæma þá, segja þeir félagar að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.