Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 7

Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 39 framtíð í finnskum stjórnmálum. Þetta varð heillar síðu viðtal í blaðinu, og þar segir, að það hafi staðið yfir í 45 mínútur, en átt að vera 15 mínútur. Því var ég búinn að gleyma, en hitt man ég, að hann bauð upp á koníak, þótt ég sleppti því í greininni. Mig grun- aði ekki þá, að ég ætti eftir að skála við hann seinna í mörgum veizlum út á norræna samvinnu, en hann var lengi formaður Norræna félagsins í Finnlandi. En hvað um það, ári eftir viðtalið var hann orðinn forsætisráðherra og varð það tvívegis seinna, og 1956 munaði einu kjörmannaatkvæði á honum og Kekkonen við forseta- kosningarnar. rNú, varst það þú...“ Þegar ég kynntist Fagerholm betur sex árum síðar, 1953, á ráðstefnu Norrænu félaganna í Danmörku, spurði ég hann að því, hvort hann myndi eftir því, að ég hefði haft blaðaviðtal við hann á tilteknum tíma og stað, en hann mundi ekkert eftir því. Ég bætti því þá við, að ég hefði komið með ungri stúlku, nettvaxinni með svart, sléttgreitt hár og brún augu, sagði, hvað hún héti og að hún væri sænsk-finnsk eins og hann og hún hefði reyndar haft milligöngu um viðtalið. Þá rann upp fyrir honum ljós — eða hann lét svo að minnsta kosti — og hann sagði: „Nú, varst það þú, sem komst með henni?" Og nú spurði ég þá hina sömu áratugum síðar, við hverja ég ætti að ræða núna að hennar áliti. Ég treysti henni alveg eins og forðum. Hún kvaðst gjarna skyldi athuga málið og hafa samband við mig daginn eftir, en það væri hætt við, að margir væru farnir úr bænum. Ég sagði í staðinn, að það gerði kannski ekki svo mikið til, því að viðtöl við stjórnmálamenn væru sjaldan skemmtileg og húmoristar á borð við Fagerholm væru vand- fundnir í þeirri stétt. Tvær af 52 Klukkan 10 morguninn eftir hringdi síminn í hótelherbergi mínu. Það var hún. Hún var þegar búin að fastsetja tvö viðtöl. Fyrst ætti ég að mæta stundvíslega kl. hálftvö í þinghúsinu og gefa mig fram við dyravörðinn, sem myndi fylgja mér á fund frú Vááninen, fyrrverandi menntamálaráðherra. hún hefði reyndar varla haft neinn tíma aflögu, því að hún væri að fara úr bænum, en hún færi bara beint úr þinghúsinu, þegar hún væri búin að tala við mig. Maðurinn hennar myndi sækja hana þangað. Og síðan ætti ég að fara heim til frú Hetemáki-Olander kl. hálffjögur, en hún væri þingmaður og vara- formaður Hægri flokksins (Samlingspartiet). Hún byggi ein- mitt í Tapiola, og ég hefði gaman að að sjá, hvernig hún byggi, en hún væri líka að fara úr bænum síðdegis. Ég spurði hana, hvað hún meinti með því að senda mig á fund þessarra kerlinga, en hún sagði, að þetta væru bráðmynda- legar og aðlaðandi konur á bezta aldri, á aldri við okkur, og hún vildi, að ég skilaði því til íslands og legði áherzlu á það, að á finnska þinginu ættu 52 konur sæti af 200 þingmönnum. Og þarna gæti ég fengið að sjá tvö ágæt sýnishorn af þeim. Hún hefði líka sagt þeim, að þetta yrði fremur almennt spjall um lands- ins gagn og nauðsynjar en viðtal í þrengri merkingu um sérstök mál. Og svo varð einnig að sönnu, en þetta hafði hún tekið fram vegna þess, að þessa dagana var það haft í hámælum, að Kekkonen setti opinberlega ofan í við Virolainen, forseta finnska þingsins, vegna ummæla, sem eftir honum voru höfð í blaðaviðtali. Það mál lýsir í hnotskurn einu viðkvæmasta vandamáli Finna í samskiptum þeirra við hinn volduga granna í austri. Um það fjalla ég sérstak- lega í næstu grein, sem ber heitið: „Þegar Kekkonen var vondur við Virolainen." Málið snerti einmitt fyrst og fremst flokka beggja þeirra kvenna, er ég ræddi við. Frú Vááninen er einn af þremur vara- formönnum Miðflokksins, sem áð- ur hét Bandaflokkurinn og var flokkur Kekkonens, forseta. For- maður flokksins nú er téður Virolainen, Frú Vááninen var menntamálaráðherra á árunum 1972-1975 og 1976-1977. Við ræddum saman drjúga stund í finnska þinginu, og bar margt á góma, sem kemur beint og óbeint fram í greinum þeim, sem á eftir koma. Frú Hetemáki-Olander er annar af tveimur varaformönnum Hægri flokksins, sem vann mikinn kosningasigur í sumar, þótt ekki fengi hann aðild að ríkisstjórn, en um það snýst einmitt það hávaða- mál og hneyksli, sem var efst á baugi þá daga, sem við Sigfús Halldórsson vorum í Helsingfors. Frú Hetemáki-Olander er kenn- ari að mennt og hefur setið á þingi í 9 ár. Báðar eiga þessar konur sæti í Norðurlandaráði. Ég frædd- ist um margt af þeim og leið vel í návist þeirra, enda voru þær báðar ekki aðeins sérstaklega viðfelldnar og aðlaðandi, heldur og myndarlegar og laglegar. Ef þær eru sanngjörn sýnishorn af hinum 52 konum, sem sitja á þingi Finna, þá eru þær sízt of margar þar. SATA GR/Z sprautukannan er óvenju létt og vel byggð sprautukanna sem sprengir efnið vel í breiðum og jöfnum úða. SATA GR/Z sprautukannan er með mikro loftstillingu og einnig fáanleg með lofthreinsara. SATA GR/Z sprautukannan hentar sérstaklega vel fyrir bílamálara vegna hinna einstöku eiginleika. SATA er þýsk gæðavara. Allir varahlutir fyrirliggjandi. EIN ALVC6 EINSTÖK Remaco hf. Skemmuvegi 6. Kópavogi, sími 73500. d \0 0 *20% afsláttur HAUSTMARKAÐURf ^ Þessa helgi bjóðum við 20% afslátt af öllum # afskornum blómum. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.