Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
J\ hallærisplani
Færeyia
Þótt þaö sé oft sagt að íslendingar og Færeyingar eigi
margt sameiginlegt, virðast unglingar þessara tveggja
þjóða um margt ólíkir. Islenskir unglingar eyða mestum
tíma sínum, og peningum einnig, í að hlaupa eftir
tískunni og þeir eru fljótir að grípa nýja strauma erlendis
frá. Færeyskir unglingar eru mun sjálfstæðari. Þeir láta
tískuna, eins og hún gerist í útlandinu, sig litlu skipta.
„Þeir eru að minnsta kosti þremur árum á eftir í
tískunni," sagði einn íslendingurinn sem er búsettur þar
ytra. Færeyskir unglingar virðast einnig vita hvað þeir
vilja og láta óskir sínar í ljós með ýmsu móti. Þeir vilja
lifa sínu eigin lífi án þess að hirða um erlenda strauma
eða fyrirmyndir.
munaði í eitt skiptið að verr færi
er unglingarnir köstuðu logandi
bensínsprengju að lögreglubíl sem
í voru 6 menn. Yfirlögregluþjónn-
inn í Þórshöfn sagði að ef flaskan
hefði lent á rúðu og farið inn í
bílinn hefði enginn þessara manna
komist lífs af og hefur lögreglan
ákært 30 ungmenni sem voru á
Vaglinum þessi tvö kvöld.
Er líða tók á nóttina hafði
lögreglunni tekist, með hjálp tára-
gass, að tvístra hópnum og flestir
unglinganna farnir til sins heima.
En viti menn, nokkrir þeirra komu
aftur nokkru seinna til að hreinsa
upp eftir sig.
Forsmekkur
Ólaísvökunnar
Það var á föstudagskvöld fyrir
Ólafsvöku að undirrituð gekk um
Vaglinn og Áarveginn, aðalgötuna
í Þórshöfn. Hundruð unglinga
voru þar saman komnir og gengu í
smá hópum um Vaglinn og upp og
niður götuna. Gatan var lokuð
fyrir bílaumferð en við og við
keyrðu lögreglubílar um hana til
þess að fylgjast með því sem fram
fór. Það var ekki laust við að
umhverfið væri svolítið skugga-
legt. Myrkt var orðið og hljótt var
á götunni nema hvað annað slagið
mátti heyra drunur í mótorhjólum
og hróp einstöku unglinga, annars
voru þeir frekar hljóðlátir. Þarna
En Færeyingar eiga samt sín
„unglingavandamár og eru þau
ekki síður alvarleg en þau sem við
Islendingar berjumst við. Þeir
eiga sitt hallærisplan, Vaglinn, og
þangað sækja unglingarnir þegar
ekki er um annan stað til sam-
komuhalds að ræða.
Eini dansstaðurinn í Þórshöfn
sem sérstaklega er opinn fyrir
unglinga er Diskótekklúbburinn.
Hann sækja unglingar á öllum
aldri, þar er ekkert aldurstak-
mark. Meðlimur einnar hljóm-
sveitarinnar sem oft spilar í
klúbbnum sagði að algengt væri
að börn 10—12 ára sæktu dans-
leiki í klúbbnum.
I Færeyjum eru gömul lög sem
segja til um að dansleikur skuli
ekki standa lengur en til kl. 11.30 á
laugardagskvöldum þar sem
sunnudagurinn er helgur. Helgi
eina í vor átti að sjálfsögðu að
framfylgja landslögum og var
dansleikurinn í Diskótekklúbbn-
um stöðvaður kl. 11.30. En ungl-
ingarnir voru ekki á því að iáta
eftir í það skiptið. Strax á föstu-
dagskvöld voru þeir með óspektir í
miðbænum en á laugardagskvöld-
ið tóku þau sig saman og gerðu
uppþot. Þau drógu bekki fram á
aðalgötuna til að stöðva alla um-
ferð og kveiktu bál á miðri göt-
unni. Lögreglan mætti á staðinn,
vopnuð kylfum, táragasi og hund-
um. Við tilraunir lögreglunnar til
að stilla til friðar urðu ýmsir
sárir, bæði í liði lögreglu og
unglinga. Meðal annars fengu
tveir lögregluþjónar skurð á höf-
uðið er læðst var aftan að þeim,
hjálmarnir teknir af og flöskum
stútað á höfðum þeirra. Litlu Lögreglan notaði táragas til að tvistra hópnum. Lögþingshúsið í baksýn.
Lögreglan komin með einn óróaseggjanna í handjárn.
....
m
LjÓ8m. Httgnl Djurhuus.