Morgunblaðið - 07.10.1979, Page 14

Morgunblaðið - 07.10.1979, Page 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 —Það þýðir ekki að segja Magnúsi fyrir, hann siglir sinn sjó, var sagt um Magnús Gamalí- elsson útgerðarmann á ólafsfirði ungan og reyndust orð að sönnu. Enda vísast svo um at- hafnamanninn, sem brýst úr fátækt, að þessi eiginleiki er ríkari í skaphöfn hans en hjá öðrum: Hann veit, hvað hann vill, og fer þangað, sem hann kemst án þess að á öðrum sé níðzt né frá þeim tekið. ólafsfjörður var stærsta þorskveiði- stöð á Norðurlandi eftir aldamótin síðustu vegna þeirra manna, sem þar bjuggu, fremur en að sérstaklega hefði verið búið í haginn fyrir þá af náttúrunni. Það var þrek og kraftur einstakl- ingsins sem úrslitum réð um uppgang staðarins á þeim tíma sem endra- nær. Magnús Gamalíelsson er meðal fremstu athafn- amanna í Ólafsfirði fyrr og síðar og var kjörinn heiðursborgari þar fyrir tveim árum. Verka hans sér víða stað: Hann var í fararbroddi í hafnarmálunum, var einn helzti hvatamaður að byggingu hraðfrysti- húss ólafsf jarðar og framkvæmdastjóri þess fyrstu árin, var í bygg- ingarnefnd Garðsárvirkj- unar, í stjórn Vélbáta- tryggingar Eyjafjarðar og formaður um áratugi og heiðursfélagi þar, sat lengi fiskiþing, lét slysa- varnamál til sín taka og þó einkum kona hans, Guðfinna Pálsdóttir og kann ég ekki að rekja þessa sögu frekar svo að vel sé. Hins vegar lét ég af því verða að koma við hjá þeim hjónum á dög- unum og spjalla við Magnús um liðna daga: Það hefur oft verið talað um það við mig að ég skrifaði eitthvað en ég hef aldrei farið út í það, sagði hann. Og fer aldrei út í það hér eftir. Kannski hefði ég sagt eitthvað sem ég hefði iðrast eftir á. Lífið er þannig, að það, sem maður álítur mestu and- stæðurnar í dag, — er kannsi mjög dýrmætt fyrir mennina. Ef allir væru sammála um allt í heiminum, væri engin þróun. það er alveg það sama um okkur hér á landi. Þessi þróun, sem orðið hefur hjá okkur, hún hefur ekki orðið til af því að allir hafi verið sammála. Þó manni þyki þetta náttúrlega erf- itt, þá eru andstæðurn- ar sem byggja hlutina ákaflega mikið upp. Hjónin Guðfinna Pálsdóttir og Magnús Gamalíelsson. Oft er meira af einum gert en aðrir trúa vilja Mikil fóm Magnús Gamalíelsson er Fljóta- maður. I föðurætt er hann að vísu úr Svarfaðardal og veit ekki betur en að það hafi verið síðustu búflutningarnir vestur yfir fjallið, er Hólmfríður amma hans var dregin þá leið á nautshúð eða hrosshúð, kornabarn. Magnús var fæddur á Hraunum, en móðurfólk hans bjó á Lambhúsum í Fljótum og þaðan var hans fyrsta ferð gerð, þegar hann var á öðru ári, og líður honum ekki úr minni: For- eldrar hans höfðu slitið samvistir, en móðir hans, Helga Grímsdóttir, var mikil hagleikskona og fór milli bæja til sauma og var þess vegna oft að heiman. Margrét systir hennar bjó í Sílastaðakoti í Flóka- dal með Þorláki Þorlákssyni manni sínum og var timburgólf í baðstofunni þar, sem ekki var almennt þá. — Eg var reiddur á hesti, sat á hnakknefinu, segir Magnús. Ég held að það hafi ekki verið mamma, sem reiddi mig, og var ferðinni heitið fram í Flókadal að Sílastaðakoti, þar sem við áttum að vera í vinnumennsku, en Rögnvaldur bróðir minn var þar þá fyrir. Lovísa, dóttir hjónanna, var þá tveggja ára og sagði við pabba sinn, þegar ég kom inn: „Má ég ekki gefa honum Manga þig með mér, því að nú á hann engan pabba“. Og Þorlákur var fljótur að játa því og tók mig og setti á hnéð og Lovísu á hitt. Rögnvaldur bróðir minn bað mig síðan að koma út með sér og sýndi mér hús, sem hann hafði byggt úr torfi og sagði: „Ég ætla að gefa þér þetta hús og það sem í því er.“ En það voru smááhöld, sem hann hafði smíðað og var snyrtilega frá öllu gengið. Síðan kallaði ég Þorlák pabba og Margréti mömmu. — Ég get ekki gleymt Lovísu, þegar hún gaf mér pabba sinn og mömmu með sér. Það var stórgjöf. Mér hefur aldrei verið færð önnur eins fórn og þetta. Ekki í þetta skipti Magnús Gamalíelsson er átt- ræður í dag. Er saga af því í Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar að þegar hann var nýkominn í þenn- an heim, þótti hann ekki líklegur til þvílíks langlífis: „Veturinn 1899—1900 missti Guðmundur bóndi Davíðsson að Hraunum í Fljótum ungan dreng, er hann átti, úr barnaveiki. Þá var að Hraunum kona sú, er Helga hét Grímsdóttir Grímssonar græðara, er kallaður var. Hann bjó að Minni-Reykjum í Flókadal. Helga átti barn, sem var fremur heilsu- tæpt. Nokkru áður en Davíð litli dó, dreymdi Helgu að hún væri í herbergi, þar sem tvær myndir héngu á veggnum, og þóttist hún eiga aðra en hina þótti henni Guðmundur eiga. Henni þótti maður, sem hún þekkti ekki, koma inn í herbergið. Hún spurði, hvern hann ætlaði að finna, en maðurinn svaraði: „Ég ætla að taka myndina hans Guðmundar núna, en ekki þína í þetta skipti.““ Grímur græðari, sem hér er nefndur, var kunnur fyrir lækn- ingamátt sinn og þótti sú náttúra fylgja eftirkomendum hans. Um hann hefur Jónas Hallgrímsson ort skemmtilegar vísur í bréfi til Konráðs Gíslasonar: Hættu að gráta, hringaná, heyrðu ræðu mína; ég skal gefa þér gull í tá, þótt Grmur tæki þína. Og svo áfram. Fyrsta sjóferðin Helga, móðir Magnúsar, giftist Kristni Jónssyni úr Ólafsfirði og bjuggu þau fyrst á Syðsta-Mói í Fljótum, en fluttu þaðan 1912 að Stóru-Þverá í austur-Fljótum, sem olli Magnúsi á þeim t íma nokkrum sárindum, þar sem þá slitnaði sambandið við Frændfólk- ið, sem hann var svo hændur að. Segir hann, að þá hafi ævi sín raunverulega verið ráðin, því að eftir þetta hafi hann ekkert getað lært. í Haganesvík átti að heita skóli, þar sem hann hafði verið um mánaðarskeið, en síðan hafði hann notið heimiliskennslu að Yzta-Mói og Krakavöllum. Þetta var nú allt að baki. í Fljótum voru dugnaðarsjó- menn og Kristinn, stjúpi Magnús- ar, reri eins og aðrir á haustin til þess að draga björg í búið. Á afmælisdaginn sinn, þegar hann varð 15 ára, fór Magnús í sína fyrtu sjóferð með Hafliða frá Hamri, sem var kunnur formaður á þeirri tíð. Áður en lagt var frá landi var farið með sjóferðarbæn- ina að þeirra tíma hætti. Þeir hrepptu suð-vestan storm og náðu loks landi upp undir Almenning- um réttum tveim sólarhringum frá því að Magnús fór að heiman. Hluturinn var 16 fiskar og bátur- inn aflahæstur þann daginn. Þótt veiði væri í Þverá, var ekkert gert til að ná henni. Magnea móðursystir Magnúsar bað um að laxinn eða silungurinn yrðu ekki ónáðaðir. Hana hafði dreymt, að Snorri sonur sinn kæmi inn í baðstofuna og fleygði hálsskornum manni inn á gólfið. Þegar hún vaknaði, kom Snorri og fleygði hálsskornum laxi inn á baðstofugólfið. Þetta lagðist þann- ig í fólkið, að það ætti ekki að veiða í ánni. 1915 fluttu þau Magnús svo að Hólkoti í Ólafsfirði. Mjór er mikils vísir — Þegar ég kom til Ólafsfjarð- ar, komst ég strax í kynni við sjósókn, segir Magnús. Það leggst þannig í mig, að ég þurfi að eignast árabát. Móðurbróðir minn, Dúi Grímsson bóndi á Krakavöllum í Flókadal, var mik- ill hagleiksmaður á járn og tré. Ég skrapp oft inn eftir til hans og þá berst þetta í tal eitt sinn: — Eg skal skjótast til þín og smíða með þér árabát þegar þú vilt, sagði hann. Og svo fer ég að huga að því, hvar ég geti fengið efni í bátinn, sem ég fékk í Höefnersverzlun á Akureyri. Þetta mun hafa verið um miðjan vetur. Ég sendi Dúa orð og hann var kominn eftir viku. Báturinn var svo smíðaður í hlað- varpanum í Hólkoti. Það getur verið, að hann hafi ekki orðið eins ásjálegur og hann hefði orðið, ef ég hefði ekki skipt mér af laginu á honum, ég vildi ekki hafa löng lot á honum, og það var náttúrlega sjálfsagt hjá Dúa að fara að öllu eftir því, sem ég vildi. En fyrir bragðið var báturinn kubbslegur að sjá og einna minnstur af þeim áraþátum, sem hérna voru. Dúi hjálpaði mér með árarnar og alla hluti, en mamma saumaði seglin. Ég reri á batnum á haustin og snemma á vorin. Það kom upp úr dúrnum í spjalli okkar Magnúsar, að árabáturinn hafði verið kallaður ýmsum nöfn- um eins og Gapi eða Háski, e.t.v. vegna þess að mönnum þótti sótt fast á honum, enda aflinn meiri en á mörgum bátum, sem stærri voru. Magnús sagði mér, að á þorranum hefði einu sinni frétzt af fiski á Reyðarárgrunni, það var a.m.k. á þriðja tíma róður. Þeir Magnús og drengur, Jón Bergsson, með honum, reru þangað og fengu fullan bát. Um kvöldið kom Þor- Ieifur Rögnvaldsson til Magnúsar og bað hann vel að gera þetta ekki aftur. Þegar Magnús kom á Háska sínum inn fjörðinn beið móðir hans í flæðarmálinu og sagði: Nú er fagur, ferðbúinn, fyrðum þykir gaman. Fylgi Guð og farsældin fley með öllu saman. Upp á við Magnús smíðaði árabátinn 1917 og var síðan hjá Þorvaldi Sigurðs- syni, — ég byrjaði að rísa, þegar ég fékk skipsrúm hjá honum, segir Magnús. 1923 verður hann for- maður á Göngu-Hrólfi og svo gerist það, að ýmsir verða til þess að tala um það við hann að kaupa með sér bát, þar á meðal Ingvar Guðjónsson útgerðarmaður. Niðurstaðan verður svo sú, að þeir Gunnar Guðlaugsson skátahöfð- ingi, — ákaflega vel séður maður, — kaupa saman 8 tonna bát, Barðann, árið 1928 af þrotabúi Ásgeirs Péturssonar útgerðar-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.