Morgunblaðið - 07.10.1979, Page 15

Morgunblaðið - 07.10.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 47 Sigurbjörg á innleiö meö 280 tonn af fiski. Hún hefur fengiö um 1800 tonn síðan í iok maí. Gamli Einar Þveræingur. Vinnslusalurinn í hraöfrystihúsi Magnúsar Gamalíelssonar h.f. Magnús og Guðfinna meö börnum sínum: Sitjandi eru Helga, Guöfinna og Ásdís, en standandi Gunnar, Magnús Sigurgeir og Svavar. manns, sem um skeið var kallaður „milljóner" og átti eftir að rétta aftur úr kútnum. Eftir 13 róðra bilaði vélin og Jón Þorsteinsson, „bezti vélsmiðurinn á Norður- landi“, ráðlagði Magnúsi að kaupa nýja. Það verður svo úr, að hann heldur inn til Akureyrar í fyrsta skipti á ævinni að leita sér að peningum, en Júlíus Sigurðsson var j)á bankastjóri Landsbankans: — Eg hafði heyrt ýmsar sögur af honum, að hann ræddi ekki mikið við menn, segir Magnús. Rétt í þann mund sem ég geng upp að bankanum, kemur Júlli út um dyrnar og út á tröppurnar og segist vilja fá fréttir og aftur fréttir, en engir peningar séu til. Ég bar mig náttúrlega illa. Hann spurði hvaða vél ég ætlaði að kaupa, hvað hún kostaði og hvað mig vantaði mikla péninga. Ég hélt alltaf að hann myndi bjóða mér að koma inn og spjalla við sig, en hann hélt áfram að tala svona þangað til hann opnaði dyrnar og fór inn. Þegar ég ætlaði á eftir honum, sneri hann sér við og sagði: Þú pantar vélina. Ég var nú ekkert mjög hrifinn af þessu og fór til Tómasar Björnssonar, en af honum ætlaði ég að kaupa vélina: Ja, ef Júlíus hefur sagt þetta, þá er þér óhætt að panta hana“. Magnús sagði mér, að hann hefði átt ákaflega góð viðskipti við Landsbankann æ síðan og aldrei farið bónleiður í peningasökum frá þeirri stofnun, og minntist sérstaklega Ólafs Thorarensens í því sambandi. Landsbankinn ásamt Kaupfélagi Eyfirðinga væru þeir tveir aðilar, sem sér hefðu haldið stöðugum. Þannig hefði hann verið kominn að því að selja Einar Þveræing eldri þegar erfiðleikarnir voru hvað mestir og sagt Vilhjálmi Þór frá því. — Heldurðu að einhver geri þennan bát betur út en þú? svaraði hann og hvatti Magnús til þess að kaupa eignarhlut Gunnars í bátnum, sem hann og gerði. Fiskur upp að efri kojum Magnús sagði mér frá einum fiskitúr, sem sér væri eftirminni- legur: — Ég fór í fermingarveizlu fram að Þórustöðum fyrir þrem árum á uppstigningardag. Þegar ég kom inn, stendur upp maður og segir: Manstu? Manstu? Ég segi jú, en hikaði við: Ætli ég muni ekki eftir því. Hann hafi verið með mér, þegar við rerum á Skaga- grunnið forðum. Þetta gerðist, meðan ég var á Einari Þveræingi eldra, 11 tonna bát. Það hafði verið dræmings- fiskur og ég hafði þann sið, að ef ég fékk minna en aðrir, fór ég á allt aðrar stöðvar. Við vorum vestur af Töngum, og þegar búið var að draga, var ég með minnsta aflann, ekki mikið samt. Ég var lengi búinn að ætla mér á svonefnt Skagagrunn, en hafði lofað mömmu að vera heima á uppstigningardag, af því að það átti að ferma bróður minn. Ég sat í eldhúsinu með sjókortið fyir framan mig og var að mæla og mæla og allt stefndi sem áður. Það var hvíta, blíðalogn, báturinn gekk 7 mílur og ég var ákveðinn í að fara á Skagagrunn. Tryggvi Ólafsson vélamaður varð órólegur, þegar hann var búinn að hita kaffið, skildi ekkert í því, að ég ætlaði svona langt, 50 mílur. Þegar þangað kom, var komið austan hríðarveður og við fórum að leggja. Á þeim tíma lagði formaðurinn alla línuna, það var hans verk. Þegar við vorum hálfn- aðir, sagði ég, að bezt væri að leggja ekki meira, fór fram í lúkar og lagði mig, en sofnaði ekki. Svo liðu þessir tveir tímar, sem línan verður að liggja. Það eina, sem ég hafði ótta af, var að hákarl skæri línuna í sundur. Þegar ég ætlaði að draga á harða ganginum var allt pikkfast, ég bölvaði heitt og innilega og hélt að hákarlinn væri búinn að skella. Svo kemur steinn- inn upp úr og það verður einhver Rœtt við Magnús Gamal- íelsson áttrœðan smátöf. Þá flýtur línan upp og ég varð enn vissari en áður um það, að hákarlinn hefði skellt línuna. I þá daga voru 120 til 130 krókar í stokk. Það voru ekki færri en 100 fiskar á stokk af fullorðnum púraþorski. Ég sagði þeim að koma með bjóðin, sem voru ólögð, lét liggja eins og áður og bjóst ekki við að fá svipaðan fisk. Við vorum fjórir á bátnum frammi á dekki, og allir ánægðir yfir fiskirí- inu: Það eina, sem þið getið gert, drengir, segi ég, er að fara niður í lest og reyna að plokka eitthvað af skilrúmunum upp úr henni. Svo endaði þetta með því, að við létum í lúkarinn upp að efri kojum og alls staðar, sem við gátum, og þá komu skilrúmin í góðar þarfir, þvi að við settum þau um dekkið hingað og þangað. Þegar búið var að gera allt klárt, var vaninn, að vélamaður- inn stæði landleiðina, en formað- urinn útleiðina. Tryggvi kom nú til mín og sagði, að ég yrði að standa landleiðina, en ég sagði, að mér hefði aldrei dottið annað í hug. Báturinn fór vel með sig. Þegar við vorum að leggja að bryggjunni, var fólkið að koma úr fermingunni. Við höfðum verið 44 stundir í túrnum. Þetta var fyrir- boði fyrir afskaplega miklum afla næsta hálfa mánuðinn. Magnús er á því, að þetta hafi verið mesti afli úr einum róðri fram að þeim tíma á Ólafsfirði. Einnig veit hann ekki til þess, að línubátur hafi áður lagt á Skaga- grunni. I útgerð í hálfa öld Magnús fer ekki dult með, að kona hans, Guðfinna Pálsdóttir, eigi ríkan þátt í velgengni hans og gengur meira að segja svo langt að segja, að aldrei hefði orðið neitt úr sér hvorki með útgerð né annað, ef hann hefði ekki kynnzt henni, af því að lífsviðhorfið varð annað á eftir, — þá fyrst fer ég að hugsa um það í alvöru að gera út, þ.e. vélbáta, segir hann. Þegar hann var ungur maður, var því spáð fyrir honum, að konuefni hans væri ekki í Ólafs- firði, heldur á bak við fjöllin. Á þeim tíma var hann oft á ferðinni til Dalvíkur, Siglufjarðar eða í Fljótin og fór þá ævinlega beint á Illugastaði, þar sem Guðfinna var gjafvaxta, dóttir hjónanna Páls sundkennara Jónssonar og Krist- ínar Kristjánsdóttur frá Lamba- nesi í Fljótum. Á þessu heimili var sú kona, sem Sigurbjörg hét og Páll rétti dóttur sína, eftir að hafa sagt henni frá því að hún hefði misst móður sína. Upp frá því fóstraði Sigurbjörg Guðfinnu og var þannig manneskja, að enginn hefur verið hjá henni nema láta heita eftir henni. Litli árabáturinn Háski er löngu orðinn að mold. í staðinn gerir Magnús Gamalíelsson út glæsilegasta togara landsins, Sig- urbjörgu, sem hefur aflað mjög vel og reynzt að sama skapi vel. Hann á þriðjung í togaranum Ólafi Bekki og rekur umfangs- mikla fiskverkun með myndar- skap, svo að hann var í hópi þeirra, sem fengu sérstaka viður- kenningu frá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna á dögunum. í Háva- málum segir: Sjaldan brautarsteinar standa brautu nær nema reisi niður af nið. Sú er gifta þeirra hjóna Guð- finnu og Magnúsar að búa við barnalan og eiga syni, Svavar og Sigurgeir, sem taka við fyrirtæk- inu. í ellinni er gott að vita það í góðum höndum. Þegar ég sat og spjallaði við Magnús um liðna tíð og kynntist viðhorfum hans, rak ég augun í gestabók á borðinu og skrifaði þessar linur: Eftir sögn um atvik hvert eg er að byrja að skilja að oft er meira af einum gert en aðrir trúa vilja. Haildór Blöndal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.