Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 29

Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 61 .D Wrt VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10—11 FRÁ MANUDEGI • Ratvísi dýra Á mánudagskvöldi 27. ágúst sl. var í sjónvarpi fróðlegur þátt- ur, „Dýr á ferð og flugi“, um ratvísi fugla og ýmissa annara dýra, sem t.d. fara langferðir á vissum tímum árs. Reyna vísindamenn mjög að rannsaka þessi dýr, bæði til þess að finna orsakir þessara löngu ferðalaga og ekki síst til að skilja, hvernig dýrin fara að því að rata, en það hefur lengi verið mönnum mikil ráðgáta. Sumir vísindamenn telja að t.d. fuglar í langflugi geti áttað sig á sól og stjörnum, til þess að halda réttum áttum á ferðum sínum. Einnig að þeir kunni að skynja segulsvið jarðar og þannig gert sér grein fyrir áttum. Vísindamenn hafa rannsakað dúfur með þetta í huga, en þær eru heimfúsar og ratvísar, eins og kunnugt er. Þeir settu ógagnsæ sjóngler á augu dúfna og trufluðu einnig segulsviðið, sem þær hefðu annars getað áttað sig á, ef um slíkt hefði verið að ræða. En þessi tilraun kom fyrir ekki. Dúfurnar rötuðu beina leið heim til sín og settust þar eftir eðlilega langan tíma. Eins og áður sagði, halda sumir vísindamenn, að fuglar geti fundið réttar áttir, með því að sjá til stjarna, þegar þeir fljúga nætur- flug undir heiðskýrum himni. Mér finnst að örlítið nálgist þeir kjarna málsins með því að setja stjörnur himins inn í dæmið. En þó mun mikið á vanta. Ég hef litla trú á því, að fuglar geti áttað sig á afstöðu stjarnanna, af einu saman hyggjuviti sínu. Eg hygg að stjörnur komi hér við sögu á annan og óvæntari hátt. Á stjörnunum, þ.e. á fylgihnöttum ýmissa sólna í geimnum, mun víða finnast líf, óendanlega miklu lengra komið að visku og skynjun- armætti, en þekkist meðal manna jarðar okkar. Fuglar, eins og sum önnur dýr, munu vera mjög sam- bandsnæmir, og ég hygg að á ferðum sínum njóti þeir einskonar leiðsagnar, fyrir lífsgeislan frá þessum lengra komnu verum ann- arsstaðar í geimnum. Heili fuglanna mun vera afar- fullkomið sambandstæki, þó á þröngu sviði sé, til að skynja og notfæra sér þá geislan, sem til þeirra er beint frá lengra þróuðum verum, sem viljann hafa og mátt- inn til að hjálpa þeim, svo að þeir megi lífi halda og rata rétta leið. Ingvar Agnarsson Þessir hringdu • Höfundurinn fundinn Vísnavinur birti fyrir nokkru vísu í Velvakanda og auglýsti um leið hvort einhver gæti gefið upplýsingar um höfund hennar og tilefni. Vísan er þannig: „Þær eru margar lærðar lítt. Leita skammt til fanga, en þær klappa undurblítt eins og börn á vanga.“ Halldór Kristjánsson hringdi til Velvakanda og upplýsti það að vísa þessi er eftir Þorstein Erlingsson og mun hann í þessu tilfelli hafa ort um ferskeytlur. Vísu þessa er að finna í bók Þorsteins Þyrnar. • „Getum ekki lifað af kaupinu“ Sigurður Bergsson starfsmaður Reykjavíkurborgar hafði samband við Velvakanda og vildi gera að umtalsefni þau laun sem hann og starfsfélagar hans fá. „Mánaðarlaunin eru kr. 293.848 SKÁK Umsjón: Margeir Pótursson Á skákmóti í Tashkent í Sovét- ríkjunum um síðustu áramót kom þessi staða upp í skák þeirra Manins, sem hafði hvítt og átti leik, og Ruderfers. 29. Bh3!! - Dxh3, 30. Hxf4 (Svarta taflið er nú allt í hers höndum. Hvítur hótar máti bæði á e5 og f8). Bxf3+, 31. exf3 og svartur gafst upp. 7842*2068 A 03 36-15 01.10.1979 LANDSBANKINN AUST'JRrtt JARUTl d AVI SANARE IKNINGUR 7y?.öJ_. S IGURDUR BERGSSON IRABAKKl 10 revkjav IK ÖORGARSTM. FOST - 17.09.26 01.06.7 3 : --f.a. _0_Ufi6a.7^.----------- ••♦131.850 1.384.362 161.998 1.183. 29.3^.343. .UÍÍlI* 07 44fi_ íf.-n JMFERPARDEILD 01-005-5 01.10.79 01-005-3 100,000 ÖORGARVERKFR EFl IRV INNA NANAOARLAJN ORLOF ONNUR LAJN _ p R OJALUHEIMTAN 1 *tYKJAVIKUPBORGAR 13,0 TIM ,0000 MAN D R T T U u„u_„, 1 DG JALD FCLAGSGJALD 33.379 256.761 3.7J8 3.708 60.000 84.310 10.912 2.5o3 32.949 439.200 593. 772 94.941 22.216 en frádrátturinn, húsaleiga, skatt- ur, lífeyrissjóður og félagsgjald, er 161.998. Þá á maður 131.850 krón- ur eftir til að lifa af yfir mánuðinn með fjögurra manna fjölskyldu." Sigurður vinnur í umferðardeild og kvað hann starfið útheimta mikinn fatnað. „Bæði ég og aðrir í þessu starfi hafa barist fyrir því í mörg ár að borgin útvegaði okkur föt, bæði frakka og skó, en því er alls ekki svarað. En það sjá allir að við getum alls ekki fætt okkur og klætt fyrir þau laun sem við fáum,“ sagði Sigurður að lokuum. HÖGNI HREKKVlSI ,HAFI£> ETFTK? IvA'g-e . . mETO HONOAFAN&ACAMÍ?’. // Litmyndir leikur einn og ótrúlega ódýrt með stækkara og áhöldum frá SDurst Bestu kaupin í dag! Verslið hjá fagmanninum Opið laugard. kl. 10-12 8 gerðir stækkara s/h frá 89.700 litfrá 108.700 LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SÍMI 85811 A/liiúfu. myndir a minutunm í ö/i skírteini Minutu, VD lœkjartorg myndir sími 12245 SIGGA V/öGA £ l/LVEfcAN wm m w aw$ 'b'tvf 5Atíor Á'Ú/N EK llkb Od VJÖLWö'bUÚ'b- Wí mW 'bWt vMW vfÁLPkt W A9 5A6A \ V/.A6Ó-. Vg0M6//^ vantar þÍ3 góóan bíl? notaóur - en í algjörum sérflokki SKODA 120 L — ÁRGERÐ 1977 — LITUR LJÓSGRÆNN — EKINN AÐEINS 7.00 KM. — HVORKI BLETTUR NÉ HRUKKA — SEM NÝR UTAN OG INNAN. JÖFUR I W I AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI HF LJ - SIMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.