Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
62
Cargolux heíur næstmestan flutning af þeim flugfél-
ögum í heiminum, sem stunda vöruflutninga eingöngu.
Flytur orðið 407 millj. tonn á ári. Þessa frétt byggði
dagblaðið Strait Times í Singapore nýlega á könnun í
bandaríska flugtímaritinu Air Transport World frá maí
sl., sem birti yfirlit um 62 vöruflutningaflugfélög í
heiminum. Þá eru ekki meðtalin flugfélögin Pan Am og
Lufthansa, sem stunda farþegaflug jafnframt frakt-
flutningum, né SAS og Trans International, sem flytja
álíka magn og Cargolux af frakt, auk farþega. Geysileg
aukning hefur orðið á flutningsgetu Cargolux með
tilkomu nýju Boing 747 breið þotunnar, sem kom í
gagnið í febrúar sl. og getur flutt 107 tonn í ferð.
Cargolux er svo sannarlega í
heimsfréttunum um þessar mund-
ir. Skömmu seinna skýrði Busen-
ess News í Hong Kong frá því, að
Cargolux hefði nú fest kaup á
annarri Júmbóþotu af sömu gerð
til notkunar í flutningum til
Austurlanda, og mundi hún koma
í gagnið í september á næsta ári.
Hefur blaðið það eftir fulltrúa
flugfélagsins í Hong Kong að
þotan verði komin fyrir annatím-
ann við flutning á jólavarningi til
Hong Kong á næsta ári. Fyrri
Júmbóþotan hafi síðan í febrúar
flogið þrjár ferðir til Hong Kong í
viku hverri, og voni hann að með
þeirri nýju muni þeir fjölga í 4—5,
en á milli verði fyllt upp í
flugtímann með Afríku flugi. Seg-
ir blaðið, að verðið á seinni Boing
747 þotunni muni vera um 50
milljónir Bandaríkjadala, eða 5
milljónum dýrari en sú fyrri.
Enn var Cargolux í heimspress-
unni í þessum sama mánuði, þegar
skýrt var frá því í Newsweek og
dagblöðum víða um heim að feng-
ist hefði leyfi til að Rauði krossinn
flytti matvæli til hungraðs fólks í
Kambódíu, og Cargolux fór með
fyrsta farminn til Pnom Penh. En
á sínum tíma var Cargolux fyrsta
vöruflutningaflugfélagið, sem tók
upp flug til Vietnam og Kína. Svo
ekki fer á milli mála, að Cargolux
er í broddi fylkingar á alþjóða-
vettvangi. Og fyrirsjáanlega enn á
mikilli uppleið með væntanlegri
tvöfaldri aukningu flutningsgetu
með Júmbóþotum.
Ber fjórfalt magn
af varningi
Ekki fer hjá því að slíkar fréttir
slái á stoltstrenginn í hjarta
íslenzks blaðamanns, þótt ekki
standi íslendingar að vísu einir að
þessu fyrirtæki. Ekki síst ef hann
er nýstiginn út úr þessum
glæsifarkosti, eftir góða ferð frá
Luxemburg, um Dubai við Persa-
flóa, til Singapore. Sá sem 7 árum
áður hefur flogið þeirra tíma far-
kosti Cargolux sömu leið, þarf
raunar engar tölur eða erlend
blaðaskrif til að sjá uppgang
fyrirtækisins og velgengni. Fyrstu
flugvélar Cargolux, gamlar far-
þegaflugvélar frá Loftleiðum, voru
af gerðinni Canadair CL—44 og
við farþegarnir tveir á leið til
Singapore á árinu 1972 höfðum
sæti í vörugeimnum aftan við
flugklefann. Nú hefur í nýju
Júmbóþotunni, sem ber fjórum
sinnum stærri farm en fyrstu
vélarnar, verið komið fyrir litlum
farþegaklefa fyrir gesti Cargolux
og áhöfn, þar sem gott rúm er
fyrir 10 í sætum, auk tveggja
bekkja fyrir áhöfn að leggja sig á.
Og í stað þess að maður hitaði sér
sjálfur með áhöfninni kaffisopa,
er nú þarna fyrsta farrýmisþjón-
usta. íslenzk flugfreyja eða
kínverskur þjónn stjana við manri.
En allt er nú orðið formlegra.
Maður fær ekki að flandra laus
um flugstöðvar á leiðinni og á
endastöðvum, eins og áður var,
enda tími hermdarverkamanna
gegninn í garð.
Stöku farþegi, sem Cargolux af
velvilja tekur með, er þó að
sjálfsögðu aukaatriði. En upp-
gangur félagsins í vörumagni, sem
flutt er, flugvélakosti, ferðaaukn-
ingu á fasta viðkomustaði og
viðbótarflughafnir auk uppbygg-
ingar flutningakerfis til að færa
varninginn frá Evrópuborgum í
sætiaf
vöruflutn-
ingafélögunum
Fyrirtækiö hefur flutningaþjónustu, sem flytur varning
frá flugvélunum til 30 borga í Evrópu.
vélarnar í Luxemburg, og aðbún-
aðar í heimahöfn með nýrri bygg-
ingu og viðgerðarþjónustu, — það
hefur allt þróast ótrúlega hratt og
tekið stakkaskiptum.
Með auknum umsvifum hefur að
sjálfsögðu þurft fleiri hendur, svo
að nú munu starfa um 400 manns
hjá Cargolux. Stór hluti eru
Islendingar, sem bæði fljúga vél-
unum og starfa á skrifstofum og
vigerðarverkstæðum.
Þeir búa í Luxemburg með
fjölskyldum sínum, og mynda orð-
ið stóra íslendinganýlendu, líklega
þá stærstu utan heimalandsins, ef
frá eru taldir afkomendur Vestur-
faranna.
Áfangastöðum fjölgar og
ferðir þéttast
Þótt nýja Boing breiðþotan taki
fjórum sinnum meira magn en
fyrsta Canadair CL—44 vélin
gamla, eiga þær þó nokkuð sam-
eiginlegt. Sú gamla var fræg fyrir
það, að stélið var á hjörum og þar
hægt að renna inn stórum hlutum.
Sama gildir um nýju þotuna,
nema hvað þar er það nefið, sem
leikur á hjörum og stórum hlutum
rennt þar inn. Þetta kom sér m.a.
vel á Dubai—flugvelli við Persa-
flóa á leiðinni austur, þar sem losa
þrufti mjög fyrirferðamikla og
þunga vélahluta. Það tók ótrúlega
skamman tíma, enda þotan full-
komlega vélvædd og tölvuvædd til
losunar og lestunar. Og víðar hægt
að koma inn varningi en um nefið.
Hleðslumenn fylgdu jafnan gömlu
velunum og stjórnuðu lestun á
hverjum viðkomustað, en nú hefur
Cargolux í æ ríkari mæli sína
eigin hleðslumenn á staðnum. Á
leiðinni austur um komu til dæmis
í þessari ferð í Dubai tveir ungir
menn, sem hafa verið staðsettir
þar og í Indlandi í sumar. Og eigin
umboðsskrifstofum fer greinilega
hratt fjölgandi. M.a. voru opnaðar
á sl. ári skrifstofur á Filippseyjum
og í Ástralíu og ráðnir fulltrúar í
Singapore og Bangkok.
Á sl. ári flaug Cargolux nærri
daglega frá Luxemburg til Hong
Kong með viðkomu í flughöfnum
við Persaflóa, oftast í Dubai eða
Abu Dhabi, vikulega í Vínarborg
og í flughöfnum í SA-Asíu, svo
sem Bangkok, Kuala Lumpur
Singapore, Colombo og Yemen,
þar sem alltaf er komið vikulega
a.m.k. Fyrir rúmu ári var tekið
upp vikulegt flug til Taiwan, og
bætt var á reglulegu flugi einu
sinni í mánuði til Víetnam.
í Evrópu hefur á undanförnum
árum verið komið á flutninganeti,
sem flytur á trukkum varning frá
um 30 borgum V-Evrópu í flugvél-
arnar í Luxemburg og dreifir
varningi þaðan. Kemst varan
þannig oftast á ákvörðunarstað
daginn eftir að hún kemur með
flugvélunum.
Cargolux hefur komið sér vel
fyrir á flugvellinum í Luxemburg.
Er fyrirtækið komið í nýtt rúm-
gott húsnæði með góðri viðgerðar-
aðstöðu fyrir vélarnar. Var mér
sagt, að það tæki að sér viðhald á
flugvélum annarra félaga. En á
slíku kann undirritaður blaða-
maður engin skil, og hafði ekki
nægilega langa viðdvöl hjá Cargo-
luxmönnum til að leita um það
upplýsinga.
Það var ákaflega fróðlegt að
kynnast starfsemi Cargolux aftur
eftir 7 ár og sjá vöxt þess og
viðgang. Og það er gaman að sjá
stóru glæsilegu Júmbóþotuna
leggja upp með sína hvítu, rauðu
og bláu rendur eftir endilöngum
rennilegum skrokknum, með fán-
aliti íslands og Luxemborgar. E.Pá.