Morgunblaðið - 03.02.1980, Page 5

Morgunblaðið - 03.02.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980 37 haust, en nú hafði þeim verið frestað til 1984 vegna stöðunnar á vinnumarkaðnum. í þann mund, sem þeir heilsuðust í Downing Street barst þeim til eyrna, að efnahagsmálin yrðu ekki til um- ræðu á fundi þeirra, þótt útlitið væri síður en svo gott. Forsætis- ráðherrann hafði ákveðið að taka atburðina í Noregi á dagskrá. Carrington lávarður, utanríkis- ráðherrann, kom of seint inn á fundinn. Einn ráðherranna spurði, hvort hann hefði verið að hreinsa snjóinn af skónum. í þetta sinn brosti Carrington ekki. Ráðherrunum hafði aldrei virst frú Thatcher jafn hörkuleg. Svip- urinn var jafnvel harðari en þegar járnbrautaferðir, raforkufram- leiðsla og námugröftur stöðvuðust á liðnum vetri. „Ég ætla að biðja utanríkisráðherrann um að segja okkur nýjustu fréttir af þeim mjög svo alvarlegu atburðum, sem eru að gerast innan Atlantshafs- bandalagsins,“ sagði hún og sagði orðið „mjög svo“ í þeim sérkenni- lega tón, sem jafnvel eftirhermum í sjónvarpinu hafði tekist að tileinka sér eftir öll þessi ár. Ríkisstjórninni hafði ekki fyrr verið skýrt formlega frá hjálpar- beiðni Norðmanna til banda- manna sinna. „A því er enginn vafi,“ sagði Carrington, „að hér er verið að rjúfa friðhelgi landa- mæra Atlantshafsbandalagsríkis. Helst vildu önnur aðildarríki bandalagsins lýsa því strax yfir, að árás á Noreg sé árás á þau öll og herafli verði sendur til Sval- barða...“ Skyndilega var orðið tekið af Carrington. „Sum okkar vilja einmitt lýsa því yfir, eða að minnsta kosti einn hér á fundinum." Frú Thatcher hafði látið í ljós álit sitt. Aðrir ráðherrar litu upp af rissblöðunum. Það rann upp fyrir þeim, að forsætisráðherrann og utanríkisráðherrann voru ekki einhuga um það, hvernig grípa skyldi á málinu. Carrington hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist: „En því miður, þá hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Atlantshafsbandalagslöndin urðu sammála um það, hvernig bregð- ast skyldi við á hættustundu. Við hér í þessari ríkisstjórn þurfum ekki að skammast okkar fyrir neitt. Við stuðluðum ekki að því, að þetta ástand skapaðist. Við getum á hinn bóginn huggað okkur dálítið við það, að aukin framlög okkar til varnarmála hafa ef nokkuð er dregið úr þeim skaða, sem fyrirrennarar okkar eru sekir um að hafa valdið. Án annarra erum við þó ekki til stórræða. Því miður verðum við að sætta okkur við þá staðreynd, að Sovétríkin hafa nú lagt undir sig ný svæði norðan við heimskauts- baug.“ Forsætisráðherrann og utan- ríkisráðherrann störðu hvort á annað í örfáar sekúndur. Aðrir ráðherrar litu vandræðalega í áttina til þeirra. „Utanríkisráðherranum er kunnugt um þá orðsendingu, sem ég sendi til Kennedy forseta, þar sem ég hvatti til sameiginlegra aðgerða Atlantshafsbandalags- landanna gegn Sovétmönnum á Svalbarða," sagði forsætisráð- herrann. „Sú skýrsla, sem utan- ríkisráðherrann hefur nú gefið ríkisstjórninni, er að efni til sú sama og svarið frá Bandaríkjafor- seta við orðsendingu minni." Hún bætti við: „Ég er því sammála, að ein getum við ekkert. Hins vegar getum við reynt að koma málum þannig fyrir, að við séum ekki ein. Ég ætla að hringja í forsetann strax að þessum fundi loknum. Ég mun einnig gefa yfirlýsingu í þinginu síðdegis í dag. Reynist þess þörf flýg ég síðan til Washington í kvöld." „Því midur,“ sagdi Carrington“ verdum vid ad sætta okkur vid þad, ad sovétmenn hafa nád á sitt Símtalið örlagaríka til Wash- ington bar ekki þann árangur, sem Thatcher vonaði. Að því loknu kallaði Kennedy nánustu sam- starfsmenn sína saman til fundar í skrifstofu sinni. „Thatcher hringdi úr Downing Street. Hún gefur sig ekki. Hún vill að ég taki einhverja forystu. Hvernig í andsk... á ég að svara því? Ég sagðist þuri'a að hugsa mig um. Hvert er álit ykkar?" I hópnum voru tveir menn, sem höfðu verið í Hvíta húsinu með John Kennedy — Theodore Sor- ensen, sem nú var utanríkisráð- herra, og Arthur Schlesinger, ráðgjafi í utanríkismálum. En þar voru einnig sex ungir, klárir pólitískir kraftaverkamenn, sem höfðu skipulagt sigurgöngu Kennedys í Hvíta húsið og ætluðu að halda honum þar. „Fram til þessa höfum við farið okkur hægt,“ sagði Sorensen. „í margar vikur höfum við fengið skýrslur um það, sem er að gerast á Svalbarða. Opinberlega höfum við ekki sagt neitt, sem gæti haft neina hættu í för með sér fyrir okkur. Við höfum látið áhyggjur okkar í ljós í einkasamtölum. Ég held, að við ættum ekki að taka upp nýjar starfsaðferðir." Kennedy sneri sér og leið greini- lega ekki vel: „Já, ég er sammála. En hvað með Thatcher? Hún lætur frá sér heyra opinberlega. í sjónvarpi hefur hún sagt, að Evrópa standi frammi fyrir „finn- landiseringu“ og síðan verði hún hertekin nema ég taki af skarið. Hvað á ég að segja um þessar yfirlýsingar hennar?“ Einn af þeim yngri tók til máls: „Sjáið þér til, forseti, enginn Bandaríkjamaður er hlynntur stórskuldbindingum erlendis." „Það er rétt,“ sagði Sorensen. „Tími yfirráða okkar á Atlants- hafssvæðinu er liðinn. Nú tekur við tími valddreifingarinnar á Vesturlöndum. Ég gæti samið ræðu fyrir þig, sem gengi út á þetta. Auðvitað hljóta menn að harma það, að Sovétmenn geti lagt undir sig eyju refsilaust, en í því felst hins vegar ekki annað en SJÁ NÆSTU SÍÐU Ryklaus heimili með nýju Philips ryksugunni! Gúmmíhöggvari (stuðari). , sem varnar skemmdum , rekist ryksugan í. Þægilegt handfang 850 W mótor Einstaklega þægilegt grip meö innbyggöum sogstilli og mæli, sem sýnir þegar ' ryksugupokinn er fullur. Stillanlegur sogkraftur. Nýja Philips ryksugan sameinar hvoru tveggja, fallegt útlit og alla kosti góörar ryksugu. 850 W mótor myndar sterkan sogkraft, þéttar slöngur og samskeyti sjá um aö allur sog- krafturinn nýtist. Nýjung frá Philips er stykkið, er tengir barkann við ryksuguna. Þaö snýst 360° og kemur í veg fyrir aö slangan snúi upp á sig eöa ryksugan velti við átak. Þrátt fyrir mikiö afl hinnar nýju ryksugu kemur manni á óvart hve hljóðlát hún er. Stór hjól gera ryksuguna einkar lipra í snúningum, auk þess sem hún er sérlega fyrir- ferðalítil í geymslu. Skipting á rykpokum er mjög auöveld. Rofi Inndregin snura Snúningstengi eru nýjung hjá Philips. Barkinn snýst hring eftir hring án þess PHIUPS Meðal 6 fylgihluta er sti ryksuguhaus, sem hægt er aö stilla eftir því hvor ryksuguö eru teppi eöa gólf. aö ryksugan hreyfist. Philips býöur upp á 4 mismunan gerðir af ryksugum, sem henta bae fyrir heimili og vinnusta PHILIPS heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.