Morgunblaðið - 03.02.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.02.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980 51 Vilborg Vigfúsdótt- ir — Minningarorð F. 14.2.1892 D. 26.1.1980. Amma kvödd Fregnin er hljóðlát og hógvær og enginn ofsi í för, stundin eina upp runnin og aðrar að eilífu liðnar. Hugurinn reikar að lífi og verkum þeirrar kynslóðar sem fékk landið til að brauðfæða heila þjóð. Þið genguð æðrulaus en einbeitt að brauðstriti ykkar tíma, óluð af ykkur börnin og bjugguð þeim nýja veröld. Hvernig getum við sem njótum ávaxta ykkar svita nokkru sinni fullþakkað ykkur? En kannski er það ekki á okkar færi að skilja að vellíðan okkar er ykkur full laun. Þið gáfuð allt án eftirsjár. Barnabarn Aldurhnigin heiðurskona hefur kvatt þennan heim. Langri ævi er lokið og drjúgmörg eru dagsverkin að baki. Hún kvaddi þennan heim á sama hátt og hún gekk sína lífsslóð alla, stillilega og án fyrir- gangs. Ástvinir hennar drúpa höfði í söknuði en eru jafnframt þakklátir fyrir árin fjölmörgu er þeir fengu að njóta samvista við hana og fyrir þá náðargjöf al- mættisins, að hún fékk að halda heilsu til orðs og æðis fram undir hið síðasta. Vilborg Sigþrúður hét hún fullu nafni og fæddist að Heiðarbæ í Álftaveri hinn 14. febrúar 1892. Foreldrar hennar voru Þóranna Ásgrímsdóttir og Vigfús Árnason. Fæddur 6. mars 1905. Dáinn 25. janúar 1980. Nú fækkar þeim mönnum óðum sem fæddir voru fyrir og um síðustu aldamót. Mönnum, sem lifðu tímana tvenna og ólust upp við atvinnu- hætti fyrri tíma, en gengu svo inn í tækni-öldina á seinni helmingi hennar. Samferðamennirnir verða okk- ur minnisstæðir hver á sinn hátt. Margir skilja eftir sig bjartar og ljóslifandi myndir í hugum okkar allra, sem lengi geymast hvenær sem hugur reikar. Helgi F. Arndal lést á St.Jós- efsspítala í Hafnarfirði föstudag- inn 25. janúar, og verður jarð- sunginn mánudaginn 4. febrúar frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Helgi fæddist á Bíldudal í Arn- arfirði 6. marz 1905. Foreldrar hans voru Jónína Árnadóttir ætt- uð af Álftanesi, og Finnbogi Jó- hannsson Arndal frá Laxárdal í Gnúpverjahreppi. Árið 1908 fluttist Finnbogi að Flagbjarnarholti í Landsveit, en 1909 fluttist hann með fjölskyldu sína til Hafnarfjarðar, og bjó þar til æviloka. Börn Finnboga og Jónínu voru Kristínus, Þorsteinn og tvíburarn- ir Guðbjörg og Helgi, sem nú eru látin, eftirlifandi er Sigríður og uppeldisdóttir þeirra Guðrún Daðadóttir. Helgi lærði húsgagnabólstrun hjá föðurbróður sínum Sigurjóni Jóhannssyni í Hafnarfirði, og starfaði við þá iðn meðan kraftar leyfðu. Hann var einn af braut- ryðjendum 4í þeirri iðn hér á landi. Árið 1935 gekk Helgi að eiga eftirlifandi konu sína Guðlaugu Sveinbjörgu Magnúsdóttur frá Efri-Ey í Meðallandi í V-Skafta- fellssýslu, trausta og velgerða Hún var fjórða í röð átta alsyst- kina og eins hálfbróður en elst þeirra systkina er af bernskualdri komust. Eftir lifir nú aðeins hálfbróðirinn, Þórarinn Vigfús- son. Ung fluttist hún með foreldr- um sínum að Heiðarseli í Kirkju- bæjarhreppi og ólst þar upp. Á árunum 1911 til 1919 var hún í vinnumennsku á ýmsum bæjum í heimasveit sinni en fluttist síðan til Reykjavíkur, þar sem heimili hennar hefur staðið síðan. Þar kynntist hún þeim manni, sem síðan varð lífsförunautur hennar um nær 60 ára skeið, Steingrími Magnússyni sjómanni. Steingrím- ur sér nú á bak eiginkonu sinni, nær níræður að aldri, farinn að kröftum og sjúklingur á Vífils- stöðum. Þeim varð 6 barna auðið sem öll eru á lífi og. búsett í Reykjavík eða næsta nágrenni. Steingrímur stundaði sjómennsku á togurum um áratuga skeið og kom því í hlut húsfreyjunnar að sjá um uppeldi barna og búsfor- ræði allt á þeim árum. Hörð mun lífsbaráttan hafa verið á þeirra heimili eins og á flestum alþýðu- heimilum á 3. og 4. áratug þessar- ar aldar en með dugnaði og ósérhlífni komu þau börnum sínum öllum til góðs þroska. Hafa börnin og í ríkum mæli tekið að erfðum mannkosti foreldra sinna beggja. Gagnkvæm umhyggja og virðing hefur ætíð ríkt innan fjölskyldunnar og tengt aldna og unga sterkum böndum. Steingrímur hætti sjómennsku upp úr 1950 og um svipað leyti festu þau hjón kaup á íbúð í Stangarholti 34. Þangað var gott að koma, glaðværð og gestrisni sátu þar í hásæti. Var enda gestkvæmt þar mjög á tíðum. konu. Þau bjuggu öll sín búskap- arár í Hafnarfirði og lengst af á Vitastíg 12, þar sem Guðlaug bjó manni sínum gott heimili. Börn þeirra eru Magnús, dvelur í foreldrahúsum, Sigríður, maki Emil Emilsson, Jónína Katrín, maki Þorsteinn Hjaltason, Guð- rún, maki Gestur Eggertsson. Einnig ólu þau upp að mestu dótturson þeirra Helga Arndal, sem kom eins og sólargeisli inn á heimilið og naut því ástríkis og umhyggju þeirra beggja í ríkum mæli. Óhætt mun segja að Helgi hafi átt miklu barnaláni að fagna, því niðjar hans eru góðir og gegnir þj óðf élagsþegnar. Þar sem Helgi var gæddur ótakmarkaðri þolinmæði og hóg- værð, átti hann mjög auðvelt með að umgangast barnabörn sín, minnast þau hans nú með hlýhug og söknuði í hugum sínum, því ótaldar voru stundirnar, sem hann átti með þeim við leiki og spil. Dagfarshættir Helga einkennd- ust af prúðmennsku, hógværð og látleysi. Hann hafði ríka tilfinn- ingu fyrir þjóðfélagslegri sam- kennd, að sá væri ekki mestur sem hlypi aðra um koll í lífsgæða- og valdakapphlaupinu sem marga hefur einkennt. Hann mat þann mest sem ávaxtaði pund sitt með því, að leggja sig allan fram til þarfa þjóðfélagsins eftir því sem hæfni og geta leyfði, sér og öðrum til uppbyggingar. Jákvæð og bjartsýn lífsviðhorf skipta mestu máli þegar um heilsu og hamingju var að tefla. Helgi mat þessa kosti, enda naut hann trausts og vináttu samferða- manna sinna. Engan mann hefi ég þekkt sem mér fannst betra að biðja bónar en Helga, það var ekki einungis gert af fúsum og frjálsum vilja, Húsmóðirin glaðlynd og fádæma myndarleg í allri risnu, húsbónd- inn höfðinglegur og notalegur. Síðustu árin hafa þau hjónin verið vistmenn á Hrafnistu, fyrst í hjónaíbúð við Jökulgrunn en eftir að líða tók- á ævikvöldið hafa þau dvalið á vistheimilinu sjálfu við góða umönnun starfsliðs þar alls. Vilborg var trúuð kona og trú- rækin. Hún var tryggur meðlimur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík og sótti kirkju reglulega á helgi- og hátíðisdögum meðan henni entist heilsa og þrek. Hún flíkaði lítt eigin tilfinningum en lét sér þeim mun meira varða líðan og hag annarra. Aldrei heyrðist hún kvarta eða kveinka sér allt til síðasta ævidags og hefur þó sjálf- sagt oft á tíðum blásið strítt á móti í lífi hennar. Við, sem nú erum á miðjum aldri eða yngri, eigum ekki auðvelt með að setja okkur í spor þeirrar kynslóðar, sem kölluð hefur verið aldamótakynslóðin. Við fáum lítt skilið hvílíkt harðfylgi hefur þurft til að komast af í lífsbaráttunni á fyrstu áratugum aldarinnar. Og það er vel. Guð gefi að sú tíð komi heldur var alltaf sjálfsagt og engin orð höfð eftirleiðis, enda var tilveran alltaf öruggari þegar komið var af fundi hans. Gengið er fagurt æviskeið sér- stæðs persónuleika og heiðurs- manns. Yfir æviskeiði hans hvíldi hugljúfur manndómsbragur, sem einkenndi líf Helga, að gera alltaf allt sitt besta. Helgi er allur. Horfinn sjónum okkar um stund, eftir mörg sjúk- dómsár á efri dögum. Við því er ekkert að segja þó aldraður maður sé fallinn í valinn, eftir langan starfsaldur. Þetta er saga og þarf ekki að vera okkur harmsefni, því þreyttur þarf hvíld. Helgi var hollvinur. Söknuður er í hugum ástvina. Ég votta eiginkonu hans og börn- um samúð mína. Gestur Eggertsson Geiglaus að móðunni miklu eg fer, mjúkhendur blærinn hann fylgir mér yfir. Andviðrin hverfa, en byrinn mig ber bliðheima til. þar sem ástúðin lifir. Mín heitasta þrá mun þar fullnægju finna i friðarins höfn meðal ástvina minna. F.J. Arndai. ekki aftur, að við fáum að kynnast slíku af eigin raun. Það veit ég og með vissu að var einlæg von Vilborgar, tengdamóður minnar, okkur. til handa. En þar fyrir skulum við heldur ekki gleyma því að hennar kynslóð, sem nú er næstum öll, flutti þessa þjóð úr örbirgð til bjargálna. Því ber okkur að virða hana vel. Ég kveð þessa góðu konu með söknuði og mikilli virðingu og þakka árin öll, sem ég hef verið samvistum við hana. Hugurinn dvelur og hjá blessuðum Steingrími á Vífils- stöðum. Megi Guð gefa honum friðsælt ævikvöld. Blessuð veri ætíð minning Vil- borgar Vigfúsdóttur. Tengdasonur Brldge eftir ARNÓR RAGNARSSON Bridgeklúbbur hjóna Tveimur umferðum af fimm.er lokið í barometerkeppni hjá bridgeklúbbi hjóna. Beztu skor náðu kvöld: síðasta Ester — Guðmundur 105 Erla — Gunnar 71 Dóra — Guðjón 54 Sólveig — Gunnar 53 Dröfn — Einar 51 Staðan eftir tva>r umferðir: Ester — Guðmundur 200 Dröfn — Einar 131 Erla — Gunnar 131 Dúa — Jón 74 Guðríður — Sveinn 67 Hanna — Ingólfur 46 Næst verður spilað 11. febrúar í Rafveituhúsinu. Bridgefélag Hafnarfjarðar Síðastliðinn mánudag fór fram hin árlega keppni milli Bridgefélags Hafnqrfjarðar og Bridgefélags kvenna. Spilað var í Domus Medica og mættum við Gaflarar þangað með tólf sveit- ir. Mótttökur voru með miklum ágætum og fór keppnin í alla staði mjög vel fram. Úrslit einstakra leikja: Hugborg Hjartardóttir — Kristófer Magnússon 7—13 Gunnþórunn Erlingsdóttir — Sævar Magnússon 12—8 Sigríður Ingibergsdóttir — Magnús Jóhannsson 0—20 Alda Hansen — Aðalsteinn Jörgensen 7—13 Guðrún Bergsdóttir — Albert Þorsteinsson 2—18 Guðrún Einarsdóttir — Þorsteinn Þorsteinsson 2—18 Aldís Schram — Jón Gíslason 0—20 Kristjana Kristinsdóttir — Geirarður Geirarðsson 1—19 Sigrún Pétursdóttir — Sigurður Lárusson 6—14 Sigríður Guðmundsdóttir — Ólafur Torfason 60—20 Gróa Eiðsdóttir — Ingvar Ingvarsson 12— 8 Anna Lúðvíksdóttir — Vilhjálmur Einarsson 0—20 Úrslit keppninnar: Bridgefélag Hafnarfjarðar 191 Bridgefélag Kvenna 49 Næstkomandi mánudag fer fram næst síðasta umferð í aðaisveitakeppninni. Spila- mennska hefst stundvíslega klukkan hálfátta og að sjálf- sögðu í Gaflinum. Reykjavíkurmótið í bridge Þegar átta umferðum var lok- ið í Reykjavíkurmótinu í bridge, sveitakeppni var staða efstu sveita )>essi: Sveit Oðals 123 Hjalti Elíasson 120 Sigurður B. Þorsteinsson 103 Sævar Þorbjörnsson 99 Jón Páll Sigurjónsson 86 Ólafur Lárusson 85 Tryggvi Gíslason 81 Kristján Blöndal 80 Helgi Jónsson 79 Þórarinn Sigþórsson 78 Bilstjórar og Barðstrendingar Sl. mánudag spiluðu Barð- strendingar sveitakeppni á 13 borðum. Sigruðu bílstjórarnir með 141 stigi gegn 119. Bridgedeild Breiðfirðinga Lokið er 12 umferðum af 17 í aðalsveitakeppni deildarinnar og er staða efstu sveita þessi: Hans Nielsen 187 Ingibjörg Halldórsdóttir 178 Jón Pálsson 164 Magnús Björnsson 156 Ólafur Gíslason 146 Óskar Þór Þráinsson 145 Sigríður Pálsdóttir 144 Kristján Jóhannesson 127 Næstu umferðir verða spilað- ar á fimmtudaginn kemur og hefst keppnin kl. 19.30 stundvís- lega. Spilað er í Hreyfilshúsinu. Bridgedeild Skag- firðingafélagsins Þremur umferðum er lokið í hraðsveitakeppninni og er staða efstu sveita þessi: Jón Hermannsson 1820 Vilhjálmur Einarsson 1759 Tómas Þórhallsson 1692 Sigmar Jónsson 1679 Meðalskor 1620. Næsta umferð verður spiluð á þriðjudaginn í félagsheimili Skagfirðingafélagsins. Tafl- & bridge- klúbburinn Fimmtudaginn 31. janúar var spiluð sjöunda og áttunda um- ferð í aðalsveitakeppni félagsins. Staða efstu sveita er þessi: Steingrímur Steingrímsson 130 Ingvar Hauksson 119 Tryggvi Gíslason 118 Þorsteinn Kristjánsson 110 Þórhallur Þorsteinsson 109 Ragnar Óskarsson 98 Níunda og tíunda umferð verður spiluð 7. febrúar næst- komandi, spilað verður í Domus Medica kl. 19.30 stundvíslega. + Móðir okkar og tengdamóðir, KRISTÍN LÝÐSDÓTTIR, Barmahlíð 1, verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 5. febrúar kl. 13.30. Bryndís Guðmundsdóttir, Guöjón B. Jónsson, Björgvin Guðmundsson, Kristín Jónsdóttir. Maöurinn minn, + HELGI F. ARNDAL, Vitastig 12, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi mánudaginn 4. febrúar kl. 2. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Guölaug M. Arndal. Helgi F. Arndal Minningarorð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.