Morgunblaðið - 03.02.1980, Page 30

Morgunblaðið - 03.02.1980, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980 62 Namibía Frá aðalstöðvum Lútherska Heimssambandsins i Genf ber- ast upplýsingar um erfiða að- stöðu kristinna manna í ýmsum löndum. þar sem stjórnvöld beita sér gegn kirkjunni og vilja lama áhrif hennar. Eitt þessara landa er Namibía í Afriku. Á síðustu öld hafa verið mikl- ar þjáningar meðal íbúa Nami- bíu. Meðan nýlendustjórn var við lýði lá við að öllum Afríku- mönnum vaeri útrýmt, en svo varð þó ekki einkum vegna þess að þeir voru ódýr vinnukraftur fyrir innflytjendurna. Eftir fyrri heimsstyrjöldina varð Namibia verndarsvæði Þjóðabandalags- ins undir stjórn Breta sem fólu Suður Afríku að búa þjóðina undir sjálfstæði. Suðn," Afríka vildi innlima Namibíu vegna sinna miklu náma og ræktun- armöguleika. Stjórnin setti skilnaðarlög og arðrændi fólkið og landið í stað þess að koma á sjálfstæði. Sameinuðu þjóðirnar drógu umboð S-Afríku til að stjórna Namibíu til baka en þeir hafa neitað að hlýða og halda landinu með hervaldi í andstöðu við Sameinuðu þjóðirnar og Al- þjóðadómstólinn. Kristið fólk í Namibíu hefur grátbænt um frelsi og réttlæti. Á margan hátt hafa lútherskir verið í fylkingar- brjósti í þessari baráttu. Margir eru nú í útlegð, nokkrir í flóttamannabúðum og sumir eru í vopnuðum frelsishreyfing- um. Kirkjuleiðtogar hafa opin- berlega ásakað S-afrísk stjórn- völd um að þau rjúfi einingu þjóðarinnar, sundri fjölskyldum og niðurlægi blökkumenn með því að líta á þá sem ódýrt vinnuafl. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að í friði og sátt verði mynduð meirihlutastjórn lands- búa, en stjórn S-Afríku hefur leitt hjá sér sérhverja tilraun Sameinuðu þjóðanna til að koma á frjálsum kosningum undir alþjóðaeftirliti. Meðan þessi biðskák er, líða pólitískir fangar (auk nokkurra trúarleiðtoga) í fangelsum. Stríðið á milli S-afríska hersins og frelsishreyfinga veldur áfram dauða almennra borgara sem og miklum eignaskemmdum, skól- um og sjúkrahúsum er lokað, starf kirkna truflað og starfs- fólkið líður harðræði. í Namibíu eru um 90% íbú- anna kristnir og af þeim um 58% lútherskir, 17% kaþólskir, 9,5% hollensk-reformertir, 8,5% anglikanar og önnur trúfélög 7%. Biblíulestur vikuna 3.-9. febrúar Sunnudagur 3. febr. Matt. 25:14—30 Mánudagur 4. febr. I. Kor. 1:26—31 Þriðjudagur 5. fehr. Filip. 1:27—30 Miðvikudagur 6. fehr. Róm. 3: 21 —28 Fimmtudagur 7. fehr. I. Kor. 3: 5—9 Föstudagur 8. febr. Matt. 10: 40—42 Laugardagur 9. febr. Lúk. 17:5—10. „Því miður, hann er ekki við“ 1. sunnud. í níuviknaföstu Guðspjall: Dæmisagan um talenturnar, Matt. 25, 14—30. Við þekkjum öll þesskonar svör. Við ætluðum að finna forstjórann, en hann er ekki við, er á fundi eða erlendis: í dæmisögunni, sem er annað guðspjallið í dag, líkir Jesús Guði við svona önnum kafinn forstjóra, sem er ekki við, skrapp frá, fór í frí. Hann kemur aftur fyrr eða síðar og tekur stjórnina á nýjan leik, en sem stendur er hann erlendis og hefur sett aðra til að gæta hagsmuna sinna. Hann felur starfsmönnum fyrirtækisins umsjá eigna sinna og gefur þeim umboð til að koma fram á hans vegum og gera þær ráðstafanir, sem þeir telja nauðsyn- legar til að auka vöxt og viðgang fyrirtækisins. Þetta er þeirra stóra tækifæri. Meðan forstjórinn er heima, eru starfsmennirnir háðir óskum hans og vilja og verða að fylgja fyrirmælum hans, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Nú eru þeir frjálsir gerða sinna. Auðvitað segir þessi mynd ekki allt það, sem sagt verður og segja skal um afskipti Guðs af heiminum og mannlegu lífi. En hún bendir á þá staðreynd, að Guð hefur gefið manninum frelsi til að velja og hafna, elska og hata trúa eða ekki. Því Guð vildi gefa manninum möguleika til að gjöra vilja hans óþvingað í gleði og kærleika. Þess vegna er hann ekki sýnilegur augum okkar, eins og alltsjáandi auga „Stóra bróður“ í skáldsögu Orwells: „1984“. Raunveru legur og sýnilegur er hann aðeins með augum trúarinnar. Guð vill ekki neyða manninn til trúar á sig. Hann vill ekki að maðurinn sé strengjabrúða og heimurinn leikbrúðu- land. Það er hart vegið að kirkju og kristni í heiminum um þessar mundir. Trúin heyr baráttu upp á líf og dauða. Málefnum Guðs er ógnað. Ranglætið, mannvonskan, hatrið veður uppi, og margur spyr: Hvað er Guð? Hvers vegna grípur hann ekki inn í? Jesús minnir okkur á það, að þar kemur, að hann grípur inn í, en nú hefur hann falið málefni sín okkur á hendur. Þetta er í senn heillandi og ógnvekjandi tilhugsun. Við erum umboðsmenn Guðs á jörðu. Ekki bara einhverjir prestar og „andans menn“, heldur allir þeir, sem skírðir eru til nafns Jesú Krists og þar með vígðir til lífs í fylgd hans og þjónustu við hann. Við erum kölluð til að gæta hagsmuna hans á jörðu, vitna um hann, leiða málefni hans fram. Drottinn, skapari þinn hefur falið þér ákveðin verðmæti í hendur til ávöxtunar fyrir hann. Lífið er gjöf hans og þau auðævi, sem frelsarinn taldi meira verð en allan heiminn, en það er þín eigin sál, sem hann og lagði sjálfan sig í sölurhar fyrir. Hvað hefur þú annars, sem þú hefur ekki þegið, og hvert er hlutfallið milli þess, sem þú þiggur og hins, sem þú, lætur lífinu og skapara þínum í té? Það er sú spurning sem okkar bíður allra er yfir lýkur, þegar húsbóndinn kemur aftur. Hvar er Guð? Hvar er hönd hans að sjá og rödd hans að heyra? Þú ert umboðsmaður hans. Vottur hans og verkfæri. Hvernig gætir þú hagsmuna hans? Er hönd þín verkfæri hans meðal meðbræðra þinna, er rödd þín endurómur orðs hans og vilja? Eða ert þú kannski einn þeirra mörgu, sem vilja bara vera sjálfum sér næstir, vilja hafa sína trú fyrir sig, grafa talentuna í jörð. En þú átt ekki að lifa fyrir þig, heldur aðra, miðla öðrum, þjóna, vitna, ávaxta. Og spurning dagsins er þessi: Ert þú einhverjum lífsmark frá Guði, líf þitt, trúmennska, trú og kærleikur vitnisburðar um það, að til er Guð, sem elskar, líknar og leiðir? Fréttamolar Móðir Theresa Sem kunnugt er Hefur júgoslavneska nunnan sem þekkt er undir heitinu Móöir Theresa fengiö friöarverð- laun Nóbels. Þessi smá- vaxna kona er andlegur risi. Hún hefur byggt upp um- fangsmikiö hjálparstarf fyrir pá sem eru aumastir allra, einkum á Indlandi, en hreyf- ing hennar starfar einnig t Astralíu, Mið- og Suöur- Ameríku, Sri Lanka, Tans- aníu, Ítalíu og Englandi. En hún ber vitnisburð sinn eínnig djarflega fram í orði. Enn ganga um þaö sögur þegar hún í beinni útsend- ingu hjá breska sjónvarpinu sagöi: — Guös er sannarlega þörf hérna í „stúdíóinu“. Hór eru nokkur gullkorn sem hún hefur látiö falla: „Sannur heilagleiki er fólginn í því aö gera Guðs vílja brosandi“. „Umhyggjusemi er upphaf helguninnar. Ef þú færir list umhyggjuseminnar gagn- vart öörum veröuröu stööugt líkari Kristi.“ „Alvarlegasti sjúkdómur samtímans er hvorki holdsveiki né berklar heldur sú tilfinning aö vera óæskilegur, yfirgefinn af öll- um. Mesta mein veraldar er skortur á kærleika og vin- gjarnleíka.“ Yfirfullar kirkjur í Ungverjalandi Sænski erkibiskupinn 01- of Sundby er nýkominn heim úr ferðalagi til Ung- verjalands. Hann segir frá því aö kirkjur hafi hvarvetna veriö yfirfullar þar sem hann predikaöi. Á ferð sinni haföi hann samband við um þaö bil 100 presta lúthersku kirkjunnar í landinu. — Söfnuöirnir sem ég heimsótti voru ekki aöeins fjölmennir, heldur mjög lif- andi, segir Sundby, sem heldur því fram að aðstæður kristinna manna í Ungverja- landi séu nú betri en víöa annars staöar í Austur- Evrópu. M.a. er nú í prentun ný biblíuþýðing meö styrk frá alþjóðlega biblíufélaginu. í Ungverjalandi er nú um hálf milljón lútherskra auk minni hópa mótmælenda svo sem baptista, hvíta- sunnumanna, meþódista o.fl. 7000 ungmenni á kristniboðsráðstefnu 7000 ungmenni hvaðan- æva úr Evrópu söfnuöust saman tíl kristniboösráöst- efnu sem haldin var í Laus- anne í Sviss um áramótin undir yfirskriftinni „Hver tunga skal játa að Jesús Kristur er Orottinn“. Til- gangur ráöstefnunnar var aö hvetja til aukinnar þátttöku í kristniboöi og veita upplýs- ingar um stööu kristniboðs í heiminum í dag. Umsjón með ráðstefnunni haföi TEMA, hópur fólks frá fjöl- mörgum evangelískum bibl- íuskólum í samvinnu viö ýmis kristniboösfélög. Vöxtur Islams hindrar kristniboð Aukin sjálfsvitund meðal múhameöstrúarmanna víöa um heim hefur leitt tíi erfiö- leika í kristniboðsstarfi í nokkrum löndum. Þannig hefur islömsk byltingar- nefnd í Isfahan í írán tekiö í sína umsjá blindraskóla, sem kristiö blíndratrúboðs- félag hefur rekiö. í Norður- Jemen hafa þýskir kristní- boöar oröiö aö hætta störf- um sínum. i Alsír hefur annaö kristniboösfélag oröiö aö draga verulega úr starfi sínu. Gert er ráö fyrir aö um 700 millj. múhameðstrúarmanna séu nú í heiminum og víða í Evrópu á Islam vaxandi fylgi aö fagna. Kristinn íorseti í Kenya Sagt hefur verið frá erfiö- leikum kristinna manna í Eþíópíu. i nágrannaríkinu Kenya er ástandið með allt öörum hætti. Hinn nýi forseti landsins Daniel arap Moi er kristinn maöur og eftirsóttur predikari. Á fyrsta ári hans sem forseti hefur hann pred- ikaö viö um 20 guðsþjónust- ur, og mörgum þeirra hefur veriö útvarpað um allt land- ið. í predikunum sínum hef- ur hann á opinskáan hátt játaö trú sína og hvatt landa sína til aö lúta vilja Guðs í Iffi sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.