Alþýðublaðið - 02.09.1920, Síða 3
ALÞYÐUBL AÐIÐ 3
Lífsábyrgðarfél. „Andvaka" M.
Kristjaníu, Noregi.
Allar venjulegar lífstryggingar,
barnatryggingar og lífrentur.
ÍSLANDSDEILDIN
löggilt af stjórnarráði íslands í desbr. 1919.
Ábyrgðiirslíjöliu á íslenzku! Yarnarþing- í Rvík!
„Andvaka“ heíir frjálslegri tryggingarskilyrði og ákvæði en flest
önnur líftryggingarfélög.
„AndYaka“ setur öllum sömu iðgjöld! (Sjómenn t. d. greiða eng-
in aukagjöld).
„Andvaka“ gefur líftryggingar, er eigi geta glatast nje gengið úr
gildi.
„Andvakaí£ veitir bindindismönnum sérstök hlunnindi.
„Andvaka“ veitir »örkumlatryggingar« gegn mjög lágu aukagjaldi
og er því vel við hæíi alþýðumanna og verkamanna.
Hellusundi 6, Reykjavík.
Helgi Yaltýsson,
(forstjóri Islandsdeildar).
€.s. SnðnrlaRð
fer til Borgarness 3. sept-
ember kl. 2 síðdegis.
Vörur afhendist í dag.
€.s. Suiurlanð
fer til Vestmannaeyja og
Aaustfjarða mánudag 6. sept-
ember síðdegis.
Vörur afhendist í dag
og á morgun.
Dm dagíirn og veginn.
Kveikja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
8 í kvöld.
Bíóin. Gamla Bio sýnir: „Car-
men*. Nýja Bio sýnir: „Sonur
bankastjórans frá Broadway."
Sýning Ríkarðs Jónssonar er
opin kl. xi—8 í barnaskólanum;
gengið inn um norðurdyr, næst
Lækjargötu.
Veslings Vísir. Sárt má hon-
um þykja að sjá Morgugblaðið
flytja dag eftir dag greinar eítir
kaupsýslumenn bæjarins, þar sem
algerlega er gert útaf við kenn-
ingar hans um gjaldeyrinn, og
tilraun hans til þess að gera þetta
mál að æsingamáli gegn Dönum.
Gasið. Eins og sjá má af aug-
lýsingu Gasstöðvarinnar, verður
iokað fyrir gasið fyrst um sinn
flá kl. i—8 á daginn. Má nærri
geta, hve mikill bagi er að þessu
ekki síst fyrir vinnustofur þær,
sem nota þurfa gas til reksturs.
Vonandi verður reynt alt sem
uit er til þess að útvega gaskol.
útlitið er ekki glæsilegt og
búast við gasskorti um langt
skeið.
hífijarstjórnarl'andur verður í
^ag á venjulegum stað.
Húsnæðisleysið mun verða
með mesta móti í haust, þrátt
fyrir það, þó allmikið hafi verið
reist af húsum í sumar. Húsin eru
flest smá og mörg ekki fullgerð,
og þó eitthvað losni af íbúðum,
eru þær Iöngu leigðar fólki sern
áður var svo að segja á götunni.
Stúdentar tveir hafa í sumar ver-
ið að reyna að útvega félögum
sínum húsnæði, en að þessu hefir
þeim gengið heldur stirðiega, þó
hafa þeir fengið loforð fyrir S her-
bergjum, en vantar alls að minsta
kosti ii. Ef einhver vildi leigja
eða vissi um herbergi til leigu,
væri þeim kært að fá vitneskju
um það. Bréf, þess efnis, merkt:
„Stúdentaherbergi", má senda Al-
þýðublaðinu eða Lögréttu.
Undarlegt fyrirbrigði. Þann
22. des. í íyrra tók landsstjórnia
við gulli því, sem íslandsbanki
hafði hér. Var það talið og inn-
siglað og reyndist vera rúmar 700
þús. kr. En í reikningi bankans er
gefið upp, að bankinn hafi 31.
des. áttliðlega 3 milj. lcr. »í dönsk-
um, norskum og sænskum gull-
peningum«. Hvernig gat það átt
sér stað, að gullið yxi þannig á
hálfri annari viku, þar sem ekkert
skip kom frá útlöndum til Rvíkur
á þeim tíma?
Hvaða ormur hafði lagst á
gullið? Eða er reikningur bankans
svona — eigum við að segja —
ónákvæmur?
M.b. Faxi kom af síldveiðum
í gær.
Yeðrið í morgun.
Vestm.eyjar ... S, hiti 9,1.
Reykjavík .... NNV, hiti 7,0.
ísafjorður .... NA, hiti 8,3.
Akureyri .... SSA, hiti io,o.
Grímsstaðir . . . Vantar.
Seyðisljörður . . S, hiti 10,6.
Þórsh., Færeyjar logn, hiti 9,8.
Stóru stafirnir merkja áttina.
Fífidj arft rán.
Ræningjar þrír stukku uppá
j írnbrautarlestina við Lethbridge
í Alberta (Canadian Paci'ficbraut-
ina) og rændu af farþegunum öllu
því fé er þeir fundu og komust
síðan klakldaust í burtu með þýfið.
Forsetakosning í Panama.
Nýlega fór fram forsetakosning
í lýðveldinu Panama. Heitir sá, er
kosinn var /orseti, Belisario Porras
og er rammasti afturhaldsseggur.
Mið Ameríkurík'n hafa löngum
verið talin standa á lágu menn-
ingarstigi.