Morgunblaðið - 22.06.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980
7
Oddur A. Sigurjónsson átti
sitthvað ósagt, þegar síðast
var frá horfið. Honum þótti
raddaður framburður 1, m, n
á undan hörðum lokhljóðum
ljótur, og ekki kannaðist
hann við, að þvílíkur hor-
jarmur tíðkaðist í Austur-
Húnavatnssýslu. Hann segir
enn:
„Ég veit ekki betur en
Vestursýslan sé einnig laus
við þessi raddhljóð, og ef mig
grunar rétt, einnig Stranda-
sýsla. Að minnsta kosti
minnist ég ekki jarmsins frá
skólasystkinum mínum það-
an og voru þó allmörg.
Vegna þessarar reynslu
hefi ég jafnan litið á Hún-
vetninga og Strandamenn
tilheyra öðru framburðar-
svæði en Norðlendinga þar
fyrir austan.“
Þetta er, að því er ég best
veit, alveg rétt. Auðvitað
verður blendingssvæði á
mörkunum austanverðum,
en það skiptir ekki miklu.
Þá segir Oddur: „Vissulega
er erfitt að deila um smekk,
enda ekki ætlun mín. En úr
því að ég sting niður penna,
þykir mér ekki fráleitt að
láta í ljós, að mér þykir sem
Norðlendingar fari á hæli í
smekkvísi, þegar farið er að
einfalda í framburði tvöfalt
g, t.d. í dyggð og tryggð
o.s.frv. Aftur á móti teldi ég
eðlilegt að taka upp hv-fram-
burð í stað kv-framburðarins
þar sem það á við. Þetta væri
bæði útlátalaust og auðvelt
og gerði — að mínu viti —
málið litríkara og umfram
allt réttara, á sama hátt og
skaðlaust væri að leggja
niður hebbði og seggði og
hið sunnlenska fleirri. Þetta
þrennt síðasttalda jaðrar
svona við meðalnauðgun á
málinu.
Ekki fleira að sinni. Sendi
þér bestu kveðjur með þökk
fyrir gamalt og gott, þegar
undan er skilin svartfugla-
villan og rödduðu hljóðin."
Lýkur bréfi Odds A. Sigur-
jónssonar, og eru hér efni í
langan lestur.
Þar er þá fyrst til að taka,
er honum finnst smekkvísi
Norðlendinga hafa hrakað,
þar sem þeir séu farnir að
segja trygð og dygð í staðinn
fyrir tryggð og dyggð. Allur
gangur mun nú vera á þessu,
en ef þetta er smekkleysa, þá
fer að verða vafasamt að
halda því fram að framburð-
urinn hebbði, seggði jaðri
við nauðgun á málinu. Um
orðið dygð er það að segja,
að rithátturinn með tveimur
g-um er hæpinn að dómi
Halldórs Halldórssonar
prófessors (sjá Stafsetn-
ingarorðabók) hvað þá fram-
burðurinn.
Viðtengingarhættir þátíð-
ar af hafa og segja myndast
af framsöguhætti þátíðar
hafði, sagði, og um öll þessi
orð þykir mér gilda eitt og
hið sama: eðlilegra og rétt-
ara miðað við uppruna að
bera þau fram með rödduðu
önghljóði en órödduðu lok-
hljóði. Þótt annað eigi við
um orðið tryggð, ef upprun-
ans eins er gætt, er ekki
óeðlilegt að tvöfaldur sam-
hljóði einfaldist á undan
þriðja samhljóða.
Oddur A. Sigurjónsson tel-
ur eðlilegt að taka upp hv-
framburð í stað kv-fram-
burðar, þar sem það á við. Ég
er sammála honum um það,
ef miðað er við upprunann
einan, eða hvernig allir ís-
lendingar báru fram fyrr
meir. Hins vegar er ég hon-
um hjartanlega ósammála
um að þetta sé útlátalaust og
auðvelt og gerði málið litrík-
ara. Fyrir þá, sem hafa ekki
lært þennan framburð í
barnæsku, er hann mjög erf-
iður að nema, og auðvitað
yrði málið miður „litríkt", ef
þessi mállýskumunur hyrfi.
Svo er það „hið sunnlenska
fleirri“. Þó að sú orðmynd
falli ekki í minn smekk, get
ég ekki annað en viðurkennt
að hún er í fullu samræmi
við þá breytingu málsins sem
menn hafa látið sér lynda.
hljóðið r tvöfaldast (lengist)
á eftir löngu áherslusérhljóði
og undan stuttu áherslulausu
sérhljóði, ekki aðeins í mið-
stigum lýsingarorða, heldur
nokkru víðar.
Eysteinn orti í Lilju:
„Máría, lifir þú sæmd í
hári.“ Nú tölum við allir um
að einhver lifi í hárri sæmd.
Enginn segir lengur að einn
sé stæri en annar, og enginn
segir þeiri konu. Allir segja
nú orðið þeirri. Nákvæmlega
sama er að gerast í miðstig-
inu fleiri. Breytingin þar
hefur hins vegar tekið lang-
an tíma og er ekki um garð
gengin í öllum landshlutum
og gerir það ef til vill aldrei.
Mér virðist og engin hreyfing
vera komin á miðstigið
meiri, hvorki hér né þar,
hvað sem því veldur. Svona
er málið duttlungafullt.
Þó að mér þyki ekki fagurt
að segja fleirri, viðurkenni
ég fúslega réttmæti þessa
framburðar af sögulegum
ástæðum og undrast mest að
orðmyndin skuli ekki hafa
tekið annarri breytingu, sem
við blasir: fleirri — flerri.
Mér finnst fráleitt að býsn-
ast yfir því að Sunnlendingar
tali svo, enda ættum við
hinir þá að hætta að segja
þeirri og stærri og segja
þeiri og stæri, ef við ættum
að vera sjálfum okkur sam-
kvæmir.
Ég veit ekki fyrir víst hvað
Oddur á við með svartfugla-
villu, en held hann sé að
minna mig á þá skemmtilegu
málvenju sem orðin er báðu-
megin Eyjafjarðar, að kalla
svartfuglinn uglu. Menn fara
í uglu, þegar þeir fara til
þess að skjóta svartfugl.
Þetta er dálítið erfitt að
skýra og má bíða, en þar sem
ég veit að Eyfirðingar fyrir-
gefa mér margt, læt ég hér
að endingu flakka hina
kunnu vísu um eyfirsk mál-
lýti. Þau komast þó fyrir í
einni ferskeytlu:
Svartfuglu í sandinum ég leit.
sú ók hugsi haíi verið feit.
hana drepið hefði ók skulað þá.
hcfði hún ekki floKÍð burt mér frá.
THORITE
■i steinprýði
v/Stórhöfða sími
Steypugalla-
viðgerðarefni
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl.
Thorite ertilvaliðtil viðgerða
á rennum ofl. Það þornar á
20 mínútum.
83340
a nœsturmi
Úrvalsferðir 1980
4. júlí Ibiza, Mallorka ein vika
4. júlí Ibiza 3 vikur, laus sæti
11. júlí Mallorka 3 vikur, örfá sæti laus
25. júlí Ibiza 3 vikur, laus sæti
1. ágúst Mallorka 2 og 3 vikur, örfá sæti laus
15. ágúst Mallorka, Ibiza biölisti
22. ágúst Mallorka 3 vikur, örfá sæti laus
FERÐASKFUFSTOFAN
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900
Höfum kaupendur aö eftirtöldum verðbréfum:
VEROTRYGGÐ SPARISKIRTEINI
RIKISSJOÐS: Innlausnarverð
15. juni 1980 Seðlabankans
Kaupgengi m.v. 1 árs Yfir-
pr. kr. 100,- tímabil frá: gengi
1968 1. flokkur 5.691,95 25/1 '80 4.711.25 20,8%
1968 2. flokkur 5.191,47 25/2 '80 4.455,83 16,5%
1969 1. flokkur 4.076,71 20/2 '80 3.303.02 23,4%
1970 1. flokkur 3.737,08 25/9 '79 2.284,80 63,6%
1970 2. flokkur 2.683,97 5/2'80 2.163,32 24,1%
1971 1. flokkur 2.492,11 15/9 79 1.539,05 61,9%
1972 1. flokkur 2.172,28 25/1 '80 1.758,15 23,6%
1972 2. flokkur 1.859.21 15/9 79 1.148,11 61,9%
1973* 1. flokkur A 1.396,12 15/9 79 866,82
1973 2. flokkur 1.286,03 25/1 '80 1 042,73
1974 1. flokkur 887,54 15/9 '79 550,84
1975 1. flokkur 723,64 10/1 '80 585,35
1975 2. flokkur 545,57
1976 1. flokkur 518.29
1976 2. flokkur 420,90
1977 1. flokkur 390,88
1977 2. flokkur 327,44
VEÐSKULDA- Kaupgengi m.v. nafnvexti
BREF:* 12% 14% 16% 18% 20% 38%
1 ár 65 66 67 69 70 81
2 ár 54 56 57 59 60 75
3 ár 46 48 49 51 53 70
4 ár 40 42 43 45 47 66
5 ár 35 37 39 41 43 63
*) Miðað er við auðseljanlega fasteign.
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
1978 1. flokkur 262,25
1978 2. flokkur 207.00
1979 1. flokkur 175,04
1979 2. flokkur 135,83
1980 1. flokkur 104,97 ♦ dagvextir
MÍRraTiiKffiréM Uumoi hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 2 05 80.
Opiö alla virka daga frá kl. 9.30—16.