Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980
19
Danmörk, Svíþjóð og Noregur:
Skandinavíulöndin
þrjú, Svíþjóð, Danmörk
og Noregur, hafa hingað
til verið litin öfundar-
augum fyrir velsæld
og stöðugleika í efna-
hagslífi. Nú horfir hins-
vegar öðruvísi við, ef
marka má álit Alfred
Zankers, bandarísks
sérfræðings um efna-
hagsmál, en hann segir
ríkin nú standa
frammi fyrir alvar-
legum vandamálum á
því sviði.
Ástæðan fyrir þessum skyndi-
legu breytingum liggur ljós
fyrir. Risastórir félagsmála-
pakkar, sem gefa næstum hverj-
um sem er ávísun upp á greiðsl-
ur úr ríkissjóði, hafa vaxið langt
fram úr greiðslugetu sjóðanna.
Vaxandi útgjöld, með háum
launum og fullkominni félags-
þjónustu, hafa veikt samkeppn-
isaðstöðu þjóðanna erlendis og
valdið minnkandi útflutningi.
Þjóðirnar eru skuldum vafðar
og mestallur hagnaðurinn af
iðnaðinum rennur beint til vel-
ferðarmála.
Afleiðingarnar láta ekki á sér
standa. Skattgreiðendur eru
óánægðir, því óvenjuhátt hlut-
fall tekna rennur í ríkiskassann.
Skattsvik og annað svindl eykst
stöðugt. Frumkvæði í viðskipt-
um er ekki lengur ábatasamt og
vinnuandinn hjá launafólki er
daufur. Fjarvistir frá vinnu
færast í aukana, enda eru veik-
indadagar vel borgaðir.
Mikil óvissa hefur ríkt í efna-
hagsmálum í Danmörku og Sví-
þjóð, og einnig í Noregi, þó í
minna mæli sé. Svíar eru ný-
staðnir upp úr allsherjarverk-
falli, sem lamaði nær allt at-
vinnulíf og á tímabili leit út
fyrir algera ringulreið. Sérfræð-
Frá Noregi.
lega óábyrg", segir dagblað í
Stokkhólmi.
Vöruskiptajöfnuður við út-
lönd er óhagstæður. Innflutn-
ingur er meiri en útflutningur
og Svíar leita æ meira til
útlanda með fé sitt í sumar-
fríum.
Verðbólgan rýrir hagnað
fyrirtækjanna og kemur í veg
fyrir eðlilega endurnýjun fram-
leiðslutækjanna. Afleiðingin er
versnandi samkeppnisaðstaða
erlendis. Launakostnaðurinn er
einnig þungur baggi á iðnaðin-
um. Eftir nýafstaðna samninga
mun hann aukast um 10—12%.
Það er því útlit fyrir að Svíar
fari halloka á alþjóðamörkuðum
á næsta ári, en baráttan þar er
talin verða hörð ’81.
„Svíar verða að auka fram-
leiðsluna og útflutninginn ef
ekki á illa að fara,“ segir Rudolf
Jalakas hjá Svenska Handels-
banken, en það mun reynast
erfitt vegna verðbólgunnar og
hins mikla launakostnaðar.
Stjórnin spáir aðeins 2,5%
framleiðsluaukningu á tímabil-
inu til ársins 1985 og margir eru
Velferðarríki í vanda
ingar í Stokkhólmi sjá fram á
harðindatímabil, allt til ársins
1985. Bankastjóri í Svíþjóð orð-
aði það þannig: „Veislunni er
lokið, reikningarnir eru að koma
inn.“ Til þess að öðlast efna-
hagslegan stöðugleika á ný,
neyðast löndin til að minnka
útgjöldin og halda sívaxandi
launakostnaði í skefjum.
Danir eiga ekki annarra kosta
völ. Þeir hafa lifað vel um efni
fram frá miðjum síðasta áratug
og eiga í sífelldum kreppum.
Bankastjóri Centralbanken, Er-
ic Hoffmeyer, varar við því að
litið sé á Danmörku erlendis
sem „efnahagslega óábyrga", og
lánstraust þjóðarinnar sé í
hættu. Stjórnin í Kaupmanna-
höfn hefur beðið þjóðina um
„umtalsverðar fórnir" í því
augnamiði að minnka skulda-
baggann, sem nú hljóðar upp á
16 milljarða dollara. í þessari
áætlun verður reynt að minnka
útgjöldin og skattar verða
hækkaðir.
Virðisaukaskattur, sem er al-
mennur skattur á vörur og
þjónustu, mun hækka úr 20 í
22%. Olíuskattur og fasteigna-
skattur munu einnig hækka
verulega. Sérfræðingar álíta að
launakostnaður verði að vera
kominn niður um 11—13% fyrir
1985.
Norðmenn hafa einnig neyðst
til að taka upp stranga stefnu í
efnahagsmálum, með aðhaldi í
verðlags- og launamálum. Þó
hafa Norðmenn tekjulind, sem
kemur til með að auðvelda þeim
vandann til muna, olíuna. Verð
og eftirspurn á olíu fer vaxandi í
heiminum og gróðinn af henni á
eftir að vega þungt á metunum
þegar lagt verður til atlögu við
skuldasummuna, sem nemur 22
milljörðum dollara.
Af þessum þrem löndum
standa Svíar eflaust verst að
vígi. — Áratuga örlæti er farið
að síga óþyrmilega í pyngjuna.
Mettekjuhalli verður á fjárlög-
um næsta árs, en eyðsla umfram
tekjur mun nema yfir 11% af
heildareyðslunni. Samsvarandi
tala í Bandaríkjunum er 1,5%.
Á síðasta ári jókst kostnaðurinn
vegna bótakerfisins um 7%,
meðan þjóðartekjur jukust að-
eins um 2%. „Þenslan á sviði
velferðarmála hefur verið alger-
enn svartsýnni. Raunhæfar
kjarabætur geta því ekki orðið
verulegar fyrr en að löngum
tíma liðnum.
Svíar höfnuðu stjórn sósíal-
demókrata þegar kostnaðurinn
vegna velferðarríkisins þótti
orðinn of geigvænlegur. í henn-
ar stað kom stjórn Thorbjörn
Fálldin, en hún styðst aðeins við
eins atkvæðis meirihluta og
hefur því mjög takmarkað svig-
rúm til athafna.
Margir telja að Svíar séu í
raun ekki reiðubúnir til að fórna
þægindunum, svo rétta megi
efnahaginn við. Það er þó ljóst
að ef þeim tekst ekki að auka
útflutningstekjurnar til jafns
við velferðarstigið, getur
ástandið aðeins versnað.
(býtt og cndursaKt úr U.S.News and World
Report.)
Litmyndir
eru okkar
sérgrein!
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
HANS
BANKASTRÆTI
S: 20313
PETERSEN HF
GLÆSIBÆ AUSTURVERI
S: 82590 S: 36161
Kantlímingarvél
til sölu
Upplýsingar á staönum.
Tréval h.f.
Nýbýlavegi 4.
------------------^
SLÁ TTUORF