Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980
+
Móðir okkar, tengdamóöir og amma
INGIBJÖRG ALBERTSOÓTTIR
lést í Borgarspítalanum 19. júní.
Jarðarförin auglýst síöar.
Ingibjörg H. Sverrisdóttir,
Einar A. Sverriaaon, Aathildur D. Kriatjénsdóttir,
Jónas S. Sverrisson, Edda S. Hólmberg,
Sverrir Einarsson jr.
Móöir okkar,
JÓHANNA ELÍN ÓLAFSDÓTTIR
fró Stórutungu
lést aö Elliheimilinu Grund þann 20. júní.
Guöbjörg Þórarinsdóttir,
Valgeröur Þórarinsdóttir,
Ólafur Þórarinason
og aörir vandamenn.
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
GUNNAR GUOMUNOSSON,
forstööumaöur,
Sunnuvegi 11, Hafnarfiröi
sem lést 14. júní sl. verður jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miövikudaginn 25. júní kl. 14.00 en ekki laugardaginn 28. júní eins
og áöur var auglýst. |nga Guömundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Útför eiginmanns míns og sonar okkar,
HELGA H. LAXDAL,
Löngubrekku 12, Kópavogi
fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 23. þ.m. kl. 10.30.
Sigurlaug Einarsdóttir,
Sigríöur Laxdal, Halldór Laxdal.
+
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
TÓMAS SIGVALDASON,
Brekkustíg 8
veröur jarösunginn mánudaginn 23. júní frá Fossvogskirkju kl.
13.30.
Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Dvalarheimili aldraöra sjómanna._ _.
Dagmar Siguröardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma
ÓLAFÍA SVANHVÍT EGGERTSDÓTTIR,
Langage'öi 76
sem andaöist í Borgarspítalanum 15. júní sl., veröur jarösungin
þriöjudaginn 24. júní frá Fossvogskirkju kl. 13.30.
Blóm afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar, er
vinsamlegast bent á aö láta Landsamband fatlaöra, Hátúni 12,
njóta þess.
Pétur Kristjénsson,
Rannveig Pétursdóttir, Guóbjartur Eggertsson
Ólafur Pétursson, Elín Þorkelsdóttir,
Sigmundur Pétursson, Linda Óskarsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar og afa,
HERMANNS GUDMUNDSSONAR,
fré Bæ,
Sólheimum 26.
Aóalbjörg Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokaö
Radíóbúðin verður lokuð á morgun, mánudaginn 23.
júní vegna jarðarfarar
HELGA LAXDAL.
Radíóbúðin,
Skipholti 19.
Lokað
vegna jaröarfarar
HELGA LAXDAL
mánudaginn 23. þ.m. kl. 9—13. Radíóstofan hf., Þórsgötu 14.
Helgi HLaxdal
- Minningarorð
Fæddur 8. nóvember 1946.
Dáinn 11. júní 1980.
Mig langar með fáum orðum að
kveðja mág minn Helga Laxdal,
en hann lést í Landspítalanum 11.
júní sl.
Helgi var undanfarin ár búinn
að berjast við alvarlegan sjúkdóm.
Lífsvilji hans og kraftur var með
fádæmum. Hann ætlaði sannar-
lega ekki að gefast upp. Stuttu
fyrir andlát sitt kom hann til
okkar fársjúkur, en gekk samt upp
á 4. hæð og sat fram á kvöld og
spjallaði um lífið og tilveruna og
það sem tæki við eftir þetta líf.
Helgi vissi að lífshlaup hans var
þegar á enda runnið og ekkert
væri hægt að gera sem breytti því.
Það þarf mikinn kjark til þess að
mæta sínum dauðadómi með
þeirri ró sem Helgi gerði, en trú
hans á framhaldslíf var honum
mikill styrkur.
Það væri ekki við hæfi að skrifa
grátklökkva minningargrein um
mann eins og Helga, hann var
maður lífsins og vildi njóta þess
sem lífið hafði upp á að bjóða
hverju sinni. Ahugamál hans voru
mörg og ekkert var honum óvið-
komandi, íþróttir, góðir bílar,
sjórinn með allan sinn marg-
breytileik og dýravinur var hann
mikill, enda var hann mörg sumur
í sveit á sínum uppvaxtarárum.
Helgi var fæddur að Básum í
Hörgárdal 8. nóv. 1946. Foreldrar
hans eru Halldór Laxdal og Sig-
ríður Axelsdóttir. Helgi var elstur
af fimm börnum þeirra hjóna.
Hann var tvíkvæntur og lætur
eftir sig þrjú börn. öllum aðstand-
endum hans sendi ég mínar sam-
úðarkveðjur.
Sigurlaugu systur minni votta
ég mína dýpstu samúð í hennar
miklu sorg.
Að lokum langar mig að þakka
Helga fyrir þá vináttu sem hann
sýndi mér og fjölskyldu minni.
Hann var maður sem ánægjulegt
var að þekkja, — við söknum hans
sárt.
Hvíl í friði. Hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Magga Lilja.
Eg hef sezt niður á fallegu
sumarkvöldi, til að minnast og
þakka fyrir að hafa fengið að
kynnast og vera samferða síðustu
ellefu árin mági mínum Helga
Laxdal.
Þegar ég fyrst kynntist Helga
kenndi hann sér einskis meins,
enda verður ekki annað sagt en
hann hafi notið lífsins í ríkum
mæli.
Hann var hrókur alls fagnaðar,
hvar sem hann kom. Vini eignað-
ist hann auðveldlega, enda hef ég
aldrei heyrt hann hallmæla nokk-
urri manneskju.
En þegar tímar líða, veit ég, að
ég á eftir að minnast hans sem
manns, sem gæddur var í ríkum
mæli, hugrekki, ósérhlífni og síð-
ast en ekki sízt sérstakri hlýju,
sem ég held að allir sem kynntust
honum hafi verið aðnjótandi.
Fyrir sex árum veiktist Helgi af
sjúkdómi, sem talið er að fáir
verði langlífir eftir að hafa tekið.
Hann vissi sem var að árin hér
yrðu líklega ekki mörg. En þeim
varð að lifa og það ekki með
neinum aumingjaskap og vor-
kunnsemi.
Helgi lét ekki bugast. Hann
barðist til síðustu stundar, enda
hafði hann fundið þá konu, sem
hann vildi eyða lífdögum sínum
með. Reyndist hún honum líka góð
stoð í veikindunum. En öll stríð
taka enda. Og þetta stríð vinnur
enginn.
Helgi hefur kvatt okkur í bili, en
vonandi hittumst við öll um síðir.
Ninna.
Minning:
Þóröur Sigurðsson
frá Blómsturvöllum
Þórður Sigurðsson sjómaður frá
Blómsturvöllum verður til moldar
borinn á morgun, mánudaginn 23.
júní, en hann andaðist á Hrafn-
istu í Reykjavík 12. þ.m. nærri 94
ára gamall. Þórður stundaði sjó-
inn samfellt í meira en hálfa öld,
þar af á togurum í 45 ár. Hann var
elstur íslenskra togarasjómanna
seinustu árin sem hann lifði.
Þórður fæddist 23. september
1886 að Meiðastaðakoti í Garði
sonur Sigurðar Sigurðssonar
formanns, ættaðs af Suðurnesjum,
og konu hans Guðríðar Jónsdóttur
frá Geirlandi á Síðu, yngstur sex
sona þeirra hjóna. Foreldrar hans
fluttu skömmu siðar að Blómst-
urvöllum í Garði og voru þeir
feðgar allir kenndir við þann stað
upp frá því.
Atta ára að aldri fór Þórður
fyrst til sjós með föður sínum, en
árið sem hann fermdist, alda-
mótaárið, réðst hann sem kokkur
á 12 tonna far, sem Stígandi hét
og Helgi Helgason átti, nú kunnur
sem tónskáld, en var þekktari sem
mikill athafnamaður af samtíð
sinni. Næstu árin var hann á
ýmsum kútterum svo sem Sigríði
með Ellerti Schram og á Isabellu
með Jóni elsta bróður sínum sem
var eigandi skipsins. Jón Sigurðs-
son var kunnur skipstjóri á sinni
tíð og einn af stofnendum Alli-
ance.
Þórður var skráður háseti á
togaranum Jóni forseta í hans
fyrstu veiðiferð í febrúar árið 1907
og var þar í skipsrúmi næstu árin.
Árið 1910 tók Jón bróðir hans við
skipstjórn á Forsetanum og var
Þórður bátsmaður með honum
næstu fjögur árin fram að fyrra
stríði.
Árið 1919 tók Þórður 35 tonna
prófið og var svo nótabassi í þrjú
sumur á mótorbátnum Snuggi.
Var þá farið á hákarl á vorin og
svo á síid, þegar kom fram í júlí.
Þannig gekk það lengi til fyrir
Þórði, að hann var á togurum á
veturna, en á bátum á síld á
sumrin og stundum einnig á tog-
urum. Er Guðmundur Markússon
tók Tryggva gamla árið 1922 réðst
Þórður til hans og var eftir það
með honum fyrst á Tryggva
gamla, síðan á Hannesi ráðherra
og loks á Jóni Ólafssyni. Hann var
ráðinn í skipsrúm á Jóni Ólafs-
syni, er hann fór í sína hinstu
veiðiferð í október 1942, en dvald-
ist fyrir norðan eftir síldarvertíð-
ina og missti af túrnum. Árið 1952
kom Þórður alkominn í land og
stundaði eftir það netagerð og
viðgerðir um árabil lengst af hjá
netagerðinni Höfðavík.
Árið 1906 kvæntist Þórður
Ágústu Gunnlaugsdóttur úr
Reykjavík. Eignuðust þau þrjú
börn, dr. Óskar fyrrverandi yfir-
lækni, Lilju húsfreyju í Reykjavík
og Sigurð skipstjóra í Reykjavík
sem látinn er fyrir allmörgum
árum. Þau Þórður og Ágústa
skildu.
Seinni kona Þórðar var Þóra
Ágústa Ólafsdóttir ættuð úr Garð-
inum. Þeirra börn voru Helga^ift
í Bandaríkjunum, Sigurður Arni
sem lést í bernsku, Þorlákur
leiktjaldasmiður í Reykjavík,
Margrét húsfreyja í Hafnarfirði,
Sigurður Ragnar farmaður, en
hann lést 1956 og Fríða gift í
Bandaríkjunum. Þóra og Þórður
slitu samvistum.
Seinustu 16 árin var Þórður
vistmaður á Hrafnistu í Reykjavík
og undi þar vel hag sínum. Hann
var mjög vel ern, sjón og heyrn lítt
skert fram til hins síðasta. Hann
átti langt og gott ævistarf að baki,
þegar hann settist í helgan stein,
hafði lifa og tekið virkan þátt í
mestu atvinnulífsbyltingu sem
þjóðin hefur séð. Hann var á
hafnarbakkanum, þegar togarinn
Jón forseti kom að landi með hinn
nýja tíma og hið íslenska nútíma-
þjóðfélag byrjaði að mótast. Hann
var einn af íslands Hrafnistu-
mönnum.
Þórður Sigurðsson var meira en
meðalmaður á hæð, svipmikill,
vörpulegur á velli og karlmann-
legur. Hann var glaðsinna og
hlýlegur í viðmóti. Æðrulaus var
hann og lét aldrei bugast af neinu
mótlæti. Hann kvaddi þennan
heim sáttur við guð og menn.
Blessuð sé minning hans.
ÓStS.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför móöur okkar,
ÖNNU G.J. ÁGÚSTSDÓTTUR,
Öldugötu 25A.
Fyrir hönd aöstandenda,
Kristín Nóadóttir,
Thoodór Nóaaon.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Simi 81960