Morgunblaðið - 06.07.1980, Page 1
64 SÍÐUR
149. tbl. 67. árg. SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Æfingu
lokið
SOVÉSKU flotaa'finKunni á Nor-
egshafi og hafinu milli íslands og
Skotlands er lokið. Æfingin var
með hefðbundnu sniði að því leyti,
að í norðri æfðu sovésku herskipin
gagnkafbátaaðgerðir og flotadeild-
in, sem látin var sækja i norðurátt
milli íslands og Skotlands mun
haga gegnt hlutverki sóknarflota
Atlantshafsbandalagslanda. Æf-
ingin stóð í um það bi) viku og tóku
um 15 skip þátt i henni.
Meðal skipanna var flugvélamóð-
urskipið Kiev, sem er um 40 þúsund
lestir að stærð. Kiev er annað
tveggja flugvélamóðurskipa Sovét-
ríkjanna, hitt heitir Minsk og hefur
verið á Indlandshafi undanfarið.
Talið er, að tvö systurskip þessara
tveggja skipa séu um það bil að
verða tilbúin og auk þess séu Sovét-
menn að ljúka við smíði um 60
þúsund lesta flugvélamóðurskips. Þá
tók þyrlumóðurskipið Leningrad
einnig þátt í æfingunum í nágrenni
Islands að þessu sinni. Það er annað
tveggja þyrlumóðurskipa Sovét-
manna, en hitt skipið heitir Moskva.
Þyrlumóðurskipin eru um 15 þúsund
lestir að stærð. Auk þessara skipa
tóku síðan bæði herskip og kafbátar
þátt í æfingunni.
í apríl var liðsafnaður Sovét-
manna með þeim hætti, að talið var,
að þeir væru að hefja venjulega
voræfingu sína á hafinu við Island.
Aldrei mun hafa komið til þess, að
æfingin tæki á sig endanlega mynd
og er talið, að sú æfing, sem nú er
nýlokið, hafi þess vegna verið nauð-
synleg.
50.000
milljarðar til
hernað-
arútgjalda
London, 5. júlí. AP.
SOVÉTMENN verja fjór-
um sinnum meiri upphæð
til hernaðarútgjalda en
segir til í fjárlögum, að
því er varnarmálasérfræð-
ingur brezka blaðsins The
Daily Telegraph hefur eft-
ir leyniþjónustuheimild-
um í Briissel.
Segir í fregn blaðsins, að
Sovétmenn hafi varið til
herútgjalda á árinu 1978
milli 46 og 50 milljörðum
sterlingspunda, eða sem
svarar 50.000 milljörðum
króna. Fyrstu áætlanir
bendi til að upphæðin hafi
verið milli 48 og 52 millj-
arðar sterlingspunda á síð-
astliðnu ári.
Bendir þetta til þess, að
Sovétmenn hafi að raun-
gildi aukið útgjöld til her-
mála um 35 af hundraði
miðað við árið 1970. Árið
1970 var hlutur herút-
gjalda í þjóðarframleiðsl-
unni milli 11 og 13 af
hundraði, en er nú milli 12
og 14 af hundraði.
Keisari
skorinn?
Kairó, 5. júlí. AP.
ÓSTAÐFESTAR fregnir hermdu
að gerð hafi verið aðgerð á
fyrrum íranskeisara í dögun í
morgun. Aðgerðin hafi tekið
tvær klukkustundir og verið
samskonar og aðgerð sem gerð
var á honum fyrr í vikunni.
Hermt var að líðan keisara væri
enn alvarleg.
„Þessir loftflutningar sanna
áþreifanlega ugg Bandaríkjanna
um öryggi Thailands," sagði tals-
maður bandaríska sendiráðsins í
Bangkok. Loftflutningunum lýkur
á þriðjudag.
Yfirmaður herafla Thailend-
inga, Serm Na Nakhorn hershöfð-
ingi, hældi loftflutningunum og
MEIRA en þriðjungur íbúa Efna-
hagsbandalagslanda Evrópu er
þeirrar skoðunar. að alvarlegar
líkur séu á því, að þeir kunni að
lenda i striðsátökum á næstu 10
árum. Þetta kemur fram í síðasta
hefti ritsins EURO-BAROM-
ETRE, sem hefur að geyma kann-
anir á almenningsálitinu i banda-
lagslöndunum.
Frakkar og Bretar eru svartsýn-
astir að þessu leyti, en 42%
Frakka og 39% Breta eru þeirrar
skoðunar, að það sé annað hvort
„öruggt" eða „meira en 50—50
líkur“ að styrjöld brjótist út.
Þjóðverjar, Danir, Hollendingar
og Luxembúrgarar eru í þeim
hópi, sem telur minnstar líkur á
því, að stríð verði.
51% Efnahagsbandalagsbúa
telja enga hættu á stríði eða
líkurnar séu minni en 50—50.
Frakkar (42%) og Bretar (45%)
skera sig hér einnig úr, en 60%
Þjóðverja telja enga hættu á
stríði.
Skoðanakönnunin sýnir, að
kvíði manna vegna styrjaldar-
hættu hefur aukist gífurlega á
undanförnum þremur árum.
Haustið 1977, þegar spurt var
sömu spurninga, töldu aðeins 14%
Efnahagsbandalagsbúa (13%
Breta) að stríð mundi örugglega
verða eða líkurnar fyrir því væru
meira en 50%.
VÍETNAMAR
ÁSAKAÐIR
Peking, 5. júli. AP.
KÍNVERJAR sökuðu víetnamska
hermenn í dag um morð og
mannrán á landamærunum og
sögðu að rúmlega 240 Kínverjar
hefðu orðið fyrir barðinu á ofbeldi
og mannránum.
Kínverska fréttastofan segir að
áreitni Víetnama aukist meðfram
landamærunum og segir tilgang-
inn þann að rugla heiminn í
ríminu og dreifa athygli heimsins
frá innrás Rússa í Afghanistan og
Víetnama í Thailand.
Loftflutningar
til Thailendinga
Ðangkok, 5. júlí. AP.
TVÆR ílutningaþotur
bandaríska flughersins
komu til Bangkok í dag
með fallbyssur og riffla
handa thailenzka hernum
sem stendur andspænis ví-
etnömskum liðsafla á
landamærum Kambódíu.
Grænfridungar gripnir
Eins og fram hefur komið í
fréttum, var skip samtaka
brezkra grænfriðunga, Rainbow
Warrior tekið fast undan Spán-
arströndum á dögunum er græn-
friðungarnir voru að trufla veið-
ar spænskra hvalskipa. Spænsk
herskip, korvetta og freigáta,
komu á vettvang og færðu Rain-
bow Warrior til hafnar í flota-
stöðinni E1 Ferrol, og er skipið
þar enn í haldi. Vopnaður vörður
gætir skipsins og áhafnarinnar.
Islendingur var meðal skipverja
á Rainbow Warrior. Meðfylgj-
andi mynd sýnir, er korvetta
spænska sjóhersins kom að
Rainbow Warrior á hvalaslóðum
er skipið var tekið fast.
sagði að hergögnin yrðu notuð til
að stemma stigu við utanaðkom-
andi ógnunum og varðveita full-
veldi Thailendinga.
Tilkynnt hefur verið í Wash-
ington að auk þess verði hraðað
afhendingu 35 skriðdreka, sem
Thailendingar höfðu áður keypt.
Vonir standa til að afhendingu
allra hergagnanna ljúki fyrir
næstu mánaðamót. Heildarverð-
mætið er 32,5 milljónir dollara.
Bandaríkjamenn munu einnig
senda nefnd herforingja til Thai-
lands um miðjan mánuðinn til að
þjálfa thailenzka herinn í beitingu
Tow-gagnskriðdrekaeldflauga.
Um það var samið áður en Víet-
namar létu til skarar skríða á
landamærunum.
Stríðsótti eykst í
Vestur-Evrópu