Morgunblaðið - 06.07.1980, Page 27

Morgunblaðið - 06.07.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JULI 1980 27 barnabörn, eru velgefið og mynd- ar- og dugnaðar-fólk. Það fyrsta, sem vakti eftirtekt á Maríu var reisn hennar og persónutöfrar hennar voru áberandi strax við fyrstu kynni. María var trúuð kona. Hún var fullviss um framlíf, eilíft dýrðarlíf að loknum jarðvistardögum. Fyrir ári síðan fór María að finna fyrir sjúkdómi þeim, sem varð henni að aldurtila. Allt var gert til þess að reyna að bæta heilsufar hennar. Um mánaðar- tíma var farið til sólarlanda, ef ske kynni, að sól og veðurblíða ynni á sjúkdómnum, en allt kom fyrir ekki. Eftir heimkomuna var hún tekin í gaumgæfilega rann- sókn. Þá var sjúkdómurinn kom- inn á það stig, að við ekkert var ráðið. Nokkrum dögum áður en hún sofnaði útaf, hafði hún orð á því, við nærstadda, að hún sæi mikla birtu streyma á móti sér og í ljómanum komu hver af öðrum framliðnir ættingjar og vinir hennar, sem hún fagnaði innilega, er hún nefndi þá með nafni. Nú að leiðarlokum þökkum við hjónin áratuga vináttu og tryggð, sem aldrei bar skugga á. Gleði- stundirnar voru margar á heimili þeirra hjóna, og var María frábær húsmóðir, veitul og góð heim að sækja. Ásta saknar af alhug vinkonu sinnar, en vinátta þeirra var traust og einlæg. Töluðu þær nær daglega saman, annað hvort í síma eða á heimili annarrar hvorrar. Minningarnar eru ljúfar, vor- blær mannlífsins, en kveðjustund- in döpur, mikill söknuður, en endurfundir verða þeim mun dýrðlegri. Guð blessi Mariu. Að endingu felum við Guði á vald eiginmann hennar, börn og barnabörn. Skúli Guðmundsson, kennari. .Móður á ég eniifa lengur, broKtinn i ntér einhver strengur". Þessar ljóðlínur komu mér í hug, þegar ég gerði mér grein fyrir því, að móðir mín, María Jónsdótt- ir, var farin héðan. En á ég enga móður lengur? Lifir ekki áfram, það sem hún hefur kennt mér og systkinum mínum, og við eflaust getum kennt okkar börnum? Trú, styrk og að hjálpa þeim, sem til okkar leita. Ég man aðfangadagskvöld fyrir um það bil 30 árum. Við, systkinin fimm, biðum eftir jólamáltíðinni. Henni bar að flýta, svo að við gætum haldið áfram við það, sem á eftir átti að koma. Þá var barið að dyrum. Úti stóð fyrrverandi hjálparstúlka mömmu á heimil- inu, illa á sig komin. Sjálfskapar- víti eða ekki, það skiptir ekki máli. Hún var drifin inn, hjartanlega velkomin. Við urðum að bíða á meðan hún var þvegin, greidd og klædd í svart pils og blússu af mömmu. Síðan var hún leidd til borðstofu, til borðs með okkur hinum, jólasteikin sótt, og okkur sagt að gera svo vel. Þá þótti mér þessi langa bið hræðilega miskunnarlaus. í dag er þetta mín besta jólaminning. Ég man hana sjálfa, fársjúka, hugga og styrkja vini sína símleið- is. Jú, „móður á ég lengur", eins lengi og ég lifi sjálf, því hennar sterka sál, og það sem hún hefur kennt mér, mun lifa með mér ávallt. Dóttir. Amma mín, María Jónsdóttir á Guðrúnargötu 1 er dáin. Það er undarlegt að vita, að eiga aldrei aftur að fá að sjá þá sómakonu, er amma var. Ekki vil ég tíunda þessa kveðju, meira en að segja að hlýjar minningar um hjartgóða og sanntrúaða ömmu munu lifa með mér um ókomin ár. Megi ljós það er amma varpaði, lýsa okkur öllum. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur Böðvarsson. Á morgun, mánudaginn 7. júlí, verður til moldar borin María Jónsdóttir frá Reykjanesi, Guð- rúnargötu 1. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Faðir minn lætur mjög að sér kveða í kirkjulcgu starfi og er talinn vera góður, kristinn maður. En heima er hann skapstirður og notar óviðeigandi munnsöfnuð. Eg fæ ekki botn í þetta. Finnst yður þetta vera rétt? Nei, það finnst mér ekki. Biblían segir, að við eigum ekki að leggja nafn Drottins Guðs við hégóma. Þó að faðir yðar sé trúhneigður, drýgir hann synd, ef hann brýtur þetta boðorð, samkvæmt Biblíunni. Framhald boðorðsins er á þessa leið: „Því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma", og faðir yðar er ekki undanskilinn. Margir þeirra, sem játa trú á Krist, gæta ekki tungu sinnar. Þess vegna hvetur Biblían okkur til að vera fyrirmynd bæði til orðs og æðis. Heimurinn dæmir okkur eftir orðafari okkar. Kristnir menn ættu að leitast við að vera andlegir í tali sínu og ekki hneyksla þá, sem þekkja ekki Krist. Ben Johnson sagði einu sinni: „Af málinu má kenna manninn. Talaðu svo að eg sjái þig. Það sprettur upp úr innstu fylgsnum okkar“. Þegar við gefum okkur algjörlega Guði á vald, hefur það áhrif á mál okkar. Þegar Pétur var sakaður um að vera lærisveinn Krists, sór hann og sárt við lagði, að hann væri það ekki. Orð hans hljóta líka að hafa verið sannfærandi. En Jesús sagði við lærisveina sína: „Eg mun gefa yður talandi og vizku“ (Lúk. 21,15). Þegar Pétur gaf sig að fullu undir vald Krists, voru honum gefin orð að mæla til vitnisburðar og lofgjörðar í stað svardaga. Lærum af því. Fyrir um það bil 10 árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þessari mikilhæfu konu og hennar sérstöku hæfileikum, sem hún fór þó svo dult með, og langar mig að senda henni kveðju í hinsta sinn, þótt að orð mín verði fátækleg miðað við allt sem hún gerði fyrir mig. Ég gat alltaf leitað til hennar þegar vonleysið og erfiðleikarnir sóttu að mér í veikindum mínum, þá gaf hún mér svo mikinn kraft og mikla trú á lífið, að mér fannst ég geta litið bjartari augum fram á við, og þó oft væri langt á milli okkar, þegar ég dvaldist á spítöl- um erlendis, þá gat hún alltaf fundið og sagt skyldfólki mínu hér heima hvernig mér leið, og reynd- ist það alltaf rétt. Aldrei kom ég svo á heimili þeirra hjóna, Jakobs og Maríu, að þau tækju mér ekki opnum örm- um, eins og ég væri ein af dætrum þeirra, en nú þegar María er horfin frá mér, þá finnst mér ég hafa misst svo mikið. Ég mun ávallt minnast Maríu með gleði og þakklæti, og þótt ég geti ekki lengur talað við þessa elskulegu vinkonu mína, verður hún alltaf í huga mér. Eg kveð hana að lokum með versi eftir Hallgrím Pétursson. Vaktu minn Jesús, vaktu i mér, vaka láttu mlx eins i þér. Sálin vaki, þó sofni líf sé hún ætið i þinni hlif. Þér kæri Jakob og fjölskyldu þinni sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan guð að styrkja ykkur. Hrafnhildur Marinósdóttir. vantar þÍ3 3Óóan bíl? notaóur- en í algjörum sérfbkki Höfum til sölu þennan fallega SKODA 120 L, árg. 1977, ekinn aöeins 33.000 km. Er á nýlegum sumardekkjum. JÖFUR HF Nýbýlavegi2 - Kópavogi - Simi 42600 Steinninn stendur alltaf fyrir sínu Legsteinar, ótal geröir og stærðir úr íslenskum sem innfluttum steinum. Steinflísar, hentugarsem klæöningar ágólf og veggi, utan húss sem innan. Einnig eru steinflísar hentugar sem gluggakistur, - og raunar hvar sem er. Steinmulningur utan á hús, varanleg áferö í mörgum gerðum. SS.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48-SlMI 70677 STEINFLÍSAR GLUGGAKISTUR LEGSTEINAR STEINMULNINGUR Steinsmiðja okkar hefur áratuga reynslu í vinnslu og gerð allskonar steina. Fagmenn tryggja vandaða vinnu. Sérsmíði. Smíðum allskonar hluti eftir pöntunum: borðplötur, fánastengur, öskubakka og allskonar minjagripi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.