Morgunblaðið - 06.07.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.07.1980, Blaðsíða 32
Símirtn á afgreiðslunm er 83033 JH*rj}unblnt>ifc Síminn á rilstjórn og skrifstofu: 10100 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1980 Flugleiðir hækka fargjöld í innan- landsflugi um 9% FLUGLEIÐIR ha-kkuðu fargjöld í innanlandsfluiíi um 9%. Fyrir- tækið hafði sótt um 12% hækkun en ríkisstjórnin hafnaói henni. FluKleiAum mun hins vegar hafa verið gefið fyrirheit um að 9% hækkun yrði látin óátalin. Samkvæmt upplýsingum inn- anlandsflugdeildar Flugleiða hækkaði farmiðinn Reykjavík— Patreksfjörður úr 36.300 krónum í 39.« 00 krónur báðar leiðir, en farniiðinn aóra leiðina er að jafn- aði helmingi ódýrari. Flugvallar- skatturinn er inni í uppgefnum tölum. Reykjavík—ísafjörður hækkaði úr 39.700 krónum í 43.300 krónur. Reykjavík—Sauðárkrókur hækkaði úr 38.300 krónum í 41.800 krónur, Reykjavík—Akureyri hækkaði úr 42.100 krónum í 45.800 krónur, Reykjavík—Húsavík hækkaði úr 47.300 krónum í 51.700 krónur. Reykjavík — Egílsstaðir hækkaði úr 56.400 krónum í 61.400 krónur, Reykjavík—Hornafjörður hækkaði úr 50.000 krónum í 54.500 krónur, Reykjavík—Vestmanna- eyjar hækkaði úr 28.300 krónum í 30.700 krónur. íslenzkur markaður hf.: 39% minni vöru- velta en í fyrra „I>ETTA er alveg hroðaleg þróun og ég sé fram á meiri erfiðleika.** sagði Jón Sigurðsson. framkvamdastjóri íslenzks markaðar hf. á Keflavíkurflugvelli. er Mhl. spurði hann um gang mála hjá fyrirta-kinu í framhaldi aí þeim upplýsingum Ágústs Agústssonar. fjármálastjóra P'ríhafnarinnar. að hjá því fyrirtæki væri nú 9% minni vöruvelta en í fyrra. Jón sagði, að á tímabilinu 1. nóvember 1978 til 1. júní 1979, hefði sala fyrirtækisins numið 869.588 doliurum, en frá 1. nóv- ember í fyrra til 1. júní sl. nam vörusalan 617.679 dollurum. Minnkunin er 29%, en Jón sagði, Franskur kafbátur með sjúkling til Norðfjarðar FRANSKUR kafbátur leitaði í gær aðstoðar til Neskaup- staðar vegna þess að einn skipverja var með bráða botnlangabólgu. Kafbáturinn „Gymnote** lónaði rétt utan við bæjarbryggjuna í Nes- kaupstað, á meðan sjúklingn- um var komið í Jand. Á bryggjunni var margmenni, sem fylgdist með. Báturinn er 3.400 tonn að stærð og er á æfingafcrðalagi um Norður- höf. Ráðstafanir höfðu í gær verið gerðar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað til þess að taka við sjúklingnum. Á Norðfirði í gær var þoka og súld. að á tímabilinu hefðu orðið verð- hækkanir að meðaltali um 10%, í dollurum talið, þannig að raun- verulega hefur vöruvelta Islenzks markaðar hf. minnkað um 39%<. „Það eru transit-farþegarnir, sem við lifum á, en 91—93% af okkar sölu er í erlendum gjald- eyri,“ sagði Jón. „Fjöldi transit- farþega að undanförnu er ekkert sambærilegur við það sem var. Bæði hefur viðkomum erlendra fiugfélaga fækkað mjög, og svo hafa erfiðleikar Flugleiða úrslita- áhrifin. Á tímabilinu 1. nóvember 1978 til 1. júní 1979 voru transit-far- þegarnir 114.656, en frá 1. nóv- ember í fyrra til 1. júní síðastlið- inn voru þeir meira en helmingi færri, eða 56.467. Og ef við lítum á tölur yfir brottfararfarþegana, sem einnig hafa möguleika á að skipta við okkur, þá voru þeir 51.387 fyrra tímabilið og aðeins 46.660 frá 1. nóvember í fyrra til 1. júní á þessu ári.“ Jón sagði, að nú ynnu 10 manns á hvorri vakt í verzluninni, en voru 12 á vakt í fyrrasumar, og telur viðbótarmannaflann í sumar því fjórum mönnum færra en í fyrra. „Ég reikna svo með því, að í haust verði að segja upp einhverju af fastaliðinu, þar sem umferðin er svona miklu minni en verið hefur," sagði Jón Sigurðsson. Lögreglumenn unnu að rannsóknum í gærmorgun og eigendur færðu húsmuni í samt lag. Minni myndin: Peningaskápurinn á neðstu hæðinni eftir ferðina niður stigana. sem skemmdust illa eftir meðferðina. Lyftan var ekki notuð við flutninginn. Ljósm. Rax. Veltu peningaskáp niður stiga og stórskemmdu þá BROTIST var inn í húsið Hverf- isgötu 6 aðfaranótt laugardags. en þar eru m.a. til húsa mennta- málaráðuneytið og rikissak- sóknari. Var aðkoman ijót og virtist sem gífurleg skemmdar- verk hefðu verið unnin, en þau reyndust nokkru minni en útlit var fyrir. Farið var inn í skrifstofur víða í húsinu, m.a. sakaskrá, og rótað á skrifborðum og hurðum spark- að upp, en litlu virðist hafa verið stolið. Þá var þungum peninga- skáp velt niður stigana ofan af 4. hæð og skemmdust stigarnir mjög við það, þegar kvarnaðist úr þrepunum. Stórir hnullungar voru notaðir til að brjóta rúður á neðstu hæð og víðar til að komast um húsið. í gærmorgun var unnið að lagfæringum og þeim að mestu lokið. Rannsókn- arlögreglan hefur málið til rann- sóknar og var í gær ekki búið að upplýsa málið. Frystihús á Austurlandi: Taprekstur hefur aldrei verið meiri Óvist um launagreiðslur næstu viku FORRÁÐAMENN allra frysti- húsa á svæðinu frá Hornafirði til Vopnafjarðar, 12 talsins, boðuðu til fundar með þingmönnum Aust- urlands á Egilsstöðum sl. föstu- dag. Tilefni fundarins var það öngþveiti sem skapast hefur i atvinnumálum allra byggðarlaga við sjávarsiðuna á Austurlandi, vegna rekstrarerfiðleika frysti- húsanna. Á fundinum var þing- mönnum gerð grein fyrir stöðu frystihúsa i hverju byggðarlagi. Var það skoðun allra fundarboð- enda, að sjaldan eða aldrei hafi taprekstur frystihúsanna verið meiri og margir tilkynnt, um að óvíst væri hvort tækist að greiða laun í næstu viku. Ennfremur kom almennt fram sú skoðun, að örðugleikar í rekstri frystihúsanna gætu eyðilagt margra ára starf við að viðhalda byggð um land allt. íbúar sjávarþorpa, sem vinna aðal- Freðfiskdeild Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins: Greiðsluþrot yfirvofandi í árslok — ÞAÐ ER autfljóst að 15—1600 milljónir króna í sjóðnum 1. júní er ekki mikið veganesti til að mæta , óvissri framtíð, sagði ísólfur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Verð- jöfnunarsjóðs fiksiðnaðar- ins, er Morgunblaðið spurði hann um stöðu freð- fiskdeildar sjóðsins. Sagði ísólfur, að menn hefðu óttast erfiðleika hjá freð- fiskdeildinni síðasta hlusta ársins og jafnvel þrot um áramótin. í vikunni voru ákveðnar auknar greiðslur úr sjóðnum til að mæta tekjutapi frystihúsa vegna minni framleiðslu flaka og aukinnar blokkarframleiðslu. Er reiknað með að þessar greiðslur verði 5—600 milljónir króna, en þær hafa verið ákveðnar til loka sept- embermánaðar. Isólfur sagði, að þessar auknu greiðslur kynnu að leiða til greiðsluþrots hjá sjóðnum fyrr en um áramót, ef aðrar aðgerðir kæmu ekki til. Isólfur Sigurðsson sagði, að í byrjun júní hefði verið áætlað, að innstæða í freðfiskdeild Verðjöfn- unarsjóðsins hefði verið 15—1600 milljónir króna. Þá hefði verið gert ráð fyrir um 600 milljónum króna greiðslum vegna vetrarver- tíðar í ár og um 250 milljónum króna vegna þriggja síðustu mán- aðanna 1979. Deildin fékk verulegar fjárhæð- ir úr gengismunasjóði eftir geng- isbreytingarnar í febrúar og sept- ember 1978, en það ár varð greiðsluþrot hjá sjóðnum. Inn- stæður í sjóðnum eru gengis- tryggðar og fylgja dollar og pundi í jöfnum hlutföllum. lega við undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar eigi ekki að þurfa að búa við meira öryggisleysi í atvinn- umálum en aðrir. Krafist var úrbóta í þessum efnum sem fyrst. Urðu miklar umræður á fundinum um rektrarörðugleika frystihús- anna. Þingmenn kjördæmisins sögðu frá þeim ákvörðunum, sem teknar höfðu verið af hálfu ríkis- valdsins. Fram kom hjá fundarboð- endum, að þær aðgerðir væru á engan hátt fullnægjandi. Tryggja þyrfti viðunandi rekstrargrundvöll frystihúsanna og sérstök áhersla var lögð á það, að Seðlabankinn lánaði þegar sem viðbótarlán 15% af verðmæti birgða vegna mikillar birgðasöfnunar. Fyrirheit stjórn- valda um breytingu á lausaskuld frystihúsanna væru góðra gjalda verð, en bæði er, að slíkar ráðstaf- anir hafa tekið langan tíma, og svo fer líka gagnsemi þeirra eftir því, hve myndarlega er tekið á málum og með hvaða kjörum þau lán eru, sem frystihúsin fá. Tóku þingmenn að sér að vinna að því að koma þessum málum í viðunandi horf sem fyrst. Niðurstaða fundarins var, að slíkir rekstrarerfiðleikar í sjávarútvegi, mættu ekki koma fyrir, og það hlyti að vera eitt helsta verkefni stjórnvalda á hverjum tíma að sjá svo til, að hjá þeim væri komist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.