Alþýðublaðið - 25.04.1931, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Að austan.
Nesi í NoTÖfirði (í febr.).
Þingimenn Sunnmýlingá, Sv. Ól.
og I. P., héldu hér þingmálafund
nokkru áður en [>eir fóru til
þings. Var fundurinn fjölsóttur.
Traustsyfirlýsing á stjórnina var
samþ. með 36 atkv. Jafnaðarmenn
sátu hjá við þá atkvæðagreiðslu.
Þingmennimir fluttu nokkrar til-
lögur, er allar voru samþyktar
uan.ræðulaust að kalla og lítið
breyttar. Flest mótatkvæði voru
um tillögu Sv. Ól. un} þjóðarat-
kvæðagreiðslu um þingflutning til
Þingvalla.
Af hálfu jafnaðánmanna töluðu
á fundinum Kristinn Ólafss«'
'bæjarfógeti, Jónas Guðmundsson
ritstjóri og séra Jakob Jónsson
Flutti J. G. eftirfarandi þrjár til-
lögur, er ailar voru samþyktar:
1. „Fundurinn skorar á alþingi
að sernja lög um heimild fyrir
kauþstaði og kauptún til þess að
fá til umráða óræktað land, er
liggur umhverfis staðina eða er
á annan liátt þannig sett, að \ið-
komandi staður geti notfært sér
það tii ræktunar.“
2. Stjómarskrárbreyting:
„Fundurinn skorar á alþingi að
samþykkja á komandi þingi
breytingar á stjómarskrá ríkis-
ins, er rníði að því:
1. Að færa aldurstakmark viö ai-
þingiskosningar (landskjör og
kjördæmakosningar) niöuír í 21
ár.
2. að fella burtu ákvæðin, er
svifta þá kosningárrétti, er
þegið hafa sveitarstyrk.
3. að koma á réttlátari kjör-
dæmaskiþun.“
Báðar þessar tillögur voru svo
að kalla samþyktar í einu hljóöi.
Um. þriðju tillögu J. G. urðu
langar og heitar umræður. Var
hún svo hljóðandi:
„Veröi engin heildarbreyting
gerð á kjördæmaskipuninni í
landinu nú á þessu þingi, skorar
fundurinn á alþingi að sam-
þykkja lög um sérstakan þing-
mann fyrir Neskaupstað.1'
Sv. Ól. virtist tillögunni frekar
hlyntur, en I. P. heldur andstáeð-
ur. Af Framsókn mælti gegn til-
lögunni Níels, sonur Ingvars
Pálmasonar og af háifu íhalds-
ins Páli Þormar kaupmaður. Vili
„Sjálfstæðið" ekki sérsíakan þing-
mann, svo ekki stendur sjálfstæð-.
islöngunin djúpt í þvi efni hjá
flokknum hér í bænum. Annars
Messa í fríkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 2 á morgun.
Töframadurmn Geovanni Ottó
hélt sýningu i Bíóhúsinu í Hafn-
arfirði i gærkveldi fyrir fullu
húsi, og þótti hún hin tezta'
skemtun. Hann endurtekur sýn-
ingu-'sína í kvöld kl. 8Vs á sama
stað. Aðgahgur kostar 1 kr.
upplýsti það á bæjarstjórnar-
fundi, er málið var þar til um-
ræðui, að fhaidið er einkum á
móti þessu af því, að það telur
að jafnaðarmaður kæmist hér að,
ef breyting yrði, og sem von er
kýs það heldur að hafa Fram-
sóknina.
Sjómannafélag var stofnað hér
fyrir skemstu með 40 sjómönnum.
Er það nú að undirbúa kaup-
samninga við útgerðarmenn.
Lítið ber enn á kosningahitan-
œn, enda er þess varla að vænta,
en tálið er hér eystra, að íhaldið
muni hvorki spara fé né fagur-
gala til þess að halda Seyðis-
firði og ná í Norður-Múlasýsfu.
Suðursýsluna gera þeir sér litla
vonir um að geta unnið.
£Jm v©||Sas3»a
ST. DRÖFN nr. 55. Fundur annaö
kvöld kl. 8. Inntaka, kosn-
' ing embættismanna o. fi. Æt.
Snorrasjóður.
S\ro heitir sjóður., sem norska
ríkið gaf íslendingum á alþingis-
hátíðinni, og var þá að upphæð
100 þúsund kr. norskar. Tilgang-
ur sjóösins er einkum að styrkja
íslenzka pámsmenn og fræði-
anenn til náms og visindaiðkana
í Noregi. Stúdentar ög kandiidat-
ar, sem ieggja stund á norræn
fræði, og fræðimerm, seni hafa
með höndum ákveðin verkefni úr
norrænni sögu og bókmentum,
eiga að öðru jöfnu aö ganga fyr-
ir um styrk úr sjóðnum. Þó má
veita styrk úr honuin til annars
nániis við háskóiann í Osló,
Björgvinarháskóla (Bergens Mu-
seum), verkfræðaháskólann í
Niöarósi, landbúnaöarháskólann í
Ási og aðrar jafngiidar vísinda-
stofnanir í Noregi. — Þeir, sem
sækja um. styrk úr Snorrasjóði,
eiga aO sendia umsóknir tii for-
sætisráðherra fyrir 1. júlí.
Ritarann fyrii kónginn.
iiiatdsmenn eru sem von er dá-
lítið skrítnir í framan eftir
frammistöðu þingmanna sinna.
Til þess að klöra dálítið í bakk-
antr hafa íhaldsþingmennirnir
sent imótmælaskeyti, iekki þó
kónginum, heldur — ritara hans.
Mildð ef I>eiT heimta ekki að rit-
arinn sé settur af, úr því þeir
runnu á þvi að setja kónginn
af. En kann ske þeir treysti
sér ekki heldur til þess án Gunn-
ars frá Selalæk.
Sjónhvetfingamaðuiinn.
Geovanni Otto heldur sýningu
sunnudagskvöld k!. 9 í K.-R.-hús-
inu. Það var af misskilningi, að
auglýst var að hann hefði sýn-
ingu í kvöid í Reykjavík, því
hann er í kvöld að endurtaka í
Hafnarfirði sýninguna frá í gær-
kv'eld.i.
Lýðveldiskrafan að fífiskapar-
niáli.
Vísir sagði í fyrra dag að jafn-
aðarmenn hefðu gert sig „bera
að því að ætla að hafa l^ðveld-
iskröfurnar að fíflskapannáli"
með því að fara þess á leit \dð
íhaldsþingmennina, að þeir sýndu
íaivöru í því að ganga með jafn-
aðarmönnum • inn i þingsal og
setja kónginn af. Ójá, það hefir
sýnt sig, að það gengur næst
fíflskaparmáli að gera slíkar
kröfur til flokks, sem skýlir sér
bak við jafn léleg rök og þau,
að þeir hefðu hopað frá iýöveld-
iskröfunni af því Gunnar frá
Selalæk hefði ekki verið tilbú-
inn!
Seudisveinadeild
hef i r verz 1 u narman nafélagið
Merkúr nýlega stofnað. Er
mikiil áhugi meðal sendisveina
fyrir deildinni og hafa nú þegar
yfir .101) sendisveinar gerst með-
limir. Á síðasta fundi var kosán
stjórn fyrir deildina. Friðfinnur
Friðfinnsson formaður, Gísii
Friðbjörnsson, Steingrímur Jóns-
son, Adolf Björnsson og Gísli
Sigurðsson. Má búast við að
mikil aðsókn verði aö fundinum
á jnorgun, þar sem til umræðu
verður sumarfrí sendisveina, sem
ekki er of mikið víðast hvar. —
Væntir stjórnin þe.ss, aö allir
sendisveinár sæki fundinn og
gerist meðlimir um leið.
Nœtiirlœknir er í nótt ólafur
Helgason, Ingólfsstræti 6, síijii
2128, og aðra nóít Halldór Stef-
ánsson, Laugavegi 49, sírni 2234.
Nœtnmördw er næstu viku í
lyfjabúð Reykjavíkur og lyfjábúð-
inni „Iðunni".
Veðrio. Kl. 8 í morgun var 3
stiga hiti í Reykjavík. Otlit hér á
Suðvesturlandi: Hæg austan- eða
norðaustan-gola. Dálítið regn
framan af degi, en léttir til þegar
á daginn líður.,
Ingibjörg Jónsdót ir hugalæknir
flytur í dag að Skölavörðustíg
10.
Skipafrétíir. „Súðin“ kom í gæ‘r
vestan um land með á annað
hundraö farþega. „Esja“ var á
Hornafirði i morgun á austurl-eið.
Kolaskip kom í nótt til „Koia og
salts".
Otvarpid á morgun. Kl. 11:
Messa í dómkirkjunni (fenning,
Fr. H.). Kl. 16,10: Barnasögur
(Ólína Andrésdóttir). Kl. 19,25:
Hljómleikar (söngvél). Ki. 19,30:
Veðurfregnir. Kl. 19,35: Erindi:
Nýjustu fornfræðirannsóknir (V.
Þ. Gíslason meistari). Kl. 20,10:
Hijómlieikar (söngvél). Kl. 20,30:
Erincii: Þjóðsögur. I. (Einar Ól.
Sveinsson mieistari). Kl. 21: Frétt-
ir. Kl. 21,20—25: Kórsöngur
(Karlakór Reykjavíkur. Söngstj.
Sig. Þórðarson): Sv. Sveinbjörns-
son: Þú nafnkunna landið, Mosz-
kowski: Mansöngur. (Einsöngur:
Daníel Þorkelsson.) Mozart:
Vögguvísa, Rússn. þjóðiag: Söng-
ur ferjudráttarmanna á Volgu.
Luily: Eldgamia Isafold.
Hjálprœdisheriim. Samkomur á
morgun: Helgunarsamkomia kl.
lOVs árd. Sunnudagaskóli kl. 2.
Útisamkoma á Lækjartorgi, ef að
veður leyfir, kl. 4. Hjálpræðis-
samkoma kl. 8 síðd. H. Andrésen
lautn. stjórnar. Lúðraflokkurinn
og strengjasveitin aðstoða. Allir
velkomnir!
Háskólafyrirlestrw próf. Ágústs
H. Bjarnasonar unt vísindalegar
nýjungar. Næsti fyrirlestur í dag
kl. 6 í háskólanum. Öllum heim-
ill aðgangur.
Messur á unorgun: í dómkirkj-
unni kl. 11 séra Friðrik Hall-
grimsson, ferming. Engin siðdeg-
isimessa. í fríkirkjunni kl. 2 séra
Árni Sigurðsson. 1 Landakots-
kirkju kl. 9 f. m. hámessa, kl. 6
e. m. guðsþjónusta með predik-
un. Kristiieg samkoma á
Njálsgötu i kl. 8 e. m.
V ídavangshlmip drengja fer
fram á morgun kl. 10 árd. Kepp-
endur verða 38. Frá Ármanni 15,
frá K. R. 15 og 8 frá 1. R. Hlaup-
ið hefst í Austurstræti, þaðan
hlaupið Aðalstræti, Suöurgata.
• kringum gamla íþróttavöllinn,
niður Skothúsveg, norður Frí-
kirkjuveg og endað nyrst í Lækj-
argötu. Keppendur og starfsmenn
iraæti í gamla barnaskólanum ki.
9 [4 árd.
Fimleikakeppni um bikar Osló-
Turnforening fer fram á morgun
og hefst kl. 2 í gamla barnaskói-
anum. Þrjú félög keppa, og eru
það Ármann, sem sendir 2 flokka,
K. R. sendir 1 flokk og í. R. 1.
Aðgang að keppninni fá að eins
þeir, sem aðgöngumiða hafa. Er
þessa getið hér sökum þess, að
rúm er mjög takmarkað.
Útvarpid í dag: Kl. 18,15: Er-
indi í Háskólanlim (Ágúst H.
Bjarnason). Kl. 19,25: Hljómleik-
ar (söngvél): Kl. 19,30: Veður-
fregnir. Kl. 19,35: Barnasögur
(Bjarni Bjarnason kennari). Kl.
19,50: Einsöngur (ungfrú Asta
Jóséfsdóttir): Magnús Árnason:
Ég elska þig, Sigv. Kaldaións:
Svanurinn minn .syngur, Meri-
kanto: Naar Bjerkeme suser. KI.
20: Þýzkukensla 'í 2. flokki (W.
Mohr). ,K1. 20,20: Einsöngur:
Wennerberg: Min sjal lángter,
Sigf. Einarsson: Hátt ég kalla,
Páll Isóifsson: Víst ert þú, Jesú,
kongur klár. Kl. 20,30: Erindi:
Nýjustu fornfræöirannsóknir (Vil-
hj. Þ. Gíslason). Ki. 21: Fréttir.
Kl. 21,20—25: Danzmúsík.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Alþýðuprentsmiðjap-