Alþýðublaðið - 03.09.1920, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Loks skýrir prófessor Rubens
tnálið með því að útskýra, að
rneð einu grammi af radíum má
leysa 2,03 miiljard hitaeiningar,
sem geta hitað upp 20 000 lítra
af vatni í suðumark, en úr einu
kgrammi af koium fást aðeins 7000
hitaeiningar. Eitt gramm af radíum
jafrigildir þá um 3000 kilogr.
af lrolum. Hingað til hefir ekki
verið unt að klófesta þetta afl, en
nú virðast opiast leiðir til þess.
— Hér er tvímælalaus forboði
stórbyltingar á sviði vísindanna,
og ekki einungis þar eru nú bylt
ingar. Núverandi þjóðfélagsskipun
leikur á reiðiskjálfi Alþýðan, um
heim allan, finnur til mátíar síns
og er að verða sér þess meðvit-
andi, að á hennar valdi er hvernig
fer um framtíð mannkynsins. Bylt-
ing alþýðunnar er andlegs eðiis,
og bein sfl jiðing af æfistarfi hinna
mestu hugsjóna og andansmanna
heimsins.
Og þessar framfarir vfsindanna
haldast í hendur við og styðja
að gerbreytingu þjóðfélagsskipu
lagsins. :
Dffi dagiQD 09 vep.
' *
Kveibja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
8 í lcvöld.
Bíóin. Gamla Bio sýnir: „Car-
men“. Nýja Bio sýnir: „Sonur
bankastjórans frá Broadway.“
Sýniug Ríkarðs Jónssonar er
opin kl, ix—8 í barnaskólanum;
gengið inn um norðurdyr, næst
Laekjargötu.
Beskytteren kom norðan um
íand í fyrradag. Er hann kom í
^iynni Dýrafjarðar, hitti hann tog-
arann „Ara“, sem hann sá ekki
betur en væri í landhelgi að veið-
Utn. Hófst eltingaleikur, sem end-
a®i með þvf, að varðskipið skaut
t,,éimur lausum skoturn á togar-
ant>, áður hann stanzaði. Þrætti
skipstjóri fyrir að hafa verið í
^ndhelgi, en svo fóru leikar, að
Varðskipið tók skipskjölin og vís-
a®‘ málinu til bæjarfógeta. Er
oss cjgj hvernig málinu
yktar, en óskandi væri skipstjór-
ans vegna, að hér væri ekki um
Lmdhelgisbrot að ræða, þvi það
situr tlla á íslendingum að brjóta
þau lög landsins, sem sett eru til
verndar „kotungunum".
Hver síða8tnr. Sýning Rtk-
arðs Jónssonar stendur enn þá.
Og fer nú úr þessu hver dagur
að verða síðastur, því aðeins þrír
dagar eru eftir. Er ráðlegast fyrir
þá, sem ætla að sjá þessa beztu
og sfðustu sýningu Iistamannsins,
áður en hann fer til Róma, að
ljúka sér af sem fyrst, áður en
það verður um seinau.
Knattspyrnan. í kvöld keppa
Vestm.eyingar og Fram. Mun þar
vetða harður atgangur og góð
skemtun á að horfa. Einkum
munu ungu stúlkurnar fjölmenna
á völlinn, því eyjaskeggjar eru
gerfilegir menn og karlmanalegir.
Gaman þykir mörgum að sjá
myndina frá Japan, sem sýnd er
í „Nýja Bíó", enda er hún falleg
og gefur nokkura hugmynd um
lífið í „Þýzkalandi Ansturlanda".
Af síldveiðum komu í gær og
í morgnn m.k. Valborg og b.s.
Þorsteinn Iigólfsson.
Grnfnskip kom / gær með
steinolíu til Steinolíufélagsins.
294 þús. krónur er Nýja B o
virt til brunabóta.
utleaðar 'fréttir.
Frægnr ofurhugi ferst.
Sccklear liðsforirtgi var flug
maður og frægur fyrir að hafa
oft leikið það fífldjarfa bragð að
stökkva frá einoi flugvél til ann-
arar í há lofti. En hacn freistaði
gæfunnar um of og fórst er hann
var að leika þetta bragð fyrir
kvikmyndafélag nokkurt í Los
Angelos í Ameríku.
Flugsiys f Japan.
Tveir enskir flugmenn, að nafni
Topson og Ktlby, hröpuðu báðir
til jarðar f flugvél, er þeir voru
að sýna listir sínar í Tokío f Japan.
Þcir dóu þegar í stað.
Villa gefst npp.
Mexcanski uppreistarforinginn
Villa gafst upp, skilyrðislaust, fyrir
herdeildum stjórnarinnar, fyrir tæp-
um mánuði, en ekki hefir síðar
frézt hvað við hann hafi verið gert.
Gulli hjargað úr sjó.
Björpunarskip eitt úr enska sjó-
hernum er nú önnum kafið við að
bjarga ýtnsu úr skipinu L^.urentic
sem sökk við írlandsstrendar á
25 faðma dýpi. í skipinu voru
gullstangir fyrir margar miljónir
króna og hefir björgunarliðið góð
ar vonir um að bjarga öllu gull-
inu og býzt við að hafa lokið
björguninni í septemberlok.
93 bryggjustanra kaupir hafn-
arsjóður Rvíkur af Ólafi V. Da-
víðssyai í Hafnarfirði, fyrir 23
þús. krónur, eftir tillögu hafnar-
stjóra, sem hefir skoðað staurana.
Ætlunin er að smíða bryggju við
austur uppfyllinguná, fyrir næstu
vertíð.
Yeðrið
Vestm.eyjar .
Reykjavík . .
ísafjörður . .
Akureyri . .
Grímsstaðir .
Seyðisfjörður
Þórsh., Færeyjar
Stóru stafirnir
morgun.
logn, hiti
SA, hiti
logn, hiti
S, hiti
Iogn, hiti
logn, hiti
NV, hiti
7.3.
6,9
6.3-
3.5-
5 5-
90.
9.6.
merkja áttina.
Loftvog lægst fyrir norðan land
stöðug á suðurlandi, stígand á
Norðurlandi, stilt veður. Útlit fyrir
hæga suðaustlæga átt á Suður-
Iandi, norðlæga á Norðurlandi.
Annað stórtjón
varð af vatnsflóðum miklum í
Nýja Suður-Wales í Áitralíu fyrir
skömmu. Fórst í flóðinu m. a,
sauðfé er metið var 100 milj.
króna virði, og 10 þús. mílur af
girðingum, auk fjölda margs ann-
ar$ sem geta má nærri að hafi
eyðilagst í slíku flóði.
Belgiskur langsbegfur.
Belgi nokkur Preux að nafni
hefir svo langt skegg að hann
getur stigið í það, Hann er 68
ára að aldri, og 165 centimetrar
á hæð. Skegg karlsins er því rúm-
lega 5 fet á lengd, en samt fer
það honum prýðiiega, gamla
manninum.