Alþýðublaðið - 03.09.1920, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.09.1920, Blaðsíða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Xoli koEUBpr. E.tir Upton Sinclair. Kappleikinn í kvöld kl. 6 milli Fram og Vestmannaeyinga verða allir að sjá. Kaupið aðgöngumiða á götunum. Fjórða bók: Erfðaskrá Kola konungs. (Frh.). „Heyrðu nú, Tim“, greip Mo- ylan loksins fram í fyrir honum, „þú talar eins og við værum harðstjórarnii! Við getum ekki að þessu gert — við erum jafn ráðalausir og þið!" „Það segið þið bara — þið gerið ekki.einu sinni tilraun!" „Tilraun! Heimtarðu að við styðjum verkfall, sem við vitum, að ekki er hægt að vinna? Þú gætir alveg eins sagt, að við skyldum leggjast á sporið og láta fulia kolalest aka yfir okkur. Við getum ekki unnið, maður! Við mundum að eins kollvarpa verk- lýðssambandinu 1“ Því næst fór Moylan að segja frá', svo ótt og í svo stuttum setningum, að ómögulegt var að grípa fram í. Hann hafði séð heila tylft af svona verkföllum víðsvegar í héraðinu, og hann reyndi að fá Tim til þess, að skilja hver endirinn mundi verða. Verkamennirnir f Norðurdalaum mundu í öllu falli verða fyrir von- brigðum — en var ekki bezt að segja þeim sannleikann strax en að bíða, unz þeim var kastað á dyr út úr heimilum sínum? „Þú segir, að við gætum stutt þá með fé voru — við gætum haldið á- fram, jafnvel þó félagið ræki nám- una með verkfallsbrjótum. En hvernig heldurðu að þetta endaði, Rsíferty? Eg hefi séð fyrir end- ann á mörgum verklýðsfélögum — og er eg þó ekki gamall! Ef við værum banki, mundum við styðja alla námumenn landins, þá þyrftu þeir ekki að taka til starfa aftur, fyr en þeir hefðu náð rétti sínum. En það eru aðr- ir verkamenn, sem láta okkur í té það fé, sem við notum — og á þessu augnabliki eru þeir niðri í námunum. Þeir fá okkur pen- ingana og segja: Notið þá til að styrkja og auka verklýðsfélögin, Notið þá til þess, að hjálpa þeim mönnum, sem ekki eru i félags- skap — gerið þá að félögum, svo þeir haldi ekki niðri káupi voru og vinni sem verkfallsbrjótar. En kastið þeim í guðsbænum ekki á glæ, við þurfum að kosta ofmiklu erfiði til, til þess að afla þeirra, og sjáum við engann á- rangur, þá fáið þið ekki meira. Skilurðu það ekki? Hve þung á- byrgð hvílir á okkur, og hve miklu þyngri hún er, en hræðslan við það, að missa laun vor — þó þú viljir nú kannske ekki trúa svo góðu um okkur? Það er því ástæðulaust fyrir þig að tala við mig eins og eg væri sonur Pét- urs Harrigans. Eg hefi sjálfur verið hemilsveinn, þegar eg var tíu ára, og eg hefi ekki verið svo lengi utan námanna, að eg sé búinn að gleyma þrælkuninni. Það, sem heldur fyrir mér vöku á næturnar, er ekki óttinn við það að missa laun mín, eg hefi aflað mér nokkurrar þekkingar með því að vinna á næturnar líka, svo eg veit að eg get unnið fyrir mér, hvenær sem er. Það sem hvílir á mér eins og mara er hugsunin um það, hvort eg hafi notað fé verkamannanna rétti- lega, hvort eg hefði ekki getað sparað þeim erfiðleika, með því að fara öðru vfsi að. Þegar eg var á leiðinni hingað með nætur- Iestinni, hugsaði eg eingöngu um það, Tim Rafferty, meðan eg hlustaði á skröltið í lestinni, að nú væri eg á leiðinni til þess að sjá meiri þjáningar, nú þyrfti eg að kremja hjörtu fleiri félaga minna og ef til vill mundu all- margir hraustir drengir yfirgefa okkur, vegna þess, að þeir skildu ekki hvers vegna við fengjum laun, en þeir yrðu að þræla. Hvernig eg ætti að sýna þeim, að eg vinn fyrir þá — af öllum mætti — og að eg á enga sök á ógæfu þeirra". Primusar °g prímus-varahlutir af öllu tagi, fyrsta ílokks vara er nú aftur komið til Sigurjóns Péturssonar, Hafnarstræti 18. Klossar, « háir og lágir, mjög góð tegund, eru nýkomnir til Sigurjóns Péturss. : : Hafnarstræti 18. : : Nýkomin fataefni, frakkaefni og kvenkápuefni. — Efni tekin til sauma. Guðsteinn Eyjólfsson, Laugaveg 32 B. IVIuniÖ eftir útsölunni á Bergstaðastræti i. Alþbl. kostar I kr. á mánuði. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenherg,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.