Alþýðublaðið - 02.05.1931, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Ahrenberg
kom hingað í gærkveldi kl. 8,15-
Með honum eru tveir menn, er
heita Malm og Ljunglund. Tíð-
indamaður hlaðsins hafði tal af
Ahrenberg í morgun, og kvaðst
hann ekki vera fullviss um, hvort
hægt yrði að haida fluginu áfram
í dag.
Or því rættist. 'þó vel og flaug
hann af stað kl. 1 og 50 míh. í
dag.
Síðar: Ahrenberg snéri við. Var
hann að lenda i Vatnagörðum kl.
3,20.
1« sasas-
Blfiðviðrl og Isai’áttEEiaK^saF.
1. maí rann upp bjartur og
fagur og þegar að morgni voru
stúlkurnar farnar að selja l.-maí-
merkið — rauðu slaufuna. Rauðir
fánar blöktu allan daginn á báð-
um alþyðuhúsunum og ekki var
unnið, hvorki við höfnina, í bæj-
arvinnunni eða við byggingar, en
nokkuð við fiskvinnu.
Ymsir kaupmenn lokuðu búð-
um sínum, en fleiri myndu hafa
orðið við áskorun Dagsbrúnar-
sitjórnarinnar hefði hún komið
fyr.
Kl. 3 söfnuðust menn saman á
Austurvelli. Komu fánar verk-
lýðsfélaganna fyrst inn á völlinn,
en síðan alrauðir fánar og kröfu-
spjöldin. Ræðustóll klæddur
rauðu var settur upp fyrir fram-
an Thorvaidsen, og voru festar
á hann tvær fánastengur með
rauðum fánum. Um kl. 3,10 voru
um 2000 manna komnar inn á
völlinn, en annað eins var utan
grinda.
Hljómsveitin byrjaði með þvx
að leika alþjóðasöng jafnaðar-
manna, en menn stóðu berhöfð-
aðir á meðan til virðingar við
alheims stéttarsöng verkalýðsins.
Því næst hófust ræðurnar.
Byrjaði Jón Baldvinsson, en síð-
an töluðu Sigurjón Á. Ólafsson,
Ólafur Friðriksson, Sigurður Ein-
arsson, Sigurður Jónasson og
Árni Ágústsson. Vær ræðum
manna tekið með dynjandi lófa-
taki og heyrhrópum. — Nokkrir
kommúnistar komu inn á völlinn
undir rauðum fána og með nokk-
ur spjöld. Reyndu þeir ekkert til
að gera óskunda eða háneysti.
Er þetta lofsvert.
Kl. 9 um kvöldið hófst kvöld-
skemtun í Iðnó. Var hún fjölsótt
og fór hið bezta fram. — Er ó-
hætt að fidlyrða, að reykvísk al-
þýða hafi aldrei tekið eins al-
mennan þátt í l.-maí-degi, eins
og nú. Hafa nú allir viðurkent
helgi dagsins. Hefir og þátttaka
alþýðunnar í gær á Austurvelli
skotið Morgunblaðinu skelk i
bringu, þvi að nú er ekki eins
'hlakkandi hljóð í þvi eins og um
1. maí undanfarin ár. Nú nartær
það að eins og glefsar ofurlítið í
hæla alþýðusamtakanna.
Jánas lá — og ná.
„Konungurinn á og má enga
skoðun hafa í landsmálum
aðra en þá, sem meiri hluti
þingsins (og þá þjóðarinnar)
hefir. En ef þingi og konungi
lendir saman í deilu, þá er
það föst venja, að konungur-
inn verði að lúta. Ef hann
gerir það ekki, þá kostar það
hann rílrið. . .
Jónas Jónsson
í Skinfaxa, 12. tbl. 5. árg.
Þessi orð, sem standa hér að
ofan, skrifaði Jónas Jónsson þeg-
ar hann var ungur og treysti sér
til að berjast gegn öllu íhaldi og
afturhaldi, hversu hatramt svo
sem þáð væri. En nú er hann orð-
inn hugsjónalúinn og telur það
vænlegast til valda-íheldni að
vera mátulega afturhaldssamur.
Nú flýr hann á náðir konungs-
ins, sem „á og má enga skoðun
hafa í landsmálum aðra en þá,
sem meiri hluti þingsins (og þá
þjóðarinnar) hefir“, — og fremur
stjórnarskrár- og lýðræðis-brot í
skjóli hans. Skyldi nolíkur meiri
fimleikamaður vera til í ísl.
stjórnmálum en Jónas Jónsson?
Eitt sinn ritaði hann þau orð,
sem standa hér að ofan; nú er
flokkur hans ákveðinn í því að
vera með kóngi og á móti sam-
bandsslitum. Eitt ;sinn reit hann
grein um „hvítu kolin“ — raf-
rnagnið — og bygði glæsilegar
skýjaborgir um virkjun íslenzkra
fossa og ljós og yl í hverjum bæ
og hverju koti; nú er hann einn
hatrammasti andstæðingur Sogs-
Virkjunarinnar, Jónas hefir í engu
máli. sömu skoðun nú og hann
hafði fyrir 3 árum. Hann snýst og
snýst og allur síðari hluti æfi
hans f®r í að rífa niður það, sem
hann bygði upp á fyrri hluta æfi
sinnar. — Slikir menn eru aumk-
unarverðir. Hingað til hefir hann
að eins lifað á einu: árásum and-
stæðinganna, því sjálfur getur
hann ekki haldið sér uppi. — En
þögnin á að geyma þá menn, er
svíkja allar fyrri hugsjónir sínar.
Samvinnuskólanemandi
frá 1920.
Jarðsklálftarnir i Armenin.
Moskva, 30. apríl. U. R. FB.
Með fullri vissu vita menn ekki
hve mikið tjón hefir orðið af jarð-
skjálftunum., en að minsta kosti
536 manns biðu bana og fjögur
þúsund meiddust, en þeir, sem
hafa ,orðið húsnæðislausir af
völdum landskjálftanna, iskifta
þúsundum. Er búist við, að í ljós
komi þegar farið verður að grafa
í rústir húsanna, að langtum
fleiri hafa farist en roenn vita nú.
Beztu eglpsskas cipareíturnar í 2CI sík. pökk-
mn, sem kosta ks*u 1,25 pakkinn, eru
írá Wieolas S© ssa fréres, €aire.
Eisikasalar á íslar.di:
Téliaks^ezIiiBfi íslands- f.
Blá cheviott'öt ein og tvihneft móðins-snið
með viðurn buxum frá 58 kr. Mislitir AI-
kla>ðnaöir frá 35 kr. settið. Reiðbuxur og
reiðjakkar. Regnfrakkar og rykfrakkar. Ox-
fordbuxur og pokabuxur. Alt af mikið
úrval og gott veið í
Snffiubikð.
ll!|éssilc£k«ir.
Hljómsveit Reykjavíkur heldur
hljómleik á morgun kl. 5 síðd. í
alþýðúhúsinu Iðnó. — 1 haust
stofnaði sveitin Tónlistarskólann
og hefir í vetur lagt mikið starf
í það fyrirtæki, enda borið góðan
árangur, sem sýndi sig við upp-
sögn skólans, er fram fór í fyrra
kvöld. Við það tækifæri léku
nemendur skólans á ýms. hljóð-
færi af svo mikilli prýði að furðu
sætti. Má mikils vænta af stofn-
un þessari, ef henni verður ekki
vísað til heljar fyrir tómlæti
þeirra, er helzt skyldu ■ styðja
menningarmál hér á landi. —
Hljómsveitin hefir því lítið getað
látið til sín heyra í vetur, en end-
ar nú starfsárið með hljómleik,
sem vel mun til vandað. Verður
hljómleikur þessi ekki endurtek-
inn, því kennarar Tónlistarskól-
ans, sem taka þátt í honum, fara
utan næstu daga. — Aðgöngu-
miðar, sem kunna að verða ó-
seldir í kvöld, verða seldir í ’lðnó
\
eftir kl. 1 á morgxin.
Máloing.
Löguð málning, ýmsir litir, ný-
komin. Verðið að eins kr.
1,75 kíló.
Hvít málning í 7a, 1, 27* og 5 kg.
Veggfióðnr, Nýjar tegundir'ný-
komnar. Komið,r[meðan úrval:rer,
g ’t'.l.LVerðiðf er, lágt. ,
Siprðar KJartaHssoa
Laugavegi 20 B. Sírni 830.
yj<xx>ooooooo<
8,90
9,75
22.50
13.75
16.50
18.50
25.75
26,00
linir hattar í langmestu
úrvali hjá
♦
Nokkrir norskir línuveióarar
voru komnir hingað í morgun
til að fá salt o. fl.
Erindi. Dr. Guðmundur Finn-
bogason flytur erindi á morgun
Jkl. 2 í Nýja Bíó um „stjómmála-
farganið og framtíð stjórnarskip-
unar vorrar“.
Slökkvilidid var kallað í gær-
kveldi, af því að í húsi nokkm
hafði kviknað eldur út frá vind-
lingi í kápuva&a, en eldurinn
varð þó þegar slöktur.
Haraldi.
xxxxxx>oooo<x
Knattspyrnufélagid „Fram“.
Aðalfundur knattspyrnufélags.'ns
„Fram“ verður kl. 2 á morgun í
Varðarhúsinu.
Pétur Sigurdsson flytur fyrir-
lestur í Varðarhúsinu á morgun
kl. 5 e. hád. um Faðirvorið. Allir
velkomnir.