Morgunblaðið - 11.12.1980, Side 24

Morgunblaðið - 11.12.1980, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 Jakob V. Hafstein, lögfr.: — Fiskiræktarmál i: Laxveiðin á úthafinu Landssamtök klak- og fiskeldisstöðvanna Skilningur vaJdhafa og lax- og silungsveiðilöggjöfin Mikill og vaxandi áhuKÍ er nú fyrir fiskiræktar- og fiskeldismálunum í iandi voru. Stórar og afkasta- miklar fiskeldisstöðvar hafa verið byKjjðar eða eru í byggingu og má þar tiincfna Norðurlax hf. að Laxamýri í Suður-Þingeyj- arsýslu. Iiólalax hf. að Ilólum í Skajíafirði, Pólar- lax hf. í Straumsvík á Reykjanesi ok Fiskeldi hf. í Haukamýrarjíili við Húsavík. Frétzt hefur af fyrirhuRuðum fleiri fyrir- tækjum í byggingu á sviði fiskeldis- ok fiskiræktar- málanna, auk þess sem risið hafa upp sjóeldis- stöðvar við Húsatóftir og Ósabotna á Reykjanesi. Öll þessi þróun er mjög ánægjuleg, ekki sízt íyrir þá áhugamenn um fiski- ræktar- og fiskeldismál, sem barizt hafa fyrir fram- gangi og þróun þessara mála um áraraðir. En hvert stefnir raun- verulega í málum þessum í dag? Um það er fyrirhug- að að fjalla nánar í grein þessari um fiskiræktar- og fiskeldismál. 1. Úthafsveiðarnar Fyrir rétt rúmlega 15 árum eða nánara til tekið í júlímánuði 1965, ritaði ég fyrstu grein mína í Morgunblaðið um fiskiræktar- og fiskeldismái okkar Islendinga og leitaðist þar með að hefja umræð- ur um mjög þýðingarmikil og þjóðhagsleg málefni að mínu mati, sem þá höfðu ekki fundið nægjan- legan skilning og hljómgrunn hjá þjóðinni. I umræddri grein var lögð höfuðáherzla á þá miklu hættu, er íslenzka laxastofninum væri búin á úthafinu vegna neta- og línu- veiði á laxi af hálfu Dana og Grænlendinga, einkum við vestur- strönd Grænlands. Einnig var lítillega í síðari greinum vikið að línu- og neta- veiðum á norðanverðu Atlants- hafi, norð-austur og umhverfis Færeyjar svo og einnig í nánd við Jan Mayen. , Eins og að líkum lætur lagði ég mikinn þunga og áherzlu á þá staðreynd, sem engu síður og enn er í fullu gildi í dag, að allur sá lax, sem þannig væri veiddur af nefndum þjóðum á úthafinu væri í raun eign annarra þjóða en þeirra, er veiðina stunduðu og aflann fengju. Laxinn, sem þeir veiddu, ætti uppruna sinn — honum væri klakið út, fæddist og eldist upp — í ám annarra þjóða og vatnsföll- um, en leitaði þaðan á beitilönd og afrétt Atlantshafsins til vaxtar og þroska. í Grænlandi eða Færeyj- um væru engar þær bergvatnsúr. er fóstrað gætu lax, sem leitaði þaðan út á hafið. Þvi væri hér um að ræða hroðalegan fiskiræktar- legan ránsfeng, sem stöðva þyrfti hið bráðasta, ef ekki ætti af að hljótast alvarlegt og geysimikið þjóðhagslegt tjón. Því miður var þessum ábending- um mínum ekki alltof vel tekið, að minnsta kosti af þeim, sem valdið og þekkinguna þóttust hafa. Nú er hins vegar löngu komið á daginn, að ég hafði á réttu að standa og því verður ekki í móti mælt, að íslenzk fiskirækt og fiskeldi er í mjög alvarlegri hættu vegna út- hafsveiðanna og kannski enn meiri hættu af því, ef íslenzkir aðilar reyna að leiða útlendinga, Norðmenn og Bandaríkjamenn inná athafnasvið okkar og þá miklu möguleika og verðmæta- sköpun, sem bíður okkar sjálfra á þessu sviði. Á þeim vettvangi verðum við engu síður að vera vel á verði. 2. Hvaðan er laxinn kominn sem veiðist við Grænland, Fær- eyjar og Jan Mayen? Mönnum er mjög tamt að tala um það, að lítt sé vitað um ferðir laxins um úthafið. Rétt er þetta að vissu marki. Á það meðal annars rót sína að rekja til þess, hvað merkingar á laxi hafa verið mjög af skornum skammti hingað til. Engin laxveiðiþjóð er eins illa í stakk búin í þessum efnum sem við íslendingar. Tel ég það ekki aðeins ámælisvert, heldur engu síður vítavert, hve slælega hefur verið að þessu þýðingarmikla at- riði fiskiræktarmálanna staðið. Þetta gerir stöðu okkar í þessu veigamikla máli miklu veikari í dag, heldur en hún hefði getað verið, ef vel hefði verið á málum haldið. Úr þessu bágborna ástandi fæst aldrei bætt fyrr en farið verður inná þá braut, að greina í sundur með nýrri og fullkominni löggjöf veiðimálin annarsvegar og hinsvegar fiskiræktar- og fiskeld- ismálin. Er auðvelt að sækja góðar fyrirmyndir í þeim efnum til þeirra þjóða sem lengst virðast vera komnar í meðferð, rannsókn og framkvæmd þessara mála á breiðum grundvelli og má í þeim efnum vísa til Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Svíþjóðar. En vikjum þá aftur að ferðum laxins um úthafið og reynum að svara spurningunni, hvaðan sá lax sé kominn, sem Danir, Færey- ingar, Norðmenn, Grænlendingar, Svíar, Þjóðverjar og eflaust fleiri þjóðir veiða í net og á línu í norðanverðu Atlantshafi, norður og austur af Fuglafirði í Færeyj- um, umhverfis Jan Mayen og við Grænlandsstrendur, einkum við Vestur-Grænland, en einnig við austurströndina. Þær fáu laxamerkingar, sem rekið hafa. á fjöruna, hafa leyst töluverðan vanda í þeim efnum, að ráða gátuna um ferðir laxins um úthafið. Og merkileg er sagan, sem skipverjar á kjarnorkubátn- um bandaríska Nautiliusi sögðu, eftir hina sögumerku för bátsins undir ís Norðurpólsins. Þá sáu þeir mikinn lax undir ísnum, sem stóð lóðréttur í sjónum og gæddi sér á krabbaflóm og rækju, sem hékk á ísnum. Varðandi íslenzka laxastofninn má heldur ekki gleyma þeim tilvikum, þegar veiðiskip hafa fengið laxa, stóra og smáa, úti á miðum landgrunns- ins. 3. Leiðir laxanna Af því, sem hér að framan hefur verið sagt og vikið verður að síðar í grein þessari, virðist mér vera býsna ljóst, hvernig íslenzki lax- inn ferðast um norðanvert Atl- antshafið. Hitt er svo fullkomlega á huldu í hve miklu magni hann fer hinar ýmsu leiðir. Slíkt verður ekki sannað né upplýst nema með geysimiklum merkingum og margra ára rannsóknum hinna færustu vísindamanna. En víst virðist vera: 1. Að íslenzki laxinn fer alla leið til vesturstrandar Grænlands svo og einnig að austurströnd- inni, svo sem merki hafa sann- að. 2. Að íslenzki laxinn fer á miðin við Færeyjar, sem að framan greinir, enda merki borist það- an. 3. Að íslenzki laxinn ferðast á Jan Mayen-miðin, enda þar um mjög mikla fæðu að ræða, sem er loðnan, hinn minnsti laxfisk- anna, en hún er mikil eftirlætis fæða laxanna, ásamt rækjunni, rækjukóðum, krabbadýrum og svifi. 4. Að íslenzki laxinn heldur sig líka á landgrunninu eins og mörg dæmi sanna um veiði íslenzkra skipa í nætur, bæði suð-austan við landið og út af Snæfellsnesi og ef til vill víðar. Þessi vitneskja virðist tvímæla- laust á rökum reist getur því orðið að miklu gagni fyrir íslenzk fiski- ræktar- og fiskeldismál. 4. Úr skýrslum Alþjóða haf- rannsóknaráðsins > í framhaldi af því, er ég hef hér sagt um úthafsveiðarnar á laxi og tilgátur mínar um leiðir laxanna um Atlantshafið norðanvert, er rétt og nærtækast að vísa til skýrslna og upplýsinga, sem lagð- ar voru fram á ársfundi Alþjóða hafrannsóknaráðsins í Kaup- mannahöfn á nýliðnu hausti. Skýrslur þessar bera það með sér, sýna og sanná, að um 50% af laxinum, sem veiðist við vestur- strönd Grænlands, er af amerisk- um og kanadiskum uppruna, fæddur og alinn upp í sjógöngu- seiðabúning í eldisstöðvum og ám í Bandaríkjunum og Kanada. Kanadamenn áætla að fyrir hvert tonn af laxi, sem veiddur er við vesturströnd Grænlands af amerískum og kanadískum stofni, tapist um 1,7 til 2,4 tonn úr heimastofni þeirra og að veiðin í amerískum og kanadískum ám minnki af þessum sökum um 1,6 til 2,1 tonn í hverri á á ársgrund- velli. Um leið telja þeir að ljóst sé, að ef hætt yrði að veiða laxinn á úthafinu og við vesturströnd Grænlands, mundi nýtingin á fiskirækt, fiskeldi og náttúru- legu klaki á laxi á heimaslóðum þeirra aukast um hvorki meira né minna en allt frá 58% og upp i 111% að meðaltali. Dæmi þetta sýnir ljóslega, svo ekki verður um villst, hvílíkt gífurlegt alvöru- og hagsmunamál er hér um að ræða. Annað mjög svo alvarlegt og eftirtektarvert dæmi úr skýrslu Alþjóða hafrannsóknaráðsins sn^rtir írska laxinn, það er lax, sem klakinn er út í írskum fiskiræktar- og eldisstöðvum og svo að sjálfsögðu á náttúrulegan hátt í írskum laxveiðiám. Og við skulum hafa það í huga, að þetta dæmi er kannski nærtækara fyrir okkur og okkar aðstæður, bæði hvað klak- og eldisstöðvarnar snertir og náttúrulega klakið í laxveiðiánum okkar. Upplýsingar þessar og dæmi skýrir frá því, að komið hefur í ljós við rannsóknir á veiddum laxi í úthafinu við Grænland, að 18% af heildarveiðinni er lax af ír- landsstofni. Skýrslan og rann- sóknirnar segja síðan að fyrir hvern fisk frá Irlandi, sem veiddur er við Grænland, muni tapast um það bil tveir fiskar úr göngunni til baka í írlandsár. Alls nemur þetta tap á ársgrundvelli um 43% af írlandslaxi af veiðinni við Grænland, eða til frekari skýr- ingar og upplýsinga: Ef veiðin við Grænland næmi 1000 tonnum á ári — en er vitanlega miklu meiri — þýddi það tap á endurheimtum á laxi í ár á Írlandi á ársgrund- velli, sem næmi hvorki meira né minna en 430 tonnum. Ljót blóð- taka það. í ljósi þessara staðreynda úr ársskýrslu Alþjóða hafrannsókna- ráðsins liggur því alveg ljóst fyrir, að 68% af laxinum, sem árlega veiðist i hafinu við Grænland er af amerískum, kanadískum og írsk- um stofni. Hlýtur þá sú spurning að vakna: Hvaðan koma þá hin 32% af laxi, sem veiðist i úthafinu við Grænland. sem umræddar skýrslur Alþjóða hafrannsókna- ráðsins hafa enn ekki staðsett? Er líklegt að verulegt magn af þessum 32% sé komin frá Svíþjóð, úr sænskum eldisstöðvum og nátt- úrulegu klaki í sænskum ám, sem er í mestri fjarlægð frá miðunum við Grænland? Ég tel litlar líkur á því að svo sé, þó að merktur lax þaðan hafi veiðzt við Grænland, en Svíar hafa verið manna dugleg- astir að merkja sinn lax, og því um mestan fjölda merktra laxa þaðan að ræða. Benda líkur til þess að drjúgur hluti af umræddum 32% af veidd- um laxi í hafinu við Grænland sé af norskum laxastofni? Ekki er ég þeirrar skoðunar og gildir hið sama að mínu áliti um laxastofna Englands og Skotlands. Og þá er komið að Islandi. Gæti mki hugsazt að þarna væri um að ræða verulegan hluta af íslenzkum laxastofni? Vegna legu lands okkar, sem liggur nær hinum fengsælu lax- veiðimiðum við Grænland en önn- ur tiltölulega nálæg laxaræktar- lönd, tel ég mjög miklar líkur á því, að allverulegur hluti hinna umræddu 32% af laxveiðinni við Grænland, sem enn hafa ekki verið rannsökuð eða staðsett til hlítar, séu af íslenzkum laxa- stofni. Einnig má á það benda, þessari skoðun til stuðnings, að nokkur íslenzk laxamerki hafa komið fram úr veiðinni við vestur- strönd Grænlands, þrátt fyrir að merkingar á laxi hafi hingað til verið mjög af skornum skammti hér á landi, svo sem ég hefi áður bent á. Og það skal enn og nú tekið fram, að þessi vanræksla gerir stöðu okkar í máli þessu verri nú, en hún hefði getað verið. Þessu til sönnunar skulu eftirtaldar upp- lýsingar tilgreindar úr ársskýrslu Alþjóða Hafrannsóknarráðsins um merkingar á laxi á íslandi: Eldis- Villt seiði stöðva- Náttúrul. Ár Hoplax seiði klak 1963 114 63 1964 167 63 1965 154 8 1966 357 8.367 83 1967 745 10.061 154 1968 441 9.985 59 1969 369 7.586 15 1970 314 10.014 16 1971 785 11.087 Enxar 1972 til 1979 Enxar uppl. Enifar uppl. Enicar í framhaldi af upplýsingum þessum er svo bæði rétt og fróðlegt að birta eftirfarandi yfir- lit um laxveiðarnar við vestur- strönd Grænlands á árunum 1960 til 1978, eins og þær eru fram settar í ársskýrslu Alþjóða Haf- rannsóknarráðsins á fundi þess í Kaupmannahöfn á síðastliðnu hausti. Tölurnar yfir Norðurlönd- in miðast við reknetaveiði en Grænlandstölurnar við veiði í reknet og lagnet. Myndin sýnir svæðin við Færeyjar og Jan Mayen þar sem Danir, Færeyingar og fleiri þjóðir stunduðu laxveiðar i net og á linu í úthafinu árin 1977,1978 og 1979.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.