Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 13 Skáksveit Álftamýrarskóla sigraði i sveitakeppni grunnskóla i Reykjavik 1980 sem haldin var fyrr á árinu. Alls tóku 25 sveitir þátt í keppninni. Á myndinni eru í fremri röð f.v.: Páll Þórhallsson og Lárus Jóhannesson. Áftari röð f.v.: Haraldur Snjólfsson, Gunnar F. Rúnarsson og Rögnvaldur G. Möller. wm MINI-KALT BORÐ Karlmennska og kvendáðir James Barwick: SKUGGI ÚLFSINS 224 bls. Bókaforl. Odds Björnssonar. Akureyri, 1980. Sidney Sheldon: VERNDARENGLAR 280 bls. Bókaforl. Odds Björnssonar. Akureyri, 1980. Skuggi úlfsins er býsna gott heiti á skemmtisögu. Skuggi boðar alltaf einhverja dul. Og úlfur hefur sína margræðu merking. Hvatinn og upphafið er ferð Rud- olf Hess til Bretlands, snemma í heimsstyrjöldinni síðari. Svo hátt settur sem hann var í þriðja ríkinu botnuðu menn lítt í þvílíku uppátæki. í sögu þessari læst James Barwick ljóstra því upp að Hess hafi ekki verið einn á ferð, með honum hafi verið maður Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON einn sem þegar hafi forðað sér er flugvél þeirra snart breska grund. Af honum er svo sagan. Síðari heimsstyrjöldin ætlar að endast vel til skáldskapar. Þó langt sé nú liðið frá lokum hennar eru nöfn þáverandi þjóðarleiðtoga enn á dagskrá. Hins vegar er fjarlægðin orðin nógu mikil til að lesendur taki við ýkjum, láti segja sér hitt og þetta. Og eðli sínu samkvæmt þarf skemmtisaga að vera þannig úr garði gerð að lesandinn trúi meðan hann les, lifi sig inn í söguna, geri tilfinningar söguhetjanna að sínum, hvert sem leikurinn berst og hvað sem þær taka sér fyrir hendur. James Barwick bregður sennileikablæ yfir söguna með því að skjóta inn á milli frásögnum af þekktum mönnum, með því fær sagan dálítinn sagnfræðisvip, manni finnst þetta vera raunveruleg saga úr stríðinu. Og þar sem nú höf- undar eins og Barwick vita manna best hvað ætlast er til af þeim — að þeir segi spennandi sögu — er ekkert nærtækara en stríð, þar kemur spennan af sjálfu sér, þar þarf naumast að ýkja í lýsingum á því tafli sem daglega er teflt um líf og dauða. En í skemmtisögu þarf að fram- kvæma ýmiss konar hagræðingu, stundum dálítið á svig við raun- veruleikann. Til dæmis verður að koma fallegum kvenmanni inn á sögusviðið. Ella þætti lesningin í dáufara lagi. James Barwick gleymir því ekki. Hins vegar reynir hann á þolinmæði þeirra sem vilja drífa sögupersónurnar í bólið sem fyrst. Hér gerist það með 'þess konar aðdraganda sem eðlilegur mátti teljast fyrir fjöru- tíu árum. Að öllu samanlögðu hygg ég að þessi saga geti talist í röð betri spennu- og áhættusagna um þessar mundir. Sidney Sheldon er ekki lengur nýgræðingur á íslenskum bóka- markaði. Hugsanlega höfðar hann til dálítið annars konar lesenda- hóps en James Barwick. í Vernd- arenglum er aðalpersónan kona sem lætur með sjálfstæðum hætti til sín taka. Sheldon reiknar dæmið svo að kvenfrelsisbarátta og rauðsokkugangur síðari ára hafi ekki jafnframt útilokað þörf fyrir nokkra skemmtan og dægra- stytting, vænlegra sé að koma nokkuð til móts við þau sjónarmið. Sheldon tekur líka meira tillit til þeirra sem vilja hafa holdsins lystisemdir með í dæminu og má yfirhöfuð segja að hann leiki á fleiri tilfinninganótur en Barwick, en standi honum ekki að öðru leyti framar, nema síður sé. Hersteinn Pálsson hefur snúið bókum þess- um til íslensks máls. Veizlumatur á vægu veröi — boröiö ekki heita matinn kaldan í dag — Þorláksmessu bjóöum viö okkar vinsæla kabarett-bakka, sem inniheldur m.a.: Rækjur „Chatilly“, þrjá gómsæta kjötrétti, desert Sherry Triffle Verð kr. 6700 Sérstaklega á lœkk- ubu veröi bjóöum viö hálfar brauösneiöar, blandaö álegg, 6—8 tegundir á kr. 1490. Biauðbær Veitingahús V/ÓÐENSTORG VIÐ HLEMM Pantanasímar 25224 KHAIN Sími 24631 — 25640 — 20480. Spariö ykkur tíma og fyrirhöfn Viö sendum án endurgjalds. Okkar vegna pantiö tímanlega. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl ALT.LVSIR LM ALLT L.AND ÞEt.AR Þl ALC- LVSIR I MORCLNBLADINL Gæðatæki á viðráðanlegu verði SHARP SG-270H: Meiriháttar steríó samstæða 3 tæki í einu, meó hátölurum í vinsæla silfur/ brons útlitinu. Breidd 540 mm. Hæð 138 mm. Dýpt 397 mm. Hátalarar: Breidd 230 mm. Hæð 375 mm. Dýpt 193 mm. Verö kr.: 495.000.- Nýkr. 4.950.- actu.1 HLJÓMTÆKJADEILD KARNABÆR LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999 Utsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík Portið Akranesi — Eplið ísafirði — Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði —M.M. h/f. Selfossi — Eyjabær Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.