Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 35 Hannes Þ. Hafstein: Bilafælan er þarfaþing fyrir reiðhjólamanninn. segja, að óvitarnir stinga upp í sig öllu því, er hönd á festir. Því eru aldrei um of áréttuð þau sígildu varnaðarorð til foreldra, að þessi hættulegu efni séu ávallt látin þar, sem börn ná ekki til þeirra. þótt vissulega hafi orðið á breyting til hins betra hvað snertir umbúnað á iokum lyfjaglasa og á töppum umbúða ýmissa vökva, verður þó aldrei nógsamlega ítrekað, að gæta fyllstu varúðar, því ávallt er allur varinn góður. Heimilisstörf Öll umsvif hinna eldri vekja forvitni og athafnaþrá barnanna og á það jafnt við um annir mömmu í eldhúsinu og sýslan pabba í geymslunni eða bíl- skúrnum. Hin algengustu heim- ilistæki, sem daglega eru í notk- un og með öllu ómissandi, geta sem best verið hinar hættu- legustu slysagildrur. Við matseldina verður að gæta þess að sköft og höldur ílátanna, sem á eldavélinni eru, snúi til veggjar, þannig að stuttir hand- leggir geti ekki teygt sig í þau og steypt yfir sig sjóðandi og brennheitu innihaldinu. Og við baksturinn verður að taka hrærivélina eða hakkavélina úr sambandi þurfi að bregða sér frá. Auðveldlega geta „hin litlu“ klifrað upp á eldhúskollinn og fest litlar hendur í þessum heimilistækjum, sem geta veitt þá áverka, sem ekki verða bætt- ir. „Hnífur og skæri eru ekki barna meðfæri“ segir gamall húsgangur, sem vissulega eru orð að sönnu. Alltof oft kemur það fyrir, að börn stinga sig og hljóta djúp sár á eggjárnum þessum, sem gleymst hefur verið að ganga frá að aflokinni notk- un. Slíkt hið sama hefur oft hent, þegar pabbarnir hafa gleymt tiltekt og hirðusemi með verkfærin, sögina, hamarinn og sporjárnið, eftir smá lagfær- ingar og dundur. Þótt slysum af völdum raf- magns hafi fækkað að miklum mun hin síðari ár, sem áreiðan- lega má þakka bættum frágangi og öryggisbúnaði í heimahúsum, verður aldrei um of áréttað, að gæta vel að öllu því, er að rafmagni lýtur. Víða leynast hættur og raf- magnsslys eru í flestum tilvikum hin alvarlegustu. Því ættu þeir, sem ekki hafa vit á, að forðast að sýsla við rafmagnstæki, en leita þess í stað til fagmanna. Við- gerð, sem framkvæmd er í góðri trú, jafnvel aðeins tenging á rafmagnssnúrum, svo auðvelt sem það virðist vera, getur hæglega misfarist á þann veg, að ekki verði um bætt. Ög húsbónd- inn má sem best venja sig af þeim ósið að fara í bað og hafa rafmagnsrakvélina meðferðis. A heimilunum leynast víða hættur, sem fjölskyldan verður að vera sér meðvitandi um og forðast af fremsta megni. Aldrei er nógsamlega brýnt fyrir for- eldrum að hafa öruggan umbún- að á opnanlegum gluggum og svalahurðum. I því sambandi er skylt að minna á svalahandriðin, þar sem öryggisstuðlinum hefur alltof oft verið varpað fyrir róða vegna tískufyrirbrigðis og augnayndis. Umferðin I næsta nágrenni heimilanna leynist þó skaðvaldurinn mesti, hin hraða, freka og sívaxandi umferð stórra og smárra öku- tækja, sem allof oft hefur rofið heimilisfriðinn með djúpum sár- um og sorglegum atvikum. Á þessum tíma árs eru dagarnir stuttir, myrkrið sest snemma að og skyggni takmarkað. Að heiman er haldið í skólann á morgnana í myrkri og snúið aftur heim síðdegis, þegar birtu er tékið að bregða. Réttilega hefur verið bent á, að endur- skinsmerkin skapi hinum gang- andi vegfaranda ómælt öryggi, og jafnvel látið að liggja, að þau séu honum ódýrasta líftrygging- in í myrkurumferðinni. Heils- hugar skal tekið undir þessi sjónarmið, en því aðeins að notkun þeirra sé viðhöfð RÉTT. Því neðar sem merkin eru fest á ilíkurnar, eða hengd í snúru eða band, sem nælt er í yfirhafnirn- ar, eru meiri líkur á, að þau endurkasti geislum bílljósanna. Nú virðist sá misskilningur alls ráðandi og jafnvel orðinn að leiðu tískufyrirbrigði að hengja endurskinsmerkin á bak sér og venjulega svo hátt, að þau sitja fyrir ofan mitt bak. Það er falskt öryggi fyrir þá, sem endurskins- merkin bera á þann hátt. Þegar farið er yfir akbraut t.d. skapar endurskinsmerkið, sem borið er á bakinu, ekki hið minnsta öryggi hinum gangandi vegfar- anda. Sameinumst öll í notkun endurskinsmerkja og NOTUM ÞAU RÉTT. Notkun reiðhjóla hefur farið mjög vaxandi og er það vel á tímum olíukreppu og síhækk- andi verði á eldsneyti. Þá eru hjólreiðar ungum og öldnum holl íþrótt og góð. En segja verður hverja sögu eins og er, og er þá fyrst til að nefna, að hjólreiða- mönnum hefur alls ekki verið sköpuð sú aðstaða, sem nauð- synleg er. Þeir hafa svo sannar- lega gleymst við teikniborð verk- fræðinga skipulagsmála bæði í borg og bæ. Enda hefur slysum á hjólreiðamönnum farið fjölg- andi, sem von er, og heldur svo áfram sem horfir, verði ekkert að gert. Þessum vandamálum má sem best ráða bót á, sé þeim mætt í tíma og tafarlaust. Hiklaust og nú þegar á að heimila hjólreiðar aðgát. Því er það gott ráð, að fjölskyldan gefi sér tíma til að fara í sameiningu yfir það, sem helst beri að varast og jafnframt hugleiða á hvern hátt megi sem best bregðast við hinu óvænta. Á þessum vettvangi þarf fjölskyld- an að sameinast, foreldrarnir eiga að leiðbeina börnunum og hin eldri að vera litla bróður og systur til halds og trausts. Algengasti slysavaldur í heimahúsum er sá, að börn gleypa lyf eða önnur hættuleg efni, sem skilin hafa verið eftir á glámbekk, eða geymd þar sem auðveldlega náðist til þeirra. Það er kunnara en frá þurfi að V <3 á gangstéttum, þar sem því verður við komið og setja upp skilti þar að lútandi. Það eitt er þó ekki nægjanlegt, og verða hjólreiðamenn sjálfir að koma til móts við aðra vegfarendur til að skapa sjálfum sér og öðrum sem mest öryggi. Því er ástæða til að átelja mjög harðlega, þegar reiðhjólin eru vanbúin nauðsynlegum öryggisbúnaði, ljosum og glitmerkjum. Og auð- vitað á hjólreiðamaðurinn skil- yrðislaust að klæðast yfirhöfn í skærum lit með endurskinsborð- um. Þá er skylt að benda hjól- reiðamönnum á, að hvetja þá til að taka strax í notkun öryggis- búnað þann, sem hlotið hefur hið stórgóða nafn „BÍLAFÆLAN“, sem þegar ætti að lögbjóða og setja á hvert einasta reiðhjól. Þessi öryggisbúnaður gagnar ekki síður að deginum til en í myrkurumferðinni. „Bílafælan" er plastarmur nálægt 40 cm á lengd með stórum glitmerkjum, hvítu („kattarauga") sem fram snýr, en rauðu er aftur veit. Hún er fest á bögglaberann og lögð fram með honum, þegar hjólið er1 Skyldur ökumanna Við þær aðstæður, sem oftast eru á þessum árstíma, eru mikl- ar skyldur lagðar á herðar öku- mannsins. Bifreiðin verður að vera í fullkomnu lagi hvað varð- ar stýris-, hemla- og ljósabúnað. Þá verður að minna ökumennina á að halda bílrúðum og ljósker- um ávallt hreinum. „Skjótt skip- ast veður í lofti" er kunnara en frá þurfi að segja og því sjálf- sagt að búa bifreiðina sem best fyrir vetrarakstur. Slysavarnarmál varða alla, unga jafnt sem aldna. Samtaka- máttur fjöldans á þessum vett- vangi er forsenda þess, að vel til takist og samborgurunum vel farnist. Sýnum í orðum eða athöfnum aga og hlýðni. Höldum vöku okkar gagnvart hættunum hvort heldur er innan veggja heimilanna, á vinnUstöðum eða í umferðinni. Hugleiðum þessi mál ávallt og ævinlega, hvar sem er og hvenær sem er. Öll lítum við á heimilin, sem hinn fullkomna og örugga sama- stað fjölskyldunnar, þar sem slys eða óhöpp eru víðsfjarri. Að minnsta kosti er það okkar dýrasta ósk að svo sé, og er það ofur eðlilegt, þegar þess er gætt, að þar eyðum við lengstum tímanum í nánum tengslum við þá, sem okkur eru kærastir og þykir vænst um. Fréttir af slysum varðar okkur öll, en oft á tíðum þykja okkur slíkir atburðir framandi, ef þeir snerta ekki beinlínis okkur sjálf eða nánustu ættingja Uætturnar eru margar á heimilinu fyrir þá yngstu. ekki í notkun. Þegar haldið er af stað út í umferðina er armurinn réttur út til hliðar frá hjólinu, blasir við ökumönnunum og vek- ur eftirtekt þeirra og athygli. „Bílafælan" er á sama hátt líftrygging hjólreiðamannsins eins og endurskinsmerkið er hinum gangandi vegfaranda. Það hefur áreiðanlega ekki farið fram hjá neinum, sem er árla morguns á ferð, hvað stórlega er ábótavant þessum búnaði, sem nefndur hefur verið hér að framan og best getur gagnað hjólreiðamanninum í umferð skammdegisins á dimmum og drungalegum dögum. og vini. En því miður er alltof mörgum tamt að hugsa sem svo: „Slíkir atburðir henda ekki mig og mína.“ Skylt er hverjum að halda vel vöku sinni, því enginn veit, hvenær eða hvar vágestur slysa og óhappa knýr næst dyra. Á heimilum er að mörgu að hyggja og slysatíðini þar miklu meiri heldur en í fljótu bragði virtist. Þar tala staðreyndirnar sínu máli. Þar eru slys á börnum á aldrinum 2—6 ára lang algeng- ust. Þótt mörg þessara slysa hafi verið minni háttar, og næsta erfitt að afstýra, voru þó hin miklu fleiri, sem hægt var að varna með meiri fyrirhyggju og Fjölsky lduspjall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.