Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 1 Fólk og fréttir í máli og myndum • Stjómarformaður enska 2. deildarliðsins Watford er enginn annar en Elton John. Liði hans gengur sæmilega vel um þessar mundir, og það gleður Elton jafnan því að hann elskar knattspyrnu og gerir allt til þess að liði sinu gangi sem best. Elton er þó ekki alltaf að horfa á knattspyrnu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hann hefur fengið sér snúning með ljósku einni i einu af mörgum diskótekum New York-borgar. Úr ýmsum áttum VESTUR-þýsku bikarmeistar- arnir í knattspyrnu. Fortuna Dusseidorf. eiga i miklum erfið- leikum um þessar mundir. Liðið er i bullandi fallhættu i deild- arkeppninni og á auk þess litla sem enga peninga. Liðið hefur keppt reglulega i Evrópukeppn- inni siðustu keppnistimabilin og er Uðið komið i 8-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa. Verði liðið slegið út i næstu umferð. er nokkuð öruggt að félagið verði að selja stjörnuleikmann sinn, landsliðsmanninn Klaus Allofs, til þess að bæta upp tekjumissinn sem slíkt hefði i för með sér. - O - ENN einn Austur-Evrópubúinn er genginn til liðs við Lokeren í Beigiu. Er það hinn 33 ára gamli Júgóslavi Karel Dobias, margreyndur landsliðsmaður. Ilann skrifaði undir samning til þriggja ára, en hefur litið fengið að spreyta sig. Fyrir voru hjá Lokeren tveir Pólverj- ar, þeir Lubanski og Lato, sem verið hafa fastamenn i liðinu. Þó hefur eitthvað hallað undan fæti hjá Lubanski að undan- förnu. - O - VESTUR-þýska stórliðið Ba- yern Munchen er á höttunum eftir nokkrum sterkum knatt- spyrnumönnum. Hefur félagið leitað út fyrir landsteinana og eru þeir Frank Arnesen Ajax, Allesandro Altobelli Inter Mil- ano og Jean Franeois Larios St. Etienne efstir á óskalistanum. - O - 19 ÁRA unglingur hefur komið geysilega á óvart i skosku deildarkeppninni f knattspyrnu á þessu keppnistfmabili. Það er Charlie Nicolas hjá Celtic, en hann vann m.a. það afrek fyrr i vetur, að skora i átta leikjum i röð. Hefur engum tekist það fyrr i hinni ungu úrvalsdeild i Skotlandi. Þykir Nicolas að mörgu leyti svipa til Ken Dalg- lish. - O - LANDSLIÐ Paraguay i knattspyrnu fór sannkallaða fýluför til Brasiliu eigi ails fyrir löngu. Má með sanni segja. að liðið hafi ekki riðið feitum hesti heim á ný. Það var ekki nóg með að iandslið Bras- ilfu burstaði Paraguay 6—0, heldur kom i ljós, að þjófar höfðu laumast i búningsklefa Paraguay-manna meðan á leiknum stóð og stolið öllu fémætu ... - O - BRANCO Zebec, hinn drykk- felldi þjálfari þýska liðsins Hamburger SV hefur verið lát- inn fara. Var heilsu hans mjög farið að hraka og mun ætlunin að senda kappann i læknisskoð- un. hvíld og afvötnun. - O - JIMMY Greenhoff, einn fræg- asti knattspyrnumaður Eng- lands i dag, hefur loks yfirgefið síðasta félag sitt, Manchester Utd. þar sem hann lék við frábæran orðstír siðustu árin. Hann fór til 3. deildar liðsins Crewe og tók United enga greiðslu fyrir hann. Skammt er siðan Greenhoff hafði allt að þvi gengið frá félagaskiptum til Blackpool, en það hrökk upp fyrir á siðustu stundu. - O - ANNAR kunnur enskur knattspyrnumaður, John Tre- wick hjá WBA, hefur skipt um félag. Trewick hefur um nokk- urt skeið verið fremur óánægð- ur með vistina hjá WBA. í fyrradag var hann siðan seldur til Newcastle fyrir 450.000 sterlingspund. - o — IVAN Buljan, júgóslavneski knattspyrnumaðurinn sterki. sem Isiendingum er góðkunnur eftir Evrópuleiki Vals og IISV árið 1979, hefir ekki í hyggju að framlengja samning sinn við þýska félagið. Samningurinn rennur út i lok keppnistímabils og hefur Buljan nú hug á að græða svolitið í Bandaríkjun- um. m Justin Fashanu, miðherjinn sterki hjá Norwich er ein skærasta stjarna ensku knattspyrnunnar i dag. Hann er aðeins 19 ára gamall, en engu að siður markhæstur i 1. deild með 15 mörk. Auk þess þykir hann bráðvel gefinn og skýr piltur. Það er ekki langt siðan að hann snéri sér að knattspyrnunni, hann hefði getað farið i hnefa- leika. Hann æfði þá um skeið og var mál manna að hann væri efnilegur, enda jötunefldur og hávaxinn. En hann snéri sér að knatt- spyrnunni með þeim afleiðing- um, að í dag er hann metinn á 2 milljónir sterlingspunda. Félag hans, Norwich, er ekki stórveldi og forráðamenn félagsins hafa látið þess getið, að þeir reikni ekki með þvi að geta haldið i Fashanu endalaust. Tilboð hafa borist frá Leeds og Nottingham Forest, en ekki nógu há að mati forráöamanna Norwich, Fashanu hefur sjálfur lýst þvi yfir, að hann gæti þess vegna hæglega hugsaö sér að leika með itölsku, spænsku eða vestur-þýsku félagi. _Ég ætla að verða Mohammad Ali knattspyrnunnar14 hefur Fash- anu látið hafa eftir sér. Vissulega hafa þau áform hans byrjað vel. • Menn gera allt sem þeim dettur í hug ef þeir sjá einhvern möguleika á þvi að setja heimsmet. 25 ára gam- all ítali Gianni Marcolla setti um daginn nýtt met á hjólaskautum. Ilann hékk aftan i kappakstursbil á Monza kappakstursbraut- inni á ítaliu, nánar tiltekið Lamborghini og billinn ók á 145 km metra hraða með kappan aftan i. Með örlitið meiri æfingu get ég staðist 200 km metra hraða sagði Gianni eftir metið. Ilér til hliðar má sjá myndir frá mettilrauninni og hvar kappinn fagnar. • Eins og kunnugt er endaði fyrrum stórstjarna i ensku knattspyrn- unni Jimmy Greaves sem alkóhólisti. Með viljafestu tókst þó Jimmy að ná sér á strik og starfar hann nú mikið að góðgerðarmálum i Englandi. Á myndinni má sjá þennan fyrrum knattspyrnumann vera að heimsækja heimili fyrir útigangsmenn og drykkjusjúklinga. • Marvin Camels á myndinni hlaut vægast sagt slæma útreið i hnefaleikakeppni fyrir skömmu. Hann varð að liggja á sjúkrahúsi i heilan mánuð til að ná sér. Myndin sýnir Camels i siðustu lotunni, og eins og sjá má er hann illa farinn. Er svo nokkur hissa á að hnefaleikar skuli vera bannað- ir hér á landi. • Alan Simonsen og félagar hans hjá FC Barcelona fá alltaf aukabónus ef þeir vinna erki- fjendur sína í knattspyrnunni Real Madrid. Síðast vann Barce- lona 2—1. Og þá fengu leikmenn liðsins eina milljón ísl. króna i aukabónus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.