Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 24

Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 24
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 Birgir H. Sigurðsson skipulagsfræðingur: Húsvemd - Umhverfisvemd Inngangur Æði oft hendir það skipulagsað- ila hérlenda, að ígrunda ekki nægilega verk sín frá byrjun. Þeir rjúka af stað, gera alls konar tillögur eftir viljayfirlýsingum stjórnmálamanna, jafnvel þó þeir viti, að þær slái ekki í takt við raunveruleikann. Þannig vinnu- brögð bjargast stundum á einn eða annan hátt, en stundum ekki og því verða sum verka þeirra, sem miklum tíma og almannafé hefur verið eytt í, aldrei neitt annað og meira en draummyndir á blaði. Þessa dagana stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýning á nýrri skipuiagstillögu að Grjótaþorpi, draummyndum sem reistar eru á viljayfirlýsingu skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar. Hún kom fram 9. apríl, 1979 og var sam- þykkt í borgarráði ellefu dögum síðar. Til fróðleiks er þessi viljayf- irlýsing eða bókun, eins og þær kallast, birt hér að neðan: „Á fundi skipulagsnefndar 2. þ.m. var lögð fram tillaga að bókun varðandi endurskoðun á skipulagi Grjótaþorps. Tillagan var tekin til umræðu á fundi nefndarinnar í dag, og þá sam- þykkt með samhljóða atkvæðum, en hún er svohljóðandi: 1. Unnið verði að því að staðfest aðalskipulag, að því er tekur til Grjótaþorps, verði breytt og svæð- ið auðkennt til bráðabirgða sem svæði fyrir íbúðir og takmarkaðan atvinnurekstur. 2. Við gerð deiliskipulagsins verði í meginatriðum miðað við núverandi gatnakerfi og núver- andi lóðaskiptingu. 3. Á grundvelli könnunar Ár- bæjarsafns á sögulegu gildi húsa í Grjótaþorpi og ástandi þeirra, verði gerð tillaga um þau hús, sem leggja ber höfuðáherslu á að verði varðveitt. 4. Bifreiðaumferð um hverfið verði takmörkuð svo sem frekast er unnt og bifreiðastæði takmörk- uð við þarfir svæðisins. 5. Við uppbyggingu hverfisins verði að því stefnt, þar sem við getur átt, að flytja á óbyggðar lóðir hús, sem vegna aldurs og gerðar geta fallið að svipmóti hverfisins. Þar sem ástæða þykir til að nýbyggingar komi, hvort sem er um sjálfstæð hús að ræða eða nauðsynlegar viðbyggingar, skal þess gætt að þær falli að svipmóti hverfisins. 6. Jafnframt því sem unnið verður á grundvelli framanritaðra þátta, verði gerð sérstök áætlun um hvernig framkvæma megi skipulagið, bæði lagalega og fjár- hagslega." Ileimild: Skipulag Reykjavíkur. Skjal 4980, dagsett í Reykjavík, 9. apríl, 1979. Sérstaka athygli vil ég vekja á sjötta og síðasta lið bókunarinnar og þá einkum orðanna: „... hvern- ig framkvæma megi skipulagið, bæði lagalega og fjárhagslega." Það er vægilega sagt, að Grjóta- þorp 1980, skipulagstillaga, fari fáum orðum um það, hvernig eigi að fullnægja þessum sjötta lið bókunar skipulagsnefndar. Ekki skal farið nánar í það hér. Hinu haldið fram, að ef ekki er mögu- leiki á því að framkvæma skipu- lagstillögu sem Grjótaþorp 1980, bæði lagalega og fjárhagslega, þá er um ótímabæra tillögugerð að ræða — grunninn vantar. Skiptir þá ekki máli hversu „góð“ tillagan annars kann að vera. Þessum orðum mínum til stuðn- ings vil ég benda á innskot í niðurlagsorð formála Grjótaþorps 1980, sem forstöðumaður Borg- arskipulagsins skrifar: „Framtíðin ein getur úr því skorið, hvort þessi tillaga leiði til meiri árangurs en eldri tillögur hafa gert.“ Með þessu innskoti er sleginn heljarmikill varnagli. Ekki skal líkum að því leitt, hverjum þessi orð eru ætluð, heldur það eitt sagt, að ef þessi tillaga leiðir ekki til meiri árangurs en áður gerðar tillögur hafa gert, þá er augljós- lega eitthvað að, — „eitthvað" sem ekki verður rakið til lélegra teiknihæfileika höfunda, enda eru þeir góðir. Það sem á tillögugerðina vantar að minni hyggju, hefir þegar komið fram hér að ofan, sú skoðun mín, að ellt of snemma hafi verið ráðist í sjálfa tillögugerðina. I hugum margra er Grjótaþorpið mjög viðkvæmur blettur í borg- inni, því hefði þurft að undirbúa tillögugerð þessa af meiri kost- gæfni, ef verndun þorpsins er hið raunverulega takmark. „Conservation in Iceland“ Þegar ég ákvað að nota „skipu- lagssögu" Grjótaþorps sem inn- legg í lokaritgerð mína „Conserva- tion in Iceland" (lögð inn til mastersprófs í skipulagsfræðum við Háskólann í Liverpool í maí, 1980) varð mér fljótlega ljóst, að mikla forvinnu þyrfti að inna af hendi áður en tillögur um friðun Grjótaþorps gætu orðið að raun- veruleika. Eins og ég sagði, þá er Grjótaþorp þar aðeins hluti í stærra verki, sem fjallar um skipulag, húsvernd og umhverfis- vernd; hvernig að þessum málum hefur verið staðið, sérstaklega í Reykjavík, og hvar úrbóta er þörf. Ég hafði áðurnefnda bókun skipu- lagsnefndar um Grjótaþorp til grundvallar. Samt hugsaði ég mér, að hún gæti í reynd átt við hvaða hluta gamla bæjarins sem er, ef liður 3 er undanskilinn, enda skoðun mín sú, að það séu miklu fleiri svæði eða hverfi, en Grjóta- þorp, innan borgarmarkanna, áhugaverð, já ekki síður áhuga- verð. Samt sem áður valdi ég Þorpið sem eins konar samnefn- ara þessara svæða, enda vinsælt í allri umræðu um húsvernd, burt séð frá byggingar-, sögu- og um- hverfislegu gildi þess. Ég lít á það sem hlekk í langri keðju, einskon- ar prófstein á skipulagsvinnu í gamla bænum (og þá sérstaklega með umhverfisvernd í huga), — umhverfi liðins tíma. Ef einhver dregur í efa þá skoðun mína, að umhverfi gamla bæjarins sé ekki þess virði að hlúð sé að því, vegna þess að þar sé um uppbyggingar að ræða, sem áttu sér stað á volæðistímum þjóðar- innar (borið saman við líðandi stund), þá vil ég hvetja hina sömu til að taka sér ferð á hendur um nýjustu hverfi borgarinnar og bera þetta tvennt hreinlega sam- an. Hvað varðar umhverfislegt gildi, þá þori ég að fullyrða, að sá samanburður verður gömlu borg- arhverfunum mjög svo hagstæður. Ef þessi skoðun er ekki aðeins mín heldur reynist þorri almennings sama sinnis, þá vaknar sú spurn- ing, hvernig hægt er að viðhalda umhverfi gömlu borgarhverfanna — hverfa eins og Grjótaþorps — svo íbúar þeirra, og þeir sem um þau eiga leið geti notið þeirra í framtíðinni. I ritgerðinni „Conservation in Iceland" set ég fram ákveðnar hugmyndir í þessu sambandi, hug- myndir sem of langt mál er að ræða ítarlega hér, aðeins gerð tilraun til að gera þeim lauslega skil. I mjög grófum dráttum má skipta þeim í tvennt. Annars vegar eru settar fram hugmyndir um þær aðgerðir sem ríkisvaldið þarf að grípa til, ef húsvernd og umhverfisvernd eiga að verða veruleiki, hins vegar lýst nauðsyn- legum aðgerðum, sem sveita- stjórnir verða að standa fyrir innan sinna umdæma. Hugmyndir er varða ríkisvaldið Greinar um húsvernd og um- hverfisvernd komi inn í skipu- lagslög ásamt greinum um fram- kvæmd laganna hvað varðar rétt og skyldur einstaklinga svo og sveitarfélaga. fjármál (lán, styrk- ir), kvaðir, eignarnám, bætur og hver skuli vera þáttur almenn- ings i þannig skipulagsvinnu. Skýring: í íslenskum skipu- lagslögum er ekki minnst einu orði á húsvernd og umhverfis- vernd. Aftur á móti er kafli um húsvernd í Þjóðminjalögum frá 1969. Sá ljóður er á, að skipu- lagsmál tilheyra Félagsmálaráðu- neyti en þjóðminjar, þ.ám. hús- vernd, menntamálaráðuneyti. Þetta fyrirkomulag gerir bæði skipulagsvinnu og húsvernd erfið- ari viðfangs, og satt best að segja, stuðlar þessi skipting að fálm- kenndum aðgerðum í báðum til- fellum. Á þetta sérstaklega við um gömlu borgarhverfin. Hvorugt getur án hins verið, ef vel er. Skipulag og húsvernd ætti því að setja undir einn hatt, þannig að inn í skipulagslögin komi greinar, bæði hvað varðar verndun ein- stakra húsa og svæða. Þetta er að mínu mati mjög nauðsynlegt, einkum til þess að verndunarmál einangrist ekki frá skipulagsvinn- unni. Skipulag ríkisins og húsafriðunar- nefnd verði eitt Skýring: Nú er það vitað mál, að ríkisvaldið lítur á byggða- og borgarskipulag sem nánast einka- mál sveitarstjórna, enda eru bein afskipti þess lítil sem engin þó um mikilvægan málaflokk sé að ræða. Fámennari byggðalög landsins njóta þó aðstoðar frá Skipulagi rikisins og Framkvæmdastofnun, fá þar tæknilega aðstoð ýmiss konar, einkum hvað varðar fram- tíðar uppbyggingu byggðarlag- anna. Líku er háttað um hús- verndunarmálin, nema hvað þau tilheyra Húsafriðunarnefnd menntamálaráðuneytisins. Samfara breytingum á skipu- lagslögum er fælu í sér húsvernd og nauðsynlegar greinar um fram- kvæmd hennar, þá væri eðlilegast að húsafriðunarnefndin tengdist Skipulagi rikisins. En varla getur löggjafinn hrist fram nýjar laga- greinar á einni nóttu, því yrði hér væntanlega um eitthvert millibils- ástand að ræða. Á meðan yrði Húsafriðunarnefnd breytt í vinnu- hóp sérfróðra manna, sem væru lausir allra kvaða, hvort heldur frá mennta- eða féiagsmála- ráðuneyti. Hins vegar markaði ríkisvaldið þeim ákveðið starfs- svið og kostnaður greiddist úr ríkissjóði. Um val manna í þennan starfshóp er það að segja, að hann má ekki einvörðungu vera skipað- ur mönnum af sögu- og listasvið- um — slíkt er alltof einhæft. Nú mun eflaust einhver spyrja, hvort ekki sé nóg um nefndir og starfshópa ýmiss konar á vegum ríkisin8? Nær að fækka þeim en auka við. Þessu er til að svara, að vandamál gömlu bæjarhverfanna eru það tröllaukin og margslung- in, að það er ekki á valdi neins sveitarfélags að ráða fram úr þeim óstudd, ekki einu sinni Reykjavíkurborgar, þó fjölmenn sé. Því tel ég nauðsynlegt, að ríkisvaldið hlaupi undir bagga með þeim, og þá ekki aðeins með löggjöf og sérfræðiaðstoð, heldur einnig fjárhagsaðstoð. Aukið fjármagn til húsvernd- unarmála svo og umhverfisfágunar Skýring: Húsafriðunarnefnd var sett á laggirnar 1969. Frá upphafi hefur hún verið í miklu fjársvelti, svo miklu, að hún getur tæplega staðið undir nafni. Þó „vænkaðist" hagur hennar þegar sérstakur Húsafriðunarsjóður var stofnaður 1975. Tekjustofn hans var þá ákveðinn 20 krónur (gkr) á hvern íbúa landsins. Þó hér hafi verið um að ræða „verðbólgu- tryggðar" krónur, þá hafði sjóður- inn ekki úr meiru að moða á síðasta ári, en upphæð sem varla dygði til kaupa lélegrar 2ja her- bergja kjallaraíbúðar. Þetta dæmi sýnir hversu máttvana húsafrið- unarsjóðurinn er, ennfremur það, hve húsverndunarmálin eru létt- væg að mati ríkisvaldsins. Til úrbóta kemur einkum tvennt: a) Beinir styrkir Fyrst þarf aukið fjármagn í húsafriðunarsjóð. Það yrði ein- göngu notað til að mæta kostnaði til endurbóta, svo og til viðhalds bygginga á húsafriðunarskrá. Hér yrði um styrk að ræða. Slíkt styð ég þeim rökum, að ef bygging er virkilega þess virði, að hún sé sett á „skrá“, þá hlýtur sú krafa að vera réttmæt að fyrir hana sé að einhverju leyti greitt úr vasa almennings, enda byggingin vernduð í hans þágu. Eða er ekki svo? Hve hátt hlutfall af endur- byggi ngarkostnaði skuli vera styrktur verður ekki farið út í hér. <9 < /-■ /. ■ / / '///. / /.'/ /. . . . . 1975 f yumij títím B BBggBB 1980

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.