Morgunblaðið - 23.12.1980, Side 38

Morgunblaðið - 23.12.1980, Side 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 Kona sendiherra Reagans hjá SÞ WaHhinKton, 22. des. — AP. RONALD Reagan hefur valið John R. Block. búnaðarráðunaut í Ulinois, landbúnaðarráðherra ok mun innan skamms skipa í síðustu stöðurnar í ríkisstjórn sinni. Próf. frú Jeane J. Kirkpat- Kosygin sýnd hinzta virðing Moskvu. 22. des. — AP. LEONID Brezhnev forseti og tugir þúsunda venjulegra bornara gengu fram hjá lík- borum Alexei Kosygins for- sætisráðherra i dag, fjórum dögum eftir að hann andað- ist, 76 ára að aldri. Útför Kosygi'ns mun verða gerð á Rauða torginu á morg- un. Brezhnev og aðrir æðstu leiðtogar og herforingjar skiptust á um að standa heið- ursvörð við blómum skrýddar líkbörurnar í herhöllinni í miðborg Moskvu. Þúsundir syrgjenda biðu þögulir fyrir utan og biðröðin teygðist lang- ar leiðir. Líkbörurnar voru flóðlýstar og umkringdar heiðursmerkj- um, sem Kosygin fékk um ævina. Jarðarfararmúsík var leikin í hátölurum og einkenn- isklæddir hermenn stóðu vörð. Hundruð hermanna og lög- reglumanna umkringdu bygg- inguna og á hlið hennar hékk geysistór mynd af Kosygin með sorgarramma. Drengirnir dóu er sjón- varpið sprakk París, 22. desember. — AP. TVEIR bræður fórust og systir þeirra slapp naumlega eftir að sjónvarpstæki á heimili þeirra sprakk í loft upp og olli eldsvoða á heimili systkinanna um helg- ina. Drengirnir, sem voru fjögurra og níu ára, voru að horfa á sjónvarp heima hjá sér í úthverfi Parísar, er sprenging varð skyndi- lega í tækinu. Ottast er að þeir hafi farist í sprengingunni, en systir þeirra, sem er tíu ára, slasaðist alvarlega er hún forðaði sér út úr brennandi íbúðinni með því að stökkva út um glugga á þriðju hæð hússins. Talið er, að skammhlaup hafi orðið eða önnur rafmagnsbilun í tækinu sjálfu, og að við það hafi myndast sprunga í myndlampann, með fyrrgreindum afleiðingum. Að jafnaði springa um eitthundr- að sjónvarpstæki í Frakklandi á ári hverju af þessum orsökum, en þar í landi eru um 15 milljónir sjónvarpstækja. Walesa maður ársins London 19. des. — AP. BRESKA vikuritið Now kaus pólska verkalýðsleiðtogann Lech Walesa mann ársins i gær. Ritið, sem er í svipuðu formi og Time, hóf göngu sína á þessu ári. Var birt mynd af Walesa á forsíðu blaðsins og grein um hann þar sem segir m.a.: „Walesa er sá maður sem hafði mest áhrif á gang heims- mála á árinu 1980. Hann gerði það sem áður hafði verið haldið ómögulegt." rick verður sendiherra hjá SÞ. Reagan hefur valið Samuel R. Pierce, lögfræðing frá New York, húsnæðis- og byggingamálaráð- herra. Hann verður eini blökku- maðurinn í stjórninni. Jafnframt stendur Reagan fast við þá ákvörðun að skipa James G. Watt innanríkisráðherra þrátt fyrir hávær mótmæli umhverfis- varnarmanna. Auk þess hefur Reagan skipað James B. Edwards, fyrrverandi ríkisstjóra Suður-Karolínu, orku- ráðherra. Þá á hann aðeins eftir að velja menntamálaráðherrann. Reagan sagði í gær að hann væri að íhuga þann möguleika að efna til leiðtogafundar um efna- hagsmál fljótlega eftir að hann tæki við embætti. Hann neitaði að ræða síðustu skilyrði Irana fyrir frelsun gisl- anna. Hann sagðist ekkert mundu láta hafa eftir sér um málið fyrr en hann tæki við embætti. Fidel Castro ávarpar annað þing kúbanska kommúnistaflokksins i Havana. Castro forseti sagði að ekki hefði tekizt að ná þvi marki að auka hagvöxtinn um sex af hundraði eins og samþykkt var á fyreta flokksþinginu, en þrátt fyrir ytri aðstæður hefði tekizt að ná fram 4% hagvaxtaraukningu. Yerkföll í Póllandi geg*n kjötskömmtun Varsjá, 22. des. — AP. FULLTRÚAR Samstöðu hafa hætt setuverkfalli, sem þeir efndu til i Mið-Póllandi tii að mótmæla mikium skömmtunum á jólamat samkvæmt heimildum innan verkalýðsfélagsins. Heimildirnar herma, að bæjar- málaátök væru í uppsiglingu í og sveitarstjórnir hafi gengið að kröfum um að skammturinn verði aukinn í héraðinu Piotrkow. íbúar héraðsins höfðu kvartað yfir því, að skammtur þeirra væri aðeins 40% af meðalskammti miðað við landið allt. Fulltrúar 135 verksmiðja í hér- aðinu lögðu undir sig sal í stjórn- arbyggingu á föstudag til að mótmæla skömmtuninni. Þeir kröfðust þess, að íbúar héraðsins fengju að minnsta kosti 500 grömm af kjöti eftir eigin vali fyrir jólin. Jólaskömmtunin í Póllandi er sú fyrsta í landinu síðan á árunum eftir heimsstyrjöldina. Hún er undanfari langtímaskömmtunar, sem á að hefjast 1981 vegna stöðugs kjötskorts í landinu. Árás á andófsmenn Kommúnistaleiðtoginn Stanis- law Kania gerði enn harða hríð að andófsmönnum um helgina og varaði við því að „hörð stjórn- væru 1 landinu“. Viðvörun hans kom fram á flokksfundi, sem var boðaður til að skipuleggja aukaflokksþing 1981 um efnahagsvanda Póllands. „Til er fólk í Póllandi, sem hefur ekki getað sætt sig við sósíalisma, en reynir að leyna gagnbyltingar- tilraunum sínum," sagði hann. Hann tilgreindi ekki andófsmenn. Hann sagði, að ef flokkurinn gæti sýnt Pólverjum að tilraunirnar til að leysa þjóðarvandann væru lík- legar til að bera árangur yrði hægt að „einangra okkur frá stéttaróvinunum". Fyrirhuguðum verkföllum í prentsmiðjum virðist hafa verið frestað þar til eftir jól. Tilgangur- inn er að neyða stjórnvöld til að leyfa sýningar á heimildarkvik- mynd um verkföllin í sumar. Nýjum skilyrðum Irana vísað á bug Washington, 22. des. AP. EDMUND S. Muskie, utanríkis- ráðherra Bandarfkjanna, sagði i gær, að Bandaríkjastjórn gæti ekki gengið að „ósanngjörnum“ fjármálaskilyrðum íransstjórnar fyrir þvi, að handarísku gislarnir verði látnir lausir. Muskie sagði, að „mjög erfitt" mundi reynast að komast að samkomulagi áður en Carter- stjórnin viki frá völdum 20. jan. og útilokaði að það gæti gerzt fyrir jól. Þótt Muskie væri svartsýnn sagði hann, að „þetta væri ekki í fyrsta skipti, sem íranar kæmu með tillögur um hluti, sem væru fyrir utan valdsvið forsetans". Hann kvaðst telja, að gíslarnir yrðu látnir lausir að lokum. Síðustu skilyrði írana koma Þetta gerðist 1588 — Hinrik III af Frakklandi lætur myrða hertogann af Guise í Blois, Frakklandi. 1601 — írsku uppreisnarmenn- irnir Tyronne og O’Donnell ofur- liði bornir nálægt Kinsdale. 1728 — Berlínarsáttmáli Karis keisara VI og Friðriks Vilhjáims Prússakonungs. 1832 — Frakkar taka Antwerp- en og neyða Hollendinga til að viðurkenna sjálfstæði Belgiu. 1861 — Tyrkjasoldán samþykkir sameiningu Moldavíu og Valakíu — Bretar afhenda Bandaríkja- stjórn orðsendingu vegna „Trent“-málsins. 1913 — Bandaríski seðlabank- inn stofnaður. 1920 — Lögin um stjórnskipun írlands samþykkt — Frakkar og Bretar samþykkja landamæri Sýrlands. 1933 — Dómarnir í réttarhöld- unum vegna þýzka þinghúss- brunans kunngerðir. 1938 — Franco hershöfðingi hefur meginsóknina gegn Kata- lóníu á Spáni. 1941 — Uppgjöf bandaríska herliðsins á Wake-eyju í Kyrra- hafi fyrir Japönum. 1948 — Hideki Tojo og sex aðrir stríðsleiðtogar Japana teknir af lífi í Tokyo. 1964 — Fellibyiur veldur miklu manntjóni i Ceylon og Suður- Indlandi. 1972 — Allt að 10.000 farast í jarðskjálfta í Managua, Nicar- agua. 1975 — Richard Welch, yfir- maður CIA í Aþenu, myrtur. 1979 — írski stjórnmálaleiðtog- inn Sean McBride ræðir við utanríkisráðherra írans um gíslamálið. Afmæli. Richard Arkwright, enskur uppfinningamaður (1732-1792) - Giacomo Pucc- ini, ítalskt tónskáld (1858— 1924). Andlát. 1959 Halifax lávarður, stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1193 d. Þorlákur biskup helgi — 1199 Þorláksmessa (hin síðari) lögleidd — 1621 d. Arni Gíslson prófastur — 1795 f. Skáld-Rósa — 1879 Útför Ingi- bjargar Einarsdóttur — 1905 d. Páll Ólafsson skáld — 1956 52 ungverskir flóttamenn koma til tslands 1957 Stórbruni í Þing- holtunum — 1958 Ríkisstjórn Emils Jónssonar skipúð — 1966 Áhöfn „Boston" bjargað við Arn- arnes — 1884 f. Þorsteinn sýsl. Þorsteinsson. — 1905 f. Árni Björnsson tónskáld. Orð dagsins. Heimurinn er gam- anleikur þeim sem hugsa, harm- leikur þeim sem finna til — Horace Walpole, brezkur stjórn- málaleiðtogi (1678-1757). framí orðsendingu, sem Banda- ríkjastjórn barst á föstudag. Sam- kvæmt orðsendingunni er hvatt til þess, að Bandaríkjastjórn leggi 23 milljarða dollara í seðlabanka Alsírs sem tryggingu fyrir því, að íranar endurheimti allar inni- stæður, sem hafa verið frystar í vestrænum bönkum, og auðæfi þau sem þeir segja að fyrirverandi Iranskeisari hafi haft á brott með sér. Pinto tekur við af Sa Carneiro LÍHsabon, 22. des. — AP. ANTONIO Ramalho Eanes for- seti tilnefndi í dag Francisco Pinto Balsemao, 43 ára gamlan blaðamann, lögfræðing og sósi- aldemókrata, forsætisráðherra Portúgals i stað Francisco Sa Carneiro, sem fórst í flugslysi fyrir hálfum mánuði. Þeir voru nánir samstarfsmenn. Balsamao átti þátt í stofnun flokks sósíaldemókrata 1974 ásamt Sa Carneiro og var talinn eðlilegur eftirmaður hins látna leiðtoga. Flokkurinn tilnefndi hann einróma í embættið. Konungssinnar samþykktu til- nefninguna þegar í stað. En Mið- demókrataflokkur ihaldsmanna kvaðst ekki samþykkur vali Bals- emao, þótt virða yrði ákvörðun sósíaldemókrata og gera gott úr henni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.