Alþýðublaðið - 04.09.1920, Síða 3

Alþýðublaðið - 04.09.1920, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Lífsábyrgðarfél. „Andvaka" U Kristjaníu, Noregi. Allar venjulegar lífstryggingar, barnatryggingar og lifrentur. í SL AND SDEILDIN löggilt af stjórnarráði íslands í desbr. 1919. Ábyrgðarskjölin á íslenzkul Varnarþing i Bríkl „Andvaka“ hefir frjálslegri tryggingarskilyrði og ákvæði en flest önnur líftryggingarfélög. „Andvaka44 setur öllum sömu iðgjöld! (Sjómenn t. d. greiða eng- in aukagjöld). „Andvaka“ gefur líftryggingar, er eigi geta glatast nje gengið úr gildi. „Andraka“ veitir bindindismönnum sérstök hlunnindi. „Andraka“ veitir »örkumlatryggingar« gegn mjög lágu aukagjaldi og er því vel við hæfi alþýðumanna og verkamanna. Hellusundi 6, Reykjavík. Helgi Yaltýsson, (forstjóri ísiandsdeildar). Frakkneski spítalinn er frá I. þ m. rekinn fyrir reikning bæj- arins. í spítalanum voru þann dag 15 sjúklingar (5 karlmenn og 10 kvenmenn). Matthías Einarsson verður eins og áður læknir spítal- ans, og til hans eiga menn að snúa sér um það, að fá rúm í spítalanum. Leigutfminn er frá 1. sept. til marzloka. Þetta hefir bæjarstjórnin gert til þess að bæta úr hinum miklu spí- talavandræðum, sem hingað til hafa verið í bænum. Það er gert ráð fyrir að spítalinn geti tekið 30 sjúklinga. Ætti hann að bera sig, þyrfti hvert rúm að vera full- skipað. a. i. Yillemoes var 10 sólarhringa og 3 klukkustundir frá Canada til Akureyrar í síðustu ferð sinni. Það er skemsti tími sem farið hefir í siglingu milli íslands og Atneríku. Tvær nngar álftir má nú sjá á Tjörninni og eru þær eign bæj- arins. Þeim var náð í vor ungum vestur á Snæfellsnesi og hafa ver- ið aldar síðan vestur á Sandi, og eru orðnar alltamar. Ágúst Ármann kaupmaður (Nýienduvörufélagið) hefir gefið bænum álftirnar. Borgarbúar — hver og einn — eru ámintir um að sjá um að álft- unum verði ekki mein gert, og kæra til sekta hvern þann sem það gerir; en sektir liggja við saaakvæmt lögreglusamþykt bæj- arins. Knattspyrnan í gærkvöldi fór þannig, að Fram sigraði K. V. með 6 : o (1+5). Uppreist á 3rlaaíi? Khöfn, 3. sept, Borgarstjórinn úr Cork á írlandi (sem er Sinn-Fein) situr enn í Biixtonfangelsinu í London, en öeitar að smakka mat, og hefir fjöldi manns snúið sér til konungs- ins og Lloyd George til þess að hann leystan úr fangelsinu, en árangurslaust. Búist er við að hann deyi úr hungri bráðlega, en jafn- ekjótt og það fréttist verði upp- reist um alt írland. lítlenðar jrétttr. Hyndarlegur boli. Á gripasýningu einni mikilli í Skotlandi hlaut boli nokkur að nafni „Sir Douglas Haig“ fyrstu verðlaun. Hann er 3150 punda þungur. Hræðilegur eldsvoði í Damaskus Nýléga varð stórbruni í Damas- kus í Sýrlandi, gerði hann svo mikinn usla að áætlað er að verð- mæti hafi eyðilagst fyrir 100 milj- ónir króna. Merkileg uppgötvun á sviði fluglistarinnar. Nýr vængur fnndinn. Nýlega hefir verið fundinn upp mjög einkennilegur og merkilegur vængur á flugvél. Hann líkist nær því nákvæmlega fuglsvængjum, er þykkur og þungur í miðju, en þunnur í endana. Margar tilraunir hafa verið gerðar með hinn nýja væng, og reynst svo vel, að talið er að hann Iyfti flugvélinni þriðj- ungi betur en nokkur vængur hef- ir náð að gera áður. Sennilega verða fiugvélarnar alveg eins og fuglar í laginu að síðustu. Skáld á gamals aldri. Sarah Bernhardt leikkonan fræga hefir nýlega gefið út fyrstu skáld- sögu sína. Hún er orðin fjörgöm- ul, en heldur sér ágætlega, að þvf er sagt er, og hefir meðal annars leikið nýlega á kvikmyndum. €ríenð simskeytl Khöfn, 3. sept. Wrangel mótmælir. Wrangel ber á móti því að bolsivíkar hafi unnið sigur á Krím. Lítháar í stríð við iPólverja! Frá Kowno er símað að eigi verði hjá því komist að Litháar fari í stríð við Pólverja, ef þeir stöðvi eigi framsókn sína. Kolaverkfallið brezka. Frá London er símað, að full- trúar námamannanná hafi ákveðið að hefja verkíall í síðasta iagi 25. þ. mán. Flutningamenn og járnbrautar- menn hafa ákveðið að styðja verk- fallið. [Það hefir ’þá reynst rétt, sem Alþbl. gat til í gær, að þ»ð væri aðeins auðvaldsblaðafrétt, að flutn- ingamenn og járnbrautarmenn, sem eru í sambandi við námu- mennina, ætluðu ekki að styðja þá.]

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.