Morgunblaðið - 08.04.1981, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
82. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981
Prentsmiója Morgunblaðsins.
WALESA
vill hætta
París. 7. apríl. AP.
„ÉG VILDI einiæglega geta
dregið mig í hlé, en um sinn
verð ég að helga Samstöðu líf
mitt vegna hættunnar á klofn-
ingi.“ sagði Lech Walesa. leið-
togi Samstöðu. hinna óháða
verkalýðsfélaga í Póllandi, í
viðtali við franska blaðið
France-Soir en viðtalið var tek-
ið í Gdansk fyrir skömmu.
„Ég hef staðið við orð mín. Ég
hét því, að stuðla að myndun
óháðra verkalýðsfélaga. Draum-
ur minn hefur orðið að veru-
leika. Nú er komið að öðrum að
standa í broddi fylkingar. Sam-
staða þarfnast nýrra krafta. I 13
ár barðist ég fyrir stofnun
óháðra verkalýðsfélaga. Mér var
varpað í fangelsi. Vegna baráttu
minnar hef ég misst heilsuna.
Fjölskylda mín saknar mín og ég
sakna fjölskyldu minnar,“ sagði
Walesa og bætti við, að börn
hans væru stöðugt svöng vegna
lítils framboðs matvöru.
Walesa sagði, að hann vonað-
ist til að geta hætt fljótlega en
vegna þrjóskju og stífni sumra í
Samstöðu, gæti hann ekki dregið
sig í hlé. Hann sagði, að margir
áttuðu sig alls ekki á stöðu mála
og hvernig fylgja bæri sigrum á
sviði verkalýðsbaráttunnar eftir
með samningum og málamiðlun-
um.
Brezhnev útilokaði
ekki innrás í Pólland
PraR. Varsjá. 7. apríl. AP.
LEONID Brezhnev, forseti Sovétríkjanna, hélt í dag ræðu á
flokksþingi tékkneska kommúnistaflokksins. Ilann útilokaði
ekki innrás i Pólland, en tók mildari afstöðu til ástands mála
þar en Gustav Husak, leiðtogi tékkneskra kommúnista, gerði í
ræðu í gær. Hins vegar lét Brezhnev í ljós velþóknun á ræðu
Husaks, sem lýsti því yfir, að Varsjárbandalagsríkin væru
reiðubúin að „verja sósíalisma í Póllandi“.
Brezhnev lýsti yfir trausti á
leiðtoga pólska kommúnista-
flokksins. Vestrænir frétta-
skýrendur benda á, að þrátt
fyrir mildari tón, skipti í raun
og veru máli hvað sagt sé á
einkafundum og þeir benda á,
að Brezhnev hafi lýst velþókn-
un á ræðu Husaks, sem bein-
línis lýsti því yfir, að innrás
væri vel hugsanleg.
Þó eitthvað virðist hafa
slaknað á spennu, hafa vest-
rænir fréttaskýrendur bent á,
að ríki Varsjárbandalagsins
hafi hafið heræfingar í Tékkó-
slóvakíu árið 1968 og þrátt
fyrir ítrekuð tilmæli tékkn-
eskra stjórnvalda, hafi sovésk-
ir ráðamenn neitað að kalla
herlið sitt út úr landinu. Fjöl-
mennt sovéskt herlið sé nú
staðsett í Póllandi og verði svo
um ófyrirsjáanlega framtíð.
Varsjárbandalagsríkin til-
kynntu, að heræfingunum,
sem staðið hafa yfir í Póllandi
síðan 17. marz, hefði lokið í
dag og að „hermenn væru nú á
leið til stöðva sinna“.
Stefan Olzowski, fulltrúi
pólska kommúnistaflokksins á
flokksþinginu í Prag, sagði í
ræðu, að Pólverjar hefðu
„vilja og vald“ til þess að
binda endi á hættuástand í
landinu. Hann sagði, að
ástand mála í Póllandi væri
bein ógnun við ríki A-Evrópu.
Fundað
í skugga
Póllands
Bonn. V Uy/kalandi. 7. apríl. AP.
Varnarmálaráðherrar ríkja Atl-
antshafsbandalagsins komu saman
til fundar i Bonn i dag. Skuggi
I’óllands grúfói yfir fundinum og
voru málefni landsins helsta um-
ræðuefniö. Caspar Weinberger,
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna skýrði kollegum sinum
frá ástandi mála i Póllandi og sagði
hann það „alvarlegt og erfitt“, að
sögn handarískra embættismanna.
Weinberger sýndi kollegum sínum
gervihnattamyndir, sem sýna breyt-
ingar á stöðu herja Varsjárbanda-
lagsins síðustu vikurnar og að sögn
heimilda má glöggt sjá hvernig
Sovétmenn hafa myndað línu um-
hverfis Pólland og eru þeir þess
albúnir að fara inn í landið með
mikinn her.
John Nott, varnarmálaráðherra
Bretlands, sagði við fréttamenn, að
hann teldi óliklegt, að Sovétmenn
mundu gera beina innrás í Pólland,
en lét í ljós ugg um, að Sovétmenn
mundu koma hinum óháðu verka-
lýðsfélögum í Póllandi á kné. „Inn-
rás í Pólland er ólíkleg. Sovétmenn
eru ekki svo vitlausir," sagði Nott.
Danmörk:
Konur halda
ættarnöfnum
Kaupmannahofn. 7. april. AP.
DANSKA þingið samþykkti í dag
lög, sem heimila konum sjálfkrafa
að halda ættarnöfnum sinum þegar
þær ganga í hjónaband. beim verð-
ur áfram heimilt að taka sér
ættarnafn eiginmanns en þá verða
þær sérstaklega að sækja um það.
Jafnaðarmannaflokkurinn lagði
fram frumvarpið og það öðlast gildi
þann 1. apríl 1982.
Tveir af hverjum þremur þing-
mönnum lýstu fylgi sínu við frum-
varpið, en ekki voru allir jafnánægð-
ir. Poul H. Möller, þingmaður kristi-
lega þjóðarflokksins, gagnrýndi hin
nýju lög harðlega og sagði þau ganga
gegn einingu hjónabandsins.
Afganistan:
Hundruð falla í
hefndarárásum
Nýju Delhí. 7. apríl. AP.
SOVÉSKAR herþotur og stórskotalið gerðu harðvítugar
árásir á hina íornu borg, Khulm, sem er tæpa 300 kilómetra
norðvestur af Kabúl, og féllu margir óbreyttir borgarar, að
því er heimildir sem hingað til hafa reynst áreiðanlegar
herma. Árásir sovésku vítisvélanna áttu sér stað þann 17.
mars síðastliðinn. Tíu dögum síðar gerðu sovéskar orustuþot-
ur og stórskotalið harðar árásir á sjö þorp, um 80 kílómetra
norðvestur af Kabúl.
Þorpsbúar sem komust lífs
af segja, að í einu þorpinu
hefðu 80 óbreyttir borgarar
fallið fyrir sovésku vígvélun-
um. Ekki er ljóst hve margir
féllu í þessum árásum en tala
þeirra skiptir hundruðum.
Árásir þessar voru gerðar í
hefndarskyni fyrir stuðning
við frelsisheri Afgana. Að
sögn sjónarvotta, komu afg-
anskir og sovéskir hermenn til
Khulm og skoruðu á stuðn-
ingsmenn stjórnvalda að safn-
ast saman á aðaltorgi staðar-
ins. Fáir urðu við þessari
áskorun. Klukkustund síðar
réðust sovéskar orustuþotur á
bæinn og stórskotahríð hófst.
Á miðum sem dreift var í
Kabúl sagði, að helmingur
húsa í Khulm hefðu verið
jöfnuð við jörðu. Ibúar í
Khulm voru 15 þúsund. Að
sögn heimilda, voru árásirnar
á þorpin sjö gerðar í hefnd-
arskyni fyrir árás frelsissveita
á skólabyggingu en þá féllu 40
stuðningsmenn Babrak Karm-
als. Þá herma fréttir, að Sov-
étmenn hafi ítrekað gert árás-
ir á þorp á þjóðleiðinni frá
Kabúl til sovésku landamær-
anna, en frelsissveitir Afgana
hafa ítrekað ráðist á sovéskar
flutningalestir á þjóðbraut-
inni. Að sögn heimilda hafa
allt að 40 þúsund íbúar á svæði
þessu beðið bana í árásum
Sovétmanna.
Haigí
Saudi-Arabíu
Kiyadh. Saudi-Arahiu. 7. apríl. AP.
ALÉXANDER IIAIG. utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna. kom
í da>r til ltiyadh. höfuðborKar
Saudi-Arabíu. Ilanh mun eina
viðra’ður við Khaled. konung ok
Fahd. utanrikisráðherra. Búist
er við. að IlaÍK muni skýra
ráðamönnum í Saudi-Arabíu frá
afstöðu Ronald Reayrans til
beiðni Saudi-Araba um kaup á
fimm AW’ACS-ratsjárvélum.
Haig kom til Riyadh frá
Amman, höfuðborg Jórdaníu.
Þar átti Haig viðræður við Huss-
ein konung og að söjjn banda-
rískra embættismanna var Haig
ánægður með viðræðurnar í
Amman, þó Jórdanir hefðu lýst
því yfir, að friði í Mið-Austur-
löndum staíaði heist hætta af
Israelsmönnum.