Morgunblaðið - 08.04.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981
3
Lárus Jónsson alþingismaður:
Stjórnarliðar felldu til-
lögur okkar um lækkanir
Síðan kemur formaður Framsóknarflokksins með
þær sem aðaltillögu í efnahagsmálum á flokksþingi
Léttklædd á skíðum i Skarðinu
„ÉG HEF sjaldan orðið eins hissa
á málflutningi manna í pólitískri
baráttu, en þetta sýnir þó að þeir
hafa gert sér grein fyrir því að
bráðabirgðalögin frá áramótum
náðu allt of skammt," sagði Lárus
Jónsson alþingismaður i viðtali
við Mbl. í tilefni af yfirlýsingum
framsóknarmanna um væntan-
legar efnahagsaðgerðir, en sjálf-
stæðismcnn báru fram breyt-
ingartillögur við meðferð alþing-
is á frumvarpi til staðfestingar á
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar frá áramótum.
í breytingartillögum sjálfstæð-
ismanna, sem stjórnarliðar og þar
á meðal framsóknarmenn felldu,
var lagt til að almennt vörugjald,
söluskattur og sælgætisgjald yrði
lækkað. Með samþykkt þeirra til-
lagna hefði framfærsluvístalan
lækkað um 2% 1. maí, en það er í
samræmi við það sem framsókn-
armenn boða nú að stefnt skuli að.
„Stjórnarliðar felldu þessar til-
lögur okkar og mér finnast það
heldur undarlegir hlutir, að þing-
menn Framsóknarflokksins skuli
fella slíka tillögu á atþingi fyrir
nokkrum vikum og síðan kemur
formaður þeirra með þetta sem
sína aðaltillögu í efnahagsmálum
á flokksþingi" sagði Lárus.
Bílar stór-
skemmdir
SKEMMDARV ARG AR voru á
ferð i geymsluporti Eimskipafé-
lags íslands við Sigtún á laugar-
dagskvöldið og unnu þar miklar
skemmdir.
Komust þeir inn í bifreiðir og
óku þeim fram og aftur í portinu.
Skemmdust fjórar bifreiðir meira
og minna en þær voru allar
nýlegar. Auk þess voru sæti skorin
og eyðilögð í fjölda nýrra bíla.
Lárus sagði einnig, að við um-
ræður á alþingi hefði fulltrúi
Alþýðubandalagsins sagt að tillög-
ur þeirra sjálfstæðismanna væru
eingöngu yfirboð og sýndar-
mennska, en það væri ánægjulegt
að sjá að stjórnarliðar virtust vera
að vitkast í efnahagsmálunum, þó
seint væri. Þá sagði hann: „Þeir
hafa nú gert sér grein fyrir að
bráðabirgðalögin náðu allt of
skammt og í rauninni höfðu þau
engin önnur áhrif en að draga úr
þessum verðhækkunum, sem þeir
sjálfir höfðu efnt til síðari hluta
árs í fyrra, og þeir hafa einnig séð
að við verðum með nákvæmlega
sömu verðbólgu nú í ár og í fyrra,
ef þessu verður ekki fylgt eftir.
Hins vegar var það hugmynd
okkar með tillöguflutningnum að
ná meiri árangri í lækkun verð-
bólgunnar og eins, sem er náttúru-
lega kjarni málsins, að draga úr
kjaraskerðingu almennings í land-
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra:
Rekstraráætlun f lugstöðvar
gerð með óvenjulegum hætti
„í TÍMANUM í morgun er því
slegið upp, að það verði rekstrar-
afgangur af flugstöðinni,— að
rekstraráætlun sýni verulegan
hagnað. Sú rekstraráætlun er nú
gerð með þeim óvenjulega hætti
að það er ekki reiknað með
neinum vaxtagreiðslum vegna
lána, sem tekin væru til fram-
kvæmda. Ég er anzi hræddur um,
að rekstraráætlunin snérist nú
heldur betur á hvolf þegar búið
er að taka tillit til fjármagns-
kostnaðarins“, sagði Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra, er
Mbl. spurði hann álits á yfirlýs-
ingum aðalfundar miðstjórnar
Framsóknarflokksins um bygg-
ingu nýrrar flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli, en framsóknar-
menn hafa hug á þvi að hafist
verði handa við bygginguna
strax á næsta ári.
„Það liggur fyrir að fjármagn til
þessarar flugstöðvar verður ekki
tekið inn á lánsfjáráætlun á þessu
ári“ sagði Ragnar og er hann var
spurður, hvort alþýðubandalags-
menn myndu standa gegn bygg-
ingunni svaraði hann: „Við viljum
fyrst láta ákveða með hvaða hætti
hún verði reist, hvernig hún verði
fjármögnuð, einnig hversu stór
hún á að vera og hvar hún á að
koma inn í framkvæmdaröð. Það
eru margir sem sjá ekki að til
þessa verkefnis fer hærri upphæð
heldur en varið er ateinu ári til
allrar vegagerðar, hafnarmála og
flugvallabygginga og menn hafa
nú ekki enn fengið fyllstu rök
fyrir því að þessi ráðstöfun fjár-
muna sé sú brýnasta og að ekki sé
hægt að byggja þessa flugstöð án
þess að vefja það inn í hernaðar-
framkvæmdir á Keflavíkurflug-
velli, sem er okkur alþýðubanda-
lagsmönnum mjög á móti skapi."
Ragnar sagði í lokin: „Þá liggur
ekkert fyrir um hver þróun flug-
mála verður á Keflavíkurflugvelli.
Við vitum ekkert um það hvort
Atlantshafsflugið heldur áfram.
Mörgum mun nú þykja ákaflega
hæpið að ákveða stærð flugstöðv-
arinnar áður en vitað er hvort
Atlantshafsflug Flugleiða verður
verulega skert.“
André Isoir við orgelið í Landakotskirkju.
Ljósm.: Kmilía
Orgeltónleikar
André Isoir í
Landakotskirkju
FRANSKI ORGELLEIKARINN André Isoir heldur orgeltón-
leika í Landakotskirkju í kvöld og á morgun. Hann heldur
fyrirlestur um tónsnillinginn César Franck í Fíladelfíukirkj-
unni kl. 17. Þetta er í fyrsta skipti sem Isoir heimsækir lsland
og hefur hann haldið tvenna tónleika, í Filadelííukirkju og
Skálholtskirkju, en hann fer af landi brott hinn 11. apríl.
André Isoir er fæddur 1935.
Hann stundaði nám við Tón-
listarháskólann í París og
hlaut fyrstu verðlaun í orgel-
leik og impróvísasjón við
brottfararpróf 1960. Isoir á
glæsilegan tónlistarferil að
baki. Hann hefur haldið tón-
leika víða um heim og hvar-
vetna vakið athygli fyrir stór-
brotna túlkun. I þrjú ár sam-
fleytt fór hann með sigur af
hólmi í alþjóðlegri keppni í
impróvísasjón, en slík keppni
er haldin árlega í Haarlem í
Hollandi.
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins litu inn á æf-
ingu hjá Isoir í Landakots-
kirkju á þriðjudag. Reyndar
var ekki um æfingu að ræða,
því Isoir var önnum kafinn við
að stilla kirkjuorgelið og
hreinsa — gekk um með skipti-
lykil í hendi, en settist þess á
milli við hljóðfærið og spilaði
tónraðir sem skrúfuðu sig um
kirkjuna.
„Ef þetta hljóðfæri fæst til
að hljóma, verður það okkur
einum að þakka — við verðum
að láta hendur standa fram úr
ermum ef það á að takast,“
sagði meistarinn og veifaði
skiptilyklinum. Það fór því
þannig, að Isoir hafði heldur
lítinn tíma til að spjalla við
blaðamenn.
Um dvöl sína hér sagði hann,
að ísland hefði komið honum
dálítið á óvart — enda hefði
hann ekki mikil kynni af norð-
lægum löndum. „En ísland er
fallegt land og ég mun vissu-
lega eiga héðan góðar minn-
ingar,“ sagði André Isoir.
Takmark-
anir á öxul-
þunga víða
um landið
VEGIR eru nú færir um mest-
allt landið þar sem á annað
borð er fært á þessum árstima
að sögn vegaeftirlitsmanna.
Vorið hefur þó gert áþreif-
anlcga vart við sig og þrátt
fyrir að nóg hafi verið að gera
við að bægja vatni frá vegum
hafa ckki orðið stórfelld tjón
vegna vatnsflóða. Takmark-
anir á öxulþunga hafa verið
settar víða vegna aurbleytu.
Öxulþungatakmarkanir hóf-
ust á Snæfellsnesi, þá hafa
takmarkanir verið settar norð-
an til á Vestfjörðum og einnig
er búið að auglýsa takmarkan-
ir á Suðurlandi, mikið í Ár-
nessýslu og í Mýrdalnum og
einnig töluvert á Austfjörðum.
ran
FYRIRALLA
FJÖISKYLDUNA
-O" M/MW
Líkamar okkar þarfnast vel yfirvegaðrar,
vitamin-ríkrar og undirstððugóðrar mál-
tíðar á degi hverjum til að haldast hraustir
og heilbrigðir. A þetta vill skorta hjá
börnum og fullorðnum.
Það sem við þörfnumst er fæða til að halda
jafnvægi í neyslu - og þar koma
KELLOGG’S ALL BRAN, BRAN BUDS
OG 30% BRAN FLAKES að
góðum notum. Spyrjið þá sem gleggst vita.
Allar eru þessar BRAN tegundir tilvaldar
til að taka þátt í að viðhalda
hreysti og heilbrigði.
Byrji5
daginn með
H. BENEDIKTSSON HF.
Suðurlandsbraut 4 Sími: 38300