Morgunblaðið - 08.04.1981, Page 12

Morgunblaðið - 08.04.1981, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981 Greinargerð Flugleiða varðandi flugmannagiálefni og verkfallsboðun FIA Verkfallsboðun Með bréfi, dags. 2. apríl, hefur stjórn og trúnaðarmannaráð Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna (F.Í.A.) tilkynnt Flugleiðum, að verkfall flugmanna á B-727, F-27 og Twin-Otter flugvélum félagsins hefjist frá og með nk. föstudegi 10. þ.m. Ekkert sérstakt tilefni er til- greint fyrir verkfallsboðuninni, en augljóst er, að þrátt fyrir að kjarasamningar hafi verið lausir síðan 1. feb. 1980, er megintilefnið það á hvern hátt Flugleiðir hafa nú ákveðið að ráðstafa nýjum stöðum á flugvélar sínar, og hugs- anleg áhrif þeirrar ákvörðunar á svonefnt starfsaldurslistamál flugmanna. Ný flugverkefni Vegna samdráttar í hefðbundnu áætlunarflugi Flugleiða milli Evr- ópu og Bandaríkjanna hefur í vetur verið unnið kappsamlega af hálfu félagsins að öflun ýmissa viðbótarverkefna erlendis, sem m.a. gætu tryggt sérþjálfuðu starfsliði þess, þ.á m. flug- mönnum, áframhaldandi störf, og jafnvel aukið þau. Þau verkefni, sem þegar hefur verið samið um, eru m.a. eftirfarandi: a) Fraktflug með tveim DC-8 flugvélum fyrir Air India, en það verkefni skapar nú störf fyrir 21 flugmann og 11 flug- vélstjóra. b) Leiga á tveim F-27 flugvélum til áætlunarflugs Libyan Arab Airlines. Við það starfa nú 6 íslenskir flugmenn og 3 flug- virkjar. ' 6) Leiga á B-727 flugvél til nýs flugfélags í Nígeríu, Kabo-Air, en félag þetta hefur einnig fengið kauprétt á flugvélinni. Þar eiga kost á starfi 6 flug- menn, 3 flugvélstjórar, 2—3 flugvirkjar og stöðvarstjóri, en starfsemi þessa nýja félags mun væntanlega hefjat 15. apr- Í1 nk. Flugmenn og áhafnaþörf Á vegum Flugleiða og Air Ba- hama eru nú starfandi samtals 110 flugmenn. Þar af eru 54 félagar í FÍA (19 á B-727 og 35 á F-27), 53 eru í Félagi Loftleiða- flugmanna (FLF), og starfa nú allir á DC-8, og 3 flugmenn eru ríkisborgarar Bahama, og starfa við áætlunarflug Air Bahama ásamt íslenskum starfsbræðrum. Áætluð flugmannaþörf nk. sumar til hefðbundinna og nýrra verkefna er sem hér segir: Flugfélag DC-8 B-727 Flugleiðir 20 23 Air Bahama 6 _ Air India 21 - Libyan Arab _ _ Kabo-Air _ 6 Samtais: Fyrir hendi 47 29 eru: 56 19 Breytingar: +9 +10 Sérstök athygli er vakin á því, að við hefðbundin íslensk flug- verkefni eru nú aðeins áætluð störf fyrir 74 flugmenn, en erlend verkefni bjóðast hins vegar fyrir 39 flugmenn. Þessi árangur í útvegun nýrra flugverkefna er- lendis þýðir m.a., að Flugleiðir gætu haldið öllum núverandi flug- mönnum í starfi, og ráðið til viðbótar þá þrjá F-27 flugmenn, sem ekki hafa haft starf hjá félaginu að undanförnu. Auglýstar stöður Með hliðsjón af framangreindu voru fulltrúar stjórna FÍA og FLF boðaðir á fund Flugleiða 17. mars sl., og þeim kynnt umrædd verk- efni og áhafnaþörf. Þá var þeim jafnframt tjáð að auglýstar yrðu lausar til umsóknar viðbótarstöð- ur á B-727 og F-27. Sú auglýsing vart birt daginn eftir, og stíluð á alla flugmenn Flugleiða. Umsóknarfrestur var til kl. 10.00 mánudaginn 23. mars. Eftirfarandi skriflegar umsókn- ir bárust: il ií u. 2 1 1 StaAa B-727 flugstjóra: 18 20 38 Staða F-27 flugstjóra: 14 20 34 Staða B-727 flugmannn: 15 13 28 Með bréfi, sem afhent var full- trúum stjórna FÍA og FLF seinni hiuta sama dags, var tilkynnt sú ákvörðun Flugleiða, að umrædd- um stöðum yrði ráðstafað með hliðsjón af skráðum starfsaldri flugmanna félagsins. Samkvæmt því kæmu 5 stöður B-727 flug- stjóra og 5 stöður B-727 flug- manna í hlut flugmanna í FÍA, en 8 stöður flugstjóra á F-27 hlytu flugmenn í FLF, sem til þessa hafa starfað á DC-8 flugvélum, ýmist sem flugstjórar eða flug- menn. Mótmæli FÍA og kröfur Þessari ákvörðun mótmælti stjórn og trúnaðarmannaráð FÍA bréflega til Flugleiða 25. mars. Er þess jafnframt krafist, að allar flugstjórastöður á F-27 komi einn- ig í hlut flugmanna í FÍA. At- vinnulausum DC-8 flugmönnum verði gefinn kostur að hefja störf sem aðstoðarflugmenn á F-27, á eftir yngstu mönnum á fyrri starfsaldurslista FÍA og Flugfé- lags íslands. Þeir FÍA-félagar, sem hér um ræðir, starfa nú sem flugmenn á B-727, og hafa að baki 11—15 ára starfsaldur hjá Flugfé- lagi íslands og Flugleiðum. Um- ræddir DC-8 flugmenn, sem að lokinni þjálfun yrði úthlutað F-27 flugstjórastöðunum hafa starfað í 18—19 ár hjá Loftleiðum og Flug- leiðum. Ef farið yrði að kröfu stjórnar og trúnaðarmannaráðs FÍA yrði framkvæmdin jafnframt sú, að af þeim 19 flugmönnum, sem nú starfa á B-727 flugvélunum, þyrftu 8 að sækja F-27 námskeið- ið, og af 35 flugmönnum, sem nú starfa á F-27, myndu 18 eða rúmlega helmingur setjast á B-727 námskeiðið. Það eru þó ekki þessi síöast- töldu vandkvæði í framkvæmd krafna FÍA, sem réði ákvörðun Flugleiða um stöðutilfærslur og nauðsynlega þjálfun, heldur þær F-27 Samtais % 31 74 65,5 _ 6 5,3 - 21 18,6 6 6 5,3 - 6 5,3 37 113 100.0 35 110 97,3 +2 +3 2,7 forsendur, sem hér á eftir verða nánar raktar. Starfsaldurslistar Þegar Flugfélag íslands og Loftleiðir voru sameinuð undir yfirstjórn Flugleiða árið 1973 var fyrirhugað að eldri flugfélögin störfuðu áfram, a.m.k. fyrst um sinn, en Flugleiðir önnuðust allan rekstur þeirra annan en beinan rekstur flugvélanna. Viður- kenndir voru áfram tveir starfs- aldurslistar flugmanna, þ.e. hjá Flugfélagi íslands og Loftleiðum. Þegar Flugleiðir yfirtóku öll flugrekstrarleyfi Flugfélags ís- lands og Loftleiða frá og með 1. okt. 1979, lauk allri flugstarfsemi á vegum hinna eldri félaga, og á sama degi urðu allir flugmenn þeirra starfsmenn Flugleiða. Með bréfum Flugleiða til FÍ A og FLF, dags. 3. okt. 1979, var kjarasamningum sagt upp frá og með 1. febrúar 1980. Jafnframt var tekið fram, að forsenda nýs kjarasamnings væri að samið yrði við einn aðila, sem kæmi fram manna. Úrslit atkvæðagreiðslu meðal flugmanna urðu þau, að FLF-flugmenn samþykktu, en FÍA-flugmenn höfnuðu tillögunni. Sem viðbótartilraun til að ná samkomulagi um lausn þessara mála, lögðu Flugleiðir fram nýja tillögu 28. nóv. 1980, sem m.a. gerði ráð fyrir atvinnutryggingu allra flugmanna félagsins eigi skemur en til 1. okt. 1981, og sérstökum ákvæðum um úrskurð- araðila, sem tilnefndur verði af Ákvörðun FÍA-flugmanna að mæta ekki til þeirrar þjálfunar, sem þeir höfðu sjálfir skriflega sótt um, kann að byggjast að hluta á þeirri hugmynd, að með þvi hafi þeir aðstöðu til að þvinga fram hvaða lausn mála, sem þeim yrði að skapi, og að unnt sé að fresta slíkri þjálfun lengra fram á vorið eða jafnvel sumarið. Þetta er á miklum misskilningi byggt. Næsta B-727 námskeið, ef haldið yrði á vegum Flugleiða, yrði ekki fyrr en í október/nóv- ember 1981. Val flugmanna á það námskeið verður með hliðsjón af þeirri þróun, sem yrði í verkefnum og starfsmannahaldi félagsins fram að þeim tíma. öllum hlutaðeigandi FÍA- flugmönnum hefur verið bréflega skýrt frá þessu, og jafnframt að endanlegur frestur til að endur- skoða afstöðu sína til þátttöku í námskeiðinu renni út 8. apríl nk. Er þá gert ráð fyrir, að bæði nemendur og kennarar fallist á að sitja hið 17 daga bóklega nám- skeið alla daga tímabilið 8.-24. apríl, þ.e. fram að þeim tíma sem fara þarf til Seattle í verklega þjálfun. Lokaorð Ákvörðun Flugleiða um þjálfun og stöðutilfærslur er tekin í ljósi þeirrar staðreyndar, að samkomu- lag um lausn starfsaldurslista- mála flugmanna hefur ekki tekist milli allra aðilja, þrátt fyrir marg ítrekaðar tilraunir á undanförn- um árum. Þessi ákvörðun er í fullu samræmi við miðlunartillögu sáttasemjara, sem hann lagði fram 19. nóv. sl. Tilkoma nýrra erlendra verk- efna er meginástæða þess að í þjálfun flugmanna er ráðist. Hjá Flugleiðum starfa nú 54 flugmenn á B-727 og F-27, og hefðbundið áætlunarflug félagsins með þess- um flugvélagerðum krefst ekki fleiri flugmanna. Hins vegar bjóða verkefnin í Libyu og Nígeríu hvort um sig upp á störf fyrir 6 íslenska flugmenn, og þar er einnig að finna töluverða möguleika fyrir aukinni starfsemi, sem nýtti ís- lenska flug- og tækniþekkingu. Að óbreyttri afstöðu FIA til nauðsynlegrar þjálfunar íslenskra flugmanna til viðbótarstarfa er augljóst að Flugleiðir verða annað hvort að afsala slíkum nýjum verkefnum til annarra flugfélaga, innlendra eða erlendra, eða að öðrum kosti ráða erlenda flug- menn til starfa við þau. Það hefur verið stefna Flugleiða að leitast við að renna fleiri stoðum undir íslenska flugmála- starfsemi, og þannig efla íslenskt atvinnulíf. Til þess að svo megi verða þarf einnig að fyrirfinnast nauðsynlegur lágmarks skilningur og samstarfsvilji allra starfs- manna félagsins. WIKA Þrýstimælar Allar staeröir og geröir Jfc-J SöyiftlgEflgjMir Vesturgötu 16, sími 13280 fyrir hönd allra flugmanna Flug- leiða. Þá var einnig ítrekað, að um einn sameiginlegan starfsaldurs- lista yrði að ræða við gerð næsta kjarasamnings. Þessi atriði voru enn áréttuð í samhljóða bréfum Flugleiða til stjórna FÍA og FLF, dags. 5. nóv. 1979. í bréfi Flugleiða til stjórna FÍA og FLF, dags. 6. des. 1979, er bent á, að náist ekki samkomulag um sameiginlegan starfsaldurslista flugmanna Flugleiða, verði stjórn félagsins nauðbeygð til að velja aðra eftirfarandi leiða: a) Viðurkenna engan starfsald- urslista eða starfsaldursreglur eftir 1. feb. 1980; eða b) Flugleiðir úrskurði einhliða röðun á sameiginlegan starfs- aldurslista. Meginröksemd FÍA gegn ákvörðun Flugleiða um þjálfun og fyrirhugaðar stöðutilfærslur virð- ist sú, að hefð sé fyrir því að unnið sé áfram samkvæmt fyrri kjara- samningi, þótt honum hafi verið sagt upp af öðrum hvorum eða báðum samningsaðiljum. Starfs- aldurslisti og viðeigandi reglur teljist hluti slíks samnings. Slík túlkun kann að gilda ef unnt yrði að loka augunum fyrir því að hjá Flugleiðum er starfandi annar jafn stór flugmannahópur, þ.e. félagar í FLF, en óhjákvæmi- legt er að taka tillit til réttar þeirra til starfa hjá félaginu. Flugleiðir hafa í máli þessu leitað álits nokkurra mætra lög- fræðinga, og er það samdóma álit þeirra, að við núverandi aðstæður, svo og forsögu málsins, sé óhjá- kvæmilegt að miða stöðutilfærsl- ur flugmanna við skráðan starfs- aldur allra flugmanna félagsins. Sáttatilraunir Á árinu 1980 var dr. Gunnar G. Schram skipaður sérstakur sátta- semjari í „flugmannadeilunni", og hélt hann 70 fundi með aðiljum áður en hann lagði fram miðlun- artillögu 19. nóv. 1980 til lausnar málinu. Var miðlunartillagan samþykkt af stjórn Flugleiða, þrátt fyrir að í henni fælust verulegar fjárhagslegar kvaðir á félagið varðandi starfsöryggi flug- forseta Hæstaréttar. Þessum úr- skurðaraðila yrði ætlað að ljúka störfum fyrir 1. mars 1981. Tillaga þessi náði heldur ekki samþykki allra aðilja. Tillögur sam- gönguráðherra Ríkisstjórn íslands hefur sam- þykkt að fela samgönguráðherra forgöngu um lausn flugmanna- málsins. Ráðherra ræddi við full- trúa Flugleiða, FÍA og FLF 26. mars sl. og lagði fram eftirfarandi hugmyndir sínar til lausnar: a) Skipuð verði þegar í stað þriggja-manna sáttanefnd, er fengi afmarkaðan tíma til að vinna að lausn málsins, t.d. 4 vikur. b) Ef störf sáttanefndar leiði ekki til samkomulags, taki gerðar- dómur við, og sé niðurstaða hans bindandi fyrir alla aðilja. c) Þjálfun flugmanna fari fram samkvæmt ákvörðun Flugleiða. Verði niðurstaða sáttanefndar eða gerðardóms önnur en sú, sem felst í þeirri ákvörðun, verði sú niðurstaða afturvirk, og Flugleiðir geri viðeigandi breytingar á þjálfun og stöðu- tilfærslum flugmanna nk. haust. Þrátt fyrir að í þessari lausn kynni að felast viðbótarkostnaður fyrir Flugleiðir, samþykkti félagið þegar í stað þessar tillögur. Hins vegar var þeim hafnað af stjórn og trúnaðarmannaráði FÍA. Námskeið Tvö bókleg námskeið hófust hjá Flugleiðum miðvikudaginn 1. þ.m. annað fyrir B-727, en hitt fyrir F-27. Á því fyrrnefnda hafa aðeins mætt boðaðir flugvélstjórar, en FÍ A-flugmenn hafnað setu á nám- skeiðinu. Hins vegar hefur F-27 námskeiðið gengið með eðlilegum hætti, en það sitja FLF-flugmenn, sem til þessa hafa flogið DC-8 flugvélum. Verklegt nám fyrir B-727 hefst hjá Boeing í Seattle 29. apríl nk., og yrði lokið 22. maí. Verklegt nám fyrir F-27 verður hins vegar hjá USAir í Pittsburgh tímabilið 27. apríl til 15. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.