Morgunblaðið - 08.04.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.04.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981 13 Páll Gislason, borgarfulltrúi: Á borgin að styrkja Sinfóníuhljómsveitina? Á síðasta borgarstjórnarfundi var samþykkt að mæla með tillögu að frumvarpi um Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Ég taldi þetta frum- varp svo gallað bæði frá sjónar- miði hljómsveitarinnar svo og borgarstjórnar, að ég bar fram tillögu um að vísa málinu frá að sinni. Var sú tillaga felld. Undanfarin ár hefur sá siður haldist, að borgarstjórn Reykja- víkur greiði 21% af rekstrarhalla hljómsveitarinnar ár hvert, án þess að hafa nein veruleg áhrif á hvernig rekstri hennar er háttað. Á síðustu árum hafa nokkrum sinnum verið samin frumvörp að lögum um Sinfóníuhljómsveit ís- lands, sem hafa ekki náð fram að ganga m.a. vegna þess, að í þeim hefur verið sett fram sú kvöð á sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, að þau greiddu verulegan hluta af rekstrarhalla. Þau hafa nú öll neitað þessu alfarið nema Seltjarnarnes, sem vill greiða 1% og svo nú Reykavíkurborg, sem er krafin um greiðslu 19% af hallan- um. Ríkisútvarpið, sem hefur sér- stakan fjárhag greiðir 25%, en ríkissjóður 55%. Margt er til bóta í þessum nýju drögum frá því sem áður var, en þó er þar enn að finna þá megingalla, sem áður hafa verið á fyrri frumvörpum um Sinfóníu- hljómsveit Islands. Þá tel ég helsta: 1. Menntamálaráðuneytið er al- farið yfirstjórnandi reksturs hljómsveitarinnar. Kjör hljómsveitarmanna fara eftir kjarasamningum ríkisins og ríkisendurskoðun endurskoðar reikningshald hljómsveitarinn- ar. 2. Þó að núverandi fyrirkomulag sé gallað, þá er þó til „óritað" samkomulag, þar sem fjár- framlag borgarinnar er háð samþykki borgarráðs og borg- arstjórnar ár hvert. Samkvæmt lagafrumvarpinu er hækkun framlags ekki háð samþykki greiðsluaðila og yrði þá lögboð- ið framlag, sém kjörnir borgar- fulltrúar hafa engin áhrif á. 3. Hingað til hefur borgin orðið að áætla fjárframlag eftir út- reikningi fjárlaga ríkisins, en ekkert haft um það að segja, hve það yrði mikið. Ekki hafa komið neinar upplýsingar eða skýrslur til borgarstjórnar hér- aðlútandi frá stjórn hljómsveit- arinnar. Lögin myndu senni- lega laga þetta eitthvað. Hver á að reka Sinfóníuhljómsveit íslands? Nú getur það verið túlkað þann- ig, að ég sé á móti því, að Páll Gislason, borgarfulltrúi. Sinfóníuhljómsveit íslands starfi, af því, að ég gagnrýni frumvarp að lögum um þá merku stofnun. Svo er ekki. Ég held, að þetta fyrirkomulag að láta ríkisútvarpið og sveitarfé- lög greiða tæpan helming gjalda SVFÍ í Reykjavik: hljómsveitarinnar, verði ekki til lengdar til að efla hljómsveitina. Það verður aðeins til að gera málið erfiðara og einn liður í því sífellda stríði, sem háð er í myrkviði þeirra alltof mörgu málaflokka, þar sem flókin verk- efna og fjárhagsskipting ríkis og sveitarfélaga og eilíft bitbein við- komandi aðila. Engum datt í hug, að borgarsj- óður tæki þátt í rekstri Þjóðleik- hússins, sama mætti segja um Landsbókasafnið, Þjóðminjasafn- ið eða Hagstofuna og fleiri slíkar stofnanir, sem þjóna öllu landinu, en eru staðsettar í Reykjavík. Mér finnst, að það myndi verða affarasælast fyrir hljómsveitina, að ríkissjóður fjármagnaði rekst- ur hennar alfarið, eins og svo margar aðrar stofnanir, sem eru einstsæðar í sinni grein, hvar sem þær eru staðsettar á landinu. Á borgarsjóður að styrkja listir? Á því er enginn vafi. Nú er í fjárhagsáætlun borgarinnar áætl- aðar rúmar 7 milljónir nýkr. (700 millj. gkr.) til lista, þar af ganga 3,5 millj. til Leikfélags Reykjavík- ur, 1,7 millj. til Kjarvalsstaða og 1,2 millj. til Sinfóníuhljómsveitar- innar. Þá eru eftir 600 þús. kr. til styrkja til annarrar listastarf- semi. Við Leikfélagið hefur gilt það samkomulag, að borgin greiðir kaup 38 fastra starfsmanna Leik- félagsins. Hefur þetta samstarf gengið mjög vel. Hallarekstur Kjarvalsstaða greiðir borgarsjóður að sjálfsögðu Guðrún S. Guð- mundsdóttir formaður kvennadeildar Aðalfundur kvennadeildar Slysa- varnafélags íslands í Reykjavík; var haldinn 12. mars sl. í húsi SVFI á Grandagarði. Þær breytingar urðu á stjórn að frú Hulda Victorsdóttir sem verið hefur formaður sl. átta ár, baðst undan endurkosningu, og Erna Antonsdóttir sem verið hefur með- stjórnandi gaf ekki kost á, sér áfram í stjórn. Frú Guðrún S. Guðmundsdóttir, sem verið hefur ritari deildarinnar var kosinn formaður. I stjórn komu tvær nýjar konur, María R. Gunnars- dóttir, og Jóna Helgadóttir, sem áður var endurskoðandi. Á síðasta ári varð deildin 50 ára og var þá ýmislegt gert til að minnast afmælisins en sérstakur afmælisfundur verður fimmtudag- inn 9. apríl nk. í húsi SVFÍ, á Grandagarði. í stjórn Kvenna- deildar Slysvarnafélagsins í Reykjavík eru þessar konur: Guð- rún S. Guðmundsdóttir formaður, Salome H. Magnúsdóttir gjaldkeri, María R. Gunnarsdóttir ritari, meðstjórnendur, Þórdís Karels- dóttir, Jóna Helgadóttir, Jóhanna Árnadóttir, Ingibjörg Auðbergs- dóttir, Dýrfinna Vítalín, Lilja Sig- urðardóttir. Völundar huróir Timburverzlunin Völundur framleiðir spónlagðar % hurðir með bezta fáanlega spæni. Spjaldahurðir eða sléttar hurðir, eftir vali kaupandans. Afhenti trúnaðarbréf Einar Ágústsson sendiherra af- henti general Kenan Evren, for- seta Tyrklands, trúnaðarbréf sitt á föstudaginn, sem sendiherra með aðsetur í Kaupmannahöfn, segir í frétt frá utanríkisráðu- neytinu, sem Morgunblaðinu barst 1 gaer- Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð. Gjörið svo vel og lítið inn í sýningarsali okkar á Klapparstíg 1 og Skeifunni 19. Yfir 75 ára reynsla tryggir.gæðin. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 alfarið. Þegar svo er komið, að styrkjum til ýmiskonar lista- starfsemi, sem rekin er af frjáls- um félagasamtökum, er um miklu lægri upphæðir að ræða. Polyfónkórinn fær 25 þús kr. Kammersveit Reykjavíkur 4 þús. kr. Hljómsveitin Reykjavík En- samble 2 þús. kr., en Kammermus- ikklúbburinn 4 þús. kr. Lúðra- sveitir í Reykjavík fá 56 þús. kr. svo nokkuð sé nefnt. Væri ekki til athugunar fvrir borgarstjórn að ætlast til þess, að ríkið sæi um þá þætti lista, sem eru sameiginlegir fyrir allt landið, en Reykjavíkur- borg sæi um þá sérhæfðu starf- semi lista, sem fer fyrst og fremst fram fyrir borgarbúa sjálfa. Stofnun Sinfóníuhljómsveitar- innar var mikill viðburður á listabraut íslensku þjóðarinnar. Dugnaður frumherjanna var ótrú- legur, er þeir lyftu þessu Grettis- taki. Nú er kornið að því að styrkja grundvöll þessa framtaks. Ég held, að það verði betur gert með því að losa stjórn og fjárhag hljómsveitarinnar við hið flókna kerfi samstarfs margra ólíkra aðila. Þetta kerfi á eftir að valda sífelldum deilum og draga úr viðgangi hljómsveitarinnar. Eg tel, að þetta verði aðeins hindrað með því, að ríkið taki málefnið alveg að sér með nýrri lagasetningu um þetta merka fyrirtæki, sem Sinfóníuhljómsveit íslands er. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: ROTTERDAM Arnarfell ..........29/4 Arnarfell ....;... 13/5 Arnarfell ......... 27/5 ANTWERPEN Arnarfell ......... 10/4 Arnarfell ......... 30/4 Arnarfell ......... 14/5 Arnarfell ......... 28/5 GOOLE Arnarfell ......... 27/4 11/5 25/5 Arnarfell .... Arnarfell .. LARVÍK Hvassafell ........ 20/4 Hvassafell ......... 4/5 Hvassafell ........ 18/5 GAUTABORG Hvassafell ........ 21/4 Hvassafell ......... 5/5 Hvassafell ........ 19/5 KAUPMANNAHÖFN Hvassafell ........ 22/4 Hvassafell ......... 6/5 SVENDBORG -Skip- 13/4 Hvassafell 23/4 Hvassafell 7/5 Hvassafell 21/5 HELSINGFORS: Dísarfell 16/4 Dísarfell 17/5 HAMBORG Dísarfell 10/4 GLOUCESTER, MASS Skaftafell 14/4 Jökulfell 10/5 Skaftafell 17/5 HALIFAX, KANADA Skaftafell 16/4 „Skip“ ca 21/4 Jökulfell 12/5 Skaftafell 19/5 SKIPADEIUD SAMBANDSINS Sambandshusinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.