Morgunblaðið - 08.04.1981, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981
Þór Sveinsson leirkerasmiAur við
vinnu sina i verksmiðju Glits hf.
Ljtam.: Krlstján Elnarwton.
„Sælkeralínunni“ raðað i hillur.
HAGSTÆÐ
varahluta-
KAUP
í fólks- og vörubíla:
STARTARAR og
ALTERNATORAR ásamt
tilheyrandi varahl.
SPENNUSTILLAR og
CUT-OUT í flestar gerðir
bíla og véla.
HÁSPENNUKEFLI
BENSÍNDÆLUR
RELAIS 6-12-24V
FLAUTUR 6-12-24V
MIÐSTÖÐVARMÓTORAR
ÞURRKUMÓTORAR
VIFTUR
AFTURRÚÐUBLÁSARAR
SPÍSSADÍSUR
GLÓÐARKERTI
OLÍUSÍUR-LOFTSÍUR
ELDSNEYTISSÍUR
DRIFSKIPTIMÓTORAR
Fyrir búkkahífingu:
BÚKKADÆLUR og
MÓTORAR
SEGULROFAR
SKIPTILOKAR
LOFTBREMSUKERFI
AUK ÞESS
sérbúnaö sem eykur
bensínnýtinguna:
LUMENITION
MARK-II
ÞRÝSTIJAFNARA
M-M KERTAÞRÆÐI
BOSCH „SUPER“ KERTI
BREYTINGARSETT í
handstýrt innsog.
HABERG hf
Skeifunni 3E.
Sími: 84788.
Glit kynnir nýja framleiðslu:
Villt íslensk grös og blóm notuð til
skreytinga á vasa og veggskraut
FYRIRTÆKIÐ Glit hf. er um
þessar mundir að senda á markað-
inn nýja framleiðsluvöru, annars
vetcar svonefnd „steinhlóm" og
hins vegar „sælkeralína“. Stein-
blóm er þannig unnið að villtar
fslenskar jurtir eru felldar inni og
brenndar við steinleir, en sælkera-
linan er á hinn bóginn ýmsar
krúsir, svo sem fyrir kaffi, te og
sykur, einnig vínkútar og ýmis-
legt fleira. Blaðamönnum var ný-
lega boðið að skoða starfsemi
fyrirtækisins.
Orri Vigfússon framkvæmda-
stjóri tjáði blaðamanni Morgun-
blaðsins, að Ragnar Kjartansson
myndhöggvari hefði stofnað fyrir-
tækið fyrir allmörgum árum, eða
árið 1958 nánar til tekið. Hann
hefur fyrir löngu selt sinn hluta, og
eru núverandi eigendur nokkrir
tugir einstaklinga og fyrirtækja er
reka Glit sem hlutafélag. Fyrir-
tækið er til húsa í stóru og
rúmgóðu leiguhúsnæði við Höfða-
bakka í Reykjavík.
Orri sagði, að skipta mætti sölu
framleiðslunnar í þrjá nokkurn
veginn jafna hluta: Einn þriðji
selst til íslendinga, einn þriðji er
fluttur út, og einn þriðja kaupa
erlendir ferðamenn á íslandi. Út-
lendingar kaupa einkum hraun-
keramik, en Islendingar kaupa
einkum steinleir, og eru matar- og
kaffistell frá Glit til dæmis vinsæl
til brúðargjafa.
Hin nýja framleiðsla, steinblóm-
in, virðist ætla að gera mikla lukku
að sögn Orra, og hafa þegar borist
pantanir, þótt varan sé ekki komin
á markað enn sem komið er. Fyrstu
tilraunir með steinblómið voru
gerðar 1978 af Birni Viggóssyni
tæknifræðingi, en undanfarna
mánuði hafa þau Þór Sveinsson
leirkerasmiður og Eydís Lúðvíks-
dóttir myndlistakona unnið að
verkefninu og endanlega hannað
nýju línuna sem nú er um það bil
að koma á markaðinn.
Að sögn Orra Vigfússonar hefur
verið lögð mikil áhersla á að vanda
til hinnar nýju framleiðslu.
Steinblóm er þannig unnið að
villt íslensk grös og blóm eru tínd
víðsvegar um land. Þau eru pressuð
í steinefnaglerunga og oxíðiliti.
Síðan eru jurtirnar felldar inn í
blautan eða nýrenndan steinleir.
Munirnir eru síðan brenndir í
steinleirsofni við 1240—1300 gráðu
hita á Celsíus. Við brennsluna
eyðast jurtirnar og öll venjuleg
efni, en glerungarnir, grópa út frá
sér ímynd og útlínur grasa og
blóma, sem listamaðurinn lagði í
steinleirinn.
Ekki er kunnugt um að þessi
aðferð hafi áður verið notuð við
gerð listmuna í heiminum, en þessi
aðferð hefur verið notuð áður við
gerð veggflísa.
Sýnishorn af hinni nýju fram-
leiðslu, steinblóminu.
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi i birgöastöö
VÉLASTÁL
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
#••• ■ ■ ■ ~ — « • •
sívalt ferkantaö flatt sexkantaö
Borgartúni 31 sími 27222