Morgunblaðið - 08.04.1981, Page 15

Morgunblaðið - 08.04.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1981 15 Rauðu herdeildirnar: Handtöku Morettis hefnt með morði Róm. 7. apríl. AP. ÞRÍR menn skutu í daj? til bana 28 ára gamlan fangavörð í Róm og hafa Rauðu herdeild- irnar lýst morðinu á hendur sér og segjast hafa verið að hefna handtöku eins helsta leiðtoga þeirra sl. laugardag. Drápsmennirnir skutu Raffa- elle Cinotti þegar hann yfirgaf heimili sitt og ætlaði að halda til vinnu sinnar í Rebibbia- fangelsinu í Róm. Nokkru seinna hringdi maður til dag- blaðs í borginni og sagði að með morðinu vildu Rauðu herdeild- irnar hefna handtöku Mario Morettis, þess hryðjuverka- manns, sem ítalska lögreglan hefur leitað hvað ákafast. Moretti er sakaður um fjölda glæpaverka og talið er að hann hafi lagt á ráðin um ránið og morðið á Aldo Moro, fyrrver- andi forsætisráðherra, árið 1978^Cinotti er fimmta fórnar- lambið, sem fellur í valinn fyrir pólitískum öfgamönnum á It- alíu á þessu ári. Soraya Khashoggi Winston Churchill Líðan Reagans: Soraya segir frá ástum sínum og Churchills Engin sýking en vægur hiti enn Washington. 7. apríl. AP. RONALD Reagan, Bandarikja- forseti, er nú á ströngum lyfja- kúr til að komið verði í veg fyrir hugsanlega sýkingu en hann er enn með vægan hita. Ákveðið hefur verið að Nancy, eiginkona Reagans og George Bush, vara- forseti, komi fram fyrir hans hönd í hófi sem repúblikanar efna til á Hilton-hótelinu þar sem reynt var að ráða Reagan af dögum. Búist er við að Reagan verði á sjúkrahúsinu út þessa viku og er ekki gert ráð fyrir að hann geti flutt fyrirhugað sjónvarpsávarp til þjóðarinnar þar sem hann ætlaði að kynna skattalækkunar- tillögur stjórnarinnar. Læknar, sem fylgjast með líðan Reagans, segjast engin merki hafa fundið um sýkingu í vinstra lunga hans en lyfjategundum hefur þó verið fjölgað til frekara öryggis. Miklar varúðarráðstafanir eru viðhafðar vegna málsverðarins á Hilton-hótelinu þar sem 3000 manns munu koma saman. Að- gangurinn kostar 1000 dollara og er féð til styrktar frambjóðendum repúblikana. Bush og Nancy eiga að koma inn í húsið bakdyramegin um bílskúrinn en ekki um anddyr- ið, þar sem tilræðismaður sat fyrir Reagan á dögunum. London, 7. apríl. AP. SORAYA Khashoggi, fyrrver- andi eiginkona eins mesta auð- jöfurs þessarar aldar, sagði i dag i viðtali við vikuritið „Woman“ frá ástasambandi sínu og Winston Churchills, sonarsonar Churchills, forsætis- ráðherra Breta á striðsárunum. í viðtalinu sagði Soraya, að hún hefði að lokum, eftir að þau hefðu verið elskendur í fimm ár, sent Churchill aftur til eigin- konu sinnar, enda hefði hún ekki haft neinn áhuga á því að eyðileggja hjónaband mannsins, „sem ég unni. Þess vegna sárnaði mér, þegar ég var kölluð „hjóna- djöfull" í blöðunum, en Churchill hins vegar hampað sem sakleys- ingja, sem ég hefði veitt í snöru mína“. Uppvíst varð um ástasamband þeirra Soraya og Churchills árið 1979 og þrátt fyrir hneykslið, sem það olli, tók kona hans hann í sátt og hann hélt sæti sínu í neðri deild breska þingsins. Soraya, sem áður hét Sandra Daly, er sex barna móðir, sem nú býr í Kaliforníu, en hún var áður gift Adnan Khashoggi, saudi- arabískum auðjöfri og vopna- sala. Ástæðan fyrir því, að upp um þau Soraya og Churchill komst, var sú, að þrír leynilögreglu- menn, sem vissu hvað um var að vera, reyndu að kúga út úr henni fé gegn því að þegja. Soraya höfðaði mál á hendur þeim og við réttarhöldin varð hún að segja allt af létta. „Það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera i tygj- um við giftan mann,“ sagði Soraya, „en ég var þó engin varaskeifa, hann kallaði mig ávallt „konuna sína“. Eg tók það nærri mér þegar leiðir okkar skildu og ég varð að vísa honum á bug, þótt hann vildi hitta mig áfram." Það er heldur fátt um fina drætti í pólskum kjötbúðum þessa dagana eins og sjá má á þessari mynd. sem tekin var í Varsjá íyrir nokkrum dögum. Kjöt er helsta fæðutegund Pólverja en nú hefur verið tekin upp skömmtun á því og ýmsum öðrum matvörum. AP-símamynd Sýrlendingar haf na vopnahlésviðræðum Brirut, 7. april. AP. SÝRLENDINGAR neituðu í dag að semja við hægri sinnaða kristna menn i Libanon um vopnahlé þrátt fyrir þá yfirlýs- ingu Alexander Haigs, utanrikis- ráðherra Iiandaríkjanna, að af- ieiðingar áframhaldandi átaka gætu orðið „mjög alvarlegar“. Þessar fréttir voru hafðar eftir heimildum innan libönsku stjórn- arinnar. Sýrlendingar eru sagðir krefjast yfirráða yfir þjóðveginum fyrir austan borgina Zahle, sem ka- þólskir menn byggja, en hann liggur að sýrlensku landamærun- um, og auk þess yfir þjóðbrautinni milli Beirut og Damaskus. Á þessar kröfur hafa kristnir menn ekki viljað fallast. Haft er eftir heimildum, að Sýrlendingar ætli ekki að hvika frá kröfum sínum þrátt fyrir vaxandi líkur á íhlutun Israela. Abdul Halim Khaddam, utan- ríkisráðherra Sýrlands, kom til Beirut í dag og hóf strax viðræður við líbanska ráðamenn í forseta- höllinni. Á sama tíma geisuðu bardagar milli líbanska hersins og Sýrlendinga aðeins steinsnar frá fundarstaðnum. Páll páfi og Kurt Waldheim, aðalritari SÞ, hafa beðið Sýrlendinga að hætta um- sátrinu um Zahle en þar hafast 200.000 manns við í kjöllurum og sprengjuskýlum vegna sprengju- regnsins frá Sýrlendingum. I gær fordæmdi Alexander Haig, sem nú er á ferð um Austurlönd nær, aðfarir Sýrlend- inga og kallaði þær „grimmilegar" og varaði þá við afleiðingum frekari átaka. í ísraelskum dagbl- öðum var því haldið fram í dag, að ísraelar hygðu ekki á íhlutun í Líbanon. Veður víða um heim Akureyri 10 skýjað Amsterdam 10 heiöskirt Aþena 20 heiðskírt Berlín 16 heiðskírt BrUssel 10 heiðskírt Chicago 14 heiðskírt Feneyjar 19 alskýjað Frankfurt 15 skýjað Færeyjar 8 alskýjað Genf 15 skýjað Helsinki 10 heiöskírt Jerúsalem 16 skýjað Jóhannesarborg 25 heiöskírt Kaupm.höfn 13 heiöskírt Lissabon 18 heiöskírt London 13 heiðskírt Los Angeles 28 heiðskírt Madrid 20 skýjað Miami 24 skýjað Moskva 5 skýjað New York 10 heiðskírt Osló 13 heiðskírt París 15 skýjað Reykjavík 1 slydda Ríó de Janeiro 30 heiðskírt Rómaborg 20 heiöskírt Stokkhólmur 12 heiðskírt Tel Aviv 19 skýjað Tókýó 19 heiðskírt Vancouver 10 skýjað Vínarborg 14 heiöskírt Lóðbyssur Lóðboltar Tangir í úrvali Ódýr topp- lyklasett í úrvali Vald Paulsen Suðurlandsbraut 10, sími 86499.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.