Morgunblaðið - 08.04.1981, Síða 22

Morgunblaðið - 08.04.1981, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981 + Móðir okkar, tengdamóöir og amma, ÁSLAUG I. ASGEIRSDÓTTIR, Langageröi 2, lést í Landspítalanum, mánudaginn 6. apríl. Hafdís Gíaladóttir, Gíali Þór Gíalaaon, Ingibjörg S. Gíaladóttir, Sveinbjörn Óakaraaon og barnabörn + Móöir okkar, ÓLÖF KRISTJÁNSDÓTTIR, Ijóamóðir, Hringbraut 37, Raykjavík, andaöist aö heimili sínu mánudaginn 6. apríl. Börnin. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi oa langafi, KRISTJAN EYFJORD GUÐMUNDSSON, Merkurgötu 13, Hafnarfiröi, andaöist í Landspítalanum 3. apríl. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaö, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Klara Kriatjánadóttir, Páll borkelaaon, Guömundur Skúli Kriatjánaaon, Aalaug Magnúadóttir, Rakel Kristiánadóttir, Steinþór Diljar Kristjánsson, Guófinna Þorvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir okkar og tengdamóöir, GUÐRUN MAGNÚSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíö, áöur til heimilis aö Aöalstraati 54, Akureyri, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 10. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Dvalarheimiiiö Hlíö eða Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri. María Hermannsdóttir, Eyjólfur Þórarinason, Hilmar Eyberg, Ólöf Jónsdóttir, Sverrir Hermannason, Auöur Jónsdóttir, Brynja Hermannsdóttir, Haraldur Ólafsson, Björn Hermannsson, Hulda Baldvinsdóttir. + Útför systur okkar og uppeldissystur, GUÐRÍOAR INGVARSDÓTTUR, Mánagötu 19, er lézt í Landakotsspítala 30. marz sl. fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. þ.m. kl. 13.30. Hallbjörg Ingvaradóttir, \ Sigurbjörn Ingvarsaon, Margrát Þóröardóttir. Útför mannsins míns, HARALDARJENSSONAR, Borgarholtsbraut 59, veröur gerö frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. apríl kl. 3 e.h. Þórunn Stefánadóttir. Systir okkar, + BRYNDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. apríl kl. 1U.3U. Guðrún Þorsteinsdóttir, Haraldur Þorstelnsaon, Margrát Eyrich, Áata Þorstainsdóttir, Steinunn Þorstainsdóttir og tengdasystkin. Ólafía Jónsdóttir Svínavatni - Minning Fædd 22. maí 1885. Dáin 2. marz 1981. Læltkar lifdaga hóI. Löng er ordin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvildinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blemaðu þá, 8em (að) lógöu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. Herdis Andrésdóttir. Hér verða rituð fáein minn- ingarorð eftir háaldraða konu, sem nú hefur kvatt heiminn næst- um níutíu og sex ára gömul, Ólafíu Jónsdóttur á Svínavatni í Gríms- nesi. Hún andaðist í sjúkrahúsinu á Selfossi 2. marz síðastliðinn og var til moldar borin að Mosfells- kirkju 7. s.m. Hún var fædd suður í Gull- bringusýslu, að Akrakoti á Álfta- nesi, 22. maí árið 1885. Voru foreldrar hennar hjónin Jón Jónsson og Sigurleif Þorleifsdótt- ir. Jón var Rangæingur, fæddur að Múla, (sem þá hét Látalæti), í Landmannahreppi árið 1850, dá- inn að Svínavatni árið 1940, fullra 90 ára gamall. Hann átti mörg systkini, ólst upp við kröpp kjör og nokkurn barning í æsku, en með þrautseigju og hagsýni varð hann síðar góður bóndi, að þeirrar tíðarhætti, fóðraði fénað sinn manna bezt, skuldaði aldrei nein- um neitt og eignaðist snemma sína ábýlisjörð, Svínavatnið. Sigurleif Þorleifsdóttir var fædd að Syðri-Brú í Grímsnesi árið 1858, dáin að Svínavatni árið 1946, 88 ára gömul. Hún var dugmikil og starfssöm og búkona góð. Kvenna bezt kunni hún að koma mjólk í mat og ull í fat. Það sagði Einar Arnórsson hæstarétt- ardómari, sem var kaupamaður á Svínavatni tvö sumur, er hann var skólapiltur, að hvergi hefði hann fengið jafngott skyr að borða og hjá Sigurleifu á Svínavatni. — Foreldrar Sigurleifar voru hjónin Þorleifur Bjarnason og Sigríður Jónsdóttir. Þau bjuggu allan sinn búskap að Syðri-Brú. Foreldrar Sigríðar voru Jón bóndi Þorkels- son frá Ásgarði og kona hans Solveig, dóttir Jóns Sigurðssonar, silfursmiðs og hreppstjóra á Bíldsfelli (d. 1819), hann var tvígiftur og átti tuttugu börn. Jón Þorkelsson á Fossi (d. 1859), var þekktur maður á sinni tíð. Hann var sérstæður persónuleiki, hug- maður mikill og hraðmæltur, fyrirhyggjusamur búhöldur, sem í öllum árum var gróinn í heyum og mat. Skemmu sína hafði hann jafnan læsta og gengu ekki aðrir um hana en hann sjálfur. Hún var ávallt full af matarbirgðum, sölt- uðu og reyktu kjöti, smjöri, harð- fiski og kornmat. Jón bauð gestum vanalega til skemmunnar, en ekki í bæinn; þar veitti hann þeim sjálfur mat. Pott-brauð með smjöri, sem Solveig -kona hans hafði bakað með þeim „kunstum", að það gat aldrei myglað. Með því gaf hann gestinum súrsaðar lundabaggasneiðar, en á eftir renndi hann á tinstaup af brenni- vínskút, en aldrei veitti hann gestinum nema aðeins eitt staup. Solveig kona Jóns (d. 1873), var orðlögð merkiskona. Hún var and- stæða við bónda sinn að því leyti, að hún var skapstillingarkona mikil og róleg í fasi. Hún gerði fátækum mikið gott í kyrrþey, og bað þá jafnan að geta ekki um það við aðra útífrá. — Sonur Jóns á Fossi og Solveigar og bróðir Sig- ríðar á Syðri-Brú var Þorkell hreppstjóri og dannebrogsmaður á Ormsstöðum, (d. 1893). Hann var fyrirsvarsmaður Grímsnesinga yfir fjörutíuára skeið. Hafði hann mannhýlli mikla í sveit sinni, þótti tillögugóður, ráðhollur og hjálpfús. Hér hefur verið með örfáum orðum minnzt nokkurra ætt- manna Ólafíu á Svínavatni. Það er gert vegna þess, að hinar beztu kynfylgjur sumra þeirra komu fram í fari hennar sjálfrar eins og samtvinnaðir þræðir, svo öllum, sem þekktu hana, verða þeir minnistæðir. Ólafía fluttist með foreldrum sínum rúmlega ársgömul sunnan af Álftanesi austur að Svartagili í Þingvallasveit. Þar bjuggu for- eldrar hennar um næstu sjö ár. Árið 1894 losnaði Svínavatnið úr + Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu okkar, GUÐRUNAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Fálkagötu 12, Reykjavfk. Guöjón Gíalason, Jóna Guöjónadóttir, Björg Lilja Guöjónsdóttir, Aöalsteinn Guöjónsson, Halldóra Valdimarsdóttir, Erla Gróa Guöjónsdóttir, Kristjén Búaaon og barnabörn. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, JÓRUNNAR ÞÓREYJAR MAGNÚSDÓTTUR. Páll Guönason, Paula Jónsdóttir, Svanhildur Guónadóttir, Þóróur Þorkelsson, Gyöa Guönadóttir, Elías Arnlaugsson, Magnús Guönason, Margrát Magnúsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúö og vfnarhug viö andlát og útför SESSELJU VALDIMARSDÓTTUR, Laufáavagi 10. Valdimar Stefánaaon, Ingibjörg Haraldsdóttir, Jóhann Briam, Haraldur P. Brlam, Páll J. Briam, Ásta K. Briem. + Hjartanlegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööurbróöur míns, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, Kríuhólum 4, áöur Brimhólabraut 37, Vastmannaayjum. F.h. aöstandenda. Þóröur Rafn Guójónsson. ábúð, en það átti þá Magnús stórbóndi Sæmundsson á Búrfelli. Byggði hann Jóni jörðina, en skömmu síðar fékk hann fest kaup á henni. — Ólafía kom því tæplega níu ára gömul að Svínavatni. Þar átti hún síðan lögheimili til ævi- loka, eða full 86 ár. Hún þótti snemma tápmikil stúlka, vinnufús og verklagin, jafnt við útistörf, heyvinnu og skepnuhirðingu, en hún var dýravinur mikill, ellegar við innanhússtörf. Hún var frá- bær tóvinnukona og lengi til þess vitnað, hvað hún kembdi vel ull og spann fínan þráð á rokkinn sinn. Rúmlega tvítug fór hún suður til Reykjavíkur og dvaldist þar um vetrartíma, til þess að læra karlmannafatasaum. Um mörg ár eftir það stundaði hún síðan fatasaum sem ígripavinnu bæði heima á Svínavatni og út um sveitina. Það var talað um það stundum í gamla daga, hvað nálsporin hjá Ólafíu væru ná- kvæm, t.d. hvað hnappagöt voru fallega gerð eftir hana og hvað hún bryddaði aðdáunarvel hina íslenzku sauðskinnsskó. Auk þess vann hún oft við önnur störf um lengri eða skemmri tíma á heimil- um í sveitinni, þar sem vantaði heimilishjálp, en ávallt var hún heima á Svínavatni um heyanna- tímann. Lengsta dvöl hennar utan síns heimilis var í Skálholti hjá Skúla lækni Árnasyni. Þar var hún fjóra vetur, frá veturnóttum til Jónsmessu. Fyrst var hún þar veturinn 1910—1911. Minntist hún ávallt húsbóndans, Skúla læknis, með hlýjum hug og virðingu. En aðal ævistarfið var við heimilið á Svínavatni. Fyrst hjá foreldrum sínum og síðan hjá bróður sínum, Ingileifi bónda, er tók við jörðinni árið 1926, og konu hans Ingibjörgu, en þær voru samvistum á Svínavatni í meira en hálfan fimmta tug ára. Ingi- björg andaðist á síðastliðnu hausti, svo skammt var þeirra á milli. Um heill og hag þess heimilis hugsaði Ólafía ósegjan- lega mikið og vann því sitt mikla dagsverk, meðan kraftar entust. ðlafía var kona skapföst og stillt í geði. Hún var skýr í hugsun eftirtektarsöm og minnug á það, er hún sá og heyrði. Hún stóð jafnan föstum fótum í raunveru- leikanum, vinnugefin og vakandi við sín viðfangsefni. Hún var gjörsneydd öllum draumórum lífs- ins. Þeir sneyddu hjá garði hennar og hún bauð þeim ekki heim. Umhyggja hennar hugarstyrkur og gott hjartalag var ávallt hið sama, meðan entist ráð og ræna. — Hafði fótavist þar til fyrir tveimur árum síðan, en þá fór þrek hennar að þverra, einkum í fótum, svo að hún hætti að geta haft ferilsvist. í síðastliðnum septembermánuði varð hún að fara í sjúkrahúsið á Selfossi, þar sem hún dvaldist síðan til enda- dægurs. Þar naut hún hinnar beztu aðhlynningar og hjúkrunar. Sagði hún sjálf, að þar væru allir sér góðir. Hún hélt sjón og heyrn og lítt skertum sálarkröftum fram undir síðustu áramót, en eftir það þvarr henni allur þróttur, andlega og líkamlega. Þá var svo komið, að mátti heimfæra til hennar þessi orð: Ekkert í lífinu kom henni eins vel og að skilja við. Að síðustu verða nú fluttar hér þakkir og hinztu kveðjur fyrir hennar langa og farsæla ævistarf og órofa tryggð, er hún ávallt auðsýndi sínum venzlamönnum og vinum nær og fjær. Skúli Helgason. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að bcrast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði. að berast i síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn iátna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línuhili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.