Morgunblaðið - 08.04.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981
Minning:
Magnús Magnús-
son járnsmiður
Föstudaginn 27. mars sl. varð
Magnús Magnússon járnsmiður
bráðkvaddur að heimili sínu,
Þórufelli 4. Þessi gamli vinur
minn, semég kynntist á unglings-
árum okkar, hafði ekki gengið
heill til skógar mörg undanfarin
ár. Þurfti hann oft á sjúkrahúsvist
að halda vegna veikinda sinna, en
komst þó jafnan á fætur aftur og
hóf störf á nýjan leik. En nú var
komið að leiðarlokum og í dag er
útför hans gerð frá Dómkirkjunni.
Magnús Magnússon fæddist í
Reykjavík 27. febrúar 1919, sonur
hjónanna Guðrúnar Þorsteins-
dóttur og Magnúsar Árnasonar
stýrimanns, en hann lést ungur úr
spönsku veikinni 1918. Magnús
Magnússon er kominn af Húsa-
fellsættinni í móðurætt og Eng-
eyjarættinni í föðurætt. Þar eð
faðir Magnúsar lést áður en einka-
sonurinn fæddist, fluttist Guðrún
með son sinn til foreldra sinna,
Þorsteins Gíslasonar og Kristínar
Þorláksdóttur. Ólst Magnús upp
hjá afa sínum og ömmu til 8 ára
aldurs, en þá giftist Guðrún Þor-
steini Guðmundssyni stýrimanni
og gekk hann Magnúsi í föðurstað.
Þau hjónin eignuðust 4 börn og
eru þrjú hálfsystkini Magnúsar á
lífi, tvær systur og einn bróðir, en
eitt barnið, drengur, lést í frum-
bernsku af slysförum. Magnús
naut mikillar umhyggju á heimili
móður sinnar og stjúpa. Móðir
hans er látin fyrir mörgum árum,
en Þorsteinn stjúpi hans lifir í
hárri elli hér í borg.
Nokkru eftir fullnaðarpróf hóf
Magnús járnsmíðanám hjá móð-
urbróður sínum, Ingimar Þor-
Haraldur Bachmann
Helgason - Minning
Haraldur Bachmann lést á
sjúkrahúsi í Reykjavík, aðfaranótt
30. mars eftir tæpa sólarhrings
veru þar. Það er oft erfitt að skilja
að svo stutt skuli vera á milli lífs
og dauða og jafnvel enn styttri
tími geti skilið þar á milli, en
mannshöndin, þó fær sé, ræður
ekki alltaf við vandamálin eins og
við rekum okkur oft á. Halli Bach
eins og hann var í daglegu tali
kallaður af vinum sínum var
tápmikill maður, alltaf ferskur og
gustaði af honum hvar sem hann
fór, hann var kátur, snar í snún-
ingum og setti hressandi svip á
umhverfið, maður hugsaði ósjálf-
rátt, „þarna fer hraustur maður"
en því var ekki að heilsa, hann
hafði gengið með þennan sjúkdóm
nokkur ár, sem nú leiddi hann til
dauða. Árið 1953 þegar ég flutti til
Selfoss, þá var bærinn snöggtum
minni en hann er í dag, þá þekktu
allir alla eða minnsta kosti könn-
uðust við andlitin — ég veitti
fljótt eftirtekt þessum kvika
manni, þá sem reyndar alltaf síðar
var Haraldi veitt eftirtekt og það
er svo með sumt fólk, að þegar það
hverfur, þá er eins og eitthvað
vanti, það er autt rúm á götum
bæjarins.
Haraldur fæddist á Seyðisfirði
9. febrúar 1911 og var því liðlega
70 ára þegar hann lést. Hann var
einn af átta systkinum er þau
hjónin Jóna Guðrún Jónsdóttir og
Helgi Bachmann Ingimundarson
áttu, með þeim flutti hann til
Vestmannaeyja þá ungur að árum,
þaðan liggur svo leiðin til Reykja-
víkur til náms í bifvélavirkjun og
1938 kemur hann til Selfoss, þá
útlærður og ræðst strax til Kaup-
félags Árnesinga sem verkstjóri á
bifreiðaverkstæði þess. „1. maí
1940 gengur hann að eiga eftirlif-
andi eiginkonu sína Margréti
Jónsdóttur frá íragerði Stokkseyri
og eignuðust þau þrjú börn, Iris,
Ólaf og Elínu, sem öll eru á lífi og
mesta dugnaðarfólk. Nokkur ár
eru síðan Haraldur byrjaði á að
blýleggja gler, þar sem annars
staðar sýndi hann hve samvisku-
samur hann var í starfi, það er
mál manna að því verki hafi hann
ætíð skilað af mikilli vandvirkni
og smekkvísi. Með þessum fáu
orðum langar mig að votta Mar-
gréti, börnum hennar og öðrum
vandamönnum mína dýpstu sam-
úð. Blessuð sé minning hans.
Hin Ijúfa minning angar elna og reyr.
Um andann lelkur heitur aunnanþeyr,
en himnar blána. helmur birtiat nýr.
aem hugann fyllir von — aem aldrei deyr.
DA.
Svava Sigurðar
Félag sálfræðinema:
Lýsa stuðningi við
stundakennarana
MORGUNBLAÐINU hefur borist
fréttatilkynning frá félagi sál-
fræðinema, þar sem lýst er yfir
stuðningi við kröfur stundakenn-
ara við Háskóla ísiands. Fer
fréttatilkynningin hér á eftir:
„Félag sálfræðinema við Há-
skóla íslands lýsir yfir eindregn-
um stuðningi við kröfur stunda-
kennara.
Félagið bendir á afdrifaríkar
afleiðingar verkfalls stundakenn-
ara fyrir nemendur en undirstrik-
ar jafnframt að ábyrgðin liggur
engan veginn hjá stundakennur-
um heldur hjá furðulega skiln-
ingssljóum yfirvöldum Háskólans
pg ríkinu varðandi hag Háskóla
Islands.
Stjórnun Háskólans hefur leitt
til þess að 52% kennslu er í
höndum stundakennara. Kjör
þeirra eru óviðunandi sakir stefnu
Háskólayfirvalda og ríkisvalds, og
bitnar það á gæðum kennslunnar,
þ.a.l. nemendum og „standard"
Háskólans, ekki síður en stunda-
kennurum sjálfum.
Því skorar félagið á yfirvöld að
verða þegar í stað við afar sann-
gjörnum kröfum stundakennara."
steinssyni járnsmíðameistara,
sem rak verkstæði hér í borg og
lauk hann sveinsprófi frá Iðnskól-
anum í eldsmíði og vélvirkjun.
Fyrstu árin starfaði hann mest við
eldsmíði hjá frænda sínum og
hefur mér verið tjáð, að Magnús sé
einn síðasti eldsmiðurinn á þessu
landi. Mörg ár starfaði Magnús
hjá Gísla Halldórssyni verkfræð-
ingi við að setja niður frystihús
víða um land og hafði hann þar
verkstjórn á hendi. Síðar starfaði
hann nokkur ár hjá Hamri, en
síðasta árið, sem hann lifði, vann
hann hjá Stálveri. Naut hann álits
sem dugandi starfsmaður, enda
ósérhlífinn og atorkusamur.
Magnús vinur minn steig sitt
stærsta gæfuspor, er hann þann 3.
apríl 1943 kvæntist Guðmundu Þ.
Eyjólfsdóttur, ættaðri úr Árnes-
sýslu. Bjó hún manni sínum fag-
urt heimili og var ánægjulegt að
heimsækja þessi sómahjón og
ræða við þau um heima og geima,
enda höfðu þau ferðast víða um
lönd, þar sem eitt höfuðáhugamál
Magnúsar var ferðalög.
Magnús heitinn var einarður í
skoðunum og maður hreinskilinn.
Allir, sem kynntust Magnúsi
lærðu að meta hann að verðleik-
um.
Eiginkona Magnúsar, frú Guð-
munda, var honum sannkölluð
stoð og stytta á lífsleiðinni. Hún
hefur nú misst góðan lífsförunaut
og vil ég með þessum línum senda
henni og systkinum Magnúsar,
stjúpa hans, svo og öðrum að-
23
standendum, einlægar samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé minning þessa mæta
manns.
Magnús Guðbjörnsson
Það er erfitt að trúa því að
Maggi frændi sé látinn. Hann var
alveg eins og maður vill að
frændur séu, sannkallaður óska-
frændi. Þegar við vorum yngri þá
fórum við krakkarnir oft í bíltúr
með Magga og Mundu og þá naut
hann þess að veita rausnarlega.
En allslaus er konulaus maður og
það var Maggi svo sannarlega^
ekki, því hann átti góða konu. Þau
voru mjög samrýnd, voru sem eitt,
enda var aldrei talað um að fara
til Magga, heldur til Magga og
Mundu. Já, það er erfitt að sjá af
góðum og kærum frænda, en
minningarnar lifa.
Við viljum þakka Magga fyrir
allt og biðjum Guð að blessa hann.
Einnig sendum við Mundu okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum Guð að styrkja hana í sorg
sinni.
Frændsystkini.
Æ GSifoi
FRA
Pantió nýja FREEMANS vörulistann strax
og veljið vandaðan sumarfatnað frá stærstu póstverslun í London fyrir
ykkur og fjöískylduna í rólegheitum heima. Skrifið eða hringið strax í dag
eftir nýja pöntunarlistanum. Verð kr. 49.00. Póstburðargjald kr. 16.60.
Vinsamlega sendið mér nýja FREEMANS pbntunarlistann i póstkröfu
Nafn
heimili
staður
Sendist til FREEMANS OF LONDON c/o BALCO h/f. Reykjavikurvegi 66, 220 Hafnarfirði. simi 53900
of London
Þar sem tískan byrjar