Morgunblaðið - 08.04.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1981
25
„Síðasti
geirfuglinn“
er horfinn
+ Síðasti geirfuglinn er horfinn —
síðasti breski hershöfðinginn sem
heimsfrægð hlaut í síðari heims-
styrjöldinni, Claude Auchinleck
marskálkur, lést fyrir skömmu í
borginni Marrakesh í Marokkó. Þar
hafði hann átt heima frá árinu 1967,
en hann fluttist þangað frá sveita-
setri í Bretlandi. Auchinleck var
orðinn 98 ára gamall. Hann var
Skoti og hermaður alla sína starfs-
ævi. Var hann gerður yfirmaður
herafla Bandamanna í N-Afríku
nokkru eftir að heimsstyrjöldin skall
á. Þar átti hann í höggi við Afríku-
her Rommels, „Eyðimerkurrefsins".
Winston Churchill var ekki allskost-
ar ánægður með frammistöðu Auc-
inleck, jafnvel þótt honum tækist að
vinna umtalsverða sigra yfir Romm-
el. Og svo fór að Churchill sparkaði
honum sumarið 1942 og tók þá
Montgomery marskálkur við. Þrátt
fyrir árekstrana við Churchill hélt
Aucenleck marskálkur sínu. Hans
hernaðaráætlun var það sem byggt
var á og tryggði Bandamönnum
lokasigurinn yfir Rommel á vígvöll-
um N-Afríku.
+ Fyrir nokkru var eínt til kynningarsamkomu í
New York tii að kynna þar heljarmikla fatasýningu,
sem verið er að undirbúa til eflingar útflutningsiðn-
aði Bandaríkjamanna á tilbúnum fatnaði. Unga
konan á myndinni er eldri dóttir forsetahjónanna
handarísku, en hún rekur útflutningsfyrirtæki. Við
hlið hennar situr fylkisstjóri New York-fylkis, sem
heitir Hugh Carey. — Þessi mikla fatasýning verður
í New York um miðjan maí næstkomandi.
Hinckley á fundi nasista
+ í sambandi við mál John Hinckleys, unga mannsins sem ætlaði að ráða Bandarikjaforseta, Reagan,
af dögum fyrir skömmu, hefur komið fram að Hinckley hafi tekið þátt i starfi nasistaflokksins
ameríska. Þessi mynd er tekin á fundi nasista i borginni St. Louis i marsmánuði 1978. Hinckley er á
þessari mynd, maðurinn lcngst til hægri.
fclk f
fréttum
Þar hefst dagurinn
með hressingarleikfimi
+ Hjá einu af stórfyrir-
tækjum Japan, verslun-
arkeðjunni Ito-Yokado,
hefst vinnudagurinn með
því að starfsfólkið allt
fer í létta hressingarleik-
fimi er það hefur allt
stimplað sig inn. Þessi
mynd er tekin í stór-
verslun fyrirtækisins í
Tókýó á mánudagsmorgni
fyrir skömmu. Þar vinna
alls um 2100 manns, og
allar þessar ungu stúlk-
ur, sem hér eru í morgun-
leikfiminni, eru í þeim
hópi.
R O Y A L
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGiN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
Tónlistarhátíð
ungra einleikara á Norðurlöndum veröur haldin í
Stokkhólmi 25. sept. — 2. október 1982. Hátíðin
er haldin á vegum Tónlistarháskólaráðs Norður-
landa og styrkt af Norræna menningarsjóðnum.
íslenzkum einleikurum, einsöngvurum og sam-
leiksflokkum gefst kostur á aö taka þátt í hátíðinni
og gætu þar boðizt tækifæri til aö fara í
tónleikaferðir um Norðurlönd árið 1983 á vegum
Norræna einleikarasambandsins.
Samnorræn nefnd velur endanlega úr umsóknum,
en forval fer áður fram í hverju landi fyrir sig.
Þátttakendur mega ekki vera yfir þrítugt.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1981.
Umsóknareyðublöö og allar nánari upplýsingar
eru gefnar í Tónlistarskólanum í Reykjavík.
TRÉKÓ
baðinnréttingar
TRÉKÓ
fataskápar
TRÉKO
eldhús
TRÉSMIÐJA KÓPAVOGS HF
AUÐBREKKU 32 KÓRAVOGI SÍMI 40299
I
*