Tíminn - 14.07.1965, Blaðsíða 8

Tíminn - 14.07.1965, Blaðsíða 8
8 Tímmn MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 1965 ••.•::■: ...• •'.•:.. .•.•..:•:•:>• .v:.v.-.':v:.••.■•' •.•..:.:::•:.• ..•'••••.•• •..••.•.;. '•::•. .. ,..■ .:.•:.::: Sundlaugarbyggíng í Skálatúni Að Skálatúni í Mosfellssveit, er eins og mörgum er kunnugt, heimili fyrir vangefin börn. Heim- ilið er sjálfseignarstofnun, en að því standa Umdæmisstúkan nr. 1 í Reykjavík og Styrktarfélag van- gefinna. Á heimilinu eru nú 27 börn og unglingar. Verið er að reisa nýbyggingu á staðnum og þegar hún er fullgerð, geta dval- izt þar um 40 vistmenn. Bygging- in sjálf er reist fyrir fé úr Styrkt arsjóði vangefinna, sem er í vörzlu félagsmálaráðuneytisins, en fjár til kaupa á innbúi og öðnim nauð synlegum tækjum verður að afla annars staðar frá. Hafa heimilinu þegar borizt myndarlegar gjafir í því skyni. Foreldrar þeirra barna, sem nú dvelja í Skálatúni, hafa nú bund- izt samtökum að sýna í verki nokk urn þakklætisvott fyrir þá góðu umönnun, sem böm þeirra fá þar. Það mál, sem foreldrarnir vilja sérstaklega hrinda í framkvæmd, er bygging útisundlaugar á staðn- um. Stjórn heimilisins hefur lýst síg samþykkta slíkri byggingu þótt hún hafi ekki bolmagn til að veita henni fjárhagslegan stuðning. Nú í vor var stofnaður sundlaugasjóð ur Skálatúnsheimilisins. Fimm manna framkvæmdanefnd var kos in á foreldrafundi í apríl s.l. Það er álit þeirra, sem bezt hafa vit á, að slík laug mundi verða vistfólki Skálatúns til ómetanlegs gagns og ánægju. Erfitt er að fá nægilega og heppilega þjálfun fyr ir vangefið fólk, sem er og jafn- framt líkamlega fatlað og þarf á hollri hreyfingu að halda. Sundið mun verða ein bezta alhliða þjálf un líkamans, sem til er. Ánægj- unni af slíkum sundstað þarf varia að lýsa. Búið er að gera teikningu af lauginni og búningsklefum við hana. Undirbúningsframkvæmdir eru þegar hafnar. Áformað er að koma uppísjálfri lauginni' í' fyrsta áfanga. Hún er hringlaga (sjá mynd) 10. m. í þvermál, mesta dýpi l,20m. Arkitektarnir Helgi og Vilhjálmur Hjálmarssynir gerðu teikninguna af lauginní og felldu hana inn í heildarmynd nýja hælisins í Skálatúni, en teikning- in af því var einnig gerð af þeim. Vífill Oddsson gerði járnateikn- ingarnar. Þar sem þetta verður einkalaug hælisins fæst ekki til hennar styrk ur frá opinberum aðilum, en áætl- að er að laugin ein kosti um 500 þús. kr. Þegar hafa borizt rausn- arlegar gjafir, hátt á 2. hundrað þúsund krónur til laugarinnar. Styrktarfélag vangefinna gaf 100. þús. kr., samtök kvenna innan Góðtemplarareglunnar 25 þús. kr., svo eitthvað sé nefnt. Sjálfboða- liðar hafa að undanförnu lagt fram mörg dagsverk við laugina. En betur má, ef duga skal, og mikið fé vantar enn til. Fram- kvæmdanefnd Sundlaugasjóðsins hefur nú látið útbúa gjafabréf, sem eru kvittun fyrir gjöfum til laugarinnar í Skálatúni, og þó miklu fremur viðurkenningu fyrir stuðning við gott málefni, eins og stendur letrað á bréfin. Foreldrar Skálatúnsbarnanna heita nú á velunnara heimilisins og aðra þá, sem vilja leggja góðu málefni lið, að kaupa þes.Ú. bréf. Hver skérfur,'>smár'Jéða''stor, er vel þeginn. Endurgjaldið verður ánægjan af þeirri vissu að hafa stuðlað að aukinni vellíðan þeirra barna, sem vegna fötlunar sinnar eru svipt ýmsu því, sem almennt er talið til sjálfsagðra hluta. Gjafa bréfin eru til sölu á Skálatúns- heimilinu, Bókabúð Æskunnar við Kirkjutorg í Reykjavík, á skrif- stofu Styrktarfélags vangefinna að Skólavörðustíg 18 og hjá meðlim- um framkvæmdanefndar Sundlaug arsjóðsins, en þeir eru: Magnús Kristinsson, Ægissíðu 96, Brynhildur Guðmundsdóttir, Ljósheimum 6, Sigríður Ingimars ; dóttir, Njörvasundi 2, Stefán Sig- jurðsson, Hringbraut 61, Hafnar- ifirði, Sverrir Eggertsson, Gnoðar- 1 vogi 86. Margir hafa undanfarið séð undarlega, harða blaðvöndla á álmtrjám og ribsi og spurt, hverju sætti. Þessu óeðli eða vanskapnaði blaðanna valda blaðlúsategundir, einkum teg und, sem ýmist er nefnd álm- lús eða ribsrótalús. Lýsnar sjúga laufið og valda skemmd- unum. Vefjast blöðin saman frá annarri hliðinni á sér- kenniegan hátt. Myndirnar sýna heilbrigð álm blöð og ribsblöð og skemmdir á ýmsu stigi af völdum lúsanna. Innan í hrukkóttum blaðvöndl unum er oft allt morandi í grá leitum blaðlúsum. Ná eyðingar lyf varla eða ekki til lúsanna eftir að þær hafa gert sér svona laufhús til að búa í. Þarf því að úða trén og runn ana með varnarlyfjum strax og lúsanna verður vart á vorin, áður en blöðin vefja sig utan um lýsnar. Þegar um smáhrísl ur eða fáa ribsrunna er að ræða, er vel gerlegt að klípa lúsavöndlana af og brenna þá eða eyða á einhvern hátt. Seinni hluta sumars færa lýsnar sig úr blöðunum og setj ast að á rótum ribs-, sólberja- og stikilsberjarunna. Lýsnar flytja sig þannig á milli, aðallega milli álmtrjáa og ribs, sem að þessu leyti er varhugavert að hafa saman í garði. Vökva má síðsumars kringum ribsrunnana með blað lúsaeyðandi lyfjum til dæmis Sladan eða Lindan. Jafnan verð ur eitthvað af lúsunum eftir á berki og innan í hörðum blað- vöndlum. Lýsnar skemma álm stundum mjög mikið, og er þá ástæða til að úða álmtrén eftir nýárið i þurru frostlausu veðri með vetrarúðunarlyíjum. Ribsið e.t.v. einnig eftir mik il blaðlúsasumur. HESTAR OG MENN Hestamennskan er nú aftur okkar og fer stöðugt vaxandi. orðinn snar þáttur í þjóðlífi Þróun hennar er orðin að virkri staðreynd, sem vert er að gefa fullan gaum og veita það brautargengi, sem duga mætti henni til framdráttar. Má gera það með ýmsu móti, og hefur ýmislegt þegar áunn- izt. Með nýju búfjárræktarlögun um hefur hlutur hestamanna verið stórbættur og ber að þakka öllum þeim, sem þar áttu aðild að. / Með umráðaréttinum yfir Skógarhólum hefur samtökum hestamanna verið tryggður á- kjósanlegur samastaður fyrir ýmsa .starfrækslu sína. Við Skógarhóla hafa nú ver ið haldin tvö landsmót og tvenn ar miklar kappreiðar, sem dreg ið hafa að sér mikinn mann- fjölda. Þátttaka og aðsókn að þess- um mótum sýnir það glögglega að hér er up á það boðið, sem fólkið .sækist eftir — og að þarna er verið á réttum stað. Ýmislegt hefur verið gert til umbóta og fegrunar á þessum framtíðar þingstað hestamanna en margt er þar þó enn ógert af því, sem gera þarf. — Og verður gert, þegar efni og á- stæður leyfa. Reynslan hefur sýnt við framkvæmd hinna stóru móta, að ýmislegt mættii betur fara og sumu af því hefur þegar ver ið kippt í lag jafnóðum og það hefur komið í ljós. Hefur þann ig verið bætt úr sumum ágöll unum, sem voru á fyrstu mót unum. Og enn má e. t. v. um sumt betur gera. , Stærstu vandkvæðin nú við samkomuhald í Skógarhólum eru þó enn þau sömu og voru við fyrsta landsmótið: nálægð þjóðvegarins við mótsstaðinn. Eins og kunnugt er, liggur vegurinn þama á löngum kafla meðfram girðingunni, sem af- markar athafnasvæði hesta- mannafélaganna. Þetta er bæði til mikilla ó- þæginda og stórtjóns fyrir þá sem að mótum þessum standa og sjálfir leggja fram fé og fyrirhöfn endurgjaldslaust. Inngangseyrir er hverju sinni miðaður við áætlaðan kostnað og tekjur. Mestöll vinna við undirbúning mótanna og fram kvæmd þeirra er unnin af þegnskap og kauplaust. Ýmislegt er þó, sem verður að borga fullu verði, og þeir útgjaldaliðir vilja oft verða hærri en maður hyggur. Eins og þarna hagar til verða áhorfendurnir að vera í hall- anum ofan við hlaupabrautina en neðan við er sléttlendið langt fram. Þar raða aðkomubílarnir sér hlið við hlið, og fólkið, sem í þeim er, nýtur alls þess, sem fram fer á mótsstaðnum — engu síður en það, sem er inn an girðingarinnar, og greitt hef ur fullan aðgangseyri. Á síð- asta hestamannamóti taldist t. d. svo til, að yfir 1000 manns hefði fengið þar ókeypis að- gang“. — Og hestamannafélög- in munar um minna Er augljóst, að við slíkt er ekki hægt að una um alla framtíð. En úr þessu verður ekki bætt nema með einu móti, en það er að færa veginn svo langt frá mótsstaðnum, að hann sé ekki í sjónfæri. Vegurinn á þessu svæði er aðeins ruddur, svo að miklu verðmæti er ekki fyrir að fara þótt hann yrði lagður niður En aftur á móti myndi til lærsla vegarins kosia nokkurt fé, — og e.t.v. stendur hnífur- inn einmitt þar í kúnni? Hve langt vegurinn yrði færð ur getur verið álitamál, því að fleira en eitt kemur þar til greina. Við tilfærsluna gæti hann orðið miklu beinni og því styttri, og minni hætta þar á aflögun vegna árennslis og yf irleitt betur settur fyrir hina daglegu umferð. Þessi leið er alltaf mikið farin öll sumur, og allar vegabætur á þessari leið því vel þegnar af öllum þeim, sem þar um fara. Þótt samtökum hestamanna sé þessi vegarfærsla nauðsynja mál, má einnig benda á það veigamikla atriði, að með til færslu vegarins yrði Bola- bás ekki eins opinn fyrir allri umferð og hann er nú. En eins og kunnugt er, hefur sá staður goldið mikið afhroð á síðustu árum vegna ágangs og um gengni og því öll þörf á að friða hann og vernda fyrir frek ari spjöllum. Þar er um náttúruvernd að Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.