Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 2
Hreyflar vélarinnar eru skoðaðir mjög gaumgæfilega. Það er að mörgu að huga. Allar rafleiðslur eru skoðaðar, svo og buröarbitar vængsins. FLUGVELA- SKOÐUN Fylgzt með því þegar Boeing 720 þota Arnarflugs fór í svokall- aða C+H skoðun fyrir skömmu, ^ sambandi viö allan flugrekstur er öryggisþáttur- inn alltaf gífurlega mikilvægur. Alltaf berast fréttir um aö þessi eöa önnur vélin hafa fariö í skoöun. Er þá ýmist talaö um minniháttar skoöun eöa stóra skoöun. Þaö fer ekki hjá því, aö fólk leiði hugann aö því, hvort eitthvert tilefni hafi veriö til viökomandi skoðunar. Svo mun hins vegar ekki vera í langflestum tilfellum, en til aö fræöast nánar um þessi mál fylgdumst viö meö stórri skoðun á Boeing 720-þotu Arnarflugs, sem fram fór fyrir skömmu á Keflavíkurflugvelli. Jón Árnason, hjá Arnarflugi sagöi í samtali viö Mbl., aö vélin heföi fariö í svokallaöa C-skoöun, sem er meiriháttar skoöun, reyndar ein mesta skoöun, sem vélar fara í. Skoöunum á þotum Arnarflugs þessara véla er yfirleitt skipt í fernt. Fyrst er þaö svokölluð A-skoöun, sem fram fer eftir um 125 flugtíma. Þá er þaö B-skoöun, sem fram fer eftir um 400 flugtíma og C-skoöun, sem fram fer eftir um 1500 flugtíma. „Flugfélög víöa um heim eru meö ákveöiö viö- haldsprógram, sem gerir ráö fyrir C+H-skoöun á ákveönum tíma. Viö hjá Arnarflugi erum meö staölaö prógram frá bandaríska fyrirtækinu Western, sem viö eigum mikil og góð samskipti viö. Þaö er gert ráö fyrir H-skoöun eftir um þaö bil 4500 flugtíma. Hins vegar fara minni skoöanirnar áfram fram, dragist þessi stóra skoöun eitthvaö, svo öllum öryggisreglum er fyllilega fullnægt.'1 A-skoöunin, sem fram fer eftir 125 flugtíma eins og áöur sagði er minniháttar skoöun, þar sem athugun fer fram á helztu hlutum vélarinnar, en slík skoöun tekur yfirleitt mjög skamman tíma. B-skoöun fer fram eftir um 400 flugtíma eins og áöur sagði, en hún er töluvert ítarlegri heldur en A-skoðun. Á eftir henni er þaö svo C-skoöun, sem er mjög nákvæm. Þegar vélar eru teknar í C-skoöun, eru bókstaflega allir hlutar vélarinnar athugaöir, skrokkur hennar, stjórntæki og rafmagnstæki svo eitthvaö sé nefnt. Slík skoöun getur tekiö nokkra daga og er oft notað tækifæriö og skipt um ýmsa hluti og innrétt- ingar lagfæröar og þeim breytt. en það er mjög viðamikil skoðun Skoöunin, sem Arnarflugsvélin var í, var svokölluð C+H-skoöun, en þaö er gífurlega umfangsmikil skoöun, þar sem allir hlutar flugvélarinnar eru athugaðir, t.d. eru buröarfletir gegnumlýstir, stjórn- tæki eru öll yfirfarin, svo og rafleiöslur og bremsukerfi svo eitthvaö sé nefnt. Þá er innrétting yfirleitt aö mestu tekin út. T.d. voru öll sæti tekin úr Arnarflugs- vélinni og áklæöi endurnýjuö eöa þvegin. Þá voru eldhús og salerni tekin úr vélinni og endurbætt. í sambandi viö salernin, þá eru þau tekin úr meö sérstöku tilliti til tæringar í botni vélarinnar, en hætta er á aö eitthvaö leki meö þeim niöur í botn. Lagfæringar vegna slíkrar tæringar geta veriö mjög kostnaöarsamar. Mjög margir hlutir í flugvél hafa ákveöinn „líftíma", þ.e. þegar ákveöinn hlutur hefur veriö í vélinni ákveðinn flugtíma er hann tekinn úr og nýr settur í staöinn, þrátt fyrir aö í flestum tilfellum séu gömlu hlutirnir fullkomlega heilir. Þetta er hins vegar taliö nauösynlegt til aö uppfylla fyllstu öryggiskröfur. í þessu sambandi má til dæmis nefna, aö skylt er aö skipta um hreyfla í vélum eins og Arnarflugsvélinni eftir um 8 þúsund flugtíma. Arnarflugsvélarnar eru eins og áöur sagöi skoöaðar eftir viöhaldskerfi frá bandaríska flugfélaginu West- ern, en slíkt viöhaldskerfi getur Arnarflug t.d. ekki upp á eindæmi tekiö upp hér á landi. Samþykki veröur aö fást hjá flugmálastjórn í hverju tilviki. Ástæöan fyrir því aö Arnarflug hefur kerfi frá Western er sú, aö Arnarflug hefur átt gott samstarf viö Western í gegnum árin, m.a. meö kaupum og leigu á flugvélum. Þegar skoðanir fara fram á vólum Arnarflugs hér á landi er þaö viöhaldsdeild Flugleiða, sem sér um þær, en hjá þeirri deild starfa flestir íslenzkir flugvirkjar í dag. Eftir aö hafa fylgst meö þessari skoöun er hægt aö fullyröa, aö vel er fyrir öllum öryggisatriöum séö, sem auövitað leiöir til þeirrar staðreyndar, aö flugslys vegna galla eöa skemmda í flugvélum eru nánast mjög fátíö. —sb. Jón Árnason hjá Amarflugi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.