Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 8
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI 1981 05 e'f5 Blaða & Bókaútgáfan. Hátún 2,105 Reykjavík, sími: 91-20735 Ungplöntu markaður Þær njóta vaxandi vinsælda ungplönturnar, sem við höfum boðið upp á síökastið, þó fjöldi tegunda, hafi verið mikill, höfum við nú bætt viö enn fleirum. Hafsteinn Hafliöason, garð- yrkjufræðingur verður á staðnum og miðlar af sinni þekkingu. Notið tækifærið og fræðist um rétt val garðplantna, umhirðu potta- plantna o.fl. Heimsækið Græna torgið um helgina. Gróðurhúsinu viÖ Sigtún: Símar 36770-8631+0 BLÚM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. FJOLÆRAR JURTIR STAÐSETNING Áður en jurtum, sem við ekki erum vel kunnug, er valinn staður og þær gróðursettar í garðinn, er ráðlegt að ráðfæra sig við Skrúðgarðabókina eða Garðagróður um það hvaða kröfur þær gera til lífsins og hvers helst ber að gæta við staðsetningu þeirra og umhirðu. Þegar gróður- sett er í einhliða beð, þ.e. meðfram húsi eða girðingu, verður að raða jurtunum eftir hæð, þannig að hávöxnu jurtirnar séu aftast í beðinu, en þær lágvöxnu fremst. Þó geta ein eða tvær hávaxnar, grannvaxnar jurtir framantil í slíku beði notið sín vel og skapað tilbreytingu. í sérstæðum beðum, þ.e. sem sjá má frá áðum hliðum, skal gróðursetja hæstu jurtirnar í miðju, en lækkandi til beggja eða allra hliða. Slík sérstæð beð sem ætluð eru fyrir fjölærar jurtir, ættu ekki að vera mjórri en 2—3 metrar, og nokkurra metra löng, til þess að njóta sín fyllilega. PERLULILJA — Muscari er einn þeirra smálauka sem heppilegt er að rækta í trjáheðum, er harðger og þrffst svo að segja hvar sem er. Laukarnir eru settir niður á haustin, 8—10 sm djúpt. Blómstönglar og hlöð upprétt, hlómin eru bjöllulaga. mörg saman í þéttum klösum. vcnjulega blá á litinn. Blómstrar að vorlagi. Jurtin er 10—15 sm á hæð. Mjóar beðgarnir með einfaldri röð jurta, geta aldrei heppnast vel. I breiðu beði hafa jurtirnar skjól og stuðning hver af annarri og mynda samstæða heild. Þó geta beð sem planta á í einni eða tveimur tegundum jurta, verið minni, en aldrei mjög mjó. Hringlaga beð, t.d. um einn metri í þvermál, geta oft notið sín mjög vel í grasflötinni. Margar fjölærar jurtir þola vel skugga, t.d. vatnsberar, blóðsteinbrjótur, skuggasteinbrjótur, rökkursteinbrjótur, dröfnusteinbrjótur, burknar, skildingablóm, lungnajurt, blágresi, dalalilja o.fl. og má því gjarna staðsetja þær í skugga trjáa og runna, en þar má einnig rækta margar tegundir smálauka svo sem: Krókus, stjörnulilju, snæ- stjörnu, perlulilju, vetrargosa og vorþoða sem allar blómstra áður en trén og runnarnir fara að skyggja á þær sem laufskrúði sínu. Nokkrar jurtir, eins og t.d. bergnál og alpafífill, þola afar illa að vatn liggi við rætur þeirra og rótarháls á vetrum. Slíkar jurtir er best að gróðursetja á milli steina í hleðslur og veggi, þar sem frárennsli er tryggt. Næst verður sagt örlítið meira um staðsetningu jurta og einnig umhirðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.