Morgunblaðið - 24.05.1981, Side 11

Morgunblaðið - 24.05.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1981 51 Forspjall að ^; ferðasögu M§\ háklettinum og síðan hefur á 11. öld verið tyllt utan um rómverskum byggingarhlutum og á 13. öld bætt við gotneskum byggingum. Allt byggt utan um klettinn. 67 metrar eru frá kirkjugólfi upp í koparstytt- una á toppinum. Allt þurfti auðvit- að að vera sem léttast við þessar aðstæður og því eru gotnesku súl- urnar úr graníti en ekki marmara. En eftir að Mikael erkiengill hafði birst munkunum, létu þeir sig ekki muna um að vinna slíkt stórvirki. Klaustrið sjálft vekur kannski ekki mesta furðu, heldur umhverf- ið.Tvisvar sinnum í mánuði umlyk- ur flóðið alveg staðinn, þótt 28—30 km séu til hafs á fjörunni. En kviksyndi er svo mikið í sandinum, að ekki er óhætt nema fyrir kunn- uga að fara þar á göngu, fyrir utan það að maður hleypur ekki undan flóðinu, þegar það kemur. Nokkuð hár vegur hefur verið gerður út í St. Michel og bílastæði þar í kring. Þennan dag varð að tæma bílastæð- ið fyrir kl. 7.45, áður en það færi undir sjó, enda getur sjávarhæð orðið allt upp í 15 metrar. Þeir sem vilja, geta þó fengið gistingu í St. Michel og mun vera ægifagurt aö vera þar á flóðinu í tunglskini. Þarna er flóðið einna mest, enda er það eini staðurinn þar sem sjávar- föll eru virkjuð til rafmagnsfram- leiöslu, svo sem frægt er. Við ætlum samt ekki aö gista og snúum til vesturs, ökum um kvöldið til gamla bæjarins Dinan, sem er inni í landinu, en þangað inn sigla lenda inni á hrífandi litlu torgi við Frelsarakirkjuna og fáum þar her- bergi í gömlu hóteli, þar sem við um morguninn vöknum við að markað- urinn er í fullum gangi undir gluggunum með kjúklingum á fæti, öndum og kanínum. Það er notalegt að fá sér við komuna kalt hvítvíns- glas úti fyrir og síðan ekta franska máltíð inni í veitingastofunni, sem ekki kostar þó meira en breska jukkið. Og á eftir fylgir kvöldganga út á „Promenaði Önnu hertoga- ynju." En Anna þessi hertogaynja af Bretagne, sem orðin var drottn- ing Frakklands, og dóttir hennar Claude, kona Frans I, sameinuðu Bretagne franska konungdæminu árið 1532. Við áttum mikið eftir að rekast á sögu hinnar merku Önnu hertogafrúar á ferð okkar, svo og hins merka kappa Du Guerlin, frá 14. öld sem hvílir þarna skammt frá. Núna heyrðum við inn um hótelgluggann okkar á hverjum klukkutima þung slög og á hverjum stundarfjórðungi létt hvell slög frá gamla klukkuturninum, sem Anna hafði gefið í dýrindis klukkur. En á Promenaði Önnu hertogaynju á virkisveggnum og milli hans og miðaldadómkirkjunnar á torginu okkar er dýrindisgarður með trjám og gróðri, sem í rauninni ætti ekki að vaxa svo norðarlega. Fólk í skeljaleit Það er komin glampandi sól, þegar við komum til bæjarins Dinard, um 20 km lengra út með Menn fylgja eftir fjöruboröinu, og grafa, róta, raka og stinga eftir skeljunum. Gaman er aö ganga um virkisvegginn gamla í St. Maio og horfa inn yfir göturnar í gamla bænum eda út yfir höfnina. bátar á flóði fram hjá St. Malo annars vegar og Dinard hins vegar. Þetta er yndislegur bær með húsum frá miðöldum við þröngar götur. Við eina slíka götu, sem liðast niður snarbratta hæðina að höfninni eru listiðnaðarmenn víða að vinna í búðum sínum, glerblásari að forma fíngerðan prjónandi hest, leðuriðn- aðarmaður við sína iðju, vefarinn við stólinn sinn o.s.frv. En í glugga- kössum í íbúðunum uppi yfir teygja sig pelagoniur. Við komuna um kvöldið erum við svo heppnar að ströndinni. Þótt ströndin og kletta- eyjarnar séu þarna þær sömu og við St. Malo, sem blasir við handan fjarðarins, þá er þessi borg annarr- ar gerðar, því sl. 100 ár hefur hún verið mikil baðstrandaborg og göm- ul fín hótel með ströndinni en villur í bænum. Það er byrjað að falla út og við sitjum á klettunum og maulum brauð og ost, sem skolað er niður með eplamiði, og horfum á strandgestina streyma niður í móbrúnan fjörusandinn um leið og hann birtist og leigubátana fylgja flóðinu út. Það fellur svo hratt út að eyjar og rif birtast hvert um annað og grænir skuggar á vatninu verða að klettum. Fjaran breikkar ótrú- lega hratt. Nú tekur að streyma fólk úr bænum með fötur og vopnað skóflum, hrífum eða stung- um til að ná skelfiskinum. Þeir fylgja eftir sjónum og ná skeljunum flestum. Með klórum má ná litlum skeljum, sem sýnilega eru efst í sandinum, en þeir sem stinga djúpt með spöðum eru á eftir löngum mjóum skeljum, sem eru eldfljótar að fara niður. Sem við göngum þarna bregður öðru hverju fyrir augu mjórri vatnsbunu úr sandinum, svo snöggt að í fyrstu hélt ég að það væri sjónhverfing. En skýringin er sú, að aflanga skelin spýtir sjónum allt upp í augnhæð um leið og hún stingur sér niður í sandinn og skilur eftir lítið gat. Einn strákurinn er búinn löngum sting, sem hann stingur snarlega niður í götin á eftir henni. I klettafjörunni er mikið af litríku þangi og þar var hópur að tína kuðunga af steinum, sem þeir kváðust sjóða og borða með smjöri. Ekki kann ég skil á þeim skelfiski, sem þarna er að finna. Fjaran er ótrúlega lífleg. I grunnum pollum hreyfa sig kuð- ungar og skeljar og klettar úti á höfðanum eru þaktir hrúðukörlum, kræklingi og oddmjóum kuðungum. En í pollum á milli þeirra er mikið af kúlulaga, linum sníglum og marglitum gróðri. Og alls staðar fólk á veiðum. Við unum okkur þar lengi dags, en allt í einu er farið að falla að aftur og fjaran hraðmjókk- ar, svo ekki er um annað ræða en forða sér hið fyrsta. Dinard virðist ekki mikill kvöld- bær. Hljómsveitin, sem við áttum von á að léki á Prominaðinum, lét á sér standa, en veitingastaðir og spilasalir hótelanna að gera sig klára fyrir kvöldið. Kl. hálf níu ákveðum við því að aka áfram í kvöldbirtunni út með ströndinni. Það á vel við að lenda í tunglskini í litla bænum St. Lunaire á höfða við sjóinn. Hann er jafn rómantískur og nafnið gefur til kynna. Nú er aðfall, svo að við sjáum ekki ströndina, sem er á kafi með barnaleikvelli jafnt með öðru, en bátarnir vagga við bryggur eða toga í festar úti á legunni. Þegar fjara er, má sjá þá í hrönnum á þurru. Stór baðstrandahótel eru við ströndina. Þessi litli bær er eins og fleiri bæir, sem við förum í gegn um. Sýnilega aðseturstaður sigl- ingafólks á Ermasundi á þessum árstíma. Á leið út úr bænum rekumst við á gamalt hótel, þar sem við fáum rúmgott tveggja manna herbergi með baði fyrir 66 franka (rúmar 90 krónur). En sýnilega er skynsamlegt að setjast að fyrr að kvöldinu, því allt er komið í ró þegar við berum töskurnar okkar upp gamla brakandi stigana. Á norðurströnd Bretagne hafa sumar- dvalargestir vanið komur sínar í heila öld, fyrr á tímum mest yfirstéttarfólk, það er breytt, en enn eru Frakkar sjálfir í meiri- hluta. Hótelin eru því mörg í gömlum virðulegum stíl. Þannig liggur hver bærinn af öðrum vestur með ströndinni. Held- ur lengra lendum við í St. Briac, sem sker sig úr hinum að því leyti að hann er tiltölulega nýr. Fyrir 30 árum kom þar Bandarikjamaður og tók til hendi við uppbyggingu. Nú er þar góð aðstaða fyrir seglbáta, sem liggja í hrönnum úti fyrir og siglingafólkið að búa sig af stað. Þarna er glæsilegur golfvöllur og minigolf í miðjum bænum. Húsin í gömlum stíl, þótt tiltölulega ný séu og vel hirtir lystigarðar bera vott um snyrtimennsku. Sjálfsagt er St. Briac dýrara en önnur þorp í kring. En allt er til. Nokkru vestar rekumst við t.d. á „Sable d’Or“ eða gullströndina, þar sem tjaldbúafólk hefur komið sér fyrir í ljósum sandhólum með tjöld og vagna og ekki þröng um þá, eins og gjarnan vill vera á slíkum stöðum. Við þræðum ströndina, erum á leið til Paimpol og þorpanna í kring, þaðan sem Islandssjómennirnir komu mest. En það er önnur saga, sem sagt hefur verið frá í blaðinu. Ferðasögunni um Bretagne verður þó fram haldið í næstu grein. Læriö ensku í London LáJi "S;- Angloschool er á einum besta staö í Suöur London og er viöurkenndur meö betri skólum sinnar tegundar í Englandi. Skólatíminn á viku er 30 tímar og er lögö mikil áherzla á talaö mál. Skólinn er búinn öllum fullkomnustu kennslutækjum. Kynnisferöir eru farnar um London, Oxford, Cambridge og fleiri þekkta staöi. Við skólann er t.d. • Crystal Palace, íþróttasvæöi þar sem hægt er aö stunda allar tegundir íþrótta. Er til London kemur býrö þú hjá valinni enskri fjölskyldu og ert þar í fæöi. Margir íslendingar hafa verið viö skólann og líkaö mjög vel. Stórkostlegt tækifæri til aö fara í frí og þú nýtir tímann vel og lærir ensku um leið. 1. tímabil ©f 1. júní — 4. vikur uppaalt 2. timabil ar 8. júní — 4 vikur uppaelt 3. tímabil ar 29. júní — 4. vikur. 4. tímabil ar 8. júlí — 4 vikur. 5. timabil ar 3. ágúat — 4 vikur. 6. tímabil ar 1. aapt. — 4 vikur. öll aöstoö veitt viö útvegun farseöla og gjaldeyris. Er þegar byrjaö aö skrifa niöur þátttakendur. Sendum myndalista. Allar nánari uppl. veitir í síma 23858 eftir kl. 7 á kvöldin ög allar helgar. Magnús Steinþórsson Hringdu strax í dag. Rannsókn mín hefur leitt í ljós að QUIK fæst í lítilli dós, stærri dós og ennþá stærri dós. Með súkkulaði kveðju • Beiuii Einkaumboösmenn Súkkulaðisérfræðingur Gunnar Kvaran Heildverzlun Vatnagarðar 10 104 Raykjavik Simi83788

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.