Morgunblaðið - 24.05.1981, Page 14

Morgunblaðið - 24.05.1981, Page 14
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI1981 Misþyrmingar varðveittar á myndsegulbandi Mikið hneykslismál er nú rekið fyrir hæsta- rétti í Texas og verður ekki saRt. að málarekst- urinn og þær upplýs- ingar, sem þar hafa kom- ið fram, hafa aukið á náungakærleikann milli fjandvinanna beKKja vegna við landamærin, Mexikana og Bandaríkja- manna. Málið snýst um ofbeldisverk lögreglumanna en um margra ára skeið hafa ýmis mannrétt- indasamtök Mexikana sakað bandaríska lögregiumenn og landamæraverði um að svífast einskis í skiptum sínum við fólk af mexikönskum ættum og Mexikana, sem komið hafa á ólöglegan hátt til Bandaríkj- anna, en þeir skipta tugum þúsunda. Mannréttindasamtök Mexi- kana hafa lengi átt erfitt uppdráttar og jlla gengið að sanna eilt eða annað en nú loks hefur þeim borist vopn í hendur, sem þau telja að muni bíta vel. Það er hvorki meira né minna en sjónvarps- upptökur af ómannúðlegri meðferð lögreglumanna á föngum, einkum ungum Mexi- könum, á síðustu sjö árum. Snemma á síðasta áratug kom lögreglan í McAllen, 70.000 manna borg í S-Texas, fyrir sjónvarpsupptökuvélum í yfirheyrsluherbergjum iög- reglustöðvarinnar og þó að undarlegt sé, í ljósi þess sem síðar varð, var tilgangurinn með því sá að koma í veg fyrir, að falskar ákærur um harð- ræði við fangana væru bornar fram á hendur lögreglumönn- unum. Tilgangurinn með tækj- unum breyttist þó fljótt og brátt voru þau orðin að nokk- urs konar „æfingatæki", sem hratt af stað heldur ófagurri samkeppni meðal lögreglu- mannanna og nótt eftir nótt söfnuðust þeir saman fyrir framan skjáinn og nutu þess að sjá sjálfa sig berja á fylliröftum og öðrum meintum lagabrjótum. „Þeim, sem ekki voru nógu kaldir karlar, var einfaldlega sagt upp,“ sagði einn fyrrver- andi lögreglumaður í vitnis- burði sínum fyrir réttinum. „Lögregluforingjarnir beinlín- is hvöttu til barsmíðanna og sögðu þær nauðsynlegar í bar- áttunni gegn glæpunum." Bandarísku mannréttinda- samtökin komust loksins yfir þessar myndir, sem gefa ljóta mynd af aðferðum lögreglunn- ar í McAllen, og í síðasta mánuði sýndi CBS-sjón- varpsstöðin úrdrátt úr þeim. Á einní upptökunni sést hvar fimm lögreglumenn skiptast á um að berja ungan mann í handjárnum, sem hvorki gat né gerði nokkra tilraun til að bera hönd fyrir höfuð sér. Snúið var upp á handleggi hans þar til hann hljóðaði af sársauka og höfði hans var hvað eftir annað slegið utan í borðplötuna. Lög- reglumennirnir jusu yfir hann fáryrðunum og þó að hann lægi ósjálfbjarga á gólfinu og bæðist vægðar héldu þeir áfram að lemja hann og berja. „Þeir voru eins og Gestapo- menn, eins og úlfar, sem hafa læst tönnunum í lamb,“ sagði Pedro Dennett, sem varð að liggja á sjúkrahúsi í þrjá daga eftir „yfirheyrslu" lögreglunn- ar og var seinna dæmdar 17.000 dollara skaðabætur frá McAllen-borg. Lögreglumönn- unum, sem „yfirheyrðu“ hann, var hins vegar ekki refsað og einn þeirra er nú lögreglu- stjóri í Bishop í Texas. Bandaríkjamenn af mexi- könskum ættum binda miklar vonir við að réttarhöldin geti dregið úr óvildinni og ofbeld- inu, sem gjarna er beitt í samskiptum þessara grann- þjóða, enda er það alls ekki svo, að það sé allt á annan veginn. Bandarískir landa- mæraverðir verða oft fyrir grjótkasti og jafnvel skotárás- um að næturlagi og sumir hafa verið drepnir og margir særst. Sem dæmi má nefna, að í síðasta mánuði handtók mexikanska lögreglan fjóra félaga í „Che Guevara-sam- tökunum", sem hafa það eitt á stefnuskrá sinni að drepa bandaríska lögreglumenn og landamæraverði. - WILLIAM SCOBIE ÁFENGISNEYSLA fólkiðverr enkarla Starfshópur sérfræð- inga í áfengissjúkdómum hefur komizt að raun um, að ef konur vilji halda heils- unni megi þær aðeins vera hálfdrættingar á við karlmenn í áfengisneyslu. Konur, sem reyna að drekka karlmenn undir borðið, gætu orðið áfeng- isneyzlunni að bráð i eigin- legri merkingu. Ástæðan fyrir því að áfengi hefur skaðvænlegri áhrif á kon- ur en karla er sú að meiri fita er í líkama þeirra. Þetta kom fram í brezka læknaritinu Brit- ish Medical Journal fyrir skömmu og er niðurstaða sér- fræðinga í lifrarsjúkdómum við Kings College Hospital í Eng- landi. Þótt miðað sé við mismun- andi líkamsþyngd karla og kvenna segir hún ekki alla sögu, því jafnan er meiri fita í líkama kvenna en karla. Þar sem fituvefir innbyrða áfengi mjög seint verður áfengismagn í blóði kvenna miklu meira en karla. Ekki er talið heppilegt fyrir konur að neyta meira áfengis en sem svarar 40 grömmum daglega. Það þýðir að þær geta drukkið tvo potta af bjór eða fjóra sjússa. Karlmenn mega hins vegar hesthúsa helmingi meira áfengi eða fjóra lítra af bjór. Upplýsingar frá ýmsum heimshornum renna stoðum undir það sjónarmið að konur þoli áfengi verr en karlmenn og eigi frekar en þeir á hættu að baka sér heilsutjón með mikilli drykkju. Aðrar skýringar á því að konur þola áfengi verr en karlmenn, en þær sem hér frá greinir, kunna þó vissulega að vera fyrir hendi. Til dæmis ræður sköpulag kvenna ef til vill úrslitum þar um, en mis- munur á líkamsþyngd karla og kvenna gerir það að verkum, að konur eru næmari en karlar fyrir sjúkdómum er stafa af því, að náttúrulegar varnir líkamans gegn öðrum sjúkdóm- um snúast gegn honum sjálf- um. Sem dæmi um slíka sjúk- dóma má nefna gigt. Konur þreyta drykkju af stöðugt meira kappi. Sam- kvæmt skýrlu sérfræðinganna, sem fyrr frá sagði, hafa þær tvöfaldað neyzlu á sterkum drykkjum á síðastliðnum ára- tug. Samfara þessu eiga konur við að etja í ríkari mæli en áður sjúkdóma, sem beinlínis stafa af drykkju. Engir slíkra sjúk- dóma hafa herjað jafn grimmi- lega á þær og lifrarsjúkdómar. Á árabilinu 1970—1978 varð 64% aukning á því að konur hlytu sjúkdóma, sem áttu ræt- ur að rekja til áfengisneyzlu þeirra. Á sama tímabili varð tvöfalt meiri aukning á því, að þær þyrftu á læknishjálp að halda vegna ofdrykkju og legð- ust inn á spítala af þeim sökum. Dauðsföllum kvenna vegna áfengisneyzlu fjölgaði á þessu tímabili um 130%. MARGT BYR I DJUPINUl Sælureitir sjávardýra Fyrir nokkrum árum fundu hafrannsóknamenn, sem staddir voru á skipi sínu á Suður-Kyrrahafi undan ströndum Suður-Ameríku, mikið af heitum uppsprett- um, hverum, á hafsbotni og einnig óþekktar og hrífandi sjávardýrategundir, sem eng- inn hafði áður augum litið. Það voru vísindamenn á haf- rannsóknaskipinu Melville, sem þessar uppgötvanir gerðu og aldrei fyrr hefur fundist jafn fjölskrúðugt dýralíf í kringum heitar lindir á hafsbotni. Fyrsti fundurinn var árið 1977 úti fyrir Galapagos-eyjum og sá seinni nokkru síðar undan Mexikó. Sum- ir taka svo djúpt í árinni að segja, að hér sé um að ræða stærstu fundi nýrra dýrasamfélaga í allri sögu líffræðinnar. Fram á árið 1977 voru allir á einu máli um að á botni úthafanna væri vistin vægast sagt ömurleg, dimmt og kalt og eyðimörk líkast, enda yrðu þær Hfverur, sem hugs- anlega þrifust við þessar aðstæð- ur, að búa við algjört ljósleysi og þrýsting, sem er 250—300 sinnum meiri en á landi. Nú hafa skoðanir manna heldur betur breyst og í ljós hefur komið, að allt í kringum þessar heitu lindir, upp undir 500 fet frá hverunum, er hið marg- breytilegasta dýralíf alls kyns tegunda, sem eru frábrugðnar öllum öðrum lífverum, sem hingað til hafa þekkst. í hásuður frá Galapagos-eyjum og samhliða Perú, fundu vísinda- mennirnir sams konar lífverur við heitar uppsprettur og þeir höfðu áður fundið umhverfis aðra hveri, þ. á m. sex feta langa, blóðrauða orma, skelfisk hárauðan, fet á breidd með hvítar skeljar, nýjar tegundir krabba og olnbogaskelja og plöntur, sem kallast „fíflar" og eru einna líkastar marglyttum að sjá. Allt líf, eða næstum allt, á yfirborði jarðar er beint eða óbeint háð sólarljósinu og ljóstil- lífuninni við orku- og fæðuöflun en augljóslega geta þessir undar- legu „hverafuglar" í hinu algera svartnætti hafdjúpanna notfært sér ýmis efni í hveravatninu sér til lífsviðurværis. - PHILIP HILTS.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.