Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.05.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 57 Unnið að tamningu stóðhestanna. talið frá vinstri, Páll B. Pálsson, Magnús Einarsson og Þorkell Þorkelsson á hestunum Verðanda frá Gullberastöðum, Draum frá Háhoiti og Eiðfaxa frá Stykkishóimi. Þorkell Þorkeisson á Hrana frá Hrafnkelsstúðum. t baksýn er tjorn, sem mikið hefur verið notuð isiiögð til útrelða á vetrum. Séð inn eftir einni básaröðinni á Stóðhestastöðinni. Húsnæðiö er rúmgott og hlýtt, og sjálfbrynning við hvern bás. Gólf básanna eru þannig gerð, að ofan á steinsteypuna er lagt timbur, en þar á ofan útflattir hjólbarðasólar. Hér hafa tamningamennirnir gert stuttan stanz til myndatöku, talið frá vinstri: Páll B. Pálsson, Þorkell Þorkelsson og Magnús Einarsson. Þorkeil Bjarnason hrossaræktarráðunautur lengst til hægri. Stóðhestarnir eru hins vegar, frá vinstri: Önguli frá Kirkjubæ, undan Þætti 722 og Eldingu frá Kirkjubæ. Jarpi folinn er Ilrani frá Hrafnkelsstöðum, undan Kolbak 730 i Gufunesi og Vindu 3294. Sá stjörnótti er Kolskeggur úr Reykjavik, en foreldrar hans eru Hrafn 802 frá lioltsmúla og Kolfinna i Reykjavik. Þorkell Biarnason hjá nokkrum af yngri hestunum i Stóðhesta- stöðinni. I miðið er bráðefnilegur foli að sögn Þorkels, Adam frá Meðalfelli i Kjós, fæddur 1979. Hann er undan Hrafni 802 frá Holtsmúla, og Vordisi 4726 frá Sandhólaferju. Uér hefur nokkrum folanna verið gefið úti, enda veðrið gott. A folanum lengst til vinstri má sjá tölustafina 123, sem _djúpfrystir" eru i húð hestsins. Frystingin veldur þvi að hárin á viðkomandi bletti verða hvit eftirleiðis, en menn hafa löngum átt i erfiðleikum með merkingar hrossa. Eyrnamerkingar eru óvinsælar og brennimerkingar einnig, enda lýta þær hestana talsvert. Þessi aðferð er ein þeirra sem nú er verið að gera tilraunir með. Merkti hesturinn er Höskuldur frá Sigurði Snæbjörnssyni á Höskuldsstöðum i Eyjafirði, undan Sleipni 785 frá Vatnsleysu og Grímu á Akureyri. Tamningamennirnir sinna hirðingu hrossanna jafnt sem tamningunum, og hér er Páll aö moka frá folunum i öðru hesthúsinu. að vilji graðhesta í tamningu gefur alls ekki rétta mynd af hestunum. Oft er eins og viljann skorti framan af, en seinna getur svo komið fram nægur vilji, og eins eru dæmi þess að úr stóðhesti, sem talið væri að skorti vilja, verði bráðviljugur reið- hestur eftir vönun. í þessu efni förum við því að öllu með gát..“ Tamdir á 4. og 5. vetri Þegar á fyrsta vetri er lítilshátt- ar farið að venja folöldin við umgengni við manninn, og jafn vel lagt við folana nokkrum sinnum, en hin eiginlega tamning hefst ekki fyrr en þeir eru á 4. og 5. vetri. í vetur voru 24 stóðhestar á járnum hjá stöðinni, og vinna tamninga- mennirnir að þjálfun þeirra jöfnum höndum. Fjöldans vegna er varla unnt að koma á bak þeim öllum daglega, en einhverja hreyfingu fá þeir þó alla daga. Að tamningunni lokinni er síðan tekin ákvörðun um framtíð hvers og eins hests, þó í flestum eða nær öllum tilvikum hafi þeir áður farið í gegnum hreinsunareld á stöðinni. Framtíðin ein getur endanlega skorið úr um hvort þeir verða taldir hæfir til undaneldis, en reynt er að fá fyrstu reynslu á hestana sem fyrst með því að nota þá til undaneldis þegar á þriðja ári. — Folarnir eru flestir leigðir út á sumrin, og í sumar er til dæmis búið að koma því sem næst öllum hestunum 50 til bænda og hrossa- ræktarsambanda víða um land. Sérstakar reglur gilda um leigu og flutning, eftir því hvert á land hestarnir fara, og er reynt að sjá svo til að kostnaður verði svipaður fyrir þá aðila er hestana taka á leigu, hvort heldur þeir búa í nágrenni Stóðhestastöðvarinnar eða í fjarlægum landshlutum. Ekki ætlunin að koma upp kynbótabúi Þorkell segir, að ekki standi til að koma upp kynbótabúi á Stóðhesta- stöðinni eða í beinum tengslum við hana, þar sem alin væru upp hross undan hestum stöðvarinnar og sér- staklega völdum hryssum. Þorkell sagðist að vísu hafa séð slík bú erlendis, svo sem í Þýskalandi, og eflaust gætu þau gefið góða raun. Hér á landi hefði hann hins vegar meiri trú á því að Stóðhestastöðin veldi úr fola og miðlaði þeim til hrossaræktarmanna vítt og breitt um landið, en bændurnir sjái síðan sjálfir um uppeldið og framleiðsl- una, bændur og aðrir hestaeigendur á landinu. „Ég er þó opinn fyrir öllum hugmyndum í þessu efni, og vil alls ekki útiloka neitt," sagði Þorkell, „en eins og er held ég að núverandi fyrirkomulag henti okkur best.“ Að sögn Þorkels er feikinóg aðsókn að stöðinni. Á hverju ári hafa verið nægilega margir folar til að velja úr, en þó hefur ekki þurft að vísa mörgum frá vegna þrengsla. Fjöldi folaldanna sem valinn er, er að sjálfsögðu breytilegur ár frá ári, enda koma upp misgóðir einstakl- ingar á einu ári til annars. Óvenju fáir folar voru valdir síðastliðið haust, eða fimm talsins eins og áður greinir. Að sögn Þorkels hefur tilkoma Stóðhestastöðvarinnar heldur orðið til þess að draga úr stóðhestahaldi hestaeigenda heima í héraði, enda oft fyrirhafnarmikið og erfitt að halda stóðhesta innan um önnur hross. Því þykji mörgum gott að geta komið hestum á stöðina til geymslu og tamningar, en margir stóðhestar eru þó í uppeldi hjá mönnum víða um land eins og áður. Þrír starfsmenn við stöðina Nú starfa þrír menn við Stóð- hestastöðina á Litla-Hrauni, þeir Þorkell Þorkelsson frá Laugar- vatni, Páll B. Pálsson úr Reykjavík og Magnús Einarsson frá Gamla- Hrauni við Eyrarbakka. Auk þess sem Þorkell Þorkelsson er tamn- ingamaður við stöðina er hann bústjóri. Á sumrin eru túnin á Litla-Hrauni nýtt til heyskapar, og vinna sömu menn alla jafna við heyskapinn, en túnin gefa næg hey fyrir stöðina og raunar gott betur. Leitað að nýjum stað Eins og fram kom hér að framan eru aðstæður ekki nægilega góðar á Litla-Hrauni fyrir Stóðhestastöð- ina, einkum hvað varðar aðstöðu og aðkomu utan dyra. Innanhúss er á hinn bóginn ekki yfir neinu að kvarta, húsin bæði stór og loftgóð. Rými er þar fyrir um það bil sextíu hesta, og varla við því að búast að þeir verði fleiri alveg á næstunni. En vegna fyrrnefndra galla sagði Þorkell, að nú væru menn mjög alvarlega teknir að svipast um eftir hentugum stað fyrir starfsemina, og kæmu einkum þrír staðir til greina. Norðlendinga sagði hann gjarna vilja fá stöðina norður í land, og væri þá rætt um Hóla í Hjaltadal, sem æskilegan framtíð- arstað. Sunnlendinga sagði Þorkell vilja halda í stöðina, og þar kæmu einkum til álita Torfastaðir í Bisk- upstungum, og Gunnarsholt á Rangárvöllum. Á Torfastöðum, sem er ríkisjörð, hefur ábúandinn boðist til að standa upp af búi sínu fyrir stöðina, gegn því að fá þar vinnu, en í Gunnarsholti er ríkið þegar með ýmsa starfsemi sem kunnugt er. Ekki hefur enn verið tekin ákvörð- un um hvert Stóðhestastöðin flyst, en að því líður nú innan tíðar, sagði Þorkell. Hvert sem Stóðhestastöðin verð- ur flutt, er þess þó að vænta að starfsemin haldi áfram í svipuðu formi, og vonandi að áframhald verði á því merka starfi sem þar hefur verið unnið, hrossaræktinni í landinu til mikils framdráttar. Anders Ilansen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.