Morgunblaðið - 24.05.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 24.05.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ1981 67 í STUTTU MÁLI Iláskólabíó: Konan sem hvarf („The Lady Vanishes“) Konan sem hvarf, er endurgerð einnar af betri myndum meistara Hitchcocks, og er sjálfsagt þeim mest til skemmtunar sem séð hafa frummyndina. (En Hitch gerði hana næst á undan Jamaica Inn, sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni í vetur.) Saman- burðurinn sannar að tíminn þýðir ekki alltaf framfarir. „Hitch“ skipuleggur atriði í myndinni THE LADY VANISHES - (árgerð 1938) (á bls. 132). Anthony Page við leikstjórn THE LADY VANISHES - árgerð 1980. Af frímúrurum og fjöldamorðingjum AUSTURBÆJARBÍÓ: Vændiskvennamorðinginn, („Murdor by Decrce“) Leikstjóri: Bob Clark. Iland- rit: John Ilookins. Lciktjöld: Harry Pottle. Aðalhlutverk: Cristophcr Plummer, James Mason, Donald Sutherland, Genevieve liujold. David Hemmings, Susan Clark. Fyrir nokkrum árum barst mér í hendur bókin _Jack the Ripper: The Final Solution“. Þar kom höfundurinn, Step- hen Knight, með þá tilgátu að morðinginn illræmdi hefði verið handbendi frímúrara í baráttu þeirra við að hvítþvo breska aðalinn af hneyksl- ismáli. Svo virðist sem handrits- höfundur þessarar kvikmynd- ar, hafi einnig komist í téða bók, þrátt fyrir að Knight sé hvergi getið, bætt síðan ein- um skammt af Sherlock Holmes og Watson í súpuna. A þeim tíma sem myndin var framleidd, gekk og laus vændiskvennamorðinginn „The Yorkshire Ripper", þetta óhugnanlega viðurnefni brann á hvers manns vörum í Englandi og vakti skelfingu. Utkoman verður harla ruglingsleg, langdregin og á köflum yfirmáta ósennilegt hnoð, sem í anda á engan myndarinnar. Donald Suth- skyldleika við hinar glæstu kempur Baker-strætis. Þeir Plummer og Mason, sem Holmes og Watson, kom- ast dálaglega frá sínu — einkum Mason, og er samleik- ur þeirra lang-skásti hlutur erland bregður fyrir í hlut- verki miðils, það er tilhlökk- unarefni að fá loks að sjá þennan afbragðs leikara í góðu hlutverki — sem heimil- isfaðirinn i Oscarsverðlauna- myndinni Ordinary People. Leiktjöld og búningar eru dável gerðir og myndin oft sannfærandi hráslagaleg, en yfir höfuð er Vændiskvenna- morðinginn fjarri því að vera sú afbragðsfilma sem henni er bersýnilega ætlað. * . Dansatriði úr rokksöngleiknum THE APPLE, sem Laugarásbió mun sýna í sumar. A næstunni — í Laugarásbíó í sumar mun Laugarásbíó bjóða gestum uppá eftirtald- ar myndir: Nú um helgina hefjast sýningar á Privatc Lessons, með Sylviu Kristel, og verður nánar fjallað um myndina á næstu síðu. Thc Apple, nefnist rokk- söngleikur sem á að gerast á því herrans ári 1994. Myndin hefur því á sér nokkurn vísindasögublæ, en fjallar í rauninni um gamalkunnugt efni — baráttuna á milli góðs og ills. Leikstjóri er Menahem Golan, nafn sem er nátengt kvikmyndagerð ísraels- manna, en meðal mynda hans má nefna Lupo. Operation Thunderbolt og Tevy And IIis Seven Daughters. Tón- listin er eftir Coby Recht, og er að sjálfsögðu flutt í Dolby-stereo. Walter Matthau og Glenda Jackson, það góðkunna par úr fjölmörgum myndum, fara með aðalhlutverkið i Hop- scotch, þriller sem hlotið hefur mjög lofsamlega dóma. Matthau leikur njósnara, einn af þeim bestu, sem CIA ætlar að fara að leggja á hilluna. Hann grípur þá til sinna ráða og hyggst eyði- leggja starfsemi, ekki aðeins CIA, heldur KGB og allra helstu leyniþjónusta á vestur- löndum. Verður þá að sjálf- sögðu hið mesta hafarí og er sagt að þau Matthau og Jackson fari á kostum. Fjöl- margir ágætis skapgerðar- leikarar sjást í minni hlut- verkum, þ.á m. Sam Waters- ton, Ned Beatty, Herbert Lom og Severn Darden. Aðalmynd sumarsins í Laugarásnum verður að öll- um líkindum framhaldið á þeirri vinsælu mynd Smokey And The Bandit, en nefnist á íslensku Reykur og bófi koma aftur. (Smokey And The Bandit Ride Again). Þau Burt Reynolds, Sally Field, Jerry Reed og Paul Williams fara með sömu hlutverk og í fyrri myndinni og nú lætur Jackie Gleason sér ekki nægja hlutverk Smokey gamla, heldur fer með tvö við viðbótar. Hinn seinheppni lögreglustjóri Buford Justice i REYK- UR OG BÓFI KOMA AFTUR. ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í Víbró valtarar Mjög handhagir og auðveldir í notkun ^ Leitið upplýsinga Aveling Barford ERKÚR HE SUNDABOHG 7 - 124 REVKJAVÍK SÍMI: 82530 □ Aveling Barford BAveBng BartordMT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.