Morgunblaðið - 06.06.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDÁGUR 6. JÚNÍ 1981
. HLAÐVARPINN .
VeiíKtcppi hnýtt ok unniö úr leir.
Mar»{o J. Renner við eitt verka
sinna í Akó»{eshúsinu i Vest-
mannaeyjum.
BarnavaKKa sem Margo hefur
hrtýtt.
Ljósm. Mbl. SÍKunceir.
Hnýtingarlist í Vestmannaeyjum
IlnýtinKarlist er kannski nokk-
uð sem ekki heyrist oft ok er ef til
vill nýyrði. en ei»{i að síður er hér
mjoK athyKÍisverð list. Um Ilvita-
sunnuna eða frá 4.-8. júní verður
opin sýnintí í AkÓKeshúsinu i
Vestmannaeyjum á hnýtinKarlist-
munum.
Þegar ég leit við í sýningarsaln-
um var listakonan að koma verkum
sínum fyrir og eru þar á ferðinni
bæði stór og smá verk. Mörg þau
staerstu eru mikil handavinna, allt
upp í 3 metra löng, eða frá lefti og
niður í gólf. Um 50 verk verða á
sýningunni, sem að mestu er unnin
úr nylongarni, bómull og fleiri
efnum. Kinnig eru nokkrir gler-
munir og leirmunir á sýningunni.
Um 20 verk eru að einhverju
leyti pottahengi og varð Margo, en
svo heitir listakonan, að rækta upp
blóm sem verða í verkum hennar á
sýningunni. Einnig eru ýmis stór-
verk, eins og barnavagga, teppi,
Ijósahengi, veggklukka, hengi fyrir
fiskabúr og margt fleira.
Margo J. Rennar heldur sína
fyrstu sýningu á verkum sínum
sem hún hefur unnið að á síðustu
árum. Margo er Ameríkani. Kom
fyrst til íslands sem skiptinemi
1971, en 1973 flutti hún hingað og
hefur verið hér síðan. Fljótlega
eftir að hún kom hingað fór hún að
vinna að ýmsu á þessu sviði, en hún
lærði handmennt og glerblástur í
háskóla í heimaborg sinni, sem er
útborg Milwaukee, en einnig var
hún í einkanámi við glerblástur og
fieira. Aðspurð sagðist hana langa
til að vinna við glerblásturinn, en
henni hefði ekki gefist tími til þess
þó hún eigi öil tæki til þess.
Kannski næsta sumar ogþájafnvel
úti á góðviðrisdögum niður á torgi.
Margo hefur kennt hnýtingar og
fleira í námsflokkunum hér, auk
þess að standa fyrir námskeiðum í
hnýtingarlist.
Þessi listgrein er verulega í sókn,
bæði í Reykjavík og úti á landi, en
hún sagðist halda að þetta væri
fyrsta einkasýningin sinnar teg-
undar hér á landi. Nær öll verkin
eru teiknuð, útfærð og hönnuð af
henni sjálfri.
Hnýtingarlist er gömul listgrein,
a.m.k. frá miðöldum, en þá var nú
efnið annað sem notað var, hamp-
ur, hrosshár og fleira. Þá voru
unnin margskonar höfuðskraut á
konur, sennilega hefur þessi, eða
lík list, borist til Bandaríkjanna
með Spánverjum.
— Sigurgeir
og
_ ____ m
í þann mund sem íólk var aft lesa um það frétt í blöðum að
meirihlutinn hefði með samþykkt í fræðsluráði ákveðið að
loggja niður meðferðarheimilið fyrir taugaveikluð börn á
Kleifarvegi, eina heimilið sem rekið er af Reykjavíkurborg
fyrir börn sem eiga við slíka erfiðleika að striða, þá tóku
ýmsir upp boðskort um að koma í Höfða í móttöku vegna
ráðstefnu um skipulag á geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn
og unglinga, sem haldin er í Reykjavík. En ein aðalrök
þeirra sem leggja vilja heimilið fyrir taugaveikluð börn
niður eru þau, að viðkomandi ráðuneyti, menntamálaráðu-
neytið, vilji ekki lengur leggja íram sinn skerf, og báðum
aðilum þykir reksturinn á meðferðarheimili of dýr fyrir
borgarsjiið og ríkissjóð. Þótti sumum þetta dálítið skondið.
Siggi Steindórs opnar verslun
Annar ekki eftirspurn
„Ég hef verið með Orobronze á
markaði í þrjár vikur og eftir-
spurn er gífurleg. Raunar anna ég
henni ekki frekar en Frakkar, sem
hafa framleitt efnið frá 1977.
Hvarvetna hefur eftirspurn verið
meiri en framboð og mér er sagt,
að Orobronze sé nú helsta smygl-
varan frá Kanada til Bandaríkj-
anna,“ sagði Sigurbjörn Friðriks-
son í samtali við blaðamann í
vikunni en hann flytur inn efnið
Orobronze. Litarefni þetta hefur
vakið mikla athygli og farið eins
og eldur um sinu víðs vegar um
heim. Fólk borðar pillu og verður
brúnt; svo einfalt er það.
En er það ekki hættulegt? „Nei,
það er algjörlega skaðlaust. I
Orobronze er karotin, litarefni úr
náttúrunni en það finnst aðaliega
í gulrótum en er tilbúið, „synthetic
canthaxanthin". Þannig að það
framleiðir ekki A-vítamín í líkam-
anum eins og gulrætur. Því er það
algjörlega skaðlaust og veldur
engu ofnæmi.
Samkvæmt bréfi sem ég hef hér
frá yfirlækni húðsjúkdómadeildar
Landspítalans og eiturefnanefnd,
þá er Orobronze algjörlega skað-
laust og er ekki þekktur ofnæmis-
valdur.
En gæta skal sömu varkárni í
sólböðum og um eðlilegan húðlit
sé að ræða. Litarefni fer aðeins í
fituvefi likamans og því litar það
ekki neglur augnhvítu né hár. Og
það er ágætt að taka Orobronze
með sólböðum og sólarlömpum svo
og einnig sólarlandaferðum til að
auka brúnkuna.
Með Orobronze eins og öðrum
efnum eru hættumörk. Og hættu-
mörk Orobronze eru 20 þúsund
hylki í einu, en dagskammturinn
er eitt hylki. Það segir sig sjálft,
að að taka 20 þúsund hylki er
hverjum manni ofraun og undir-
strikar það skaðleysi Orobronze,"
sagði Sigurbjörn Friðriksson.
Þú ert nú ekki mikill herramað-
ur! Nei, en þú ert nú heldur
ekki Ijóshærð...
SIGUROUR Steindórsson stofnaöi
fyrir skömmu nýja verzlun í Kefla-
vík, Sportvörubúöina. Þar hefur
hann á boöstólum Hummel-vörur,
æfingabúninga, trimmgalla, regn-
galla, fótbolta og fótboltaskó.
Einnig innanhússíþróttavörur
ýmsar almennar sportvörur.
og
Siguróur Steindórsson var áður
snjall íþróttamaöur og síöustu árin
starfaöi hann ötullega aö knatt-
spyrnumálum í Keflavík en dró sig
í hlé síöastliöiö haust. „Nú eru
komnir ungir og frískir strákar til
aö annast þessi mál,“ sagöi Sig-
uröur í stuttu spjalli vió blaða-
mann.
Hjólmundur:]
Hjólmundur eða Uenato tíertoli hjá nokkrum þeirra hjóla sem hann
leigir m.a. íslendingum í Lignano. Ljósm. RMN.
Leigir íslending-
um hjól á Ítalíu
Hjólmund eða Hjóla, kannast flestir þeir tslendingar við sem gist
hafa Gullnu strönd Lignano. Hjólmundur heitir i raun Renato Bertoli
og hefur hjólaleigu í byggingu þeirri sem farþegar Útsýnar búa i á
Lignano og hafa þeir gefið honum viðurnefnið.
Ef hann er spurður hvort hann kunni islensku svarar hann „tíara
litið.“ Hann getur lika komið þvi til skila á íslensku að viðskiptavin-
irnir eigi að „borga strax“.
Renato hefur aldrei komið til íslands en segist eiga þar marga vini
og það sýna líka glöggt mörg póstkort frá íslandi sem ánægðir
viðskiptavinir hafa sent honum.